Morgunblaðið - 20.09.1980, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
JBlPööur —f F Lúk. 7.: Sonur ekkjunnar i Nain.
it ,Mt f ll *a morgun
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Sr.
Þórir Stephensen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar kl. 11 árd. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL:
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla
kl. 2 e.h. Athugið breyttan
messutíma. Sr. Lárus Halldórs-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA Guðsþjón-
usta kl. 11 árd. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
FELLA OG HÓLAPRESTA-
KALL: Guðsþjónusta í safnað-
arheimilinu að Keilufelli 1 kl. 11
árd. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11, altarisganga. Organl-
eikari Jón G. Þórarinsson. Al-
menn samkoma nk. fimmtudag
kl. 20:30. Haustfermingarbörn
hafi samband við sóknarprest-
inn. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudagur: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10:30 árd. Beðið
fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10 árd. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa kl. 11
að Norðurbrún 1. Sr. Grímur
Grímsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11. Organleikari Ulf Prunner. Sr.
Tómas Sveinsson.
BORGARSPÍTALINN: Guðs-
þjónusta k'. 10. Organleikari Jón
G. Þórarinsson. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
L ANGHOLTSPR EST AK ALL:
Guðsþjónusta kl. 2. Athugið
breyttan messutíma. Organleik-
ari Jón Stefánsson. Prestur sr.
Sig. Haukur Guðjónsson. Sókn-
arnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardagur 20. sept.: Guðs-
þjónusta að Hátúni lOb, níundu
hæð kl. 11 árd. Sunnud. 21. sept.:
Messa kl. 11. Þriðjudag 23. sept.:
Bænaguðsþjónusta kl. 18, altar-
isganga. Æskulýðsfundur kl.
20:30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Frank M. Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Fjölskylduguðsþjónusta kl 2.
Væntanleg fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru sérstak-
lega velkomin til guðsþjónust-
unnar. Safnaðarstjórn.
DÓMKIRKJA KRISTS kon
ungs Landakoti: Lágmessa kl.
8:30 árd. Hámessa kl. 10:30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka
daga er lágmessa kl. 6 síðd.
nema á laugardögum, þá kl. 2
síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
GRUND elli- og hjúkrunar-
heimili: Messa kl. 2 síðd. Sr.
Þorsteinn Jóhannesson fyrrv.
prófastur messar. — Fél. fyrrv.
sóknarpresta.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 10 árd. Helg-
unarsamkoma kl. 11 árd. Bæn kl.
20 og hjálpræðissamkoma kl.
20:30.
KFUM & K: Samkoma að Amt-
mannsstíg 2b kl. 20:30 í umsjá
Kristniboðssambandsins. Jónas
Þórisson kristniboði talar. —
Tekið verður á móti gjöfum til
kristniboðsins.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Safn-
aðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Al-
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árd. Sr. Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14. —
Að guðsþjónustu lokinni verður
aðalsafnaðarfundur. Sóknar-
nefnd.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Sigurður H.
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fjölskyldumessa kl. 2 síðd.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og forráðamanna þeirra.
Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefsspítala í
Hafnarf.: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Há-
messa kl. 8:30 árd. Virka daga er
messa kl. 8 árd.
INNRI NJARÐVÍKUR-
KIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11
árd. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 10:30 árd. Messa kl.
2 síðd. Sr. Björn Jónsson.
Á morgun hefst í hljóðvarpi
erindaflokkur um veðurfræði í
umsjá dr. Þórs Jakobssonar. Er-
indin verða flutt næstu sjö sunnu-
dagsmorgna. Þór Jakobsson
kvaðst hafa fengið til liðs við sig
Hlyn Sigtryggsson veðurstofu-
stjóra og fimm aðra starfsbræður
sína á veðurstofunni til að taia
um hina ýmsu þætti veðurþjón-
ustunnar.
„Meginverkefni Veðurstofu ís-
lands er dagleg þjónusta við
almenning," sagöi dr. Þór, „og þá
atvinnuvegi til sjós og lands sem
háðir eru veðri og vindum. Þjón-
ustan felst einkum í spám um
veður næsta sólarhring og veður-
útlit næstu dægur. Erindi Mark-
úsar Á. Einarssonar, sem er hið
fyrsta í röðinni, fjallar um veð-
urspár og undirbúning þeirra.
