Morgunblaðið - 04.09.1980, Page 46
46
Sigurður
lagði
Sigurð
SIGURÐUR Pétursson sÍKraði
SÍKurð nafna sinn Hafsteinsson
í úrslitum Olíu-bikarsins svo-
kallaða á Grafarholtsvellinum
um siðustu helgi. Sijcraði Sijc-
urður 2—1. Léku báðir frábær-
leKa. þannÍK var Hafsteinsson á
pari ok Pétursson á einu undir
er 17 holum var lokið.
Verðlaunum
dreift á
unglingamóti
í golfi
„JÓNS AKnarssonar“ mótið i
Kolfi fór fram á Grafarholti um
helKÍna, en það er Kolfkeppni
fyrir unKlinga. Leiknar eru 72
holur ok sÍKraði Guðmundur
Arason í keppninni án forKjaf-
ar á 326 höKKum. Heimir Þor-
steinsson var með næst besta
skorið, 338 höKK. en hlaut ekki
verðlaun vegna þess að hann
sÍKraði í keppninni með forKjöf.
Jón H. Karlsson hreppti því
önnur verðlaun á 340 höKKum,
Karl Karlsson kom næstur á
342 höKKum. Aðrir voru HelKÍ
Eiríksson ok lék hann á 355
höKKum, Finnur Sveinsson á
367 höKKum, Árni Þorsteinsson
á 376 höKKum ok ólafur Jó-
hannesson á 445 höKKum.
I keppninni með forgjöf sigr-
aði Heimir eins og áður sagði, á
262 nettó. Helgi varð annar á 271
höggi og næstu menn voru Jón
Karl og Guðmundur á 277, 282 og
298 höggum hver. Þeir hlutu
ekki verðlaun vegna frammi-
stöðu í keppninni með forgjöf.
Sjötti maður hér hreppti því
þriðju verðlaun, það var Finnur
á 307 höggum. Á eftir honum
komu Ólafur á 325 og Árni á 332.
Þess má að iokum geta, að
nýstárlegt golfmót hefur göngu
sína á Grafarholtinu. Er það
Fannars-keppnin svokallaða og
er opið kvennamót. Keppni er
þannig háttað, að leiknar eru 12
holur á laugardagsmorgni og
síðan aðrar 12 á sunnudagssíð-
degi. Betri holan hverju sinni
gildir síðan í heildarskori.
Hans og Halldór
unnu tvímenning
IIANS Isebarn og Halldór
Ingvason sigruðu I tvimenn-
ingskeppni GR um siðustu
helgi. Léku þeir á 71 höggi
nettó. Sigurður Pétursson ok
Guðmundur VÍKÍússon léku á
74 höKKum. alveK eins ok Guð-
rún Eiríksdóttir ok Viðar
Þorsteinsson, en fyrrnefnda lið-
ið hreppti önnur verðlaun
vegna þess að það lék siðustu 9
holurnar á betri högKafjölda.
Nokkrir leikir fóru í Kærkvöldi
fram i 2. umferð ensku deildar-
bikarkeppninar. ÍJrslit urðu
sem hér seKÍr.
Blackp,—Everton 2—2
Bristol R.—York 1-0
Chelsea—Cardiff 1 — 1
Derby—QPR 0—0
Leeds—A. Villa 1—3
Iæicester—WBA 0—1
Man. City—Stoke 3—0
Norwich—Shrewsb. 2—0
Oxford—Chesterí. 3—0
Peterbr. — N.Forest 1 — 1
Sunderland—Stockport 1—2
Tottenh.—Orient 3—1
Tranmere—BrÍKhton 2—4
WÍKan —Preston 1—2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Asgeir bar sigurorð af Arnóri
„ÞETTA var verðskuldaður sig-
ur hjá okkur og hefði getað orðið
stærri,“ sagði Ásgeir Sigurvins-
son er Mbl. ræddi við hann i
gærkvöldi, en þá var nýlokið leik
Standard og Lokeren i belgísku
1. deildinni í Standard. Tveir
tslendingar voru með f þeim leik.
Ásgeir með Standard og Arnór
Guðjohnsen með Lokeren.
