Morgunblaðið - 09.09.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1980
21
Mark mótsins
- Boltinn festist í samskeytunum
Magni Pétursson
— ÉG KALLAÐI til Magnúsar
og hann renndi boltanum út til
mín. Ég fann hvernig hann fyllti
út á mér ristina svo vel hitti ég
hann. Síðan sá ég ekki boltann
fyrr en hann var fastur i sam-
skeytunum og ég get trúað þér
fyrir því að það fór straumur um
mig allan, sagði Magni Pétursson
sem skoraði siðara mark Vals. Og
þvilikt mark. Þau gerast ekki
glæsilegri. Þrumuskot hans af 25
metra færi hafnaði efst i mark-
horninu og svo fast var skotið að
boltinn festist i markhorninu.
Þetta var í fyrsta sinn sem
Magna tekst að skora mark með
meistaraflokki.
— Ég hafði boðið foreldrum
mínum að koma á völlinn, og þetta
er í fyrsta skipti sem þau mæta á
útileik með Val. Þau báðu mig um
að skora fyrir sig eitt mark í
leiknum, og sem betur fer tókst
mér það. Þá er líka ánægjulegt að
þetta mark skyldi færa okkur
sigur í leiknum, sagði hinn mjög
svo vaxandi leikmaður Magni Pét-
ursson. — ÞR
Borg tapaði
• Frá leik Vals og ÍBK í Keflavík á laugardag. Eftir þrumuskot Magna Péturssonar situr boltinn fastur
efst í samskeytum marksins. Þorsteinn Bjarnason markvörður ÍBK er að losa boltann. Ljósm. Rax.
Atli skoraði sigurmarkið
HINN kunni sænski tennisleik-
ari Björn Borg tapaði i úrslita-
leik Opnu bandarisku tennis-
keppninnar sem lauk um sið-
ustu helgi. Það var John McEn-
roe sem lagði kappann að velli i
úrslitaleiknum eftir harða við-
ureign. Leikar fóru sem hér
segir: 7—6, 6—1 fyrir Enroe,
þá var komið að Borg og hann
sigraði 7—6 og 7—5. Þá var
komið að lokahrinunni og þá
sigraði hinn ungi Bandarikja-
maður með 6 á móti 4. Borg
hefur aldrei tekist að sigra i
þessari keppni á ferli sínum, en
leggur á það mikla áhcrslu að
ná sigri á þessu móti en það
verður að bíða betri tíma.
— ÞETTA var sætur sigur fyrir
okkur þar sem leikið var á
útivelli, og það var stórkostleg
tilfinning að skora sigurmark
leiksins, sagði Atli Eðvaldsson er
Mbl ræddi við hann á sunnudag.
— Schalke 04 er erkióvinur
Borussia Dortmund og hafa liðin
háð marga hildi saman.
— Leikurinn var mjög erfiður
og þeir sóttu meira i fyrri
hálfleiknum og náðu forystunni
1—0. Ég var mjög óheppinn að
skora ekki þar sem ég átti
þrumugott skot sem hafnaði i
þverslánni. Mark þeirra var
skorað úr greinilegri rangstöðu
og ég var að enda við að skoða
leikinn á myndsegulbandi og þar
sást það mjög vel. í síðari hálf-
leiknum sóttum við i okkur veðr-
ið og lékum betur en í fyrri
hálfleik. Við náðum að jafna
metin og svo aðeins fimm minút-
um fyrir leikslok skoraði ég
sigurmarkið. Ég fékk góða send-
ingu, var rétt utan vítateigs og
náði góðu skoti sem hafnaði i
bláhorni marksins.
Atli var inntur eftir því hvort
samkeppninn væri ekki hörð? —
Jú svo sannarlega. En sé viljinn
fyrir hendi er hægt að standa sig.
Mér finnst stórkostlegt að spila
hér. Leikirnir eru frekar harðir.
og i leiknum á móti Schalke
fengu sjö leikmenn að sjá gula
spjaldið. Ég leik sem fremsti
maður i liðinu og er það alveg
stórskemmtilegt. Ég kem að vísu
alltaf aftur þegar frispörk og
hornspyrnur er á okkur. Ég fæ
þvi að hlaupa nóg.
Atli sagðist reikna með að
Dortmund tækist að ná sér i
Evrópusæti i deildinni. Næsti
leikur Dortmund er á móti Ar-
menia Bielefeld á heimavelli. Lið
Atla er nú i fimmta sæti með 7
stig.
Crslit i leikjunum i Þýskalandi
urðu þessi. — ÞR.
Arminia Bieleíeld —
Bayern Mílnchen 1-2
UFB Stuttxart -
Borussia MónchenKladb. 4-2
Schalke 04 -
Borussia Dortmund 1-2
IlamburKer SV —
Eintracht Frankfurt 3-1
Karlsruher SC —
Fortuna Duesseldorf 3-0
Baver Leverkusen —
Bayer UerdinKen 1-1
WSV DuisburK —
1. F.C. NurnberK 2-0
1860 Munchen —
1. F.C. Köln 2-1
1. F.C. Kaiserslautern —
VFL Bochum 0-0
llamburK 1 1 0 12-5 0
Bayern i n i 15-8 8
DuisburK 2 3 0 0-3 7
Kaiserslautern 3 1 1 7—5 7
Dortmund 3 1 1 10-9 7
StuttKart 3 0 2 10-0 0
Frankfurt 3 0 2 11-8 0
Bochum 1 1 0 5-3 0
MonchenKladhach 3 0 2 10-9 0
Dusseldorf 3 0 2 7—0 0
Leverkusen 2 1 1 8-0 5
Karlsruhe 1 3 1 0-0 5
1860 1 1 3 8-11 3
Kóln 1 1 3 7-11 3
NiirnberK 1 0 1 7-11 2
Schalke 1 0 1 7-15 2
Bielefeld 0 t 1 7-14 1
UerdinKen 0 1 t 5-12 1
M