Morgunblaðið - 10.08.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1980
27
Othar Örn Petersen,
Framkvæmdastjóri Verktakasambands íslands:
Olíustöð í Helguvík og
íslenzkir verktakar
Nokkur umræða hefur verið um
endurnýjun olíutanka fyrir varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli en
tillaga er um nýja olíustöð í
Helguvík. Ekki er ætlunin að
fjalla hér um þær pólitisku deilur,
sem risið hafa vegna málsins,
heldur þátt íslenskra verktaka við
þær framkvæmdir.
Benedikt Gröndal, fyrrverandi
utanríkisráðherra, gerir málið að
umtalsefni í grein í Morgunbiað-
Othar örn Petersen
inu 31. júlí sl., sem nefnist „Olíu-
stöð í Helguvík“. I greininni segir
m.a.:
„Varnarliðið hefur í seinni tíð
haldið uppi framkvæmdum, sem
að jafnaði hafa kostað 7—10
milljarða króna árlega, eftir nú-
verandi gengi. Hafa íslensk verk-
takafyrirtæki annast öll þessi
verk“ ... Bygging nýrra tanka
verður vafalaust á vegum ís-
lenskra verktaka og undir eftirliti
íslenskra aðila" ...
Af ofanrituðu mætti skilja að
framkvæmdir á Keflavíkurflug-
velli væru unnar af almennum,
frjálsum verktökum á íslandi en
svo er ekki. I upphafi þegar
Islendingar tóku við verklegum
framkvæmdum á Keflavíkurflug-
velli á árunum 1950—1960 var
megin stefnan og ætlunin sú að
starfandi íslenskir verktakar og
iðnmeistarar á hverjum tíma,
framkvæmdu þau verk sem fram-
kvæma þurfti á Keflavíkurflug-
velli. Kemur þetta glöggt fram í
stofnsamningi og samþykktum
Sameinaðra verktaka en í inn-
gangi að samningi þeirra segir
m.a.:
„Samtök þessi eru stofnuð í
samráði við ríkisstjórn íslands
með það fyrir augum að tryggja,
að íslendingar sjái um bygg-
ingaframkvæmdir varnarliðsins
á Íslandi, og að þeir, sem áhuga
hafa og tök á því að taka slíkar
framkvæmdir að sér, hafi jafna
aðstöðu til þess að gerast þáttt-
akendur í samtökunum.
Eftir ástæðum geta samtökin
einnig tekið að sér aðrar fram-
kvæmdir sem unnar eru að
mestu leyti fyrir erlenda aðstoð
eða erlent lánsfé. Þátttakendur
eru verktakar, múrarameistar-
ar og trésmíðameistarar, sem
hafa byggingarleyfi, þar sem
þeir eru búsettir."
Félaginu Sameinaðir verktakar
var breytt í hlutafélag 1957.
íslenskir aðalverktakar s/f var
stofnað 1954 en eigendur þess eru
Sameinaðir verktakar hf. (50%),
Reginn hf., (25%) og íslenska ríkið
(25%).
Nú hafa aðstæður breyst þannig
að fjöldi stofnenda Sameinaðra
verktaka hf., eru látnir eða hættir
störfum. Raunverulegir starfandi
verktakar á hinum frjálsa mark-
aði á íslandi koma hvergi nærri
framkvæmdum á Keflavíkurflug-
velli. íslenskir aðalverktakar s/f
sjá um allar framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli en auk þess
sjá Keflavíkurverktakar hf., og
Suðurnesjaverktakar hf., um ýmis
verkefni, aðallega viðhaldsverk.
Þrátt fyrir þessa breytingu hef-
ur aldrei komið fram opinberlega
að um stefnubreytingu væri að
ræða hjá stjórnvöldum að öðru
leyti en því að þau hafa árlega
valið Islenska aðalverktaka s/f,
sem framkvæmdaraðila en sam-
kvæmt varnarsamningi tilnefna
íslensk stjórnvöld verktaka í verk-
legar framkvæmdir.
Af framanrituðu sést að það
hefur verið sama fyrirtækið, valið
frá ári til árs af utanríkisráð-
. herra, sem séð hefur um nær allar
verklegar framkvæmdir á Kefla-
víkurflugvelli en ekki almennir
íslenskir verktakar eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir. Þegar
fyrrverandi utanríkisráðherra tal-
ar um íslensk verktakafyrirtæki í
þessu sambandi er rétt að hafa í
huga þá takmörkun, sem felst í
þeim orðum. Nær væri að tala um
að íslenskt verktakafyrirtæki eða
sárafá íslensk verktakafyrirtæki
hafi „annast öll þessi verk“.
Verktakasambandið hefur bent
á að eðlilegt er að almennir,
frjálsir verktakar annist verk-
takastarfsemi á Keflavíkurflug-
velli.
Ofangreint er ritað til að gera
mönnum grein fyrir hvernig mál-
um er nú háttað þar sem umræður
og sérstaklega gre!n Benedikts
Gröndals hafa gefið tilefni til að
ætla að verklegar framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli teldust til al-
menna verktakamarkaðarins á ís-
landi.
Reykjavík, 5. ágúst 1980.
Othar Örn Peterscn.
framkvæmdastjóri Verk-
takasambands Islands.
Æ FISHER
toppurínn í dag
yðar er valid
~\ '
á,2
o o o o o o o
o
; T ' I I i 1 ' !
I 1 I I II I I
O:
o o
o
•u-O
0
o
nUwi 0«
* l
* T
1 I
o:
o; o;o
n n
o
O
o •
< I
——--
r
□ C3 □
: „Ti
a E Q3 C3
—
o o
. IRIH V
Plötuspilari MT-6225 228.500 Plötuspilari A tá U ui U öl i m MT-6360
Timer TR-3000 74.000 Timer TR-3000 74.000
Tónsviósjafnari EQ-3000 142.5Q0 Tónsviósjafnari EQ-3000 142.500
Tuner FM-2121 169.000 Tuner FM-2331 280.000
Magnari CA-2030 210.000 Formagnari CC-3000 166.500.
Kassettutæki CR-4120 233.000 Kraftmagnari BA-6000 395.000.
Samtals Kassettutæki CR-4170 Samtals 448.000. 1.899.000.
BORGARTUNI 18
REYKJAVÍK SÍMI 27099
SJONVARPSBUÐIN
Þetta eru aöeins tvö dæmi.
Aó sjálfsögóu eru möguleikarnir
miklu fleiri frá FISHER