Morgunblaðið - 21.03.1981, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.03.1981, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 fKttgmtÞIiifeifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Þröskuldur á veginum til bættra lífskjara Með hliðsjón af nýlegum þingmálum, sem snerta orku- framkvæmdir og stefnumörkun í stóriðjumálum, og ummælum forystumanna Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks síðustu vikur og daga um þessi efni, virðist einsýnt, að víðtæk samstaða er að skapast um meginatriði þessara mála. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í fyrradag mótat- kvæðalaust, að skora á Alþingi að taka sem fyrst ákvörðun um nýja stórvirkjun og jafnframt að hún telji að Sultartanga- virkjun eigi að verða næsta verkefni í orkumálum. í tillögu borgarstjórnar Reykjavíkur segir ennfremur að fela eigi Landsvirkjun að reisa og reka næstu stórvirkjun sem í verði ráðist. Borgarfulltrúar Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu tillögunni atkvæði. Aðrir borgarfulltrúar sátu hjá. Þessi samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur kemur heim og saman við sjónarmið Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokksins, sem sagði í blaðaviðtali nýlega: „Ég tel það orðið ákaflega brýnt að ekki dragist lengur að ákveða næstu skref í virkjunarmálum — og til þess að forðast vandræðaástand í orkumálum tel ég að virkjun Sultartanga verði að vera næsta verkefnið úr því sem komið er.“ Þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um ný orkuver þar sem gert er ráð fyrir því að fela Landsvirkjun eða landshlutafyrirtækjum að reisa og reka 330 MW raforkuver í Jökulsá í Fljótsdal, 180 MW orkuver í Blöndu í A—Húnavatnssýslu, 130 MW orkuver í Þjórsá við Sultartanga og að stækka Hrauneyjafossvirkjun um 70 MW. Frumvarpið setur þessar virkjanir ekki í framkvæmdaröð, en gerir hinsvegar ráð fyrir því að ljúka þeim öllum á þessum áratug, enda sé samhliða tryggt að orkufrekur iðnaður nýti þá orku, sem umfram verður þarfir hins almenna markaðar. Þingflokkar jafnaðarmanna og sjálfstæðismanna hafa hvor um sig lagt fram stefnumarkandi tillögur um framvindu í stóriðjumálum, sem spanna það lík viðhorf, að nú er rætt um að sameina þær í eina. Þá hefur Tómas Árnason, viðskiptaráð- herra, úr Framsóknarflokki, lýst því yfir á þingi iðnrekenda, sem haldið var á dögunum, að byggja ætti þrjár stórvirkjanir, Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkjun og Sultartangavirkjun, á næstu 10 til 12 árum og stefna jafnframt í orkufrekan iðnað bæði á Austurlandi og Norðurlandi, sem og stækkun járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga og álversins í Straumsvík. Þegar þessi atriði öll, frumvarp sjálfstæðismanna um ný orkuver, tillögur þingflokka jafnaðarmanna og sjálfstæð- ismanna um stefnumörkun í stóriðjumálum, samþykkt borgar- stjórnar Reykjavíkur um orkuframkvæmdir og ummæli forystumanna Framsóknarflokksins, Steingríms Hermanns- sonar, sjávarútvegsráðherra, og Tómasar Árnasonar, við- skiptaráðherra, um sama efni, eru skoðuð í heild, má öllum ljóst vera, að samstaða er til staðar um öll meginatriði. Þessu ber að fagna. Mikið er í húfi fyrir framtíðaratvinnuöryggi og framtíðarlífskjör þessarar þjóðar, að þriðja auðlindin, hinir innlendu orkugjafar, verði stilltir inn á verðmætasköpun í þjóðarbúskapnum. Þrjátíu þúsund ný atvinnutækifæri þurfa að verða til hér á landi á þessum og næsta áratug, ef fullmæta á atvinnuþörf vaxandi þjóðar. Sambærileg lífskjör við nágrannaþjóðir verða heldur ekki tryggð, né landflótti stöðvaður, nema að við nýtum af hyggindum og stórhug þær auðlindir, sem forsjónin hefur lagt okkur upp í hendur til framfærslu og bættra lífskjara. Þröskuldurinn á vegi þjóðarinnar til bættra lífskjara er Alþýðubandalagið, sem illu heilli hefur verið leitt til öndvegis í ráðuneyti