Morgunblaðið - 29.03.1980, Side 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
PIERPOflT
OUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiöum.
Rikisstjórnin telur tekjuskattinn of lágan:
Eim vofir yíir hækk-
un á skattstiganum
Einstök veðurblíða hefur ver-
ið á Suðurlandi undanfarna
daga, logn og hiti. Menn hafa
að vonum kunnað að meta
veðrið og notað hvert tæki-
færi sem gefst til útiveru. í
gær var kennt úti í Verzlun-
arskólanum og var þessi
mynd tekin í einni kennslu-
stundinni.
Ljósm. Valgeir Guðbjartsson.
Fjórir kostir í athugun
KOMIÐ hefur í Ijús, að reiknað hefur verið með of háu hlutfalli hjóna með
10% frádrátt frá skatti, scm hefur það í för með sér að heildartekjur
ríkissjóðs af trkjuskatti einstaklinga er 2 milljörðum króna lægri, en
ríkisstjórnin hafði ráð fyrir gert. Gert hafði verið ráð fyrir að ríkisvaldið
fengi 45 milljarða króna. en vegna þcssarar skekkju í forriti skýrsluvéla,
skilar tekjuskatturinn ekki nema 43 milljörðum króna. Fjárlagafrumvarp-
ið gcrir ráð fyrir 43'/j milljarði, cn
mæta hugsanlegri skekkju.
Á fundi fjárhags- og viðskipta-
nefnda Alþingis i fyrradag, kynnti
ríkisstjórnin fjórar nýjar hugmynd-
ir að skattstigum, en sá skattstigi,
sem lagður hafði verið fram í
þinginu var 20% af fyrstu 3 milljón-
unum, 35% af næstu þremur og 50%
af skattgjaldstekjum umfram 6
milljónir. Persónuafsláttur var 440
þúsund krónur.
Hinar nýju tillögur eru fjórar
allar með mismunandi persónuaf-
slætti, eftir því, hvort lægsta skatt-
þrep er 20% eða 25%. Þessar tillögur
eru svohljóðandi:
• Af fyrstu 3 milljónunum 20%;
af tekjum milli 3ja og 4ra milljóna
30%; af tekjum milli 4ra og 6,5
milljóna 40% og af tekjum umfram
6,5 milljónir 50%. í þessu dæmi er
gert ráð fyrir 425 þúsund króna
persónuafslætti á einstakling.
• Af fyrstu 3 milljónunum 20%;
af tekjum á bilinu 3 til 5,5 milljónir
35%; af tekjum á bilinu 5,5 til 7
V/z milljarður átti að vcra til þess að
milljónir 45% og af tekum umfram 7
milljónir 50%. I þessu dæmi er gert
ráð fyrir 430 þúsund króna persónu-
afslætti einstaklings.
• Af fyrstu 3 milljónunum 25%;
af næstu 3 milljónunum 35% og af
tekjum umfram 6 milljónir 50%. I
þessu dæmi er persónuafsláttur ein-
staklings 545 þúsund krónur.
• Af fyrstu 3 milljónunum 25%;
af tekjum á bilinu 3 til 5,5 milljónir
35%; af tekjum á bilinu 5,5 til 7
milljóna króna 45%' og af tekjum
umfram 7 milljónir 50%. I þessu
dæmi er persónuafsláttur einstakl-
ings 545 þúsund krónur.
Ofangreind skekkja, að skattstig-
arnir, sem lagðir hafa verið fram á
Aiþingi gefi ekki nema 43 milljarða,
en nauðsynlegt sé að ná 45 milljörð-
um, nemur því 2 milljörðum króna.
Breytingarnar frá framlögðum
skattstiga þýða því um 5% skatta-
hækkun.
Pétur Ottesen og Björn Aðalsteinsson, sem báðir starfa á olíusvæðinu i
Norðursjónum. Pétur átti i gær að halda út á Ekofisk-svæðið, þar sem
íbúðarpallurinn Henrik Ibsen átti að leysa Alexander Kielland af, en
vegna óhapps var Ibsen snúið við. (Ljósm. Vikan).
Þarna áttu mörg fyrirtæki
starfsmenn og það er fyrst núna
síðdegis að einhver mynd er að
koma á hversu margir voru um
borð og hverjir. Samkvæmt
mínum útreikningum og alman-
akinu áttu að vera þarna þrír
Islendingar, en það getur hafa
breytzt og svo sannarlega vona ég
það.
