Morgunblaðið - 16.10.1980, Side 20

Morgunblaðið - 16.10.1980, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 Myndin sýnir stóran hluta af sjóvarnarífarðinum og uppfyllinifunni við Sauðárkrókshöfn. „Gamla bryi{>fjan“ fyrir miðju. Vinstra megin við hana má greina nokkuð af sandinum sem Hákur dældi. en til ha'iiri er sjór. Myndin er tekin í ágúst sl. um það leyti er dælingu lauk. Lj<wn.: Guftni R. Björnwwn. s&ftg- Hinir 79 dagar Hafnarmálastofnunar Miðvikudaginn 8. október sl. birtist í Morgunblaðinu frétt frá undirrituðum þar sem sagt var frá skemmdum, sem urðu á sjóvarnarjíarði hér á Sauðár- króki í norðan veðri er þá gekk yfir. Fréttin var svohljóðandi: „Miklar skemmdir hafa orðið í þessu veðri á uppfyllingu sem gerð var í sumar á svæðinu kringum svokallaða gömlu bryggju. Sjóvarnargarður gerð- ur úr stórgrýti hefur skolast burt á löngum kafla. Sjór geng- ur hindrunarlítið inn á svæðið. Dæluprammi frá Hafnarmála- skrifstofunni var hér í margar vikur í sumar og átti að dæla sandi úr höfninni í þessa upp- fyllingu. Verkið gekk seint og illa vegna stöðugra bilana. Þeg- ar pramminn fór, hafði aðeins verið dælt um 60% þess sem ráðgert hafði verið að dæla. Nú er þessi annars ágæta og nauð- synlega framkvæmd stór- skemmd og eins víst að vetrar- brimin sjái um að koma henni endanlega fyrir kattarnef. Þar með skolast nokkrir milljóna- tugir í sjóinn og ein sorgarsag- an enn bætist í safnið hjá Hafnarmálaskrifstofunni." Þessi frétt virðist hafa komið illa við þá í Hafnarmálastofn- uninni því daginn eftir birtir stofnunin eftirfarandi athuga- semd í Morgunblaðinu: „Dælupramminn Hákur vann við dýpkun hafnarinnar á Sauð- árkróki í sumar. I upphafi var ætlunin að dæla efninu í pramma, sem sigldi með það út á sjó, en vegna óska heima- manna var efninu dælt um eins kílómetra leið, svo það myndaði uppfyllingu meðfram landi, sunnan hafnarinnar. Var grjótvörn sett framan á upp- fyllinguna af heimamönnum sjálfum og sáu þeir um allan frágang í því sambandi. Vegna þess hve langt var dælt og rusls í höfninni, sem vildi þvælast fyrir prammanum, ásamt bilun- um sóttist verkið seint. Sam- kvæmt fréttinni í Mbl. hefur brimið tekið framan af þessari fyllingu og er það Hafnarmála- stofnuninni algjörlega óviðkom- andi. Að hér sé um milljóna- tugatjón að ræða er afskaplega ólíklegt. Æskilegt væri að Kári á Sauðárkróki vandaði betur fréttaflutning sinn.“ Eins og lesendur sjá hnekkir þessi athugasemd engu í frétt minni. Hún staðfestir þvert á móti allt, sem þar er sagt og máli skiptir. Hafnarmálastofn- un er mikið í mun að koma því á framfæri, að grjótvörnin fram- an á uppfyllingunni sé verk heimamanna, sem þeir beri sjálfir alla ábyrgð á. Þess er látið ógetið, að heimamenn hóf- ust handa við byggingu varn- argarðsins snemma í vor í trausti þess, að Hákur kæmi á þeim tíma, sem Hafnarmála- stofnun áætlaði. En á þeim bæ er allt á sömu bókina lært, því margar vikur liðu þar til pramminn birtist og dælingin, sem taka átti að sögn 20 daga, fór meira og minna úrskeiðis. Ætlunin var að ganga endan- lega frá grjótvörninni eftir að dælingu lyki og land hafði myndast, svo auðveldara væri að athafna sig við verkið. En allt fór það á annan veg, þar sem Hákur dældi aðeins rösk- lega helmingi þess magns, sem