Morgunblaðið - 23.09.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
39
í dag verður til moldar borinn
Kristján Andrésson, fulltrúi.
Hann andaðist mánudaginn 15.
þ.m. eftir skamma sjúkdómslegu.
Kristján var fæddur 16. júní
1914 í Hafnarfirði. Foreldrar hans
voru María Kristjánsdóttir og
Andrés Runólfsson, verslunar-
maður.
Kristján lauk prófi frá Flens-
borgarskóla árið 1929. Á næstu
árum stundaði hann ýmis algeng
daglauna- og skrifstofustörf en
var fljótlega kallaður til forystu-
starfa i bæjarmálum Hafnar-
fjarðar. Þannig var hann um
tuttugu ára skeið bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði og um árabil fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðarinn-
ar. Árið 1967 hóf Kristján störf
hjá Verðlagsstofnun og starfaði
Kristján Andrésson
fulltrúi - Minning
hann hjá þeirri stofnun þar til
hann lést.
Kynni okkar Kristjáns hófust
fyrir tæplega sex árum er við
urðum samstarfsmenn. Þá strax
og ávallt síðan var hann reiðubú-
inn til þess að miðla mér af
reynslu sinni og þekkingu og
notfærði ég mér það í ríkum mæli.
Þrátt fyrir aldursmun tókst með
okkur mjög ánægjuleg samvinna
um lausn þeirra margþættu verk-
efna, sem við í starfi okkar áttum
við að glíma. Kom þar að góðu
gagni mikil greind og ritfærni
Kristjáns og lagni hans við að
Jeysa vandasöm mál. Þetta nána
samstarf okkar þróaðist smám
saman í einlæga vináttu, sem
aldrei bar skugga á. Hef ég því nú
á skilnaðarstund honum margt að
þakka.
Kristján var maður hár vexti og
bar slíka reisn, að athygli vakti
hvar sem hann fór. Vera má, að
ýmsum hafi fundist að hin tigin-
mannlega framkoma Kristjáns
bæri vott um þótta, en allir sem
þekktu hann vissu að svo var ekki.
I þeim forystuhlutverkum sem
honum voru falin á pólitískum
vettvangi tileinkaði hann sér að
koma fram af myndugleik og
festu. Hið innra var maðurinn
ljúfur og þægilegur í umgengni og
ákaflega fjölfróður og skemmti-
legur. Kristján var mikill unnandi
keppnisíþrótta og náði m.a. góðum
árangri á sviði skák- og bridge-
íþróttarinnar.
Kristján var kvæntur Salbjörgu
Magnúsdóttur og eignuðust þau
sex börn. Engum sem til hjónanna
þekkti duldist að milli þeirra ríkti
ástúð og gagnkvæm virðing. Sal-
björg verður nú að sjá að baki
eiginmanns síns skömmu eftir lát
sonar þeirra, Jóhanns, sem lést
langt um aldur fram.
Eg færi Salbjörgu og öðrum
venslamönnum Kristjáns mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Starfsfólk Verðlagsstofnunar
kveður Kristján með söknuði.
Georg Ólafsson.
Rúnar Ingi Bjöms-
son — Kveðja
Fæddur 21. íebrúar 1965.
Dáinn 16. ágúst 1980.
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir.
Hversu oft hef ég ekki lesið
þessi orð og þá kannski án þess að
hugsa nánar út í merkingu þeirra.
En aldrei hafa þau snert mig eins
og nú, er ég frétti lát þessa
elskulega frænda míns, því hann
var sannarlega drengur sem allir
er til þekktu elskuðu og virtu.
Prúðmennska og elskuleg fram-
koma var hans einkenni hvar sem
hann fór, í leik, starfi og daglegu
lífi. í tómstundum voru það
íþróttir og þá einkum knattspyrna
sem átti hug hans allan og þar
skaraði hann líka framúr. Hversu
erfitt reynist manni ekki að skilja
tilgang þess að hrifsa þennan
elskulega ungling burt í blóma
lífsins. Hann sem framtíðin virtist
brosa við og allir væntu svo mikils
af.
Þær verða ekki fleiri skákirnar
sem þeir nafnarnir tefla saman,
annar hefur nú verið kallaður burt
af öðru og mikilvægara skákborði.
Mér virðist dimmt yfir öllu
þessa daga þó sólin skíni og ég
held það sé skuggi yfir gamla
Glóðafeyki, Skagafjörður hefur
misst einn sinn glæsilegasta son.
Elsku Lilja, Bjössi, Linda og
Smári litli, við ykkur vil ég segja:
Huggun ykkar í harmi þessum er
sú að minningarnar um hann eru
allar svo góðar að þar getur
enginn skuggi fallið á. Því þó
lífsganga hans væri ekki löng þá
var hún þannig að sómi var að.
Eins og lítil frænka hans sagði:
„Hann var svo góður."
Hafi minn elskuiegi frændi
þökk fyrir allt, kynnin við hann
voru eins og sólargeislar, honum
fylgdi aldrei neinn hávaði þegar
hann komst í heimsókn en þeim
mun meiri hlýja og rólegheit. Ég
veit að vel hefur verið tekið á móti
honum handan við móðuna miklu,
þar sem við hittumst öll að
leiðarlokum.
