Morgunblaðið - 04.09.1980, Page 1
48 SÍÐUR
199. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nýjar viðræður um
framtíð Palestínu
Alexandriu, 3. september. — AP.
EGYPTAR og ísraelsmenn hafa
komið sér saman um að hefja að
nýju viðræður um heimastjórn
Palestinumanna oií undirbúa
sameiginlegan leiðtonafund Ek-
yptalands. ísraels ot? Bandarikj-
anna. Sol Linowitz. aðalsamn-
inttamaður Bandarikjastjórnar i
Miðausturlondum. greindi frá
þessu i daK að loknum 45 min-
útna fundi með Sadat Egypta-
landsforseta.
Ekki var þó skýrt frá því,
hvenær fundirnir myndu hefjast á
ný. Ekki var heldur minnzt á þá
ákvörðun ísraelsmanna að inn-
lima Jerúsalemborg alla í Israels-
ríki og gera hana að höfuðborg.
Mánuður er nú liðinn frá því
Sadat sleit viðræðunum og er
þessi ákvörðun talin sigur fyrir
viðleitni Carters Bandaríkjafor-
seta til að finna lausn á heima-
stjórnarmálum Palestínuaraba.
Ljóst er þó að samningaviðræð-
urnar verða mjög erfiðar.
Sakharov-vitna-
leiðslur í Haag
HaaK, 3. september. — AP.
VITNALEIÐSLUR til að varpa
Ijósi á örlög sovézka andófsmanns-
ins Andrei Sakharov hefjast i
Haag á fimmtudag, eins og ráð-
gert hefur verið. þrátt fyrir við-
leitni venzlafólks Sakharovs í
Bandarikjunum til að koma því til
leiðar að vitnaleiðslurnar verði
ekki tengdar nafni hans. Sovézku
andófsmennirnir og feðgarnir dr.
Mikhail og Victor Stern. sem
komist hafa frá Sovétrikjunum og
húsettir eru i Hollandi, standa
fyrir vitnalciðslunum.
Efrem Yankelevich, sem kvænt-
ur er stjúpdóttur Sakharovs og
búsettur er í Massachusetts í
Bandaríkjunum, hefur skrifað und-
irbúningsnefnd vitnaleiðslanna
bréf og krafist þess að nafn
Sakharovs verði ekki notað í heiti
vitnaleiðslanna, þar sem hann hafi
ekki veitt til þess heimild. Undir-
búningsnefndin hafnaði þessu og
sagði Mikhail Stern í dag, að
Sakharov hefði fengið upplýsingar
um vitnaleiðslurnar eftir leyni-
legum leiðum. Hins vegar hefði
ekki verið óskað eftir framlagi frá
Sakharov, þar sem það kynni að
stofna öryggi hans í hættu.
Meðal þeirra sem fram munu
koma í vitnaleiðslunum eru sovézki
andófsmaðurinn Alexander Gins-
burg, sem nú býr í París, og E.
Lozansky, formaður hinnar alþjóð-
legu Sakharov-nefndar. Gert er ráð
fyrir að niðurstöður fundanna í
Haag, en þeir munu halda áfram á
föstudag, verði sendar ríkisstjórn-
um þeirra landa, sem undirrituðu
Helsinki samkomulagið 1975. Þær
verða einnig sendar á Madrid
ráðstefnuna í nóvember, þar sem
meta á árangurinn af Helsinki
samkomulaginu.
KEKKONEN ÁTTRÆÐUR — Uhro Kekkonen Finnlandsforseti varð áttræður í gær. Finnskur
barnakór kom að heimili hans snemma í gærmorgun og söng fyrir hann og var meðfylgjandi mynd tekin
þegar Kekkonen þakkaði börnunum fyrir sönginn. í hádegisverðarboði fluttu fulltrúar Svíþjóðar,
Danmerkur, Noregs, íslands og Sovétríkjanna forsetanum árnaðaróskir og afhentu honum gjafir. Gjöf
Helsinkiborgar til forsetans var sú, að gatan þar sem hann ólst upp var skírð eftir honum og heitir nú
„Uhro Kekkonen stræti". Meðal gesta við hátíðahöldin í tilefni af afmæli Kekkonens eru
forsætisráðherrar íslands, Noregs og Svíþjóðar, Carl Gustav Svíakonungur, Haraldur ríkisarfi í Noregi
og Benedikte Danaprinsessa. (Simam.vnd AP).
Pólska stjórnin ..írystir"
verðlag á nauðsynjavörum
Varsjá. Róm. Moskvu. París.
3. septrmber. AP.
PÓLSKIR námamenn byrjuðu að koma til vinnu sinnar að nýju
síðdegis í dag að loknu verkíalli þeirra. Pólska þingið mun koma
saman á föstudag til að ræða „fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda“, að
því er pólska fréttastofan PAP greindi frá í dag. Gierek flokksleiðtogi
á sæti á þinginu og er búizt við að hann geri grein fyrir því ástandi.
sem nú hefur skapast í Póllandi eftir að stjórnvöld hafa gengið að
öllum helztu kröfum verkfallsmanna.
Ríkisstjórn Póllands tilkynnti í
dag að hún hefði ákveðið að
„frysta" verð á 47 algengum mat-
vörum, 55 tegundum af annars
konar neyzluvörum og 14 tegund-
um þjónustu, þ.á.m. húsaleigu. Er
talið að með þessu vilji stjórnin
koma til móts við kröfur verkfalls-
manna og lægja óánægjuöldur
almennings vegna hækkandi verð-
lags.
