Morgunblaðið - 10.08.1980, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1980
41
Daginn eftirþessa umtöluöu grein hringdi
vinafólk og bauð okkur í nautasteik
+ Vegna opins bréfs Jóhönnu
Kristjónsdóttur til Ragnars
Amald8 fjármálaráðherra hef-
ur kötturinn Pétur verið einna
umtalaðasta persóna síðastlið-
innar viku. Morgunblaðið hafði
hug á að kynnast Pétri dálítið
nánar og knúði þess vegna
blaðamaður dyra að Drafnar-
stíg 3 árla morguns fyrir
skömmu.
t>að leið dálítil stund áður en
nokkuð gerðist, en þá birtist
köttur í glugganum og sagði
mér að dyrnar væru ólæstar,
þar sem hann vegna smæðar
sinnar gæti ekki opnað fyrir
mér.
Blm. spurði köttinn hvort
hann væri til í að spjalla við sig
stundarkorn og bað hann að
segja sér eitthvað um sjálfan
sig.
Hann hreiðraöi makindalega
um sig í hægindastól, en sagði
síðan: Ég heiti Pétur, en faðerni
mitt er óljóst. Hann Hrafn
sonur hennar Jóhönnu tók mig í
fóstur munaðarlausan hjá
Kattavinafélaginu.
— Heldurðu ekki að þú hefð-
ir verið betur kominn hjá katta-
vinafélaginu, þar sem Jóhanna
segist ekki hafa efni á að gefa
þér að borða?
— Ég skal nú segja þér það
að viðbrögð samborgara minna
við grein fóstru minnar voru
ákaflega jákvæð. Daginn sem
þessi umtalaða grein birtist
sem hún Jóhanna las auðvitað
fyrir mig, hringdi vinafólk til
okkar og bauð okkur í nauta-
steik. Eg er nú ekkert að
vanþakka það, en hinu er ekki
að neita, að ég kann nú betur að
meta blessaða ýsuna.
— Hefur Ragnar Arnalds
boðið ykkur í mat?
— Það gæti verið að hann
hefði hringt þegar hún fóstra
mín er í vinnunni. Ég er ekki
ennþá búinn að læra að svara í
símann svo enn hef ég ekki átt
þess kost að snæða með fjár-
málaráðherranum.
Viltu ekki segja eitthvað að
lokum?
— Ég lít málið alvarlegum
augum, sagði Pétur, en samt er
ég nú bjartsýnn á að ég og hún
fóstra mín getum lifað sæmi-
legu lífí á næstunni.
GRG
Aö loknu viðtali sýndi Pétur blaðamanni skattseðilinn sem honum
fannst ærin ástæða tii að haida fast i.
fclk í
fréttum
Fara á morgun
til Póllands
Ræðismaður
ísiands í
Nýju Delhi
staddur á
íslandi
+ Undanfarna daga hefur verið
hér staddur Sashi Bhushau Sar-
an, ræðismaður íslands í Nýju
Delhi. Saran hefur ýmsar hug-
myndir á prjónunum um það,
hvernig standa megi að því að
efla samskipti Indverja og ís-
lendinga sem honum finnst allt-
of takmörkuð. Hann hefur rætt
við fjölda manna, m.a. í sjávar-
útvegi, orkumálum og hann hef-
ur hug á að efla menningar-
tengsl Indlands og íslands. Sar-
an hefur veirð ræðismaður í rúm
tvö ár en hefur margsinnis
komið til íslands síðustu 25 ár og
má rekja samband hans við
ísland þrjátíu ár aftur í tímann,
er hann var við nám í Bandaríkj-
unum og kynntist þá íslending-
um, sem hann hefur síðan haldið
vinfengi við. Viðtal við Saran
birtist í Mbl. eftir helgi.
+ Á morgun leggja þau Helga
Möller og Jóhann G. Jóhannsson
land undir fót ásamt Gunnari
Þórðarsyni. Ferðinni er heitið til
Póllands, þar sem þau munu koma
fram í söngvakeppni á vegum
pólska sjónvarpsins, sem greiðir
einnig allan kostnað af för þeirra.
í bakaleiðinni er svo áætlað að
dvelja í nokkra daga í Stokkhólmi
þar sem tveggja laga platan með
þeim verður gefin út. Auk þessarar
plötu munu þau einnig koma fram
á safnplötu sem pólska sjónvarpið
mun gefa út í tilefni söngvakeppn-
innar.
Blaðamaður Morgunblaðsins átti
þess kost að vera við æfingu hjá
þeim fyrir utanlandsferðina og
fylgjast með undirbúningi. Egill
Éðvaldsson og Ólafur Ölafsson
voru að fylgjast með þeim á sviðinu
og gagnrýndu allt sem betur mátti
fara. Blaðamanni blöskraði oft
smámunasemin, en fékk þó nóg,
þegar Ólafur sagði að Helga yrði
helst að safna lengri nöglum.
Blm. tók þá þremenninga tali
stundarkorn, og spurði hvort þau
væru bjartsýn.
— Við gerum eins og við getum
sagði Gunnar. Það er margt fleira
sem þarf að huga að en að syngja.
