Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 20
20
FJÁRÖFLUN:
Hlutaveltur, mini-
flóamarkaður, bingó
MÝMÖRG fclög, scm starfa að
marKvíslcjfum þjóðþrifamálum,
byKKja verulcKan hluta starfscmi
sinnar á fjármajfni, scm unnið cr
til mcð hlutavcltum og fleiri
fjáröflunartiltækjum. sem mcnn
finna upp á. Ilér fara á eftir
upplýsinxar um nokkra slíka
viðburði er fram fara í Rcykjavík
í d;uí og á morj'un:
FclaK cinstæðra íorcldra:
Klukkan 14 hefst í Skeljanesi 6,
til starfsemi félaganna þar efra og
mun ýmislegt góðgæti verða þar í
boði.
Sjónvarpskynning Risör-fara
Annað tiltæki verður í Breið-
holtinu og nú á sunnudag kl. 14.
Eru þar 50 ungmenni að verki,
Risör-farar úr Hólabrekkuskóla,
en þau hyggjast afla fjár til ferðar
á mót Risör í Noregi í ágúst. Hefst
hjá þeim bingó og kökusala kl. 14 í
Hólabrekkuskóla og kl. 15:30 verð-
Ilús Fólags cinstæðra forcldra í Skcljanesi, cn nú er viðgerð þess
næstum fulllokið, húið að taka niður vinnupalla og verður brátt flutt
inn í það, en i dag heldur fólagið miniflóamarkað og hlutaveltu til
fjáröflunar.
hinu nýja húsi félagsins, sem senn
á að taka í notkun, hlutavelta,
kökubasar og mini-flóamarkaður
og verður þarna að finna fjöl-
marga gripi og má vekja athygli á
þeirri nýjung kökubasarsins að
þar verða einnig í bóði pizzur.
KFUM og K í Breiðholtí
í félagsheimili sínu við Maríu-
bakka efna félögin til basars kl. 14
í dag. Er honum ætlað að afla fjár
ur kveikt á nokkrum sjónvarps-
tækjum frá Sjónvarpsmiðstöðinni.
Bazar þroskaþjáifaskólans
Þriðja árs nemendur Þroska-
þjálfaskóla íslands efna í dag og á
morgun til kökubazars í Blómavali
í Sigtúni. Hefst hann kl. 14 báða
daga og verða heimabakaðar kök-
ur á boðstólum, en ágóðanum skal
verja til styrktar námsferð nem-
enda í vor.
TÓNLIST:
Ernst Kovacic
Tónleikar
í Norrœna
húsinu
Georg Iladjinikos
AUSTURRÍSKI fiðluleikarinn
Ernst Kovacic heldur á morgun
kl. 17 tónleika í Norræna húsinu
og verða flutt verk fyrir sólófiðlu
eftir Telcmann, Ysaye, Bach og
fleiri.
Ernst Kovacic lék á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Islands á
fimmtudagskvöld, en hann hefur
leikið í flestum löndum Evrópu og
Mið Austurlöndum og hefur unnið
til margra verðlauna í alþjóðleg-
um tónlistarkeppnum.
Þá verða aðrir tónleikar í Nor-
ræna húsinu á morgun og hefjast
þeir kl. 20:30. Þar kemur fram
grískur píanóleikari og hljóm-
sveitarstjóri, Georg Hadjinikos. Á
efnisskrá eru verk eftir Schubert,
Brahms, Nikos Skalkottas og
Beethoven. Georg Hadjinikos hef-
ur ferðast víða um heim og komið
fram með mörgum þekktustu
hljómsveitum Evrópu, en hingað
til lands kemur hann á vegum
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar og heldur námskeið á
vegum skólans.
Gylfi Ægisson verður með málverkasýningu um helgina og fram í næstu viku í Nautinu í Keflavík og
opnar eftir páska sýningu i Grindavik, en þess á milli semur hann lög af miklu kappi eins og
landsmcnn þekkja margir. Ljósm. Rax.
