Morgunblaðið - 16.10.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 1 1
Magnús Óskarsson:
Eilífðarglæpur
Af öllum glæpum er sá
verstur, sem aldrei verður
bættur né aftur tekinn. Þýfi
má skila, en líf manns gefur
enginn til baka. Því er sá
glæpur alvarlegastur allra, að
svipta annan mann lífi. Afbrot
af því tagi má með réttu nefna
eilífðarglæp.
Grípið þjófinn
Löggæzlumenn reyna að
hindra afbrot og dómstólar
dæma menn fyrir að brjóta
lög. Löghlýðinn borgari, sem
stendur þjóf að verki, kallar á
viðstadda að grípa þjófinn, ef
annað dugar ekki til.
En hvað á að gera, ef lögleg
yfirvöld eru staðin að verki við
að fremja siðferðilegan glæp
gagnvart almenningi?
Glópur — glæpur
Orðin glópur og glæpur eru
af sama stofni. Skammsýnir
skipulagsglópar og stjórn-
málamenn hyggjast nú fremja
þann eilífðarglæp að girða um
aldir fyrir útsýni yfir Sundin
og til Esjunnar með skrif-
stofuháhýsi. Hvað sem menn
segja, er fullvíst, að á eftir
mun koma háhýsaveggur á því
eina svæði, sem enn er autt við
Sundin.
Afbrot margfald-
að með 10
Það er nú eitthvað annað en
borgarstjórn Sjálfstæðis-
flokksins hafi verið saklaus af
skipulagsafbrotum. Við, sem
hófum gagnrýni á hækkur.
lágreistra húsa við Elliðavog-
inn fyrir nokkrum árum, lét-
um okkur engu varða, hvaða
stjórnmálaflokkur átti í hlut.
Engan skyldi því undra, þótt
hljóð heyrðist úr horni, þegar
ný borgarstjórn ætlar að
margfalda það brot, sem áður
var mótmælt, með tölunum 8
eða 10.
Magnús Óskarsson
Pólitískt
gæzluvarðhald
Þeirri spurningu hefur hér
verið varpað fram, hvað gera
ætti, ef stjórnvöld yrðu uppvís
að ráðagerð um afbrot í æðra
veldi gagnvart almenningi. Við
þeirri spurningu er aðeins eitt
svar: Almenningur verður að
gripa þjófinn.
Stjórnmálamenn eiga rétt á
að vera dæmdir eftir verkum
sínum eins og aðrir menn. Sá
dómur fellur í kosningum, en
hvað á að gera þangað til? Svo
notuð sé samlíking úr laga-
máli, sem allir skilja, þá á
almenningur að setja borgar-
stjórn í pólitískt gæzluvarð-
hald í þessu máli fram að
næstu kosningum.
Samtök stofnuð
Þá gæzlu, sem þörf er á,
verður hinn almenni borgari
að taka að sér. Nk. sunnudag
verða stofnuð samtök til að
standa vörð um það umhverfi
og þá nátturufegurð, sem enn
er óspillt við Sundin. Á þann
fund eiga þeir erindi, sem annt
er um fegurð Reykjavíkur.
Kvikmyndin Land og synir:
Fær lofsamlega
dóma erlendis
SÝNINGAR á kvikmyndinni
Landi og sonum hafa nú verið
teknar upp að nýju í Regnbogan-
um í Reykjavík. Jafnframt verð-
ur myndin sýnd um allt land. þar
sem ekki vannst timi til að sýna
hana til hlitar fyrr á árinu.
Land og synir hafa fengið frá-
bærar viðtökur hvarvetna erlendis
þar sem myndin hefur verið sýnd.
Sýningar standa nú yfir á henni í
Noregi þar sem gagnrýnin er
einróma lof og jafnvel bent á að
norskir kvikmyndagerðarmenn
mættu margt af þeim vinnubrögð-
um læra sem koma fram í mynd-
inni. Einn gagnrýnandinn, Ánd-
rew Szepesy segir: „ ... enda skal
því ekki stungið undir stól að
Land og synir hafa hleypt vindin-
um úr þeirri afsökun að ekki sé
hægt að gera góða mynd í Noregi."
