Morgunblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979, á Lögbergslandi 26, Oddsflöt, þinglýstri eign Einars Péturssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 20. janúar 1981 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboö sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1980, á Vatnsendabletti 144, þinglýstri eign Guðjóns Guömundssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 20. janúar 1981 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1980, á Vatnsendabletti 208, þinglýstri eign Guðmundar B. Sveinbjörnssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 20. janúar 1981 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 79., 81. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980, á Vatnsendablettum 200-221 og 457-459B, þinglýstri eign Gunnlaugar Hannesdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudag- inn 20. janúar 1981 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979, á Vatnsendabletti 63, þinglýstri eign Guðríðar Guðjónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 20. janúar 1981 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980, á Vatnsendabletti 110, þinglýstri eign Magnúsar Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 20. janúar 1981 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 79., 81. og 85. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1980, á Vatnsendabletti 233, þinglýstri eign Kristjáns Kristjánssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 20. janúar 1981 kl. 17.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1979, á Vatnsendabletti 194, þinglýstri eign Ingvars Björnssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 20. janúar 1981 kl. 11.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979, á Vatnsendabletti 417, talinni eign Eddu Dagbjartsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 20. janúar 1981 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi Sr. Gisli H. Kolbeins: Jólahald í Stykkis- hólmi og gjafh* til kirkna Frásögn af jólahaldi í Stykkis- hólmi og gjöfum til kirkna, sem undirritaður þjónar við. Upphaf jólahaldsins í Stykkis- hólmi í ár var aðventukvöld, sem haldið var sunnudagskvöldið 7. des. í Stykkishólmskirkju. Var þá kominn í kirkjuna nýr kirkjugrip- ur vandaður að gerð, sem kvenfé- lagið Hringurinn í Stykkishólmi kostaði smíði á. Kvenfélagið færir Stykkishólmskirkju og söfnuði gripinn að gjöf í tilefni af aldaraf- mæli kirkjunnar. Kirkjuhátíð var haldin 21. okt. 1979 til að minnast vígsiu Stykkis- hólmskirkju 19. okt. 1879. Þá var ákveðið að efna til smíði á skáp- borði fyrir ljósprentað eintak af Guðbrandsbiblíu, sem Stykkis- hólmskirkja á. Skápborðið smíð- aði svo Björgvin Þorvarðarson smiður hjá fyrirtækinu Ösp hf. í Stykkishólmi. Á aðventukvöldinu stóð það svo norðan við altari í kór kirkjunnar og þeir, sem í kirkju voru, gátu lesið spádóminn um fæðingu Frelsarans í 6. versi 9. kafla spádómsbókar Jesaja eins og hann var prentaður í 1. prentun Biblí- unnar hér á landi fyrir nær því 4 hundruð árum, þar sem ljosprent- aða Guðbrandsbiblíueintakið var þar opið undir gleri ofan á skáp- borðinu. Á aðventukvöldinu fluttu ungar stúlkur og lítil börn hljómlist með blásturshljóðfærum auk þess að kirkjukórinn söng. Hugvekja, bænir og frásögn var flutt. Ungmenni lásu jólaerindi og sögðu fram jólavers við