KELFAVÍK:
Gylfi Ægisson
sýnir í Nautinu
GYLFI Ægisson opnar í dag
málverkasýningu í veitingahús-
inu Nautinu í Keflavík og
verður hún opin fram í næstu
viku. Gylfi sýnir þan.a myndir
málaðar á járnlok og nokkrar i
hefðbundum stíl, en þetta eru
allt akrylmyndir. Eftir páskana
mun Gylfi síðan sýna í Sjó-
mannahcimilinu i Grindavik.
—Þessar myndir eru allar
málaðar á síðustu vikum og hef
ég unnið fram á nætur nú
síðustu dagana til að ljúka
undirbúningi sýningarinnar,
sagði Gylfi í spjalli við Mbl.
—Ég hóf fyrst að mála fyrir
nokkrum mánuðum eftir að ég
var laus við vínið, en ég fer ekki
ofan af því að þar var um
kraftaverk að ræða. Það hittist
svo á að ég ræddi við gamlan
prest, Sigurjón Þ. Árnason, sem
reyndar var þá helsjúkur og dó
nokkru seinna, og hann bað fyrir
mér og veit ég að það varð til
þess að mér tókst að snúa mér
frá víninu. Hef ég ekki smakkað
það síðan og aðallega fengist við
að mála og semja lög. Eg hef
alltaf átt mína trú og er ég viss
um að þarna var um kraftaverk
að ræða, en ég hef ekki starfað í
neinum söfnuðum heldur hef
mína trú fyrir mig.
Gylfi nefndi að í Nautinu
verða leikin lög hans dagana
sem sýningin stendur yfir, en um
miðjan apríl kemur út ný plata.
Kvaðst hann þá eiga kringum 70
lög á plötu og í fórum sínum á
hann nú efni á plötu sem hann
hyggst koma á markað í haust,
barnasöngleiki. Gylfi kvaðst
ætla að halda áfram að mála,
ekki sízt ef sýningar þessar
ganga vel, en myndirnar eru
allar til sölu.
KÓPAVOGUR:
Frásögur og ferðakynning
VORVAKA Norræna félagsins í
Kópavogi verður að þessu sinni á
morgun, sunnudag 30. marz kl.
20:30 I Þinghóli. Samkór Kópa-
vogs æfir nú fyrir vinabæjarferð
til Norðurlanda í júní og syngur
hann á morgun undir stjórn
Kristinar Jóhannesdóttur.
Þá sýnir Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri litskvggnur úr
Færeyjaferð og Finnbogi Guð-
mundsson landsbókavörður fjallar
um fyrirhugaða ferð til Norður—
Skotlands, Hjaltlands, Orkneyja
og Færeyja um miðjan júní í
sumar. Auk þess verða kynntar
Færeyjaferðir Norræna félagsins.
Áður en vorvakan hefst verður
haldinn aðalfundur Norræna fé-
lagsins í Kópavogi og hefst hann
kl. 20.
Finnbogi Guðmundsson
Sigurður Blöndal
KVIKMYNDIR:
Sýningar Germaníu og kvikmyndahátíðar
FÉLAGIÐ Germanía efnir til
kvikmyndasýningar i dag, laug-
ardag, í Nýja bíói. Verður þá
sýnd mynd með lögregluforingj-
anum Trimmel úr myndaflokkn-
um „Der Tatort“, sem er svipaður
myndaflokknum „Der Kommiss-
ar“, sem þekktur er úr sjónvarp-
inu hér. Myndin heitir „Platzver-
weis fur Trimmel“.
Þá má minna á íslenzku kvik-
myndahátíðina, sem nú fer fram í
Regnboganum, en í dag verða
sýndar eftirtaldar myndir: Klukk-
an 15:10 Bakkabræður eftir Óskar
Gíslason, kl. 17:10 Gilitrutt eftir
Ásgeir Long, kl. 19:10 Síðasti
bærinn í dalnum eftir Óskar
Gíslason og kl. 21:10 verða Bakka-
bræður endurteknir, en kl. 23:10 er
síðasta sýning dagsins: Ágirnd,
eftir Óskar Gíslason og Olafur
liljurós eftir Rósku.