áætlað var. Eftir stóð heljar mikil þró, hálf af sjó, og varnargarðurinn auðveld bráð sjávarróti vetrar- ins. Þannig var viðskilnaður Hafnarmálastofnunar. Að segja síðan, eftir að verkið nær eyði- Ieggst í fyrsta haustbfiminu, að tjónið sé Hafnarmálastofnun- inni „algjörlega óviðkomandi“ er furðu óskammfeilin yfirlýs- ing af opinberri stofnun, sem hafa á umsjón með höfnum landsins og framkvæmdum við þær. Sveitarstjórnarmenn verða að standa kjósendum reikn- ingsskap gerða sinna. Þeim er óhægt með að skjóta sér bakvið aðra, hafa trúlega sjaldnast hug á slíku. Öðru máli gegnir um opinbera aðila á borð við Hafn- armálastofnun. Mistök hennar blasa víða við, en hver er leiddur til ábyrgðar? Og hver borgar brúsann? Auðvitað fólk- ið í landinu. Arum og áratugum saman kafa þessir herrar djúpt í vasa skattborgaranna án þess, að þeir geti nokkrum vörnum við komið. Það er sannarlega orðið tíma- bært — og það fyrir löngu — að framkvæmdir við hafnir lands- ins séu teknar úr höndum þess- arar vanmegnugu stofnunar og færðar til einstaklinga og fyrir- tækja með verkútboðum. í athugasemd stofnunarinnar er dregið í efa, að um millj- ónatugatjón geti verið að ræða og undirrituðum ráðlagt að vanda sig betur í fréttaflutn- ingi. Eg hvika ekki frá því, að eyðileggist margumrædd fram- kvæmd með öllu, þ.e. grjótgarð- urinn og uppfyllingin skolist brott, verði skaðinn talinn í milljóna tugum. í framhaldi af þessu er rétt að spyrja: Hvað kostaði dælingin í Sauð- árkrókshöfn í sumar þegar allt er reiknað? Hver var upphafleg kostnaðaráætlun Hafnarmála- stofnunar og hverjar eru endan- legar niðurstöður? Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem ég hefi aflað mér var Hákur hér í samtals 79 daga. Og nú vil ég spyrja Hafnarmála- stofnun eftirfarandi spurninga: 1. Er það rétt að á þessum 79 dögum hafi aðelns verið unn- ið við dælingu í 24 daga og þá verið mikið um tafir? 2. Er það rétt að Hákur hafi verið bilaður í 17 daga af þeim 79 sem hann var hér? 3. Er það rétt að af þessum 79 dögum hafi 15 dagar farið í undirbúning og lagfæringar? 4. Getur það verið að af þessum 79 dögum hafi 23 farið í helgarfrí og það lengsta stað- ið í 11 daga? 5^ Eru líkur til að kostnaður pr. rúmmetra fari 100% fram úr áætlun? Þessum spurningum verður Hafnarmálastofnun að svara hér í blaðinu. Undan því getur hún ekki vikist. Þegar þau svör birtast kemur væntanlega í ljós hver það er, sem raunverulega þarf að vanda sig. Sauðárkróki, 12. október 1980, Nefndir á vegum ríkisins í fyrra voru 523: Heildarkostnaður var tæplega 528 millj. kr. HEILDARKOSTNAÐUR við nefndir á vegum rikisins á sl. ári nam tæplega 528 milljónum króna, en alls voru starfandi 523 nefndir með 2603 nefndar- mönnum. Nefndum fjölgaði um 42 frá árinu áður. Flestar voru nefndirnar á veg- um menntamálaráðuneytisins, eða 147 með 747 nefndarmönnum. Kostnaðurinn við þær var rúm- lega 66.5 milljónir króna. Mestur kostnaður var hins veg- ar við nefndir á vegum heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytis- ins, eða tæplega 93 milljónir króna vegna 58 nefnda, þar sem þátt tóku alls 273 nefndarmenn. Á vegum iðnaðarráðuneytisins voru starfandi 63 nefndir á sl. ári, sem í voru 281 nefndarmaður, og nam heildarkostnaður við þær alls tæplega 