orku- og iðnaðarmála. Þar tróna þröngsýn afturhaldssjónarmið, sem þýða í raun mun lakari lífskjör þjóðarinnar í fyrirsjánlegri framtíð en efni standa til. Þar er ekki aðeins um að ræða nokkurra prósenta verðbótaskerðingu launa, eins og Alþýðubandalagið stóð að 1. marz sl., heldur lífskjaralækkun í átt til þess kjaralega veruleika, sem ríki sósíalismans í A-Evrópu hafa búið þegnum sínum. Því verður ekki trúað, fyrr en á verður tekið, að þau öfl í ríkisstjórninni, sem sýnilega eiga samleið með stjórnarandstöðunni í orku- og iðjumálum, láti lágkjarasjónarmið Alþýðubandalagsins beygja sig í þessu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar á líðandi stund: útfærslu orkulandhelgi okkar. Þessi mál verða í brennidepli alþjóðarathygli þær fáu vikur sem eftir lifa hundraðasta og þriðja löggjafarþings þjóðarinnar. Frá SvartsenKÍ Jónas Elíason, prófessor: Háhitann þarf að virkja Þeir eru afskaplega fáir sem hafa raunverulega trú á háhitavirkjun og nýtingu háhita þessa dagana. Þeim mun meiri ástæða er til að vekja athygli á þeim góða árangri sem náðst hefur í Svartsengi. Þar er nú virkjuð meiri jarðgufa en á öllum öðrum háhitasvæðum landsins til samans. Við rannsóknir á jarðhitanum í Svartsengi hafa komið í Ijós mjög áhugaverð vísindaleg atriði. Sum þeirra benda til að háhitinn á Reykja- nesskaga sé samhangandi frá Kleif- arvatni að Reykjanestá. Sé svo, þá er þarna stærsta jarðhitasvæði landsins. Framundan er mikið verkefni að rannsaka þennan hita betur og finna honum verðug verkefni. Orkuverið í Svartsengi Orkuverið í Svartsengi er eign Hitaveitu Suðurnesja. Þar er fram- leitt hitaveituvatn fyrir Suðurnesin, raforkuvinnsla að byggjast upp og nemur nú 8 MW. Mögulegt er að bæta við efnavinnslu og selja gufu til iðnaðar í gufuveitu. Orkuverið er alfarið hannað og byggt af íslenskum tæknimönnum. Það er um margt bæði þróaðra og margbrotnara en önnur jarðorkuver sem lesa má um í fræði- bókum. Orkugjafinn er 245° heitur jarðsjór sem er ónothæfur til neyslu. Því er unnið neysluhæft vatn sem hitað er upp með jarðsjónum og síðan dælt inn á hitaveitukerfið. Jarðsjór- inn er látinn gufa upp svo saltið verði eftir og gufunni síðan blandað út í ferskvatnið. Þetta er einföld og áhrifarík upphitunaraðferð og með því að skipta gufuvinnslunni i tvo hluta, háþrýstihluta og lágþrýsti- hluta, fæst heppileg gufa til raforku- vinnslu samhliða kaldavatnsupphit- uninni, og með þessum hætti nýtist hitaorkan úr jarðsjónum mjög vel. Honum er síðan veitt í tjörn í hrauninu, þar setjast fyrir kísilefni sem vinna má úr nokkurt verðmæti. Þessi orkuvinnsla er nýjung sem ekki þekkist annars staðar frá. Höfuðvand- inn er að halda gæðum hitaveitu- vatnsins stöðugum og koma í veg fyrir að það tæri málma. Hvort tveggja hefur tekist mjög vel, hitaveituvatnið er með því besta sem þekkist, vel heitt, nothæft í alla matargerð og fellir ekki á silfur eins og hitaveitu- vatnið í Reykjavík. Borað með árangri Borárangur í Svartsengi er mjög góður, hugsanlega sá besti í heimi. Nú eru boraðar í Svartsengi holur sem eru með tveggja þumlunga víðari leiðara og síðari vinnslufóðringum en í upphafi. Þessu var breytt í krafti þeirrar reynslu að bæði Iækkar vatns- borðið og holurnar vilja stíflast af kalki. Svo brá við að víðu holurnar skila tvöföldum til þreföldum afköst- um á við það sem sóst var eftir, en það var sextíu kílóa vinnsla á sekúndu á holu, sem er mjög há tala. Svo hver hola í Svartsengi gefur um tíu sinnum meiri orku en góð hola hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Það er þessum mikla árangri að þakka að Hitaveita Suðurnesja hefur nú þegar tiltæka gufu til aukinnar raforkuvinnslu ef tilskilin leyfi fást. Hversu mikil sú raforkuframleiðsla ætti að vera er álitamál. Þar þarf að taka tillit tri þarfa raforkukerfisins og auk þess má ekki lækka of mikið í svæðinu, en ráðstafanir