(Gunnar var t.d. búinn að fá sér 14
samfestinga í mismunandi litum
fyrir ferðina).
— Hvernig var verzlunarmanna-
helgin?
— Hún var ágæt, sagði Jóhann,
nema að við vorum að spila á
Egilsstöðum, og svo átti flugvélin
að fara klukkan átta um kvöldið en
henni seinkaði til 10.30 svo við sem
áttum að spila í Aratungu það
kvöldið vorum komin á sviðið
klukkan eitt.
— Er eitthvað lag vinsælast hjá
ykkur af nýju plötunni?
— Já, það eru þá helst Útilega,
Sprengisandur og Ég sakna þín.
— Hvað er ykkur minnisstæðast
síðan þið byrjuðuð að syngja sam-
an Heíga?
— Tja, það er síðan í fyrra. Þá
áttum við að koma fram á Mela-
vellinum. Það var svell og Jói stóð á
miðju svellinu og söng, því ég átti
ekki að koma fyrr en í næsta lagi.
Þá sveik eitthvað. Líklegast er að
hátalararnir hafi verið of langt í
burtu og þessvegna textinn alltaf
langt á undan laginu. Jói greyið var
eins og aumingi og reyndi að draga
tóninn og svo heyrðist hann alltaf
öðru hvoru segja einn tveir einn
tveir. Þá var ég nú ekki lengi að
láta mig hverfa af staðnum sagði
Helga og hló. GRG.
Við getum sagt já, nei, vítaspyrna og áfram strákar
„Fólkið hérna
virðist dálítið frá-
hrindandi í fyrstu“
+ Knattspyrnufélagið Valur hef-
ur undanfarið haft þýskan þjálf-
ara að nafni Volker. Blm. Mbl.
tók hann og konu hans Mariu
Magdalenu sem er mexikönsk
stuttlega tali, og spurði hvaðan
þau kæmu.
— Við komum frá Köln, sagði
Volker, en konan mín hefur ekki
verið nema í þrjú ár í Þýskalandi.
Hún kom þá til að læra og þannig
kynntumst við.
— Hafið þið enga heimþrá?
— Ekki getum við sagt það.
Það var kannski í byrjun að
okkur fannst allt vera framandi,
en það lagaðist strax. Það var
kannski fyrst í Þýskalandi sem ég
hafði verulega hreimþrá, sagði
Maria, ég kem frá svo stórri
fjölskyldu, við erum tíu systkinin.
— Hvernig líkar ykkur hérna?
— Bara stórvel, veðrið var
ágætt, og í rauninni miklu betra
en við höfðum gert okkur í
hugarlund. Fólkið hérna virðist
dálítið fráhrindandi í fyrstu, en
um leið og maður kynnist því
nánar er það virkilega vingjarn-
legt og hlýtt.
— Hyggist þið kannski vera
hérna eitthvað áfram?
— Hver veit, en það fer nú
eftir því hvað Valur vill hafa
okkur lengi. í augnablikinu er ég
aðeins ráðin til 15. september,
sagði Volker.
' — Er íslenskan farin að koma?
— Nei, eiginlega ekki. AUir
skólar hafa verið lokaðir í sumar,
svo við höfum ekki átt þess kost
að fara á námskeið, það sem
maður getur sagt er já, nei,
vítaspyrna og áfram strákar,
sgaði Volker að lokum. GRG.
Fær styrk
til að gera
hálftíma
kvikmynd
+ Það eru án efa margir sem
kannast við nafnið Sigurjón
Sighvatsson síðan hann var í
poppbransanum. Þegar hann
lagði poppið á hilluna fór
hann í háskólann þar sem
hann nam enska bókmennta-
sögu og síðan lá leiðin í
kvikmyndaháskóla í Kali-
forníu.
Ástæðan fyrir því að Sig-
urjón lagði kvikmyndagerð
fyrir sig er að hann hafði
alltaf haft áhuga á ljós-
myndun auk þess sem honum
fannst fátt til betra sem
tengdi tónlist og bókmennta-
sögu saman.
Þessi skóli sem Sigurjón er
á í Kaliforníu er talinn vera
sá viðurkenndasti í Banda-
ríkjunum, hvað varðar kvik-
myndun. Það eru margir
kvikmyndagerðamenn sem
hafa náð langt sem hafa
gengið í þennan skóla, s.s.
George Lukas, sem gerði
Star Wars og American
Grafitti svo og Randall
Kleiser, sem gerði Grease.
Mun þetta vera einn elsti
kvikmyndaskólinn í öllum
heiminum og var hann stofn-
aður árið 1929.
Sigurjón fékk styrk héðan
til að fara út, og núna hefur
skólinn styrkt hann til að
gera kvikmynd um þrjátíu
mínútna langa, en þennan
styrk hljóta aðeins sex
manns á hverri önn.
Myndin á að greina frá
ungum blaðamanni sem fer
úr stórborginni í lítið af-
skekkt sveitaþorp, og segja
frá því þegar hann reynir að
aðlagast lífinu þar. Áætlaður
kostnaður við myndina nem-
ur sjálfsagt tíu milljónum
króna.