Morgunblaðið - 10.08.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1980 5
Gítartónleikar
WIM Hoogewerf ungur gítar-
leikari frá Hollandi hélt tón-
leika í Norræna húsinu um
miðja vikuna og flutti nútíma
tónlist. Af þeim höfundum
sem þekktir eru fyrir afrek á
sviði tónsmíði og flutt var eftir
á þessum tónleikum, má nefna
Villa-Lobos, Frank Martin,
Manuel Ponce og Lennox
Brekeley. Aðrir höfundar eru
ef til vill þekktir í hópi þeirra
er sérstaklega leggja sig eftir
gítartónlist. Æskilegt er að
ungum höfundum sé gerð skil í
efnisskrá, sem auk þess að
vera fræðandi, hefur töluvert
að segja fyrir hlustandann,
varðandi stöðu verksins og
markmið tónskáldsins. Það er
engum vafa undirorpið að
Wim Hoogewerf er þegar
nokkuð sleipur gítarleikari en
virðist þó ekki vera búinn að
móta sér eigin leið, nema helst
í nútímalegustu gerð tónlistar,
enda ekki von því aðeins fáir
mánuðir eru liðnir síðan hann
lauk einleikaraprófi. Síðasta
verkið á efnisskránni var nýtt
verk eftir Jónas Tómasson.
Einleikarinn sagði lítillega frá
gerð verksins, sem hann hvað
vera í sónötuformi (einn þátt-
ur) en lauslega útfærðu, þar
sem einleikara væri ætlað að
tónfylla verkið. Slíkar aðferðir
minna einna helst á þegar gert
er uppkast að verki og er
tónfylling slíkra verka ekki
síður hinn endanlegi smíða-
svipur verksins, en gerð grind-
arinnar. Þessi aðferð í tón-
smíði er ekki ný, heldur var
hún hluti af „rútínu" manna
fram undir 1800 og eru til
fjöldi verka frá þessum tíma,
sem ekki er mögulegt að flytja
nema samin sé ný tónlist í
eyðurnar. Tæplega er hægt að
tala um óskertan hlut höfunda
og hafa þeir, sem reynt hafa að
fylla út í eyðurnar ýmist verið
skammaðir fyrir hugmynda-
leysi, eða stílbrenglun og aldr-
ei talið að þeim hafi tekist að
nálgast gæði þess sem til er af
tónverkinu. Áð búa til verk
sem flytjandinn á að tónfylla,
er í rauninni það sama og að
láta aðra vinna fyrir sig.
Mætti allt eins stofna verk-
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
stæði, í líkingu við Hollensku
málaraverkstæðin fyrr á öld-
um og framleiða tónverk með
svona grindarútfyllingu, þar
sem velja mætti um stíl og
gerð eftir þörfum.
Jón Ásgeirsson.
Jón Friðgeir
í Bolungavík
byggir ódýrt
Bolungarvik. 8. ágúst.
ÞANN 25. júli síðastliðinn af-
henti Jón Friðgeir Einarsson,
byggingarmeistari, tiu nýjar
íbúðir i fjölbýlishúsi við Stigahlið
i Bolungarvik, sem hann hefur
byggt fyrir eigin reikning.
Ibúðirnar voru afhentar full-
búnar, jafnt að utan sem innan,
nokkru á undan áætlun. Þessar
íbúðir eru seldar á lægra verði en
almennt þekkist. Um er að ræða
fernskonar íbúðir: Tveggja her-
bergja kjallaraíbúðir, sem kosta
15,2 milljónir; tveggja herbergja
íbúðir á 16 milljónir; þriggja
herbergja íbúðir á 18,3 milljónir,
og loks þriggja herbergja enda-
íbúðir á 19,5 milljónir.
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér farseðil til
Rimini - einnar af allra bestu baðströndum Evrópu.
Þetta lága byggingarverð fæst
með ýmiskonar hagræðingu og
notkun nýrra uppsláttarmóta í
steypuvinnu.
Byggingatími hússins er rúmt
ár. Þessar tíu íbúðir, sem nú voru
afhentar eru helmingur fjölbýlis-
hússins og var byggingatími
þeirra rúmt ár. Hinar tíu eru nú
auglýstar til sölu, og er áætlað að
þær verði tilbúnar í lok febrúar á
næsta ári.
Jón Friðgeir Einarsson hefur
um margra ára skeið verið einn
umsvifamesti byggingaverktaki á
Vestfjörðum. Auk þessa fjölbýlis-
húss við Stigahlíð í Bolungarvík,
er nú unnið á hans vegum að
byggingu fjölbýlishúss í Hnífsdal
fyrir ísafjarðarkaupstað, sem
verður afhent á tilskildum tíma
síðar í sumar. Og nýverið var
gengið frá undirritun samnings
milli Jóns Friðgeirs og Isafjarðar-
kaupstaðar um smíði á 11 raðhús-
um í Hnífsdal, sem skila á full-
frágengnum, og hljóðar samning-
urinn uppá 450 milljónir króna. —
Gunnar.
Rimini iðar af lífi og fjöri allan sólarhring-
inn. Maturinn ódýr og afbragðsgóður,
skemmtistaðir og diskótek í sérflokki og
alls staðar krökkt af kátu fólki.
Fjölbreytt aðstaða til íþrótta og útivistar,
spennandi verkefni fyrir börnin og síðast
en ekki síst... frábærar baðstrendur með
spegiltærum sjó og tandurhreinum sandi.
*
ROM — borgin eilífa
Vikulegar skoðunarferðir Rimini-farþega
til Rómar hafa slegið í gegn í sumar.
Tveggja daga ferðir sem aldrei gleymast.
Einnig stórkostlegar skoðunarferðir til
San Marino dvergríkisins, Feneyja, Flórens,
Frassini dropasteinshellanna og víðar.
íbúðir í Porto Verde, Giardino Riccione, Sir og Sole Mar
11 eða 21 dags ferðir á hagstæðu verði. Verulegur barnaafsláttur.
Pantið strax
- nú seljum við allra síðustu sætin.
14. ágúst - uppselt, biðllstl
18. ágúst - 8 ssetl laus
25. ágúst - örfá sæti laus
4. september - uppselt, bi&listl
15. september - uppselt, biblistl
Samvinnuferöir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
Vi'áVsVs*4Vmv»*AVmVJV«WIAm^W/1AM
ew%'