Morgunblaðið - 20.09.1980, Page 1

Morgunblaðið - 20.09.1980, Page 1
40 síður og Lesbók 212. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tveir leiötogar í Póllandi settir af Varsjá, 19. scptembcr. — AP. LEIÐTOGAR kommúnusta í pólsku borgunum Kato- wice og Poznan, annar þeirra gamall bandamaður Edvard Giereks fyrrverandi flokksleiðtoga, voru settir af í dag og verkföll héldu enn áfram á nokkrum stöðum. Spá átökum á Persaflóa Teheran, 19. september. — AP. ÍRANSKA herstjórnin skýrði í dag frá hörðum bardögum á landi og i lofti milli írana og íraka á landamærunum og sagði að flotaátök væru „lík- leg“ á næstu dögum milli landanna á Persaflóa. í Washington var staðfest frétt í blaðinu „Boston Globe“ um að vart hefði orðið óvenjulegra hern- aðarumsvifa í Austur-Þýzkalandi og Sovétríkjunum. En bandaríska utanríkisráðuneytið sagði, að ekki væri víst hvort þetta stæði í sambandi við ástandið í Póllandi. Zdzislaw Grudzien, fulltrúi í framkvæmdastjórn og flokksritari í námaborginni Katowice í Suð- ur-Slesíu, sagði af sér á flokks- fundi, þar sem hinn nýi flokksleið- togi, Stanislaw Kania, var meðal fundarmanna, að sögn ríkissjón- varpsins. Jerzy Zasada, flokksritari í borginni Poznan í Vestur-Pól- landi, sagði einnig af sér á flokks- fundi. Viðstaddur fundinn var framkvæmdastjórnarfulltrúinn Stefan Olszowski, sem var lækk- aður í tign og gerður sendiherra í Austur-Þýzkalandi í febrúar, þeg- ar hann mun hafa gagnrýnt efna- hagsmálastefnu Giereks. Olszowski sagði í ræðu, sem var útvarpað í dag, að ástandið stafaði af „hrokafullu aðgerðakerfi" í stjórnartíð Giereks. Opinberir fjölmiðlar segja, að bæði Grudzien, vinur Giereks, og Zasada hafi sagt af sér af fúsum vilja, en það er alltaf sagt. Eftir- maður Grudziens er Andrzej Zab- inski, aukafulltrúi í framkvæmd- astjórn, en sendiherrann í Rúm- eníu, Jerzy Kusiak, tekur við af Zasada. Jafnframt kvartaði Mieczyslaw Jagielski varaforsætisráðherra yf- ir því í sjónvarpsræðu, að verkföll héldu áfram. Verkfalli flutninga- verkamanna á Varsjársvæðinu lauk í dag og þeir fá kauphækkan- ir og kvartanir þeirra voru teknar til greina. Vinna liggur enn niðri á 16 vinnustöðum víða í Póllandi. Frétt „Boston Globe“: Sjá „Innrás í Pólland?“ — Sjá bls. 15. í tilkynningu sagði að írakir héfðu orðið fyrir töluverðu manntjóni á Khan Leyli svæð- inu. Tvær íranskar herþotur fórust á landamærunum og önnur þeirra hrapaði íraks- megin, sagði í tilkynningunni. írakir sögðu í gær að þeir hefðu grandað tveimur írönsk- um herþotum. Sagt var að 25 „gagnbyltingarmenn" hefðu fallið í Mahabad í gær og tveir Iranir. Sovézk viðskiptasendinefnd er komin til Teheran til við- ræðna um kaup á olíu frá íran og aukin viðskipti, að sögn Teherán-útvarpsins. Sambúð Rússa og írana hefur verið stirð vegna vopnasendinga Rússa til Iraks. Þessi loftmynd sýnir stóran gíg (á miðri mynd) og brak á víð og dreif eftir sprengingu i neðanjarðarbyrgi þar sem Titan II eldflaug var geymd. Reyk leggur upp úr gígnum. Stóri hluturinn til hægri á myndinni er þakið á byrginu. Geislim könnuð eftir Titan II sprengingu Damascus, Arkansas, 19. september. AP. SPRENGING varð í dag í neðan- jarðarbyrgi, þar sem Titan II eldflaug var geymd, og minnst 22 slösuðust. Eldflaugin var búin kjarnaodd samkvæmt heimildum í Pentagon, en ekkert bendir til að oddurinn hafi laskazt eða geislunarleki hafi orðið. Fólk í nágrenninu var flutt burt, alls um 1.000 manns og aðallega íbúar þorpanna Damascus, Bee