Þá hefur Larry Kardish, sem er
fulltrúi kvikmyndadeildar Muse-
um of Modern Art í New York,
skrifað: „Sagan greinir frá þeim
sársauka er fylgir því að rífa sig
upp með rótum. Þótt andrúmsloft
myndarinnar sé sorglegt, er hún
með skarpari og heiðarlegri kvik-
myndum um það sem oft er
örðugast í uppvextinum."
I þýska sjónvarpinu ZDF fékk
kvikmyndin Land og synir þá
umsögn að hún væri eitthvað það
allra besta sem sést hefði frá
Norðurlöndum á undanförnum ár-
um.
Þessar umsagnir, þótt aðeins
fáar séu teknar, sýna að kvik-
myndin Land og synir, sú fyrsta
leikna stórmynd sem Islendingar
gera einir, hefur tekist þannig, að
þjóðir sem eiga langa sögu í
kvikmyndum, mikið fjármagn og
úrval í mannafla, líta svo á, að
þeir geti nokkuð af okkur lært.
Þetta er fyrst og fremst alveg
sérstök viðurkenning á hæfni leik-
stjórans og raunar allra annarra
sem að gerð myndarinnar hafa
staðið.
Þær sýningar sem nú eru hafn-
ar á Landi og sonum aö nýju í
Regnboganum verða þær síðustu
því kvikmyndin verður ekki sýnd í
sjónvarpinu.
(Fréttatilkynning frá ísfilm.)
Kristín Lárusdóttir og Guðjón B. Hilmarsson, eigendur verzlunarinn-
ar, við afgreiðslustörf.
Sparta, ný íþróttaverzlun
FYRIR skömmu tók til starfa ný
íþróttaverzlun i Reykjavík,
„Sportvöruverzlunin Sparta“, og
er hún til húsa að Ingólfsstræti 8.
í verzluninni er boðið upp á
mikið úrval af ýmiss konar
íþróttavörum, s.s. íþróttaskó frá
Ádidas og Hummel, íþrótta- og
sportfatnað frá Adidas, Hummel,
Henson, Champion o.fl., íþrótta-
og badmintonvörur frá Yonex og
Charlton, sundvörur frá Speedo og
Laguna, borðtennisvörur frá Stiga
og Butterfly og auk þess íþrótta-
töskur, fimleika- og leikfimivörur,
bolta o.m.fl.
I vetur verður síðan boðið upp á
skíði, skíðaskó og skíðafatnað.
Verslunin er í björtum og rúm-
góðum húsakynnum. Góð bíla-
stæði eru í nágrenni verslunarinn-
ar.
Eigendur verslunarinnar eru
Guðjón B. Hilmarsson og Kristín
Lárusdóttir.
(Fréttatilkynning)
etsák
úá, Barbara SUeisand er
sek um aö Koma me\r á
övarl en nokkurn ga\ grunab.
Á hljomdeild
Utjþ KARNABÆR
* Laugaveqi 66. t 28155 Gl«sib» s 8191S. Austurstrvli 22. s 28155
Heildsöludreifing
steifKtfhf
Símar 85742 og 85055.
Að öllu athuguðu, væri
ekki rétt að tryggja
sér eintak!
Á nýju plötunni sinni
Guilty" nýtur hún dyggilegr-
ar aöstoöar Barry Gibb. Hann
syngur meö henni í flestum
lögum plötunnar, stjórnar
upptökum og semur ásamt
bræörum sínum öll lög plöt-
unnar.
Lagið „Woman in Love“
stefnir nú á efstu sæti vin-
sældarlista um allan heim. En
Guilty“ inniheldur mörg
fleiri lög sem gefa því
ekkert eftir.