En starfsemi stofnunarinnar er
margþættari en margir ætla og
má hið sama segja um eðli
lofthjúps jarðar, viðfangsefni
veðurfræðinnar. Er erindaflokkn-
um í heild ætlað að gefa til kynna
margbreytnina.
í erindi sínu 28. september mun
Borgþór H. Jónsson segja frá efri
loftlögunum þar sem loftið líður í
löngum bylgjum frá vestri til
Dr. Þór Jakobsson
Nýr flokkur
sunnudags-
erinda
í hljóðvarpi
austurs umhverfis jörðina. Ræðst
gangur lægða og útbreiðsla meng-
unar gjarnan af þessari almennu
hringrás í háloftunum.
Hlynur Sigtryggsson veður-
stofustjóri greinir frá alþjóðlegri
samvinnu við athugun, spár og
rannsóknir á andrúmsloftinu (5.
okt.). Loftstraumarnir fara sinna
ferða og virða að vettugi landa- _
mærin í mannheiminum. Er því
óvíða meiri þörf á alþjóðlegri
samvinnu en í veðurfræðinni.
Margs kyns víxláhrif hafs og
lofts eiga sér stað í sífellu og
ræður ástand sjávar miklu um
tíðarfar. Menn dreymir um að
geta sagt fyrir um veðrið næsta
mánuð, jafnvel næstu árstíð. Þá
verður ekki komist hjá því að
kanna nánar þessi gagnkvæmu
áhrif úthafanna og lofthjúpsins.
Mun ég tala um þetta rannsókn-
arefni í fjórða erindinu, 12. októ-
ber.
Flestir kunna best við veður-
guðina í sæmilegu jafnvægi, en
engu að síður verða menn að láta
sér lynda, að þeim renni stundum
í skap svo um munar. 19. október
mun Trausti Jónsson flytja erindi
um ofviðri og ofviðrarannsóknir.
Á degi hverjum eru gerðar ótal
veðurathuganir um allan heim og
er það ærið verkefni fyrir veð-
urstofurnar að halda tii haga og
vinna úr upplýsingunum. Þannig
fæst vitneskja um, hvernig hita,
úrkomu og vindum er að jafnaði
háttað á hverjum stað, m.ö.o.
veðurfari. Adda Bára Sigfúsdóttir
mun flytja erindi um veðráttuna
og mun þá segja frá þessari
starfsemi (26. okt.).
Að lokum mun Flosi Hrafn
Sigurðsson tala um loftmengun
(2. nóv.). Margskyns aðskotaefni
eru á sveimi í andrúmsloftinu.
Fari magn þessara efna fram úr
hófi eða því sem eðlilegt má
teljast er um mengun að ræða.
Rannsókn á uppsprettu og dreif-
ingu mengunarefna er eitt mikil-
vægasta verkefni veðurfræðinn-
ar,“ sagði dr. Þór Jakobsson að
lokum.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
U'GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Veðurþjónusta
Akureyringur
í FÍM-salnum
Það er alltof sjaldan sem
Reykvíkingum gefst kostur á því
að fylgjast með því sem er að
gerast í myndlist norðan heiða
og raunar annars staðar af
landinu. Ástæðan hefur m.a.
verið sú, að reykvískir myndlist-
armenn og listrýnar hafa verið
undir þá sök seldir, að dæma
flest er úr dreifbýlinu kemur
sem innihaldslítið fikt. Jafnvel
þótt það hafi oft verið rétt metið
hefur undirritaður fyrir löngu
komist á þá skoðun að það sé
öllu heilbrigðara og þroskavæn-
legra að ýta undir alla viðleitni
til listsköpunar meðal lands-
manna og halda um leið gang-
andi drjúgum fróðleik um listir
almennt í fjölmiðlum. Á þann
veg tel ég vænlegast að þroska
með þjóðinni réttara mat á gildi
lista, víkka út sviðið og auka
gæðakröfurnar. Með hroka
ávinnst ekki mikið, nema ef
menn vilja skoða gikkshátt, úlf-
úð og illdeilur sem heilbrigðan
og þroskandi vettvang en opna
rökræðu þjóðhættulegt fyrir-
bæri, — slíkt er til því miður og
á helst við er þröngsýnir „fræð-
ingar“ á mörgum sviðum þykjast
vera að verja hagsmuni sina og
vegsemd stéttarinnar. Á tækni-
sviðinu er þetta nauðsynlegt en
hugmyndasviðið má aldrei
staðla né einangra við eina né
neina stétt...
