Morgunblaðið - 10.08.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.08.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1980 Á FERÐ UM EYJAFJÖRÐ Texti Hjörtur Gíslason Ijósmyndir Kristinn Ólafason Litið inn hjá Adda á Grenivík „Það er lítið upp úr mér aö hafa núna, ég er í illu skapi og latur eftir árangurslausa laxveiöi í gær," sagði Jóhann Adólf Oddgeirsson, skipstjóri á Grenivík, eöa Addi eins og hann er oftast kallaður, þegar viö hittum hann á heimili sínu á ferð okkar um Eyjafjörð. „Ég er nú ekki mikill sögumaður“ Þaö er nú ekkert við mann, nema aö ég er oröinn gamall. Ég er heldur ekki mikill sögumaöur, þaö er svo margt, sem gerst hefur aö maöur man þetta ekki lengur. Ég er fæddur og uppalinn hér, og líkar vel, fólki líöur yfirleitt vel hér og Irtiö um brottflutninga. Mér hefur aldrei dottiö í hug aö flytja héöan. Ég öfunda aö vísu stærri bæina af vegunum, en kannski fáum viö líka góða vegi hér. Ég hef lítiö aö sækja til annarra bæja, fer sjaldan í leikhús og aldrei í bíó, en þykir gaman af söng og tónleikum. „Man tvenna tíma“ Ég man tvenna tíma viö fisk- veiöarnar, þegar ég byrjaði haföi maöur engin tæki, og þá þurfti maður aö hugsa um þaö sem maöur var aö gera, en svo er ekki lengur, nú hugsa tækin fyrir mann. Ég hef stundaö velflestar veiöar, veitt bæöi síld, loönu og þorsk og eina vertíö var ég á þorsknót, sem var mjög skemmtileg, fékk einu sinni sextíu tonna kast. En annars held ég aö skemmtilegast sé aö stunda handfærin. Mér finnst ástandiö í fiskveiöi- málunum heldur dökkt, áöur var nóg til af öllum fisktegundum, en núna eru bara takmarkanir og sölutregða. Takmarkanirnar eru aö vísu nauösynlegar, við drepum annars allt með þessum tækjum sem viö höfum nú. Þaö hafa til dæmis veriö ágætar gæftir hér, en fiskinn hefur bara alveg vantaö. Ég hef mikinn áhuga á flestum fiskveiöum, sérstaklega laxveiöi, en held þó, að ég sé ekki forfallinn veiöimaöur. Áöur skaut maöur talsvert af fugli, aöallega svartfugli, en þaö var fremur af nauösyn, en áhuga. „Mikill íþróttaáhugi í ættinni" Þaö vantar ekki íþróttaáhugann í ættina, börnin eru bæöi í blaki og frjálsum íþróttum og þegar ég var yngri eyddi ég nær öllum frístund- Tómas Jóhannesson í minkabúinu. Þeim leizt bara vei á Kristinn Ijósmyndara, yrölingunum. Minka- og Refabúió Grávara heimsótt Minkunum gefinn grauturinn. í Grýtubakkahreppi í Eyjafiröi er minka- og refabúiö Grávara, í haust eru tíu ár síöan minkaræktin var hafin, en refaræktin er enn ekki orðin ársgömul. Er Morgunblaösmenn voru á ferö um Eyjafjörö var staldraö þar við og rabbaö viö starfmenn. „Reksturinn batnað ár frá ári“ .1 haust eru tíu ár síöan viö hófum reksturinn og þetta hefur gengiö á ýmsu, en þó má segja, að við höfum alltaf náö betri og betri árangri milli ára, nema í fyrra, því þá var anzi mikiö af læöunum geldar. í ár fengum viö aö meðaltali 4,2 hvolpa á hverja læöu, sem viö teljum nokkuö gott," sagöi Tómas Jóhannesson, starfsmaöur viö minkabúið. „Viö erum meö um 1 soo lífdýr og venju- lega eru fimm læöur á hvert karldýr, en karldýrunum er svo lógaö eftir tímgun. Þetta hefur gengiö mjög vel í ár og viö erum bjartsýnir á framtíð- ina. Þaö veröur byrjaö aö drepa hvolpana um miöjan nóvember og viö veröum aö því fram að jólum. Nú eru dýrin drepin meö eitri, sem stöövar