Morgunblaðið - 16.10.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
35
Skagfirska söngsveitin með nýja plötu
atbeina lögreglunnar með vísan til
31. gr. byggingarlaga, þá hefði
ekki komið til greina að halda
áfram framkvæmdum í blóra við
fyrirmæli lögreglunnar, enda ekki
til neins.
Þrátt fyrir að frekari fram-
kvæmdir höfðu verið stöðvaðar af
lögreglunni og lögbannsleiðin stóð
Hellnamönnum opin, sem ön'nur
lögmæt aðferð að láta stöðva
frekari byggingarframkvæmdir og
þrátt fyrir þá alkunnu staðreynd,
að hús verða ekki reist á blautri
steypu, fyrr en hún þá hefur
harðnað í 2—3 vikur, þá var gripið
til þess úrræðis að gjöreyðileggja
undirstöðurnar. Þjónaði þessi
refsiverða skemmdarstarfsemi
ekki nokkrum tilgangi, þar sem
um frekari framkvæmdir við
byggingu sumarbústaðanna,
a.m.k. í sumar, gat ekki orðið. Sú
yfirlýsing Hellnabúa, sem fram
kom í fréttatilkynningu þeirra að
með eyðileggingu undirstaðanna
hafi þeir gripið til þess eina
úrræðis sem tiltækt var, hefur því
ekki við nokkur rök að styðjast.
Heilsulindin
Miklu fjaðrafoki hefur verið
þyrlað upp um það, að L.Í.Ú hafi
látið eyðileggja heilsulind Hellna-
búa eða lífslind Hellnabúa, eins og
uppspretta sú er kemur undan
hraunjaðrinum á hinu neðra
svæði hefur verið nefnd.
Hefur L.Í.Ú í þessu sambandi
verið ásakað ýmist um að hafa
eyðilagt lind þessa með ósvífnum
hætti eða með vítaverðu jarðraski
án þess að hirða um hvað fyrir
stórvirkum vinnuvélum, sem þeir
beittu við þetta, varð.
Þessu til að svara, þá töldu
samtökin nauðsynlegt að þurrka
upp syðra hluta neðra svæðisins,
sem var mjög blautur, og stafar
það af því að vatn kemur undan
hraunjaðrinum og rennur út á
flötina. Var fenginn maður úr
sveitinni er hafði yfir að ráða
traktorsgröfu, til að grafa mjóan
skurð frá hraunjaðrinum út í
Sauðá, er skilur að tún Skjaldar-
traðar og neðra svæðið. Rennur nú
uppsprettuvatnið eftir skurði
þessum í stað þess að renna út um
syðsta hluta neðra svæðisins. í
engu hefur verið hróflað við upp-
sprettunni sjálfri að öðru leyti og
hún því ekki eyðilögð.
L.I.Ú var með öllu ókunnugt um,
að uppspretta þessi hefði eitthvert
sögulegt gildi. Á sama hátt var
Náttúruverndarráði, sem og
gröfumanninum, ókunnugt um
þetta. Öllum fullyrðingum og að-
dróttunum um það að L.Í.Ú hafi
spillt og eyðilagt þessa heilsulind
af ásetningi og illfýsi er vísað
heim til föðurhúsanna.
Málinu þvælt um
í kerfinu
Þessi deila sem samtökin hafa
átt í við nokkra ábúendur að
Hellnum og valdið hefur þeim
óhemju fjárt.jóni og óþægindum,
hefur nú staðið í um þrjú ár og
hefur mál þetta verið þvælt fram
og aftur milli ýmissa opinberra
aðila, nefnda, ráða og stofnana og
hafa ábúendur að Hellnum verið
óþreyttir að notfæra sér þessa
aðila eftir hendinni, a.m.k. suma
hverja.
Til þess að almenningur geti
gert sér grein fyrir því, hve mál
þetta hefur þvælst um kerfið fram
og aftur, skulu þessir aðilar taldir
upp, en þeir eru:
Jarðanefnd Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, Landnám ríkis-
ins, Landnámsstjóri, Landbúnað-
arráðuneytið (skrifstofustjóri
þess), landbúnaðarráðherra (þrír),
hreppsnefnd Breiðuvíkurhrepps,
byggingarnefnd Breiðuvíkur-
hrepps, byggingarfulltrúinn í
Vesturlandsumdæmi (tveir),
Skipulagsstjórn rikisins, skipu-
lagsstjóri, Félagsmálaráðuneytið,
Náttúruverndarráð, framkvæmda-
stjóri þess, náttúruverndarnefnd
Snæfellsnessýslu, sýslumanns-
embættið í Stykkishólmi, Rann-
sóknarlögregla ríkisins og dóms-
málaráðuneytið.
Lokaorð
Staðan í deilunni er nú sú, eins
og málinu hefur verið stillt upp af
hálfu Hellnabúa, að annað hvort
byggir L.I.Ú á efra svæðinu, sem
yrði þá 10—200 metrum ofar en
fyrirhuguð staðsetning bústað-
anna er á neðra svæðinu, eða þá á
neðra svæðinu og þá leggst byggð-
in í rúst eða með öðrum orðum,
svo vitnað sé í ummæli eins
þeirra, „hætta er á að grisjun
byggðar hefjist. Það myndi byrja
með stopulli samgöngum, síðar
myndi félagslífi hnigna, tekjur
sveitarfélagsins minnkuðu og
svona koll af kolli. Á endanum
sætu hér aðeins nokkrir einsetu-
menn".
