Morgunblaðið - 29.03.1980, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
MORö-JK/
kawnu
Maðurinn minn er ansi hand-
laginn!
Ég sannreyni alltaf með vasa-
tölvunni minni!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
í iok Stórmóts Bridgeféiags
Reykjavíkur kvaðst annar sigur-
vegaranna, Steen Möller, vera
hissa á því, að af þeim 35 pörum,
sem þeir spiluðu við í mótinu
voru aðeins 2, sem notuðu eðli-
legt sagnkerfi eins og hann tók
til orða. Og að auki mátti ráða af
orðum hans, að hann teldi jafnvel
eitthvað vera að þegar svo fjöl-
mennur hópur veldi fremur. að
nota sagnaðferðir, þar sem sögn i
lit þýddi allt annað en þann lit,
sem sagður væri. Auðvitað kæmi
fyrir, að gagn væri að siíkum
aðferðum en hitt væri mun al-
gengara, að erfiðleikarnir, sem
af hlytust yrðu mönnum ofviða.
Spilið í dag kom fyrir í Stórmót-
inu og er aðeins örlítið dæmi um
hugsunarháttinn, sem verður af-
leiðing notkunar gerfisagnanna.
Suður gaf, allir á hættu.
Vestur
S. ÁK2
H. 85
T. G965
L. KD62
Norður ouður
S. 97
H. Á64
T. 1032
L. Á10753
S. 10653
H. KDG92
T. 4
L.984
Austur
S. DG84
H.1073
T. ÁKD87
L. G
Þegar sagnirnar sögðu frá sögð-
um litum gengu þær oft þannig:
Suður — pass, vestur — 1 tígull,
norður — pass, austur — 1 spaði
og vestur var ekki í vafa um, að
styðja bæri lit makkers og loka-
sögnin varð fjórir spaðar.
Eflaust hefur austur verið
ánægður með samninginn en vinn-
ingurinn gaf ekki nema meðal-
skor. í stöku tilfellum fannst
vörnin, að taka tvo slagi á hjarta
og skipta síðan í tígul, sem þýddi
tapað spil.
En þeir voru líka nokkrir, sem
spiluðu 3 grönd í vestur. Ástæðan
var, að vestur opnaði á 1 tígli, sem
gat þýtt næstum hvað sem var og
sagði síðan eitt grand eftir spað-
asvarið. Það var sem sé orðið
mikilvægara að segja frá jafnri
skiptingu en svo góðum stuðningi.
Fleira gat búið undir en slagirnir
urðu 10 og skorin góð, þegar
norður spilaði út í laufinu —
eðlilega.
COSPER
Viljið þér þá senda eftir farangrinum mínum hingað
upp og koma honum út á flugvöll?
Veður
Akureyri 2 rigning
Amsterdam 11 rigning
Aþena 20 skýjaö
Barcelona 23 léttskýjaö
Berlín 15 skýjaö
BrUssel 10 rigning
Chicago 10 rigning
Denpasar 32 skýjaö
Dublin 9 heiðríkt
Feneyjar 10 þoka
Frankfurt 13 rigning
Gent 11 skýjað
Helsinki 4 skýjaö
Hong Kong 21 skýjaö
Jerúsalem 10 skýjaö
Jóhannesarborg 25 heiöríkt
Kaupmannahöfn 2 skýjaö
Las Palmas 24 skýjaö
Lissabon 18 rigning
London 13 heiöríkt
Los Angeles 20 heiðríkt
Madríd 14 skýjað
Malaga 24 skýjaö
Mallorca 22 léttskýjaö
Montreal 10 skýjaö
Moskva -3 heiöríkt
Nýja Delhi 30 bjart
New York 8 bjart
Ósló 2 snjókoma
París 16 skýjaö
Beykjavík 5 léttskýjaö
Rio de Janeiro 39 heiörlkt
Rómaborg 16 bjart
San Francisco 15 bjart
Stokkhólmur 0 skýjað
Sydney 28 heiðríkt
Opið hús
í Neskirkju
STARF aldraðra í Neskirkju verður
með „opið hús“ í dag, laugardag
milli kl. 3—5. Þetta er síðasti
laugardagurinn. Öestir koma í
heimsókn, trúboðarnir Katrín Guð-
laugsdóttir og Gísli Arnkelsson. Að
lokum verður veizlukaffi borið fram.
Fjölmennur fundur
í Grundarfirði
Grundarfirði, 26. mars 1980.
FYRIR nokkrum dögum síðan kom
Friðjón Þórðarson dómsmálaráð-
herra hingað vestur og hélt fund í
félagi sjálfstæðismanna á staðnum.