Standard sótti mun meira í
fyrri hálfleik og skoraði þá eitt
mark. Ásgeir gaf sendingu frá
vinstri kantinum fyrir markið,
beint á höfuð Ralph Edström og
hann skallaði með miklum tilþrif-
um í markið. Skömmu síðar léku
þeir félagar sama leikinn en þá
skallaði Edström í stöng.
í seinni hálfleik héldu leikmenn
Standard áfram að skora og þeir
bættu við einu marki. Var Voor-
• Ásgeir og félagar hrósuðu
sigri í gærkvöldi.
Lajgðist fyrir
sjonvarpsbíla
ÞEGAR Bjarni Felixson og menn
hans komu að Laugardalsveliin-
um i gærdag með tæki til að taka
upp landsleik íslendinga og
Rússa komu þeir að lokuöum
hliðum vallarins.
Á staðinn var mættur Kjartan
Trausti framkvæmdastjóri KSÍ.
Vildu sjónvarpsmenn komast inn
með bíla sína en Kjartan Trausti
var ekki á því að hleypa þeim inn.
Varð endirinn sá að hann lagðist
fyrir bílana svo að þeir komust
ekki inn á völlinn. Bjarni og menn
hans fóru eigi að síður inn á
völlinn með tól sín en ekki fyrr en
þeir höfðu greitt aðgangseyri.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa samningar ekki tek-
izt milli Ríkisútvarpsins og KSÍ
um greiðslur fyrir upptöku á
leikjum.
dekkers þar að verki með hörku-
skoti í stöng og inn. Þegar 10
mínútur voru til leiksloka skoraði
Vercoten fyrir Lokeren og sóttu
leikmenn Lokeren stíft undir lokin
en tókst ekki að jafna. Arnór
Guðjohnsen lék í framlínunni hjá
Lokeren. Ásgeir sagði að hann
hefði átt góða spretti en í heildina
hefði framlína Lokeren, sem skip-
uð er Arnóri, Pólverjanum Lato og
Dananum Preben Elkjær orðið að
lúta í lægra haldi fyrir sterkri
vörn Standard í þessum leik.
Úrslit helstu leikja í gærkvöldi:
Anderlecht — Antwerpen 5:1
Gantoise — FC Brugge 0:0
Standard — Lokaren 2:1
Beveren — Beringen 2:1
Lierse — Molenbeek 2:2
Standard hefur þrjú stig eftir
tvo leiki en Lokeren hefur eitt stig
eftir jafnmarga leiki. Standard á
erfiðan leik fyrir höndum á
sunnudaginn, mætir Belgíumeist-
urunum FC Brugge á útivelli. SS.
Góður útisigur
Feyenoord
PÉTUR Pétursson og félagar
hans hjá Feyenoord unnu KÓðan
útisigur yfir Go Ahead Eagles i
hollensku úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi og er Feyenoord nú 1 öðru
sæti í deildinni með 7 stig eftir 4
leiki.
Pétur var ekki á skotskónum í
gærkvöldi, mörk liðsins skoruðu
Daninn Ivan Nielsen og Pierre
Vermeulen. Pétur átti sendinguna
á Vermeulen er hann skoraði.
Pétur sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að hann hefði fengið tvö
góð tækifæri í leiknum en mistek-
ist að skora í bæði skiptin. í heild
þótti leikurinn slakur.
Helstu úrslit í gærkvöldi:
Go Ahead Eagles — Feyenoord 0:2
NAC Breda — Ajax 1:1
PSV Eindhov. — NEC Nijmeg. 0:0
Groningen — AZ ’67 1:4
Stórtap hjá Oster
ÞAÐ VAR ekki aðeins i Belgíu
sem íslendingalið mættust i gær-
kvöldi. í Sviþjóð var leikin heil
umferð í gærkvöldi og m.a. mætt-
ust Gautaborg, lið Þorsteins
Ólafssonar og Öster, lið Teits
Þórðarsonar.
Leikið var í Gautaborg og urðu
úrslit þau að Gautaborg vann
öruggan sigur 4:1. Lið Árna Stef-
ánssonar, Landskrona, tapaði á
útivelli fyrir neðsta liðinu Mjallby
2:3 og þar með má segja að fallið
sé óumflýjanlegt.