Að endingu skal það skýrt tekið
fram, að samtökin keyptu jörðina
Skjaldartröð til þess að reisa þar
fimm sumarbústaði á hinu svo-
nefnda neðra svæði. Þessari af-
stöðu sinni hafa samtökin ekki og
munu ekki breyta, hvaða aðferð-
um, löglegum sem ólöglegum,
nokkrir ábúendur að Hellnum
koma til með að beita gegn
samtökunum í því skyni að bola
þeim burt af jörðinni.
Jónas Haraldsson,
skrifstofustjóri L.Í.Ú.
Eftirlit með
útlendingum
og framsal
sakamanna
LÖGFRÆÐINGAFÉLAG Islands
efnir til almenns fundar um
reglur islenzkra laga um eftirlit
með útlendingum og framsal
sakamanna fimmtudaginn 16.
þ.m. Um þessi mál munu fjalla
Jónatan Þórmundsson prófessor
og Kagnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður, sem kynnt hafa
sér þau sérstaklega. Siðan verða
almennar umræður.
Svo sem kunnugt er, er það í
vaxandi mæli að erlendir menn
leiti hér landvistar, annaðhvort
sem pólitískir flóttamenn eða af
öðrum sökum. Verður á fundinum
m.a. fjallað um það hvenær heim-
ilt er að meina mönnum að koma
inn í landið, hvaða ástæður geta
leitt til þess að mönnum er vísað
úr landi og hvaða reglur gilda
samkvæmt íslenzkum lögum og
þjóðarétti um skyldu ríkja til þess
að taka við pólitískum flótta-
mönnum.
Þá verður rætt um það í fram-
söguræðunum hver ákvæði gilda
hér á landi um framsal saka-
manna til annarra landa.
Þessi fundur Lögfræðingafé-
lagsins er öllum opinn. Hann hefst
kl. 20.30 og er haldinn í stofu 101 í
Lögbergi, Háskóla íslands.
(Frýttatilkynniiuc)
SKAGFIRSKA söngsveitin í
Reykjavík hefur gefið út nýja
hljómplötu. sem tekin var upp
á tónleikum í Iláteigskirkju
1975, Sna'björg Snæbjarnar-
dóttir stjórnar og undirleikar-
ar eru Arni Arinbjarnarson á
orgel og Ólafur Vignir Al-
bertsson á píanó.
Á hljómplötunni syngur söng-
sveitin ýmist öll eða að eingöngu
eru notaðar karlaraddirnar eða
kvenraddirnar og í tveimur lög-
um syngur barnakór. En ein-
söngvarar eru Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir og Hjálmtýr
Hjálmtýsson. Platan hefst á 3
lögum eftir Þórarinn Guð-
mundsson, Hugleiðing við ljóð
Jakobs Jóhannessonar Smára og
Vertu guð faðir við sálm Hall-
gríms Péturssonar og Olíuljós við
ljóð Þóris Bergssonar. Þá eru tvö
lög eftir Pál ísólfsson, við ljóð
Davíðs Stefánssonar, Bláu nunn-
urnar og Maríuvers. Barnakórinn
syngur í lögunum I rökkurró,
Hún sefur og Sanctus eftir Franz
í DAG frumsýnir Stjörnubíó
myndina Vélmennið, (The Hum-
anoid), bandaríska mynd í litum
eftir vísindaskáldsögu Adriano
Bolzoni. Leikstjóri er George B.
Lewis, framleiðandi Giorgio Vent-
urini, tónlist Ennio Morricone,
kvikmyndun Silvano Ippoliti, bún-
ingar Luca Sabatelli. I aðalhlut-
verkum eru Richard Kiel, Corinne
Clery, Leonard Mann, Barbara
Baach, Arthur Kennedy, Ivan
Schubert. Og flutt eru Ave Ver-
um Corpus eftir Mozart, Angus
Dei eftir Bizet, Locus Ista og Ave
Maria eftir Bruckner.
Rassimov, Marco Yeh og Massimo
Serato.
Myndin fjallar um grimmilega
valdabaráttu og er barist um
yfirráðin í sólkerfinu öllu. Lækni
nokkrum og vísindamanni hefur
tekist að framleiða töfraefnið
kappatrón og getur hann nú búið
til hið hryllilega vélmenni sem
tortíma mun Metrópólis, fyrrum
plánetunni Jörð.
Þau tnínnstu læra líka
meö Duplö
® K
stóru LEGO kubbunum
Það er vandi að velja þroskandi
leikföng við hæfi yngstu barnanna.
Þau þurfa að vera sterk, einföld,
litrík og þrifaleg. Og gefa tækifæri til
að móta eftir eigin höfði þó að
fingurnir hafi ekki öðlast fulla fimi,
vagna, bíla, flugvélar og aðra einfalda
hluti.
Þannig eru LEGO Duplo. Nú eru
komnir fylgihlutir sem auka
möguleikana og ánægjuna.
Stjörnubíó frum-
sýnir Vélmennid