Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 + Sonur okkar, bróðir og dóttursonur, RICHARD RÚNAR THOM ODDSSON, lést at slysförum í Togo í Afríku 6. ágúst sl. Sigríöur Siguröardóttir, Oddur Rikharðsson, Súsanna Oddsdóttir, Aníta Oddsdóttír, Gróta Oddsdóttir, Súsanna Guðjónsdóttir. + Faöir okkar, JÓN GESTUR VIGFÚSSON, fyrrum sparisjóðsgjaldkari, Suðurgötu 5, Hafnarfiröi, er látinn. Bðrnin. + Eiginmaður minn, JÓHANN EYVINDSSON, Borgarholtsbraut 72, lést 12. október. Fvíií hönd vándamanna, y’ Anna Lilja Guðmundsdóttir. + Eiginkona mín, GUÐRÚN HANSDÓTTIR, fré Þúfu í Landssveit, lést á Hrafnistu aö morgni 15. október sl. Fyrir hönd vandamanna, Péll Þorsteinsson. + Eiginmaður minn og faöir okkar, GUDMUNDUR R. TRJAMANNSSON, Ijósmyndarí, lést 13. þ.m. í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri. Kristín Sigtryggsdóttir, og bðrn. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, STEFANÍA ÁSMUNDSDÓTTIR, fré Krossum, Hjaltabakka 6, lést aö Hrafnistu 10 þ.m. Minningarathöfn fer fram í Dómkirkjunni föstudaginn 17. október kl. 13.30. Jarðsett veröur frá Staöastaöakirkju laugardaginn 18. þ.m. kl. 14.00. Ragnheiöur Pálsdóttir, Sigurgeir H. Friöþjófsson, Jón Pélsson, María Bjarnadóttir, Kristín Pélsdóttir, Vilhelm H. Lúðvíksson, Péll Ragnarsson, Klara Gunnarsdóttir og barnabðrn. + Eiginkona mín, INGUNN KRISTJÁNSDÓTTIR, Skipholti 28, Reykjavík, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 17. október kl. 10.30. Þeir, sem vildu minnast hennar láti Slysavarnafélag ísiands njóta þess. Björn Sigurösson. + Eiginkona mín og móöir okkar, LILJA EINARSDOTTIR, Noröurbrún 1, sem andaöist 7. október, veröur jarösungin föstudaginn 17. október frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Karl B. Björnsson og bðrn. + Eiginkona mín og móöir okkar, KRISTBJÖRG GÍSLADÓTTIR, Smératúni 19, Keflavík, sem andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 7. þ.m. veröur jarösungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 17. okt. kl. 2. e.h. Hreggviöur Hermannsson, Björn Blöndal, Gísli Blöndal, Margrét Hreggviösdóttir, Hermann Torfi Hreggvíósson, Elín Kristín Hreggviósdóttir, Guömundur Péll Hreggviösson. Jón Guðlaugsson - Minningarorð í dag er til moldar borinn ber sl., eftir stutta legu þar. Hann mágur minn, Jón Guðlaugsson, er var faeddur 6. desember 1913, lést að Landakotsspítala 8. októ- sonur Guðríðar Þorleifsdóttur og + Eiginmaöur minn, EINAR GUNNLAUGSSON, Bustarfelli, sem andaöist 10. október veröur jarösunginn aö Hofi laugardag- inn 18. október nk. kl. 14.00. Elín Methúsalemsdóttir. + Faöir minn og fósturfaöir, MARÍUS TH. PÁLSSON, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 17. þ.m. kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hins látna, láti Blindravinafélagiö njóta þess. Péll Kristinn Maríusson, Hrafnhildur Jónasdóttir. Bróöir okkar, SIGURÐUR SIGURÐSSON, fré Götuhúsum é Stokkseyri, \ verður jarösunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 18. októ- ber kl. 3.00. Kristín Siguróardóttir, Halldóra Siguröardóttir, Sigríöur Siguröardóttir, Valgerður Siguröardóttir. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUDRÍDUR ÞORSTEINSDÓTTIR, hjúkrunarkona, Langholti 7, Akureyri, veröur jarðsungin frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 18. október kl. 1.30. Þeir sem vildu minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg. Brynja Baröadóttir, Jónas Sigurjónsson, Lóa Baróadóttir, Jón Garðarsson, og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna fráfalls ÁRNA KÁRASONAR, dýralsaknis, Arnartanga 59, Mosfellssveit. Gréta Aöalsteinsdóttir, Kéri Jóhansen, Kéri Árnason, Sigríöur Árnadóttir, Herborg Árnadóttir, Gunnar Kérason, Svana Þorgeirsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall eiginkonu minnar og móöur, SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR, fré Staó í Aöalvík. Asgeir Guójónsson, Magnús Asgeírsson. + Innilegt þakklæti færum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröaför SIGURÐAR PÉTURS JÓNSSONAR. Strandgötu 9, Ólafsfiröi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Kristnesi, fyrir veitta aöstoö á liönum árum. Freygeröur A. Þorsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Jaröarför PÁLS J. LEVÍ, bónda é Heggsstöóum, fer fram í Melstaöakirkju laugardaginn 18. október kl. 2.00. Þórdís Annasdóttir, Jón Pélsson, Helgi Pélsson. Guðlaugs Egilssonar, Hokinsdal í Arnarfirði. Guðríður lést á þessu ári háöldruð, en Guðlaugur, á besta aldri úr berklum á Vífils- staðahæli. Guðríði kynntist ég lítilsháttar og virtist mér hún vera stillingarmanneskja og fannst mér Jón sonur hennar í mörgu líkur henni. Hann var mikið valmenni, fáorður, greiðug- ur, hlýr í viðmóti og lagði aldrei nokkrum manni illt til. Hann var mikill og góður verkmaður og féll sjaldan verk úr hendi heima, þótt hann vegna langvarandi heilsu- leysis gæti ekki stundað vinnu út frá heimilinu nú í mörg ár. Hann var alltaf að dytta að einhverju, enda mikið snyrtimenni. Nú á síðustu árum dundaði hann við að gera upp bát, sem hann smíðaði ungur og hafði af því mikla ánægju að „skreppa á flot“ á honum, þegar hann treysti sér til. Sveinspróf tók Jón í skipasmíði, fullorðinn maður með þungt heim- ili, og tók hann tvo bekki í einu, því hann átti mjög gott með að læra. Þá urðu þau hjónin að leggja hart að sér til þess að hann gæti lokið við skólann. Hann var alls staðar vel liðinn á vinnustað, bæði vegna trúmennsku og góðrar framkomu. Snemma fékk Jón að kenna á veikindum. Tólf ára gamall fékk hann berkla í annað hnéð og varð út frá því fatlaður alla sína ævi. Mig minnir að ég hafi heyrt að hann hafi verið borinn í kirkju til fermingar. En þrátt fyrir þetta náði hann sæmilegri heilsu um tíma og gekk þá að öllum störfum sem heilbrigður væri, og sá um heimilið í Hokinsdal með móður sinni í mörg ár, enda elstur af sex systkinum. Eg á mági mínum mikið að þakka fyrir heimsóknirnar að Landakoti í fyrra til mannsins míns, Óskars Hlíðbergs, sem háði þar sitt dauðastríð. Þá ræddu þeir sín áhugamál, sem var smábátaútgerð og veiði- skapur og margt átti nú að gera þegar heilsan leyfði. En margt fer öðruvísi en ætlað er og því ræður hann sem veit hvað er fyrir bestu, og við sættum okkur við það. Jón á líka þakkir skilið fyrir hversu góður og greiðasamur hann var tengdaforeldrum sínum, sem sjá á bak, nú í hárri elli, öðrum tengdasyni sínum á rúmu ári. Jón kvæntist eftirlifandi eigin- konu sinni, Guðbjörgu Jónsdóttur frá Kolfreyju í Fáskrúðsfirði, 26. desember 1946 og eignuðust þau fimm börn, Guðjón Hilmar, kjör- son f. 16. júlí 1946, Guðrúnu Helgu f. 18. júlí 1947, Jónu Guðlaugu f. 19. júlí 1948, Þorstein Inga f. 31 janúar 1955 og Óskar Hlíðar f. 6. ágúst 1962. Aðauki ólu þau upp sonardóttur sína, Guðbjörgu Ingu Guðjóns- dóttur, f. 12 febrúar 1972. Þau mega nú öll sjá á bak hjálpsömum og góðum föður, sem alltaf var tilbúinn að rétta hjálparhönd ef eitthvað þurfti að lagfæra. Að endingu sendi ég systur minni, börnum og öllum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Drottinn styrki okkur öll. Valborg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.