Morgunblaðið - 04.09.1980, Page 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JlWretinblnbib
inypitfiMðMfe
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
jWerjjun'blnbift
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Arnarflugsfólk:
„Viljum vekja at-
hygli á stöðu okkar“
FULLTRÚAR starfsfólks Arnar-
flugs áttu fund með Steingrími
Ilermannssyni samgönguráð-
herra i nær að ósk Arnarflugs-
manna og ræddu þeir stöðu Arn-
arflujfs og starfsoryKiíi sitt, en 40
starfsmönnum af alls 75 hjá
Arnarflugi hefur verið saftt upp
störfum að öllu óbreyttu fyrir
áramót.
„Við höfum áhyggjur af fram-
tíðinni," sagði Halldór Sigurðsson
formaður Starfsmannafélags Arn-
arflugs í samtali við Mbl., „og þar
sem búið er að henda málum til
ríkisstjórnarinnar þá vildum við
vekja athygli á stöðu okkar og
ekki sízt þar sem félagsmálaráðu-
neytið er nú farið af stað að tala
við bæði núverandi og fyrrverandi
starfsmenn Flugleiða um stofn-
un nýs flugfélags. Samt sem áður
er í landinu, annað flugfélag,
Arnarflug, sem hefur nær 400
sæta framboð í þotum. Það eru
blikur á lofti og þar sem ríkis-
stjórnin virðist ætla að skipta sér
verulega af þessum málum vildum
við ræða þau og m.a. vekja athygli
á því að Arnarflug hefur ekki
verið neinn baggi á Flugleiðum
nema síður væri.“
Sjá viðtal á bls. 24 i dag.
• Sovétmenn sigruðu íslendinga 2—1 i landsleik i knattspyrnu á
Laugardaisvellinum i gærkvöldi. Leikurinn var liður i undan-
keppni HM, en liðin leika i 3-riðli. Myndin sýnir viðureign
Guðmundar Þorbjörnssonar og sovézks leikmanns. Sjá nánar á
íþróttasiðu. I.joHm. Kristján.
Utanríkisráðu-
neytinu falið
mál Kovalenkos
Dómsmálaráðuneytið skrif-
aði í gær bréf til utanríkis-
ráðuneytisins með beiðni um.
að það kæmi áfram óskum
sovézka flóttamannsins Vikt-
ors Kovalenkos um að komast
til Bandaríkjanna.
„Kovalenko hefur ítrekað
sagt það sína ósk að komast til
Bandaríkjanna og þetta bréf
okkar til utanríkisráðuneytis-
ins er til þess að það hafi
formlegt tiléfni til að taka
málið upp við Bandaríkja-
menn, hvort heldur það verður
við sendiráð hér eða sendiráði
okkar vestanhafs verður falið
að fara með málið,“ sagði
Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
í samtali við Mbl. í gær.
Baldur sagði, að Kovalenko
virtist una sér vel hér á landi,
en engu að síður fyndi hann til
einmanaleika og vildi komast
til landa sinna vestanhafs.
43ja-manna
nefnd ASÍ
á fund á
þriðjudag
VIÐRÆÐUNEFND Alþýðu
sambands íslands kom sam-
an til fundar í gær og ræddi
þar enn einu sinni stöðu
samningamálanna eftir að
viðræðuslit urðu siðastliðinn
föstudag. Viðræðunefndin
tók þá ákvörðun. að boða
saman til fundar næstkom-
andi þriðjudag klukkan 14
„stóru“ samninganefndina,
sem í eiga sæti 43 fulltrúar.
Jafnframt var næsti fundur
viðræðunefndarinnar boðað-
ur á föstudag klukkan 11.
Haukur Már Haraldsson
kvað samningamálin nú vera
í biðstöðu, en hann kvað VSÍ
hafa verið að „gaspra um
ágæti eigin tilboðs og veifa
þar tölum, sem ekki stand-'
ast“. í raun kvað Haukur Már
hvíla sönnunarskyldu á VSÍ
gagnvart þessum tölum. Ver-
ið væri að reikna út mismun
tilboðs VSI og samningsdrög
BSRB og fjármálaráðherra,
en því verki væri enn ekki
lokið. Þó kvað hann augljóst
að niðurstöður úr reikningum
VSI væru ekki réttar.
413 hvalir veiddir:
Búið að veiða
upp í sand-
reiðarkvótann
HVALVEIÐAR hafa gengið vel
að undanförnu en nokkur aftur-
kippur kom i veiðarnar á tíma-
bili i sumar vegna þoku á hvala-
miðunum.
Þegar Mbl. hafði samband við
Hvalstöðina í gær höfðu veiðst 413
hvalir, 228 langreiðar, 87 búrhval-
ir og 100 sandreiðar. I fyrra höfðu
veiðst 392 hvalir á sama tíma.
Mjög góð veiði hefur verið á
sandreiði eftir að hún kom á miðin
og er nú búið að veiða upp í
sandreiðarkvótann.
Hvalveiðarnar munu standa
fram yfir miðjan september ef tíð
verður hagstæð.
Saltað af kappi á Vopnafirði. Sjá frétt á bls. 26.
Ljótun. Mbl. Kristjón Jóhannesson.
Gjöld Flugleiða og starfsmanna 1979:
Á 5. milljarð kr. til ríkisins
- nær 8 milljarða kr. launagreiðslur Flugleiða
GJÖLD Flugleiða og starfs-
fólks félagsins til íslenzka
ríkisins á 8.1. ári námu lið-
lega 4.2 milljörðum króna og
Flugleiðir greiddu nær 8
milljarða króna í laun á s.l.
ári, en þessar tölur sýna
fram á hinn stóra þátt Flug-
leiða í atvinnulegu efna-
hagslífi landsins. Af launa-
kostnaði Flugleiða á s.l. ári
er áætlað að vegna Norður-
Atlantshafsflugsins hafi fé-
lagið greitt 2,6 milljarða í
laun, 440 milljónir í opinber
gjöld og 88 milljónir í launa-
skatt eða liðlega 3,1 milljarð
króna sem á verðgildi þessa
árs er mun meira, eða á
fimmta milljarð króna.
Gjöld Flugleiða og starfsmanna
félagsins á Islandi til íslenzka
ríkisins 1979 voru sem hér segir í
stórum dráttum: Alagning í
Reykjavík var liðlega 278 milljón-
ir króna, úti á landi 15,5 millj.
króna og launaskattur var um 550
milljónir króna. Þá voru opinber
gjöld starfsmanna Flugleiða nær
1,3 milljarðar króna, lendingar-
gjöld tæplega 500 milljónir króna
og þar af nær 300 milljónir króna
vegna Norður-Atlantshafsflugs. I
húsaleigu á Keflavíkurflugvelli
greiddi félagið til Varnarmála-
deildar um 100 milljónir króna,
söluskattur nam 280 milljónum
króna og flugvallargjald innheimt
á íslandi fyrir ríkissjóð nam 680
milljónum króna. í lífeyrissjóði
greiddi fyrirtækið 555 milljónir
króna.
Heildarlaun á íslandi voru
tæplega 7,6 milljarðar króna og
var það 41% hærra en 1978.
Starfsmannafjöldi stóð í stað að
mestu á milli ’78 og ’79, en
meðallaun starfsmanna 1979 voru
5,8 milljónir króna og höfðu hækk-
að um 45%. Áætlað er að starfs-
menn á íslandi vegna Norður-
Atlantshafsflugsins hafi verið um
34,4%