Branch og Gravesville. Fólkið fær að snúa aftur þegar svæðið hefur verið rannsakað. Fulltrúar yfir- valda í Washington voru sendir á vettvang að kanna geislun á svæð- inu, sem er 80 km norður af Little Rock. Flugherinn segir ekkert benda til að plútóníum hafi lekið. Kjarna- oddurinn er sagður óskemmdur og í höndum flughersins. Átján þeirra sem slösuðust voru fluttir í sjúkra- hús. Slysið varð vegna leka í eldsneytistanki í fyrsta þrepi flaug- arinnar þegar þungur hlutur féll á hann. Starfsmenn flughersins sögðu að sögn Bill Clinton ríkisstjóra, að engin kjarnorkusprenging hefði orðið eða getað orðið. Talið er skipta mestu máli að kanna hvort geislun hafi orðið og sagt er að reynt sé að koma sérfræðingum og tækjum frá hernum á staðinn til að afstýra geislun. Talsvert brak dreifðist yfir ná- grennið og sums staðar kviknaði í laufi, en það var ekki alvarlegt. I fyrstu var ekki vitað hvort spreng- ingin varð í eldflauginni sjálfri eða eldsneytinu. Sprengingin varð til þess að krafizt var þingrannsóknar til að ganga úr skugga um hvort það borgaði sig að geyma eldflaugarnar. „Ef þær eru ekki öruggar og koma ekki að gagni veit ég ekki hvort þeirra er þörf,“ sagði Robert Dole, öldungadeildarmaður frá Kansas, einu þriggja ríkja þar sem eldflaug- ar eru geymdar í neðanjarðarbyrgj- um. í Washington harmaði Jimmy Carter forseti að 22 hefðu slasazt, en kvað ekkert benda til geislunar- leka á staðnum. Hann kvaðst hafa haft náið samband við Harold Brown landvarnarráðherra vegna málsins. Batnandi samskipti milli Bretlands og Frakklands París, 19. september. — AP. FRAKKAR og Bretar hafa jafnað ágreining sinn um Efnahagsbanda- lagið og í efnahagsmálum og milli þeirra rikir nýr andi trausts og samvinnu, að því er Margaret Thatcher forsætisráðherra og Val- ery Giscard d'Estaing forseti sögðu á blaðamannafundi i dag i lok tveggja daga fundar. Þetta var fyrsti fundur Thatchers og Giscard d’Estaings síðan þau sátu stormasaman leiðtogafund í London í nóvember í fyrra og deildu hart um þá ákvorðun Breta að minnka framlög sín til EBE um fjóra milljarða dollara. Frú Thatcher sagði, að „samúðar- bandalag" Breta og Frakka væri „við góða heilsu“, þótt enn væri eftir að gera út um nokkur atriði ágreiningsmála þeirra. Andrúms- loftið í samskiptum ríkisstjórnanna í London og París virðist hafa batnað töluvert. Seinna sagði frú Thatcher, að „siðferðilegt, pólitískt og efnahags- legt g’aldþrot sovézka marxismans væri öl um ljóst“. En hún varaði við því að „hugsjónafræðilegur ósigur" Rússa virtist hafa „aukið áfergju þeirra í að grípa til vopna. Þeir virðast telja valdbeitingu bezta spilið, sem þeir hafa eftir á hend- inni,“ sagði hún. Kúbumaður í geimstöð Moskvu, 19. september — AP. KCBANSKI flugmaðurinn Arnaldo Tamayo Mendez og Rússinn Yuri V. Romenenko bjuggu sig í dag undir að tengja geimfar sitt Soyuz 38 við sovézku geimstöðina Saly- ut-6 og tengingin átti að fara fram á miðnætti að Moskvu- tima. Fréttastofan Tass sagði að allt hefði gengið samkvæmt áætlun og geimfararnir væru við góða heilsu. í geimstöðinni munu þeir hitta fyrir Leonid Popov og Valery Ryumin, sem hafa hringsólað um jörðu síðan 9. apríl. Hinn 1. október munu þeir hnekkja meti því sem Ryumin og Vladimir Lyakhov settu í fyrra þegar þeir dvöldust 175 daga í geimnum. Tamayo er fyrsti maðurinn frá Rómönsku-Ameríku og sjöundi maðurinn frá landi utan Sovétríkjanna sem fer út í geiminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.