Staða Oster er nú orðin tæp á
toppnum. Liðið hefur 29 stig en
Brage fylgir fast á eftir með 27
stig, Malmö FF hefur 26 stig og
Gautaborg 25 stig.
„Þá er bara að vera að-
eins harðari en þeir"
ER BLAÐAMAÐUR Morgun
blaðsins kom i búningsklefa
islenzku leikmannanna að
iandsleiknum loknum ræddu
menn einkum gróf brot Rúss-
anna í lciknum. Nokkrir leik-
mannanna báru heldur óhuggu-
leg merki eítir þessa viðureÍKn,
takkaför voru á leggjum. lær-
um og jafnvei upp eftir öllum
skrokknum. Þannig voru
greinileg takkaför á Sigurlási
Þorleifssyni allt frá nára ok
uppundir bringspalir. Þar
mátti næstum lesa hvaða skó-
tegund og númer rússneski
varnarmaðurinn, sem setti fóta-
för sín á maga Vestmanneyings-
ins, notaði. Annars voru skór
Rússanna talsvert i sviðsljósinu
i þessum leik þvf dómari og
linuvörður bönnuðu tveimur
rússneskum varamönnum að
koma inn á völlinn, nema þeir
færu i skú með styttri tökkum.
Leikmenn íslenzka liðsins
voru heldur ánægðir með
frammistöðuna í leiknum og
sömuleiðis Guðni Kjartansson
landsliðsþjálfari. Hann sagði
eftir leikinn, að framan af hefðu
leikmenn hans borið of mikla
virðingu fyrir andstæðingnum,
en það hefði lagast er leið á
leikinn. Hann sagði það hafa
verið leikaðferð Rússanna að
reyna að teyma íslenzka liðið
framar á vellinum og komast
síðan í gegnum göt á vörninni
með stuttu þríhyrningsspili. í
fyrri hálfleiknum hefði þeim
tekizt þetta vegna þess hve illa
gekk að koma sendingunum
rétta leið. í seinni hálfleiknum
hefði gengið betur að finna
samherja og íslenzka liðið því
verið meira inni í myndinni.
Guðni sagði að fyrra mark
Rússanna hefði verið mjög ódýrt
og óþarfi að fá það á sig. Úm
leikinn í heild sagði Goðni, að
hann hefði verið svipaður og
hann hefði búist við.
„Þeir voru harðir Rússarnir og
brutu af sér þegar alls engin
nauðsyn var á slíku, en þá er
bara að vera aðeins harðari en
þeir,“ sagði baráttujaxlinn Örn
Óskarsson. Hann var eini leik-
maður íslenzka liðsins, sem sótt-
ur var til útlanda að þessu sinni,
en Örn leikur með Örgryte í
sænsku 2. deildinni. Þar er Örn í
harðri baráttu, en mörg lið
berjast á toppnum. Á sunnudag
leikur örn með sínum sænsku
félögum og sagðist Örn óspart
myndu benda þeim á úrslit leiks
íslendinga og Rússa, en Svíar
töpuðu fyrir rússneska landslið-
inu í sumar með 1 marki gegn 5.
Örn sagðist vera ánægður í
Svíþjóð, hann yrði þar a.m.k. eitt
ár tii viðbótar, persónulega hefði
honum gengið vel og liðinu
sömuleiðis þar til upp á síðkast-
ið, en Örgryte hefur tapað 3 af 4
síðustu leikjum sínum.
„Það hefði verið gaman að
halda jöfnu á móti Rússunum og
maður var farinn að vona að það
tækist, en það þarf enginn að
skammast sín fyrir að tapa
aðeins 1—2 á móti rússneska
birninum," sagði Örn Óskarsson.
„Sigur fyrir okkur
hér heima*_____________
„Að sjálfsögðu er mikill styrk-
ur að hafa atvinnumennina með
í landsleikjunum og þá sérstak-
lega menn eins og Ásgeir Sigur-
vinsson. Við þessir strákar hér
heima erum ailir að berjast um
sæti í landsliðinu við þá, sem
hafa þetta að atvinnu og því tel
ég árangurinn í þessum lands-
leik vera sigur á sinn hátt fyrir
okkur hér heima,“ sagði Mart-
einn landsliðsfyrirliði Geirsson.