58 milljónum króna. Fæstar nefndir voru starfandi á vegum fjármálaráðuneytisins, þar með innifalin fjárlaga- og hag- sýslustofnun, eða 4 með liðlega 6 milljón króna kostnaði, en þar voru starfandi 17 nefndarmenn. Á vegum Hagstofu íslands, sem stundum er talin sérstakt ráðu- neyti var þó ekki starfandi nema ein nefnd með fjórum nefndar- mönnum og nam heildarkostnaður vegna hennar liðleg einni milljón króna. Emhla Dís. Katrín Kristín og Sigurey Valdis setja tombólusjóð. sem safnaðist i síðustu viku. í söfnunarbaukinn. Nemendur í Langholtsskóla safna í Afríkuhjálpina KRAKKAR í 7. bekk Lang- holtsskóia í Reykjavík útbjuggu í sl. viku sameiginlegan söfnunar- bauk. Baukurinn er skreyttur viðeigandi myndum og verður afhentur Afríkuhjálpinni 1980 i lok þessarar viku með þeim peningum sem í hann hafa safn- ast. í tilkynningu frá skólanum seg- ir að Afríkuhjálp Rauða krossins hafi vakið athygli nemenda skól- ans með ýmsu móti síðustu daga. „Umfjöllun um efnið hefur gjarnan haldið áfram í skólastof- unni, öll tiltæk gögnun þjóðir austur-Afríku hafa verið dregin fram í dagsljósið og fyrir nokkr- um dögum heimsótti Helgi Hró- bjartsson kristniboði, sem starfað hefur í Eþíópíu, skólann og sýndi myndir og sagði frá,“ segir m.a. í tilkynningunni. Skipulagsbreytingar á ritstjórn Þjóðviljans VILBORG Harðardóttir hefur látið af störfum sem fréttastjóri Þjóðviljans, en hún sagði þvi starfi lausu með þriggja mánaða uppsagnarfresti hinn 1. maí í vor. Hinn 1. október siðastliðinn gckk hins vegar í gildi nýtt skipulag á ritstjórn Þjóðviljans. Styrkur til háskólanáms í Noregi Úr Minningarsjóði Olavs Brun- borg verður veittur styrkur að upphæð fimm þúsund norskar krónur á næsta ári. Tilgangur sjóðsins er að styrkja islenzka stúdenta og kandidata til há- skólanáms í Noregi. (Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er styrk- urinn aðeins veittur karl- mönnum). Umsóknir um styrkinn, ásamt upplýsingum um nám og fjárhags- ástæður, sendist skrifstofu Há- skóla Islands fyrir 15. nóvember 1980. (Frétt frá Háskóla íslands). og verður hún nú verkstjóri á ritstjórninni. Vilborg sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að ekki væri búið að finna nafn á þetta nýja starf, en það heíði manna í milli verið nefnt „desk- stjóri“ á slæmu máli. Vilborg kvað fyrrnefndar skipu- lagsbreytingar hafa verið aðal- ástæðuna fyrir því að hún hætti störfum fréttastjóra, en þrír rit- stjórar væru á blaðinu og því nóg af stjórum. „En það var einnig viss óánægja sem olli því að ég lét taka titilinn fréttastjóri út úr haus blaðsins," sagði Vilborg. „En einnig var ætlunin með þessu að knýja á um breytingar hér á blaðinu, og eftir sem áður verð ég hér verkstjóri. Veikindi og fyrir- hugaðar breytingar á húsnæði hafa svo aftur valdið því að þær hafa ekki tekið gildi fyrr en nú.“ Einar Karl Haraldsson ritstjóri Þjóðviljans sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að enginn fótur væri fyrir þeirri frétt Vísis í gær, að hann væri að láta af störfum ritstjóra við blaðið. „Mér er ekki kunnugt um þessi atvinnu- tilboð sem Vísir greinir frá,“ segir Einar Karl, „samkomulagið milli okkar Kjartans Ólfssonar er ágætt, og ég er ekki að hætta hér.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.