blóðrásina á augnabliki. „Fóðrið að mestu fengið úr nágrenninu“ Við fáum nær allt fóöur héöan úr nágrenninu, fiskúrgang frá frystlhús- inu á Grenivík, innyfli, hausa og lappir af kjúklingum frá Sveinbjarn- argerði og kjötúrgang frá kjötiönað- arstööinni og sláturhúsinu á Sval- barðseyri. Síðan kaupum viö kol- vetnamjöl frá Noregi, sem blandaö er saman viö hitt og hrært í einn allsherjargraut. Við erum oftast fjórir sem vinnum hér og líkar ágætlega. Viö þurfum aöeins aö gefa sex sinnum í viku og erum því ekki eins bundnir viö þetta eins og til dæmis við landbúnaöarstörfin. En þaö er aö sjálfsögöu meira aö gera en bara aö gefa dýrunum aö éta, viöhaldið er talsvert tímafrekt og um sláturtíöina þurfum viö alltaf aö bæta viö fólki. Viö eigum hér allar vélar, sem þarf til skinnaverkunarinnar, en okkur hefur gengiö illa að fá fólk til aö vinna við hana, svo viö höfum fengiö minkabú í Skotlandi til aö vinna skinnin fyrir okkur. Þetta er auövitaö dýrara, en ef viö gætum gert þetta sjálfir og því stefnum viö aö því aö fullvinna skinnin til útflutnings sjálfir. „Lítil hætta á stroki“ Dökkbrúnu skinnin eru verömæt- ust, en þau fást meö blöndu Ijósra og brúnna dýra. Viö höfum átt í nokkr- um vandræðum vegna blóösjúk- dóms í dýrunum, sem erfitt hefur veriö aö vinna á. Þetta kemur aöallega fram í því aö læöurnar eignast miklu færri hvolpa en ella, sem er mjög bagalegt. Viö tökum því blóöprufur þrisvar á ári og gætum þess þá að nota ekki sjúku dýrin til undaneldis. Ég tel mjög litlar líkur á því, aö dýrin sleppi út, búin eiga aö vera dýrheld, þaö er skálinn einnig og þar fyrir utan er svo há, þéttriöin vírnetsgiröing og aö lokum er vírnet undir öllu saman svo dýrin geta ekki grafiö sig út. Ef svo ólíklega færi aö dýr slyppi út, býst ég viö, aö þaö gæti tórt yfir sumariö en alls ekki veturinn. Minkurinn hjá okkur hefur aldrei lifaö villtur og ætti örugglega erfitt með fæöuöflun, þó hann gæti sennilega lifaö á úrgangi og rusla- haugum. „Fyrstu refirnir komu í desember í fyrra“ „Fyrstu refirnir komu hingaö um miöjan desember í fyrra, 210 læöur og 72 karldýr. Venjulega er hlutfalliö á milli karl- og kvendýra einn á móti þremur til fjórum," sagði Tómas Stefánsson starfsmaöur refabúsins. „Þetta er blárefur sem viö erum meö, hann er upphaflega upprunninn frá Noregi, en viö höfum fengiö hann frá skozku refabúi. Refurinn gýtur einu Sinni á ári og læöurnar veröa svo fjögra til fimm ára, kynþroska veröa þær venjulega eins árs. Gottíminn dreifist nokkuö vegna þess aö pör- unartiminn er tveir mánuöir og dæm- iö gengur misjafnlega snemma upp. „Munum selja líf- dýr í haust“ Pörunartíminn hefst í byrjun febrú- ar og í nóvember veröur byrjað aö slátra. Viö munum einnig selja tals- vert af lífdýrum í haust og fyrir þau fæst mjög gott verð. Við erum nú meö um 520 hvolpa en alls eru nú til í landinu um 1.100 hvolpar á fjórum búum, og þar sem margir hafa nú áhuga á aö hefja refarækt er eftir- spurnin eftir lífdýrum taisverö. Þetta hefur gengið alveg áfallalaust þaö sem af er, viö höfum ekki átt í neinum erfiðleikum og ekki oröiö varir viö neina sjúkdóma. Þetta lofar því góöu og viröist eiga bjarta framtíö fyrir sér. Á FERO UM EYJAFJÖRÐ Texti: Hjörtur Gfslason Ljósmyndir: Kristinn Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.