Manni dettur margt í hug er
sýning Akureyringsins Arnar
Inga í FÍM-salnum er skoðuð en
það eru ekki endilega myndirnar
sem koma heilasellunum í gang
heldur sú staðreynd, að þetta
mun, ef ég man rétt, vera í
fyrsta skipti sem Akureyringur
sýnir sjálfstætt í þessu vígi
FÍM-manna.
örn Ingi er sjálflærður málari
er haldið hefur nokkrar sýningar
á Akureyri og tekið þátt í
ýmsum samsýningum þ.á m.
tveimur haustsýningum FÍM.
Örn hefur alla tíð verið mjög
mistækur í myndsköpun sinni og
virðist ei heldur gera sér grein
fyrir því hvaða stefnu hann eigi
að taka á hæðina eins og það er
nefnt. Örn vinnur á mörgum
sviðum myndlistar og þannig
eru allt í senn málverk, pastel-
myndir, vatnslitamyndir, teikn-
ingar og skúlptúr á þessari
sýningu hans. Veikastur þykir
mér hann ótvírætt ennþá í
málverkinu enda eru átökin þar
minnst við efniviðinn og mest
ígrundað í yfirborðinu, teikn-
ingarnar eru stórum sannari
fyrir einfaldleika sinn, en það
eftirtektarverðasta á sýningunni
eru ótvírætt vatnslitamyndirn-
ar, sem eru ferskar og tærar, —
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
hér kemur fram nýr tónn í
myndsköpun Arnar Inga, sem
hann mætti gjarnan leggja meiri
rækt við. Svipaður- hreinleiki
kemur fram í tveimur pastel-
myndum á sýningunni, þeim
„Haustregn" (19) og „Seigla"
(20). Það er mín skoðun að í
slíkum myndum sé Örn Ingi að
marka list sinni tímamót og
verður áhugavert að fylgjast
með framhaldinu.
r _
Ulfur Ragnarsson
í beinu framhaldi af listdómi um
sýningu Arnar Inga í FÍM-salnum
þykir mér það ómaksins vert að
fara nokkrum orðum um sýningu
annars Akureyrings þótt hann
sýni að vísu ekki í jafn virtum sal
og hefur látið sér nægja veggi
Mokka-kaffi. Hér er um að ræða
Úlf Ragnarsson lækni, sem fjöl-
margir munu kannast við fyrir
mikil umsvif í fagi sínu, greinar
hér í blaðinu um hið aðskildasta
efni, og nú síðast fyrir athafna-
semi á myndlistarvettvangi.
Frá því að undirritaður sá
myndir Úlfs fyrst, þykir mér hann
hafa tekið eftirtektarverðum
framförum og ekki aðeins í með-
ferð lita og forma heldur og einnig
í afstöðu sinni til myndlista al-
mennt.
Það ber mikið á frjálsum hugar-
flugsmyndum í myndsköpun Úlfs
og þar virðist hann mér njóta sín
einna best og lifa sig mest inn í
myndefnið, sem er einmitt það sem
meginmáli skiptir, — hér vil ég
nefna máli mínu til áréttingar
myndir eins og nr. 19 og 23, en í
annan stað varðandi hlutbundnara
myndefni þykir mér myndin
„Þorpið" (5) einna hrifmest, enda
einföld og tær í laufléttri mynd-
skipan sinni.
Litirnir í myndum Úlafs eru í
heild orðnir mettaðri og tengjast
þannig í frekari mæli sjálfum
myndfletinum.
Úlfur málar auðsjáanlega sjálf-
um sér til ánægju og til að ljá
duldum hvötum útrás og slíkt er í
öllum tilvikum mannbætandi og
ekki síður nauðsynlegt um lækna
en t.d. sjúklinga þeirra, sem erfitt
er á annan hátt að ná sambandi við
eða láta þá líta tilveruna vonbetri
augum.
Myndir Úlfs fara vel á veggjum
kaffistofunnar og ber að lokum að
þakka Akureyringunum báðum
fyrir heimsóknina.
Bragi Ásgeirsson