Morgunblaðið - 16.10.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
47
Wranalérog emdiw
búa líka til barnabuxur í mörgum sniöum.
Efni: Demin 10 oz. — Demin 14 oz.
Ull & Kakhi — Riflað flauel.
Fást hjá Karnabæ.
og
Yfirburóir
FH-kvenna
FH sigraði KR með miklum
yfirburðum. 22—9. í fyrsta leikn-
um i 1. deild kvenna í handknatt-
leik, en leikið var i Hafnarfirði.
Staðan í hálfleik var 10—3. Var
aldrei spurning hvar stigin
myndu hafna að þessu sinni.
Gang leiksins er óþarfi að rekja.
FH-ingarnir hófu strax stórskota-
hríð og vörn KR réði ekkert við.
Margrét Theodórsdóttir lék þarna
sinn fyrsta leik með FH og munar
liðið mikið um hana. Er liðið
líklegt til afreka með hana innan-
borðs ásamt Kristjönu, Katrínu og
nokkrum efnilegum handbolta-
konum. KR lék hins vegar án
Hansínu Melsteð og var liðið fyrir
vikið eins og höfuðlaus her.
Nokkrar góðar handknatt-
leikskonur eru þó í liðinu, það
vantar bara einhverja afgerandi.
Kristjana var markhæst hjá FH
með 8 mörk, Margrét skoraði 6 og
Katrín 3 mörk. Jóhanna Ás-
mundsdóttir og Karólína Jóns-
dóttir skoruðu langmest fyrir KR,
tvö mörk hvor, aðrar minna ...
• Svertinginn Bureli er ekki
banginn við hið sterka lið Ci-
bona. Hann ásamt John Johnsson
leika með Val í kvöld.
Lið Fram:
Snæbjörn Ásgrímsson 7
Sigmar Þröstur óskarsson 4
Axel Axelsson 5
Hannes Leifsson 4
Erlendur Davíðsson 6
Atli Hilmarsson 4
Björgvin Björgvinsson 8
Jón Arni Rúnarsson 5
Hinrik ólafsson 5
Sigurbergur Sigsteinsson G
Lið Víkings:
Kristján Sigmundsson 8
Guðmundur Guðmundsson G
Árni Indriðason G
Steinar Birgisson 6
ólafur Jónsson G
Þorbergur Aðalsteinsson 7
Páli Björgvinsson 6
Einkunnagjöfin
Lítil mótstaða Hauka gegn Val
VALUR sigraði Ilauka með mikl-
um yfirburðum í íslandsmótinu i
handknattieik í gærkvöldi. Loka-
tölur leiksins urðu 28—19 eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
13—9 Val í vil. Níu marka sigur
Vals var sanngjarn. En þrátt
fyrir þennan stóra sigur sýndi
liðið alls ekki neinn stórleik.
Siður en svo. Þess þurfti ekki
með því að lið Ilauka var alveg
ótrúlega slakt og áhugalaust í
leiknum. Valsmenn gátu með
góðu móti leyít sér allskyns
vitleysur án þess að það kæmi að
sök. Þá var vörn Vals óvenju slök
lengst af í leiknum sem sést best
á því að Haukarnir skoruðu 19
mörk.
Valur—OQ 1A
Haukar
hversu lítil stemmning var hjá
liðunum.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild. Valur—
Haukar 28-19 (13-9)
Mörk Vals: Stefán Halldórsson 7,
3v, Steindór Gunnarsson 5, Þor-
björn Guðmundsson 4, Jón Karls-
son 3, Gunnar Lúðvíksson 3,
Bjarni Guðmundsson 3, Jón P.
Jónsson 2, Brynjar Harðarson 1 v.
Mörk Hauka: Hörður Harðarson
5, 3 v, Júlíus Páls'son 5, Sigurgeir
Marteinsson 3, Karl Ingason 3,
Árni Sverrisson, Stefán Jónsson,
Viðar Símonarson 1 mark hver.
Brottvísun af velli: Þorbjörn
Jensson Val í 2 mín, Jón Pétur Val
í 2 mín, Þorbjörn Guðmundsson
Val í 4 mín. Hörður Harðarson
Haukum var útilokaður frá leikn-
um í síðari hálfleiknum.
