Morgunblaðið - 04.09.1980, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Minning:
Valgerður Kr.
Gunnarsdóttir
Fædd 23. júlí 1894.
Dáin 27. ágúst 1980.
I dag fer fram útför Valgerðar
Kr. Gunnarsdóttur, sem lézt 27.
ágúst sl. Valgerður fæddist í
Guðlaugsvík í Hrútafirði hinn 23.
júlí 1894. Foreldrar hennar voru
hjónin Valgerður H. Bjarnadóttir
og Gunnar Magnússon. Aðeins
þriggja ára gömul missti hún
föður sinn. í þá daga voru tæki-
færin fá til mennta og því eigi lítið
þrekvirki, er Valgerður lauk námi
frá Ljósmæðraskóla Islands vorið
1918 með mikilli prýði. Vann hún
um árabil farsælt starf í Bæjar-
hreppi, Strandasýslu, þar sem hún
var skipuð ljósmóðir. Fór orð af
hæfileikum hennar og framkomu.
Aðstæður voru tíðum erfiðar, en
Valgerður var ljósmóðir af lífi og
sál og fórnfús svo af bar. Fyrir
þær sakir eignaðist hún fjölmarga
þakkláta ævivini.
Hinn 28. nóvember 1921 gekk
hún að eiga eftirlifandi mann
sinn, Arnkel Ingimundarson, og
varð þeim fimm barna auðið, auk
þess sem þau ólu upp eina fóstur-
dóttur. Börnin eru: Gunnar Val-
geir, kvæntur Sigríði Símonar-
dóttur, Benedikt Ingimundur,
Sverrir Þorvaldur, Jakobína Unn-
ur, gift Samúel Arnkels-Webb,
Gísli Borgar, kvæntur Katrínu Þ.
Guölaugsdóttur, og Júlíana Ruth
Sigurðsson, gift Sævari Sigurðs-
syni. Barna- og barnabarnabörnin
eru nú tuttugu og tvö.
Mér er ljúft að minnast Val-
gerðar á kveðjustund. Varla hefur
nokkur betur borið sæmdarheitið
„ljós-móðir“, en einmitt hún, þessi
hógværa, blíðlynda kona, sem alls
staðar bar með sér birtu og yl. Það
viðmót mætti mér ungri, er ég
fyrst kom á heimili þessara góðu
hjóna, sem verðandi tengdadóttir.
Þau umvöfðu mig í kærleika frá
fyrstu stund, og hefur aldrei borið
skugga á samvistir okkar. Vegna
náins sambýlis síðustu ára voru
böndin knýtt jafnvel sterkari en
nokkru sinni fyrr, og rík erum við
af dýrmætum minningum um
heilsteypta móður, tengdamóður
og ömmu. Hún gaf af sjálfri sér og
sínu, þeim, sem hún unni hugást-
um, en sjálfri sér til handa
krafðist hún einskis. Ófáir munu
þeir og aðrir, ættingjar og vinir,
sem nutu kærleika og gestrisni á
heimili Valgerðar og Arnkels.
„Væna konu, hver hlýtur hana?“
segir í Orðskviðum Salómons.
Vissulega hlaut Arnkell væna
konu, er hann kvæntist Valgerði,
og miklir kærleikar voru ávallt
með þeim hjónum og gagnkvæm
+
Eiginmaöur minn,
BENEDIKT HALLDÓRSSON,
frá Hnífsdal, SKipasundi 26,
andaöist á Borgarspítalanum 2. sept.
Jarðarförin auglýst síöar.
Þórunn Guöjónsdóttir.
t
Móöir okkar,
MARGRÉT TH. INGVARSDÓTTIR,
Freyjugötu 7,
andaöist að kvöldi 1. september.
Svava S. Guttardo,
Gunnar Símonarson,
Njáll Símonarson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUDRUN AUDUNSDÓTTIR,
Hrísholti 14, Selfossi,
sem lézt 31. ágúst í Sjúkrahúsinu á Selfossi, veröur jarösungin frá
Selfosskirkju, laugardaginn 6. sept. kl. 2 e.h.
Auöunn Fríóriksson, Kolbrún Sveinbjörnsdóttir,
Gunnar Friöriksson, Guöný Jónsdóttir,
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
INGÓLFUR ÞORSTEINSSON,
frá Langholti, Granaskjóli 7,
sem lézt 27. ágúst verður jarösunginn frá Neskirkju föstudaginn 5.
september kl. 13.30.
Guölaug Brynjólfsdóttir,
Þorsteinn Ingólfsson, Maríanna Mortensen,
Elín Ingólfsdóttir, Þorgeir K. Þorgeirsson,
Auður Ingólfsdóttir, Þór Halldórsson,
Sverrir Ingólfsson, Lillý Svava Snævarr.
Willi Hanssen (i miðið) ásamt undirleikurunum Steve Hiii og Matthew
Gillard.
Söng- og lækn-
ingasamkomur
umhyggja til hins síðasta, er
veikindi Valgerðar bundu hana
langdvölum á sjúkrahúsi. Leið
vart sá dagur, að Arnkell vitjaði
hennar ekki, og það þótt um
langan veg væri að fara að
Reykjalundi, þar sem hún dvaldist
síðasta árið.
Margt drífur á daga þess, sem
lifir langa ævi, — en sá, sem
treystir Drottni, á athvarf hjá
honum í gleði og þraut, og Val-
gerður æðraðist aldrei. Hún var
trúuð kona, sem lifði í einlægu
bænasamfélagi við Drottin sinn og
frelsara, og í hóp trúaðra var
henni ljúft að leita, meðan heilsa
og kraftar leyfðu. Ung að árum
gekk hún í K.F.U.K. og síðar
einnig í Kristniboðsfélag kvenna í
Reykjavík. Hélt hún ævinlega
tryggð við þessi félög bæði og
hafði oft á orði hverja blessun hún
hefði hlotið af þeim.