Drottinn minn, gef þú dánum
ró, hinum líkn sem lifa.
Denna frænka.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagshlaði, að berast i
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hiiðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru
ckki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linuhili.
Frá tilraunaeldhúsi Mjólkursamsölunnar
Mataruppskriftir
Blómkálssalat m/sýrðum
rjóma og beikoni
150 gr. beikon
1 meðalstórt blómkálshöfuð
1 litil dós grænar baunir
1 rauð paprika.
Sósan: 1 ds. sýrður rjómi
3 msk. fínt klipptur graslaukur
eða dill ferskt eða þurrkað.
Skerið beikonið smf og snöggsteikið það.
Sjóðið blómkálið í léttsöltuðu vatni, hlutið það í
hríslur og kælið. Skerið paprikuna í mjóar
lengjur. Setjið grænmetið og helminginn af
beikoninu í salatskál. Blandið kryddinu saman
við sýrða rjómann og hellið honum yfir grænmet-
ið í skálinni. Skreytt með beikoninu sem var
skilið eftir. Gott að bera þetta salat fram með
allskyns pylsum og kaldri skinku eða öðru kjöti,
ásamt grófu brauði.
Ábætisréttur úr kókómjólk
8 dl kókómjólk
3 tsk. kaffiduft
2 msk. sykur
8 bl. matarlím
3 dl rjómi (til skreytingar)
Leggið matarlimið í bleyti í kalt
vatn í 10—15 mín. Blandið sykrin-
um og kaffiduftinu saman við
kókómjólkina. Þeytið rjómann.
Hellið vatninu af matarlíminu og
leysið það síðan upp með því að
hella '/2 dl af sjóðandi vatni yfir
það. Kælið matarlímið ofurlítið og
blandið því út í kókómjólkina og
þegar hún hefur stifnað nokkuð,
blandið þá þeytta rjómanum var-
lega út í. Skreytið búðinginn með
þeyttum rjóma þegar hann hefur
stífnað alveg.
Fomleifaraimsókn-
ir í Herjólfsdal
LOKIÐ er útivinnu, sem fram fór í sumar. við
fornleifarannsóknir í Herjólfsdal. Er þetta fimmta
sumarið, sem unnið er við uppgröft þar, en rannsókn-
irnar hófust sumarið 1971. Þegar er búið að grafa upp
um 1300 fermetra svæði, þar sem komið hafa í ljós átta
hús eða húsaleifar ásamt garðhleðslum og fleiru, sem
fundist hefur í nágrenni þeirra.
Húsin eru á 4—5 byggingaskeið-
um, en ekki öll frá sama tíma. Af
leifum þeim sem fundist hafa í og
við húsarústirnar sést að bændur
hafa búið þarna á sínum tíma,
sem hafa að sjálfsögðu nýtt sér
þau hlunnindi, sem á staðnum var
að hafa, svo sem fugl og fisk.
Efri aldursmörk byggðarinnar í
Herjólfsdal eru ekki fullkunn.
Hún er allnokkru eldri en hin
svokallaða „landnámsgjóska“, sem
talin er frá ofanverðri 9. öld. Þetta
má m.a. marka af því að „land-
námsgjóskan" kemur fram í
mannvistarlagi á uppgraftar-
svæðinu, er sýnir að töluverð
byggð er á staðnum er þetta
gjóskufall verður. í eldri húsa-
rústum er „landnámsgjóskuna“
ekki að finna í byggingartorfi,
þ.e.a.s. hún er yngri. I yngri
rústunum, frá lokum 9. aldar og
10. öld, má sjá „landnámsgjósk-
una“ í byggingartorfi. I bygg-
ingartorfi húsanna er einnig að
finna svarta gjósku, sem ekki er
endanlega búið að rekja til ákveð-
inna gosstöðva eða tímasetja.
Hvað varðar tímasetningu
minjanna í Herjólfsdal, hafa við-
arkolasýni (birkisýni) úr eldstæð-
um og gólfi verið aldursgreind
með geislakolsaðferð (C14-aðferð),
og hafa niðurstöður þeirra aldurs-
greininga gefið allháan aldur.
Sýni var tekið til frjógreiningar í
nánd við rústirnar 1977. Niður-
staða þeirrar greiningar gefur
einnig vísbendingu um allháan
aldur byggðarinnar í Herjólfsdal.
Er í ráði að frjógreina fleiri sýni í
tengslum við rústirnar. Endan-
legar niðurstöður um aldur byggð-
arinnar í Herjólfsdal fást því ekki
fyrr en lokið verður frjógreining-
um, C14-aldursákvörðunum og
ekki sízt greiningu og tímasetn-
ingu gjóskulaga er finnast i rúst-
(Fróttatilkynninn)
Utför
ÞÓRÐAR GÍSLASONAR,
sveitarstjóra, Garði,
veröur gerð frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 25. september kl.
15.00.
Jarösett veröur í Gufuneskirkjugaröi.
Aldís Jónsdóttir,
Gísli Jón Þóröarson,
Þóra Gísladóttir,
Auöur Gísladóttir,
Asthildur Gísladóttir Königseder.
Verksmiójusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Gerið góð kaup í úrvalsvöru.
Opid virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Sími 28720.