til að minnka þessa lækkun eru í undirbúningi. Nú lækkar vatnsborð á svæðinu um einn metra á viku. Mjög nákvæmlega er Jónas Eliasson fylgst með lækkuninni með síritandi vatnsborðsmælum, sem eru mjög nákvæmir. Til gamans má geta þess að hæðir og Iægðir og allar aðrar breytingar á loftþrýstingi koma fram á þessum mælum. Þess háttar áhrif loftþrýstings á vatnsborðsstöðu eru fræðilega þekkt, en þetta er í fyrsta sinn sem þau mælast á háhitasvæði. Þegar hafa borist beiðnir erlendis frá um að fá þessar upplýsingar til rannsóknar. Með því að fylgjast jafn nákvæmlega með vatnsborðslækkun- inni og nú er gert verður að telja. óhætt að stunda nokkra raforkufram-’ leiðslu í Svartsengi, enda stutt i önnur jarðhitasvæði. Rannsökum Reykjanesskaga Á skaganum eru háhitasvæðin í Brennisteinsfjðllum, Krýsuvik, Trölladyngju, Sandfelli, Svartsengi, Eldvörpum og Reykjanestá. Svo merkilega vill til að öll jarðskjálfta- upptök á Reykjanesskaga raða sér á belti sem liggur í gegnum öll þessi svæði svo segja má að þau séu eins og perlur á bandi. Hugsanlegt er, að jarðskjálftabeltið tengi saman öll svæðin og háhitinn á Reykjanesi eigi sér sameiginlegan uppruna f þessu belti. Hér er um að ræða mjög spennandi jarðeðlisfræðilegt rann- sóknarverkefni sem mun áreiðanlega vekja mikla athygli alls staðar þar sem jarðhitarannsóknir eru stundað- ar. Þetta verkefni er mjög stórt í sniðum, bora þarf 5—10 rannsóknar- holur, efla jarðskjálftamælingarnar, kortleggja svæðið jarðfræðilega, gera jarðviðnáms- og segulmagnsmælingar og vatnafræðilega útreikninga. Þessar rannsóknir geta vel leitt til þess að á Reykjanesskaga finnist mjög mikill vinnanlegur jarðhiti. Þessi jarðhiti er allur tiltölulega nærri byggð og að- gengilegur. Hann er tiltölulega nálægt höfuðstöðvum rannsóknarstofnana í Reykjavík, sem þýðir minni ferða- og úthaldskostnað. Hugsanlegt er að skapa um þetta verkefni mjög víðtæka samvinnu ef hugur viðkomandi aðila stendur til þess. Ef viðkomandi sveitarfélög hafa á annað borð vilja til að fjárfesta í slíkum rannsóknum er fyllilega rétt- lætanlegt fyrir þau að gera það. Nýting jarðhitans og tilheyrandi at- vinnuleg uppbygging Suðvesturlands hlýtur að ráðast af árangri háhita- rannsókna, a.m.k. að hluta. Verkefni fyrir háhitann Það eru einungis rúm tuttugu ár síðan byrjað var að leita hentugra verkefna fyrir orku háhitasvæðanna. Ýmsir möguleikar voru skoðaðir, en aðalmöguleikann töldu menn þá felast í raforkuvinnslu í grunnaflstöðvum sem áttu að ganga nokkuð stöðugt. Nú hafa forsendur að þessu leytinu breyst. Raforkukerfið er orðið um fimm sinnum sterkara en þá, grunn- urinn í orkuframleiðslunni er vatnsafl og verður það úr því sem komið er allavega fram yfir aldamót. Þar eð forsendur hafa breyst þetta mikið, er ekki lengur fýsilegt 3Ö reka grunnaflstöðvar með jarðhita. Vatns- orkukerfið þarf ekki á jarðgufustöðv- um að halda nema þegar álag er mikið eða lítið vatn. í ár hafa þessi tvö atriði farið saman. Jarðgufustöð mundi hafa gert mjög mikið gagn í ár, hefði einhver slík verið til í þeirri stærð sem raforkukerfið munar um. Það er því fýsilegt að byggja jarðgufu- rafstöðvar sem þjóna sem toppafl- og varastöðvar. Það krefst þess að vísu, að þessar stöðvar séu ódýrar á hvert megavatt, og á Reykjanesskaga eru bestu aðstæður sem nú þekkjast til að byggja siíkar stöðvar ódýrt. Þar að auki eru góðir möguleikar á að framleiða gufu til iðnaðarnota á Reykjanesi. Þar eru loðnuverksmiðjur og frystihús, sem geta nýtt þessa gufu. Þar er landrými til að byggja verk- smiðjur, t.d. er hætt við að pappírs- verksmiðja sé best staösett á Reykja- nesi. Þannig mætti lengi telja, það er knýjandi nauðsyn að takast í alvöru á við þann vanda að finna háhitanum viðeigandi verkefni og ekki annað að sjá en Reykjanesið sé kjörinn vett- vangur til þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.