Morgunblaðið - 12.03.1981, Side 44

Morgunblaðið - 12.03.1981, Side 44
... að óska þess að golfkennslan tæki aldrei enda. TM Reo U.S. Pat. Ott.—all rights reserved • 1980 Los Angeles Times Syndicate Hvað er þetta. ertu myrkfælin? Ég ætlaði bara að rispa Íantía markið mitt. en svo varð ég svo gagntekinn af þessu ... HÖGNI HREKKVtSI „ ftrrA ír smmmom wnw ■" Viljum ekki fleiri Lax ár- eða Kröfluævintýri Gunnar Sveinsson pípulagn- ingamaður, Hrauneyjafossvirkj- un, skrifar: „Alveg ofbýður mér þessi frekja í Norðlendingunum, eða Blönd- ungunum, eins og Ómar kallar þá. Fundargestur skrifar: Verkalýðsfélagið „Verslunar- mannafélag Reykjavíkur" auglýsti fund um máiefni aldraðra með svo stórum stöfum og á svo áberandi hátt, að gamalt vonsvikið fólk, sem á í erfiðleikum, tók gleði sína á ný, og hugsaði sem svo: Loksins á nú að fara að gera eitthvað i málinu. Átthagasalur Hótel Sögu troðfyllt- ist bókstaflega af fólki. Mest var það aldurhnigið fólk, en þá var einnig töluvert af yngri kynslóðinni. Þrjú korter til að láta álit sitt í Ijós Ræður framsögumanna stóðu yfir í tvo klukkutíma og korteri betur. Það sem fram kom í ræðum framsögu- manna, sem allir eru framámenn um málefni aldraðra, var líkt því, sem lesa má daglega um í greinum blaða og tímarita, sem fjalla um þessi efni, að viðbættum nokkrum frásögnum um það hversu slæmt ástandið væri, og tveir framsögumanna lýstu því yfir að neyðarástand ríkti í sambandi við hjúkrunar- og sjúkravist fyrir aldrað fólk. Þegar þessum alltof löngu fram- söguræðum var lokið, lýsti fundar- stjóri því yfir að nú yrði orðið gefið laust, en það yrði takmarkað því að menn hefðu salinn ekki lengur en til klukkan fimm. Það voru sem sagt þrjú korter sem borgarafundurinn ætlaði fundargestum til þess að bera fram spurningar og láta álit sitt í ljós á boðuðu fundarefni. Það kemur í Ijós Fólk var þá farið að þreytast á þessari löngu setu og farið að týnast út. Ung kona, sem kvaddi sér hljóðs, lét í ljós efasemdir um að Hvítaband- ið gæti orðið heppileg lausn sem langlegudeild og benti á að á efstu Mér finnst algjört frumskilyrði, að þeir komi sér fyrst saman um sín mál heima í héraði, áður en lengra er haldið, minnugir þess sem á undan er gengið í sambandi við Laxárvirkjun. deild Landspítalans væru 20 rúm, sem ekki væru notuð. Fleira taldi hún til, svo sem að hugsanlegt væri að nýta húsnæði sem áður tilheyrði heyrnleysingjaskólanum í Stakk- holti, sem bráðabirgðalausn á lang- legurými. Fleiri af þeim sem tóku til máls tóku í sama streng, í sambandi við Hvítabandið. Margir báðu um orðið, en eins og fundarstjóri tók fram, varð að tak- marka frjálsan ræðutíma, svo að minna varð um spurningar og svör við þeim. I lok fundarins voru tvær gamlar konur að talast við um leið og þær fóru út. Önnur sagði: „Æi, ég hélt að þeir ætluðu nú að gera eitthvað í þessu, eins og þeir þarna í Kópavogi." Hin svaraði: „Ja, það fer nú að líða að því að borgarstjórnarkosningar fari fram. Ætli þetta sé ekki einhver undirbúningur undir þær. Það kemur í ljós hvaða árangur verður af þessum fundi verkalýðsfélagsins." Ég <>g þú fengum að borga Norðlenskir smákóngar sprengdu stíflurnar, helltu maurasýru á vinnuvélarnar og ollu milljónatjóni. Að þessum af- rekum unnum heimtuðu þeir raf- magn. Jú, þeim var boðin byggða- lína. Nei takk, sögðu þeir og vildu ekki „hund að sunnan", heldur norðlenskt rafmagn, því að það væri miklu betra. Þeir fengu sína Kröflu og allir þekkja það ævin- týri. Þjóðin fékk að borga, bæði vitleysuna við Kröflu og skemmd- arstarfsemina við Laxá, en norð- lenskir smákóngar voru sýknaðir. Þeir urðu sem sagt „stikkfrí", en ég og þú fengum að borga það tjón, sem þeir ollu, í stað þess að það hefði átt að svara þeim með því einu að láta þá sitja í myrkri og kulda. Þá megið þið koma með kröfu um Blönduvirkjun Nú fjölmenna Norðlendingar suður og heimtaþriðja ævintýrið í raforkumálum. Eg sem skattborg- ari segi nú nei takk, hingað og ekki lengra. Stígið sem snarast upp í rúturnar ykkar, keyrið norður um heiðar og reynið að koma ykkur saman um þessi mál ykkar á milli. Við Sunnlendingar viljum ekki fleiri Laxárvirkjanir eða Kröflur. Hins vegar viljum við fá Sultartangavirkjun vegna þess að þar er engin hætta á skemmd- arstarfsemi, hún er sögð utan við eldvirk svæði, hún er sögð langt komin í hönnun, öll mannvirki og vegir fyrir hendi og sérþjálfað starfsfólk sem hefir unnið bæði við Búrfell og Sigöldu. Og síðast en ekki síst: Með virkjun Sultar- tanga sláum við þannig þrjár eða fjórar flugur í einu höggi og fáum stóraukna raforkuframleiðslu við Búrfell. Þegar þessum virkjunaráfanga er lokið megið þið koma með kröfu um Blönduvirkjun, en þó því aðeins að þið séuð búnir að koma ykkur saman innbyrðis, því að eins og ég gat um fyrr, viljum við ekki fleiri Laxár- eða Kröflu- ævintýri." I>etta finnst mér óréttlæti .1053— 9013 skrifar: „Kæri Velvakandi. I Dagblaðinu 4. mars segir póst- og símamálastjóri, að elli- og örorkulífeyrisþegar fái eftir- gefin ársfjórðungsgjöld af síma. Þetta er ekki alls kostar rétt, því að sá böggull fylgir skammrifi, að ekki má vera annar sími í húsinu. Ef svo er, fæst ekkert eftir gefið. Þetta finnst mér óréttlæti. Ég hef t.d. ekki frían síma, þó að ég sé að verða áttræður. Ég er á elliheimili, hef séríbúð og síma, en ekki aðgang að öðrum síma. Ég held að eitthvað liggi fyrir um þetta á alþingi núna, en ætli það sofni ekki þar eins og svo margt annað." Frá borgarafundinum um málefni aldraðra, sem Verslunarmannafé- lag Reykjavikur stóð fyrir á Hótel Sögu. Borgarafundur um málefni aldraðra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.