Við leiðarlok er þakklæti efst í
huga, fyrir það, sem Valgerður var
mér persónulega og okkur öllum,
stórum og smáum. Hún var ávallt
glöð, og ljúflyndi hennar var
kunnugt öllum þeim, sem hana
þekktu. Það bar enda fagran vott
þess innra manns, er hún hafði að
geyma. Hún var mér kærri en orð
fá tjáð, og sárt verður hennar
saknað. Góður Guð blessi minn-
ingu Valgerðar og veiti líkn og lið
okkar, sem eftir lifum.
Katrin Þ. Guðlaugsdóttir.
GOSPEL-söngvarinn Willy
Hanssen heldur söng- og
lækningasamkomur (Gospcl-
kvöld) víðs vegar um landið í
þessum mánuði. Með honum í
för verða undirleikarar og
aðrir aðstoðarmenn.
Halda þeir fyrst til Vest-
mannaeyja þar sem samkomur
verða í Félagsheimilinu á morg-
un, 5. september, laugardaginn
6. september og sunnudaginn 7.
september og hefjast þær kl.
20.30.
Síðan er förinni heitið til
Stykkishólms þar sem samkom-
ur verða haldnar þriðjudaginn
9. september, miðvikudaginn 10.
september og fimmtudaginn 11.
september kl. 21.
Laugardaginn 13. september
og sunnudaginn 14. september
halda þeir samkomur á Akur-
eyri. A laugardaginn í Sam-
komuhúsinu og á sunnudaginn í
Sjálfstæðishúsinu. Hefjast báð-
ar samkomurnar kl. 20.30.
Þar næst verða haldnar sam-
komur á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrst í Félagsheimili Kópavogs
19. og 20. september og síðar í
Reykjavík. Einnig hyggjast þeir
halda samkomur á Keflavíkur-
flugvelli.
A samkomunum munu Willy
og félagar hans m.a. syngja lög
eftir Willy sjálfan og kynna
plötu sem verður tekin upp í
London í nóvember n.k. Þeir
munu einnig biðja fyrir sjúkum.
Eru einhverjir
ortodoxir ibú-
*
ar á Islandi?
Metropolitan Paulos, sem er
biskup ortodoxra á Norður-
löndum kemur hingað til lands
á laugardaginn vegna fundar
ortodoxra i Skálholti. Hann vill
gjarnan hitta þá að máli, ef
einhverjir eru hérlendis, sem
teljast til ortodoxu kirkjunnar.
Eru þeir beðnir að hafa sam-
band við sr. Bernharð Guð-
mundsson fréttafulltrúa á Bisk-
upsstofu (sími 29377), en hann
annast móttöku kirkjuleiðtog-
anna af hálfu þjóðkirkjunnar.
Metropolitan Paulos hefur að-
setur í Stokkhólmi. Fjöldi orto-
doxra hefur aukist sérstaklega
vegna farandverkamanna sem í
vaxandi mæli starfa þar í landi
og víðar á Norðurlöndum. í
Finnlandi er ortodoxa kirkjan
þróttmikil og hefur starfað þar
lengi. Leiðtogi hennar, Metro-
politan Johannes sækir einnig
ráðstefnuna í næstu viku í
Skálholti.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég er ílogaveikur. Það, sem veldur mér mestum
erfiðleikum. er ekki sjúkleikinn. heldur afstaða fólks
til hans. Allir forðast mig af ótta við, að ég fái flog í
návist þeirra. Mig langar til að lifa eðlilegu lífi, en
það virðist ógerlegt.
Fólk ætti að vita, að flogaveiki er ekki „plága,"
og að þeir, sem eru haldnir þessum sjúkdómi, eiga
ekki sjálfir sök á honum. Mér er ljóst, að flogaveikt
fólk á að geta lifað eðlilegu lífi, ef það fær þá
meðferð, sem völ er á nú á tímum, og við erum öll
þakklát fyrir það.
A hinn bóginn ber yður að minnast þess, svo að
þér getið lifað eins og venjulegt fólk, að þér megið
ekki taka það allt of nærri yður, þó að þér verðið að
bera þennan sjúkdóm. Ef þér viljið, að fólk
viðurkenni yður, verðið þér að viðurkenna stað-
reyndirnar um sjálfan yður.
Helen Keller er sígilt dæmi um það, hvernig
bregðast skuli við því, sem heftir för okkar á
lífsgöngunni: „Ég þakka Guði fyrir bæklun mína, því
að hennar vegna hef ég fundið sjálfa mig, starf mitt
og Guð minn“.
Þeir eru til, sem búa við mun minni bæklun en þér,
en eru þó að drekkja sér í sjálfsmeðaumkun, og
þannig takmarka þeir þjónustu sína við menn og
Guð. Vinur Byrons lávarðar skrifaði: „Hann gældi
við lömun sína ... þangað til hann hafði gert vörtu
að æxli. Hann brást þannig við sjúkleika sínum, að
hann varð efasjúkur, kaldlyndur og grimmur".
Maður getur átt velgengni að fagna á vissum
sviðum. Ef við látum beiskju og kulda komast inn í
hjarta okkar, höfum við beðið ósigur. Kristur
læknaði flogaveikt fólk, og hann getur læknað sárin,
sem sjúkdómurinn er að marka í huga yðar, með því
að blessa þjónustu yðar í hans þágu.
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.