Jóhannes Páll páfi 2. lýsti því
Verður Geng Biao varn-
armálaráðherra Kína?
yfir í dag, að með fórnum sínum í
síðari heimsstyrjöldinni hefði
pólska þjóðin áunnið sér „siðferði-
legan rétt“ til sjálfstæðis, full-
veldis og frelsis. Páfi sagði þetta
er hann ávarpaði u.þ.b. eitt þús-
und pólska pílagríma í Vatikaninu
í dag.
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum og
Austur-Þýzkalandi fóru í dag
mjög hörðum orðum um svokölluð
„andsósíalísk" öfl í Póllandi og
„heimsvaldasinnaða aðila erlend-
is, sem reyndu látlaust að grafa
undan sósíalismanum í Póllandi".
Kommúnistaflokkar á Vesturlönd-
um hafa hins vegar tekið alivel því
samkomulagi, sem náðst hefur í
Póllandi milli stjórnarinnar og
verkfallsmanna. Marchais leiðtogi
franskra kommúnista sagðist vera
ánægður með lok mála í Póllandi
og sama er að segja um talsmenn
ítalskra og spænskra kommúnista.
Kommúnistaleiðtogar á Norður-
löndum tóku í sama streng.
Dagblöð á Vesturlöndum hafa
yfirleitt fagnað samkomulaginu
en haft efasemdir um, hvort
pólska stjórnin getur staðið við
sinn hlut í því. Schmidt kanzlari
V-Þýzkalands staðfesti í dag, að
stjórn sín vildi áframhaldandi
náið samstarf við Pólland og lán
yrðu veitt til landsins á næstunni.
Jagielski aðstoðarforsætisráð-
herra Póllands kom fram í sjón-
varpi í kvöld og sagði m.a. að
landsmenn stæðu nú frammi fyrir
mjög alvarlegum vandamálum, «n
Sovétríkin hefðu beitt sér fyrir
aðstoð til að leysa þau.
Sjá nánar: „Verkföllum í
Slesíu lokið" á bls. 22 í Mbl.
í dag.
Peking, 3. september. — AP.
IIUA Guofeng. leiðtogi kinverska
kommúnistaflokksins. greindi
frá þvi i dag i samtali við
Masayoshi Ito, utanrikisráðherra
Japans, að hann hefði sagt af sér
embætti forsætisráðherra og að
Zhao Ziyang, aðstoðarforsætis-
ráðherra. mundi taka við. Sagði
Ilua að Zhao væri „mikill hæfi-
leikamaður“.
Gert er ráð fyrir að alþýðuþing-
ið í Kína muni fallast á afsögn
Huas og setja Zhao í embætti 10.
september n.k. Hua hefur ekki
áður greint frá því, að hann muni
láta af embætti forsætisráðherra,
þótt fréttir um það hafi lengi verið
á kreiki. Hua verður áfram leið-
togi kommúnistaflokksins.
Ýmsar aðrar breytingar verða
gerðar á æðstu stöðum í Kína á
næstunni. M.a. er gert ráð fyrir að
Geng Biao, aðstoðarforsætisráð-
Hua Guofeng (t.v.) fráfarandi
forsætisráðherra Kina og Zhao
Ziyang, sem væntanlega tekur
við embættinu i næstu viku.
herra verði gerður að varnarmála-
ráðherra.
Umræður hófust í dag á alþýðu-
þinginu i Peking um nýjar skatta-
reglur, sem laða eiga erlent fjár-
magn til landsins. Einnig hófust
umræður um nýja hjúskaparlög-
gjöf, sem hækka mundi löglegan
giftingaraldur kínverskra kvenna
úr 18 árum í 20 og karla úr 20
árum í 22 ár.
Einnig var lagt fyrir þingið í
dag frumvarp, sem mundi banna
Kínverjum að hafa ríkisborgara-
rétt í tveimur löndum. Einnig kom
fram frumvarp, sem afnema
mundi stjórnarskrárheimild er
andófsmenn hafa nýtt sér til þess
að gera árásir á stjórnkerfið á
opinberum veggspjöldum.
Hefur þagað í
þrjú og hálft ár
Norfolk. 3. septembor. — AP.
CHARLES A. Szychowskiaa hef-
ur þagað þunnu hljóði i þrjú og
hálft ár. Ekki vegna þess að hann
megi ekki mæla heldur vegna
þess að honum finnst hann ekki
hafa neitt að segja. Szychowskiaa
ákvað fyrir 42 mánuðum að segja
ekki eitt aukatekið orð fyrr en
hann va-ri sjálfur tilbúinn til þess
og hefði eitthvað af viti til
málanna að lcggja.
Hann er frá Kaliforníu og ferð-
aðist á puttanum til Norfolk í
Virginíu. Þar er hann nú að leita
sér að skipsfari til Evrópu þar sem
hann hyggst þegja af öllum kröft-
um, helzt á frönsku eða þýzku.
Szychowskiaa skrifar á blað það
sem hann vildi sagt hafa og hefur
þannig samband við annað fólk.
Nokkrir ökumenn á leiðinni frá
Kaliforníu neituðu að taka hann
upp í bíl sinn og er sagt að
Szychowskiaa hafi hugsað þeim
þegjandi þörfina.