Nú hugsa ég um það eitt að
komast sem fyrst héðan frá
Stafangri og helzt út á pall eða að
minnsta kosti eitthvað til að
vinna. Ég má ekki hugsa til þess
að vera hérna í Stafangri þegar
komið verður með lík allra mann-
anna, sem þarna hafa trúlega
farist, því ég hef ekki trú á að
fleiri finnist á lífi.
Það eru margar sögur, sem
ganga um það hvað þarna hafi
gerzt, en ég hef litla trú á að þær
séu réttar þessar opinberu skýr-
ingar, sem komið hafa fram í
útvarpi og sjónvarpi í dag. Þessir
„Get ekki hugsað um alla
vinina, sem pama voru“
— segir Björn Aðalsteinsson, sem
starfað hefur á borpöllum í tvö ár
„ÞAð FYRSTA, sem ég hugsaði þegar þessi frétt um að
íbúðarpalli hefði hvolft, var, að þetta væri nú einhver
meiri háttar vitleysa,“ sagði Björn Aðalsteinsson í
Stafangri í samtali við Morgunblaðið í gær, en Björn
hefur starfað við borpallana í Norðursjónum í um tvö
ár. „Við gerum okkur grein fyrir því, við sem störfum
við þetta, að í starfinu eru margar hættur, en þetta er
nokkuð, sem hreinlega getur ekki gerzt. Ég trúi þessu
ekki ennþá.“ „Ég get ekki hugsað um alla vinina og
kunningjana, sem þarna voru, og kannski voru þarna
fleiri Islendingar en Herbert vinur minn. Það veit
enginn á þessari stundu. Allar skrár um þá, sem voru
um borð í þessu fljótandi hóteli, fóru niður þegar
pallurinn snerist.
pallar eiga að vera þeir öruggustu
sem til eru og þó ein flotsúlan
gefi sig á pallurinn að vera jafn
stöðugur eftir. Okkur hafði aldrei
dottið í hug að nokkuð svona gæti
gerzt, þetta var kannski eitt af
því fáa, sem var alveg útilokað að
gæti gerzt. Það eina sem mér
kemur í hug, að hafi gerzt er að
sprenging hafi orðið í lager, þar
sem m.a. voru geymd gashylki.
við það hafi súlan gefið sig, en
bágt á ég með að trúa að þessi
skýring dugi ein sér. Ég neita því
ekki að mér hefur dottið í hug að
þarna hafi skemmdarverk verið
unnið og það er sama við hvern er
talað af þeim, sem þarna hafa
unnið, við skiljum þetta ekki,“
sagði Björn Áðalsteinsson að
lokum.
Hækkar fisk-
verð um 4% ?
STÖÐUGIR fundir hafa verið í
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins og mun nú styttast i að
fiskverðsákvörðun sjái dagsins
ljós. Líkur bentu til þess i gær að
fiskverð yrði ákveðið með atkvæð-
um fiskvinnslunnar og odda-
manns og að hækkunin yrði 4%.
Þessari ákvörðun fylgja stjórn-
valdsákvarðanir til þess að fisk-
verðið geti tekið gildi, þar á meðal
gengisbreyting.
Vegna þessara mála mun ríkis-
stjórnin koma saman til fundar í
dag, en vandamál fiskvinnslunnar
og fiskverðsákvörðun voru til um-
ræðu á ríkisstjórnarfundi í gær.
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ríkisstjórn-
in yrði jafnvel að koma saman til
fundar á morgun, sunnudag, vegna
þessara mála.
8 ára fangelsi
fyrir manndráp
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær tvo
menn, Guðmund Antonsson og
Grétar Þórarin Vilhjálmsson, í 8
ára fangelsi hvorn en þeir urðu
Hrafni Jónssyni að bana i fanga-
geymslum Lögreglustöðvarinnar i
Reykjavik að kvöldi 19. júlí 1977.
Sakadómur Reykjavíkur dæmdi
mennina ekki til fangelsisvistar
heldur til þess að sæta öryggisgæzlu
á viðeigandi stofnun sbr. 16. grein
hegningarlaganna. Hæstiréttur taldi
mennina sakhæfa en dæmdi þá ekki
með tilliti til 211. greinar hegn-
ingarlaganna, sem fjallar um
manndráp af ásetningi heldur með
tilliti til 215. greinar, sem fjallar um
manndráp af gáleysi og 218. greinar,
sem fjallar um vísvitandi árás.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Björn Sveinbjörnsson,
Logi Einarsson, Ármann Snævarr og
Sigurgeir Jónsson. Þór Vilhjálmsson
skilaði sératkvæði og taldi að dæma
bæri Guðmund Antonsson til þess að
sæta öryggisgæzlu.