aðventu- kransinn, sem ungar stulkur tendruðu Ijós á. I vikunni þar á eftir voru þættir úr aðventu- dagskránni fluttir bæði á sjúkra- húsinu og í Dvalarheimilinu. Daginn fyrir Þorláksmessu fór ég til Flateyjar með flóabátnum Baldri og hafði jólahelgistund þar í eyjunni. Við það tækifæri skrýddist ég nýju rikkilíni og hátíðarstólu, sem frú Unnur Elíasar, Hátúni 10 A í Reykjavík, gaf Flateyjarkirkju á þessu hausti. Um leið og hún afhenti mér þá góðu gjöf lagði hún bréf með, sem tilgreinir, að hún gefi þennan skrúða til minningar um hjónin Guðrúnu B. Arinbjarn- ar og Kristján Arinbjarnar lækni og hjónin Magðalenu Jónsdóttur og Jóhann Eyjólfsson að Kvía- bryggj u og Garðshorni í Grund- arfirði. Að niðurlagi óskar hún Flateyj- arkirkju allrar Guðsblessunar. Að gjöf frú Unnar er mikill hátíðar- auki fyrir Flateyinga. Þegar svo ber til eins og hefir verið á síðustu sumrum, að tveir prestar fara í messuheimsókn þá sumarfjöl- menni er í hvíldar- og hressingar- dvöl í Flatey geta þeir nú gengið báðir skrýddir til helgrar þjón- ustu í Eyjarkirkjunni. Jólahátíðin hér í Hólminum leið við hugðnæman helgiblæ, sæmi- legt vetrarveður og viðunandi akstursfæri bæði innan staðarins og til annexíanna. Margmennt var við guðsþjónusturnar og helgi- stundir á sjúkrahúsi og Dvalar- heimili. Kaþólski presturinn sr. Jan Ha- bets, sem þjónar systrunum af St. Fransiskusarreglunni í klaustrinu hér í Stykkishólmi kom skrýddur helgiklæðum til aftansöngs kl. 18 í Stykkishólmskirkju á aðfangadag. Eg fór í miðnæturmessu sama kvöld til Klaustursins einnig skrýddur og tók þátt í athöfninni. Á jólaföstunni bárust góðar gjafir til Stykkishólmskirkju. Fyrst er að nefna að frú Aðalheið- Ur Sigurðardóttir, Laufásvegi 5, færði kirkjunni nýja ryksugu að verðmæti meira en 150 þúsund krónur til efnda á áheiti. Um miðja jólaföstu afhenti ónefndur gefandi 100 þúsund króna gjöf til minningar um móður. Á Þorláksmessu kom góðgjarn gefandi og færði mér 125 þúsund krónur að gjöf til Stykkishólms- kirkju til minningar um foreldra og aðra látna ástvini ónefndra hjóna. Daginn fyrir gamlaársdag kom gegn borgari þessa byggðar- lags tii mín og afhenti mér 50 þúsund króna gjöf til Stykkis- hólmskirkju, sem nafnlaus vel- vildarhugur fylgdi frá honum og eiginkonu hans. Fyrr á árinu hefir Stykkis- hólmskirkju verið afhent áheit frá tveim aðilum að upphæð samtals 12 þúsund krónur. En snemma árs 1980 var afhent 200 þúsund króna minningargjöf frá frú Lovísu Ólafsdóttur og í septemberbyrjun minntist frú Halldóra ísleifsdóttir kirkju sinn- ar og gaf henni 30 þúsund krónur til minningar um kæra ástvini, sem látnir eru, af því tilefni að frú Halldóra varð 80 ára 24. ágúst sl. Þá er einnig þess að geta að Helgafellskirkju í Helgafellssveit barst 100 þúsund króna gjöf frá ónefndum hjónum til minningar um foreldra þeirra nú rétt fyrir jólin. Og svo 30. des. barst líka 100 þúsund króna gjöf frá enn öðrum ónefndum hjónum til minningar um látna ástvini þeirra. öllum þeim gefendum, sem hér hafa verið nefndir flyt ég hugheil- ar þakkir fyrir rausn þeirra og hlýhug til kirkna og safnaða. Það er mikils vert og uppörv- andi að njóta góðvildar og gjaf- mildi þeirra, sem sýna kirkjunni og málefnum hennar ræktarsemi. Guð blessi glaðan gjafara og farsæli öllum fótmálin á nýja árinu. Frá lögreglunni: Vitni vantar að ákeyrslum Slysarannsóknadeild lögregl- unnar i Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrslum i borginni. Þeir, sem veitt geta upplýsingar um þessar ákeyrslur eru beðnir að hafa samband við lögregluna I sima 10200: Þriðjudaginn 23.12. sl. var ekið á bifreiðina R-4689 sem er Mazda fólksbifreið, grá að lit við verslun- armiðstöðina á Leirubakka 34 í Rvík. Átti sér stað frá kl. 14.15 til 20.15 þennan dag. Vinstri hurð er skemmd. Gæti verið eftir jeppa- bifreið. Laugardaginn 27.12. sl. var ekið á bifreiðina R-70692 sem er Lada station drapplitaður á bifr.stæði við hús nr. 102 við Hverfisgötu. Átti sér stað frá kl. 00.30 og fram til kl. 17.00. Vinstra afturaurbretti er skemmt. Fimmtudaginn 1.1. sl. var til- kynnt að ekið hefði verið á bifreið- ina X-1876 sem er Datsun fólks- bifreið 160 type, silfurgrár að lit á birf.stæði við Skipholt 42. Skemmd er á vélarloki og grilli. Skemmdin gæti verið eftir jeppa- bifreið eða stóra bifreið, þar sem hún er mjög há á bifreiðinni. Fimmtudaginn 1.1. sl. var ekið á bifreiðina R-62405 sem er Saab gulbrúnn að lit á Austurbergi við hús nr. 32. Hægri framhurð er skemmd. Átti sér stað frá kl. 02.30 til 03.30. " 'PTmmHiðágính" f.V sf vár etfíl* bifreiðina R-3322 sem er Cortina fólksbifreið brún að lit á Skál- holtsstíg skammt austan við Þing- holtsstræti. Hægra afturaurbretti er skemmt í ca. 6 cm hæð. Hvítur litur er í skemmdinni. Þriðjudaginn 6.1. sl. var ekið á bifreiðina R-9129 sem er Moskw- itch fólksbifreið gulbrún að lit. Bifreiðin var á sunnanverðu Norð- urfelli, móts við Fannarfell 2, skammt austan við þrenginguna að Eddufelli. Vinstra afturaur- bretti, afturhöggvari, afturgafl og ljós eru skemmd á bifreiðinni. Mjög líklegt er að skemmdin hafi komið er snjóruðningur fór þarna fram. Miðvikudaginn 7.1. sl. var ekið á bifreiðina Y-7504 sem er Mazda fólksbifreið 626 brúnsanseruð á bifr.stæði við Laugarásbió. Hægra afturaurbretti og höggvarahorn er skemmt. Átti sér stað frá kl. 19.00 til 22.00. Miðvikudaginn 7.1. sl. var til- kynnt að ekið hefði verið á bifr. BNH-210 sem er B.M.W. fólksbif- reið rauð að lit á Öldugötu við hús nr. 5. Vinstra afturaurbretti og hurð eru skemmd. Hvítur litur er í skemmdinni. Sennilega hefur tjónið komið á bifr. þann 6.1. Fimmtudaginn 8.1. sl. var ekið á bifr. X-144 sem er Cortina orange rauður að lit fyrir framan hús nr. 35 við Skipholt. Hægri afturhurð og afturaurbretti eru skemmd. Atti sér stað frá kl. 09.20 til 12.00. 84.000 atvinnuleysis- dagar á síðastliðnu ári MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá félagsmálaráðuneytinu um fjölda skráðra atvinnuleysisdaga árið 1980 borið saman við árin 1975—1979. 1975 1976 1977 1978 1979 Meðaltal 1980 Jan.-nóv. 82.888 109.188 62.886 74.789 88.111 83.572 73.533 Desember 15.927 16.071 11.203 13.97210.432 13.521 10.467 Samtals 98.815 125.296 74.089 88.761 98.543 97.100 84.000 Skýringar: Tafla þessi sýnir skráða atvinnuleysisdaga á landinu öllu mánuðina janúar til og með nóvember árin 1975—1980 samkvæmt skýrslum félagsmálaráðuneytisins. Ennfremur fjölda atvinnuleysisdaga í desember 1975—1979 og áætlaðan fjölda atvinnuleysisdaga í desember 1980 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þá heildarfjölda atvinnuleysisdaga árin 1975—1979 og áætlaðan fjölda þeirra á árinu 1980 samkvæmt sömu heimild. Loks sýnir taflan meðaltal áranna 1975—1979 samanborið við árið 1980.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.