Mjög margt fólk kom á fundinn, og
allir sem til máls tóku lýstu einhuga
stuðningi við ráðherrann og þá
ríkisstjórn sem hann á sæti í.
— Emil.
Leiðrétting
I Mbl. á fimmtudag í frétt um
hugsanlegan samruna eða samvinnu
tveggja af stærstu fyrirtækjum í
Siglufirði sagði, að Þormóður
rammi væri að hluta í eigu Fram-
kvæmdasjóðs. Hið rétta er að fyrir-
tækið er að 62% í eigu ríkissjóðs og
er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
Askorun til Sverr-
is Runólfssonar
„Eftir að hafa lasið ritið Val-
frelsi, sem fæst hjá Eymundson og
skoðað gaumgæfilega tillögur
Sverris Runólfssonar um breytta
stjórnarhætti, sem byggjast mest
á að hinir almennu kjósendur fái
meiri áhrif á afgreiðslu mikil-
vægra mála með þjóðaratkvæða-
greiðslum og málefnakosningum
innan kjördæma og sveitarfélaga
er ég algjörlega sammála Sverri,
að hægt sé að gera ísland að
hlutfallslega fjárhagslega
sterkasta landi í heimi.
Það er of langt mál að útskýra
tillögur Valfrelsis hér og ráðlegg
ég sem flestum að athuga þær. Við
Sverrir höfum rætt þjóðmál
Islands mjög ítarlega og þess
vegna, eins og ég veit að hefur
komið frá öðrum, skora ég á hann
að gefa kost á sér til forsetakjörs.
Að mínu áliti yrði gaman og
auðvelt að eiga heima á íslandi, ef
hugmyndir hans um almenn þjóð-
aratkvæði, persónubundnar kosn-
ingar, staðgreiðslu skatta, fiski-
rækt, lífeyrissjóð allra lands-
manna, betri vegi og margt margt
fleira, kæmust í höfn.
Stuðningsmaður Sverris Run.
• Sannleikurinn
gerir yður
frjálsa
Ég ætla að vona, að sjón-
varpsþátturinn um hástéttarkon-
una, sem var sendiherra Stalins í
Svíþjóð og vann svo vel fyrir
kaupinu sínu, að hún fékk að deyja
1973 — Síðustu bandarísku her-
mennirnir fara frá Víetnam og
beinni hernaðaríhlutun Bandaríkj-
amanna lýkur.
1971 — Bandaríski liðsforinginn
William Calley fundinn sekur um
fjöldamorðin í My Lai.
1970 — Um 1000 fórust í jarð-
skjálfta í Tyrklandi
1967 — Fyrsta kjarnorkukafbát
Frakka hleypt af stokkunum.
1961 — Landráðaréttarhöldunum í
Suður-Afríku lýkur.
1951 — Bandaríkjamcnn ljúka við
gerð friðarsamnings við Japani.
1948 — Chiang Kai-Sjek fær al-
ræðisvald í Kína.
1946 — Gullströndin fær stjórn-
arskrá og meirihlutastjórn blökk-
umanna fær völdin í brezkri ný-
lendu í fyrsta sinn.
1939 — Borgarastríðinu á Spáni
lýkur.
1867 — Kanada verður samveld-
isríki.
1864 — Bretar láta íónaeyjar af
hendi við Grikki.
1849 — Bretar innlima Punjab,
Indlandi.
1801 — Hald lagt á brezk skip í
dönskum höfnum — Danskur her
tekur Hamborg og reynir að ná
yfirráðum yfir Saxelfi — Bretar
taka danskar og sænskar eyjar í
Vestur-Indíum.
1673 — Kaþólskum meinað að
gegna embættum í Bretlandi
1461 — Orrustan um Towton.
Aímæli. Nicolas Soult, franskur
hermaður (1769-1851) - John
Tyler, bandarískur forseti (1790—
1862) — Sir Bartle Frere, enskur
nýlenduvaldhafi (1815—1884) —
William Walton, brezkt tónskáld
(1902----) — Pearl Bailey, banda-
rísk söngkona (1918---).
Andlát. 1772 Emmanuel Sweden-
borg, vísindamaður — 1792 Gústaf
III Svíakonungur — 1957 Joyce
Carey, rithöfundur.
Innlent. 1947 Heklugos hefst —
1787 d. Jón konferenzráð Eiríksson
— 1875 Dyngjufjallagos — 1892
Reimleikar valda flótta úr búðum
verkamanna á Stokkseyri — 1958
Fjórir stúdentar fórust í flugslysi á
leið til Akureyrar — 1955 d. ^inar
Amórsson ráðherra.
Orð dagsins. Það þarf enga smá-
ræðis hæfileika til að vera hund-
leiðinlegur — Walter Scott, skozk-
ur rithðfundur (1781-1832).