Marteinn sagðist hafa óttast
fyrir leikinn, að hann yrði erfið-
asti landsleikurinn á ferlinum,
en Marteinn lék nú sinn 52.
landsleik fyrir ísland og hefur
enginn íslendingur leikið svo
marga landsleiki í íþróttinni.
Leikurinn við Rússa hefði þó alls
ekki orðið eins erfiður og hann
bjóst við., í fyrri hálfleiknum
hefðu leikmennirnir verið óþarf-
lega hræddir við Rússana, en í
síðari hálfieiknum hefði tekizt
að framkvæma það sem fyrir
hefði verið lagt og liðið hefði nú
skorað í 3 leikjum í röð. „Ég er
ánægður með baráttuna í liðinu
og liðsandann bæði í leiknum og
eins í þá fáu daga sem við höfum
fengið að vera saman til að
undirbúa okkur. Ég hef oft sagt
það og segi það enn, að það þarf
að gefa landsliðinu meiri tíma og
ég tala nú ekki um fyrir leiki í
EM og HM. Ég er t.d. búinn að
leika fjóra hörkuleiki á 10 dög-
um og fann það bezt í fótunum í
leiknum hversu þreytan er farin
að sitja í manni," sagði Marteinn
að lokum.
Þorsteinn Bjarnason gerði sér
lítið fyrir í leiknum og varði
vítaspyrnu og frammistaða hans
var í alla staði mjög góð. Við
spurðum hann um vítaspyrnuna:
„Ég veðjaði á réttan hest, því
áður en hann skaut var ég búinn
að ákveða að kasta mér til
hægri. Síðan kom boltinn í
lúkurnar á mér eins og ég hafði
beðið um. Ég ætlaði varla að
trúa því.“ Þorsteinn sagði, að
það hefði verið gott að leika í
markinu í þessum leik. Varnar-
mennirnir hefðu talað mikið
saman og lengstum hefði gengið
vel að stöðva „veggspil" Rúss-
anna, sem þeir byggja allan sinn
sóknarleik á. Þorsteinn sagði, að
það væri gaman að vera kominn
heim í slaginn með landsliðinu.
„Það er verst að vera á þessum
stað í deildinni,“ sagði Þor-
steinn.
„Þuríti frábært mark til
að knésetja ykkur*
Fyrsti leikur íslands í undan-
keppni Heimsmeistarakeppninn-
ar var á móti Wales á Laugar-
dalsvellinum í sumar og tapaðist
sá leikur 0:4. Framkvæmdastjóri
welska liðsins er Mike England
og hann var mættur í Laugar-
dalnum í gærkvöldi til að sjá
rússneska iiðið. Er við ræddum
við hann í leikhléi sagðist hann
ekki skilja hvernig Rússarnir
stilltu upp liði sínu: „Hvers
vegna í ósköpunum eru þeir að
leika með „sweeper“?“ spurði
Mike England.
Þegar við spurðum hann hvort
Oleg Blokhin, frægasti leikmað-
ur rússneska liðsins og
knattspyrnumaður Evrópu fyrir
nokkrum árum, væri að verða
gamall, sagði Mike England að
Blokhin hefði að vísu ekki sýnt
mikið í leiknum. „Blokhin getur
þó enn sprett úr spori og gerir
það örugglega í seinni hálfleikn-
um,“ sagði Mike England. Það
voru orð að sönnu, en Blokhin
átti allan heiðurinn af sigur-
marki Rússanna.
En hvað fannst Mike England
um leikinn:
„íslenzka liðið lék þennan leik
skynsamlega og barðist vel. Það
hefði verið gaman að sjá ykkur
með atvinnumennina í þessu leik
eða sama lið og á móti okkur í
vor. Annars þurfið þið ekki að
kvarta yfir þessu liði og það
þurfti aldeilis frábært mark til
að knésetja ykkur í þessum leik.
Sjálfur er ég bjartsýnn á vel-
gengni á móti Sovétmönnum er
við leikum við þá í haust, en
næst á dagskrá eru þó Tékkar og
síðan Tyrkir hjá welska liðinu,"
sagði Mike England að lokum.
- áij.