Misheppnuð vítaköst: Ólafur Beni-
diktsson varði víti frá Herði
Harðarsyni á 40. mín og Viðar
Simonarson skaut yfir á 43.
mín.—þr.
Það var aðeins fyrstu tíu mínút-
ur leiksins sem jafnræði var með
liðunum en Valur náði strax
frumkvæðinu og var oftast marki
yfir.
Upp úr miðjum fyrri hálfleik
náðu Valsmenn svo afgerandi for-
ystu og höfðu mest fimm mörk
yfir í hálfleiknum. í síðari hálfleik
leit svo út um tíma að Haukar
ætluðu að ná sér á strik og tókst
þeim að minnka muninn niður i
tvö mörk, 15—13, en misstu síðan
leikinn alveg út úr höndum sér
með fádæma ráðleysislegum og
illa spiluðum leik. Smátt og smátt
jók Valur forskot sitt og í lok
leiksins var munurinn orðinn 9
mörk.
Það verður að segjast eins og er
að ekki er von á að aðsókn að
handknattleiksleikjum aukist ef
ekki er betra upp á teningnum en
var í gærkvöldi í leik Hauka og
Vals. Satt best að segja bauð
leikurinn upp á fátt eitt nema
mistök á báða bóga. Valsmenn
geta- ekki afsakað sig með því að
mótstaðan hafi verið lítil sem
engin, þeir eiga að geta gert mikið
betur. Þá var mjög athyglisvert
Evrópukeppnin í körfuknattleik
Eitt besta lið
Evrópu mætir Val
í höllinni í kvöld
I kvöld kl. 20.00 mætir Valur
júgóslavneska liðinu Cibona í
fyrri leik liðanna i Evrópukeppni
bikarhafa í körfuknattleik. Ci-
bona er sterkasta kröfuknatt-
leikslið sem hingað hefur komið
og verður þvi róður Valsmanna
þungur. Þeir eru cngu að síður
ákveðnir í að standa sig og hafa
undirbúið sig af mikilli kost-
gæfni fyrir leikinn og æft að
undanförnu tvisvar á dag.
Þjálfari Valsmanna Hilmar
Hafsteinsson sagði í spjalli við
Mbl. að hann hefði fengið góðar
upplýsingar um lið Cibona og þeir
væru við öllu búnir. Ljóst væri að
liðið væri geysilega sterkt og yrði
erfitt viðfangs. Hann sagði að lið
Vals myndi leika maður á mann í
vörninni og reyna að verjast eins
vel og nokkur kostur væri. Þá
myndi liðið byggja mikið upp á
þeim Ken Burell og John Johnsson
sem þekktu vel til hvors annars.
Hilmar sagðist vonast til þess að
körfuknattleiksunnendur létu sig
ekki vanta því að þarna gæfist
kostur að sjá sterkasta körfu-
knattleikslið Evrópu í dag.
Bandaríkjamaðurinn Ken Bur-
ell var ekki banginn er Mbl. innti
hann eftir leiknum. Hann sagði:
— Við vinnum þessa karla. Það
hefur ekkert að segja þó þeir séu
stórir og stæðilegir. Ég er sjálfur
vanur slíkum körlum frá því í
NBA. Allavega eiga þeir eftir að
stoppa mig í leiknum. Það verður
ekki auðgert. Lið Vals er i góðri
æfingu og við eigum eftir að velgja
þeim undir uggum.
- þr
Norrænt þing
í Reykjavík
37. ÞING norrænna frjálsiþrótta-
leiðtoga verður haldið í Reykja-
vik um næstu helgi. Alls koma
hingað 13 fulltrúar frá Norður-
löndunum fjórum. danska.
finnska og norska samhandið
senda 3 menn hvert. en Svíar 4.
Á dagskrá þingsins verða alls 22
mál, sem snerta norræna sam-
vinnu á sviði frjálsíþrótta, bæði út
á við og inn á við. Unnið verður að
norrænni mótaskrá og staðfest
Norðurlandamet.
Samvinna Norðurlandanna hef-
ur farið vaxandi á undanförnum
árum öllum til gagns og gleði.
Þetta er í 4. sinn sem Norður-
landafundurinn er haldinn í
Reykjavík.