Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981 Búvörur hafa hækk- \ / -í •/ / / að fra 1. jum 1 fyrra um 55 til 73% ILEKKUN búvara á einu ári, frá 1. júní 1980 oií til þessa datfs, er á bilinu frá rétt tæplega fiO'Jr til rúmlexa 73%. Mest er hækkun smjörs, en hækkunin þar er svo mikil. þar sem niðurjfreiðslur hafa ekki haldið sama hlutfalli og þær voru áður miðað við smjörverð og þvi kemur hækkunin á lægri Krunn en ella. Smjör kostar nú út úr búð G3.60 krónur hvert kíló. Ásamt niðurtíreiðslu er smjörvcrðið nú 93 krónur á hvert kg. Frá því fyrir einu ári, hinn 1. júní 1980, er hækkun búvara, sem hér segir: Smjör 73,4%, mjólk í pökkum 54,7%, peli af rjóma 65,8%, 45% ostur í heilum stykkjum 67,3%, 30% ostur í heilum stykkjum 65%, kindakjöt í heilum skrokkum 63,5%, kótilettur 60,5%, nautakjöt í heilum eða hálfum skrokkum 59,3%, nautakjöt, miðlæri, 59,9% og kartöflur í 2,5 kg pokum 62,7%. Skipaútgerð rikisins: Meiri flutningar en nokkurn óraði fyrir PXUTNINGAR hjá SkipaútKerð ríkisins haía verið óvenju miklir undanfarið og hefur fyrirtækið ekki getað fylgt auglýstri áa'tlun. Fréttaritari Morgunblaðsins á Patreksfirði sagði í frétt á sunnudaginn. að Patreksfirðingar væru mjög óhressir með að geta ekki treyst á þjónustu fyrirtækisins, en þeir eru háðir henni 8 mánuði á ári. Guðmundur Einarsson forstjóri Skipaútgerðar- innar sagði í gær, að því miður hefði ekki verið hægt að fylgja áætlun undanfarið, flutningar hefðu verið svo miklu meiri en nokkurn hefði órað fyrir. Á því væri ekki hægt að gera annað en biðjast velvirðingar. Sumarnámskeið Siglingaklúhbs Nauthólsvíkur eru hafin. Sumarstarf Æskulýðsráðs Reykjavíkur Guðmundur sagði, að ef þessi aukning hefði verið séð fyrir hefði verið leitað eftir leyfi til að setja fjórða skipið inn í reksturinn í fjóra mánuði, frá því í marz fram í júní. Guðmundur sagði að á þessum tíma væri mikið flutt af áburði til bænda, byggingarefni fyrir sumarið og fleira nefndi hann. Þá sagði hann, að takmark- anir á öxulþunga vöruflutninga- bifreiða ykju flutninga Ríkisskips. Hins vegar sagði Guðmundur, að þessum mikla annatíma væri að ljúka og viðskiptavinir fyrirtækis- ins þyrftu vonandi ekki að óttast tafir næstu mánuði. Coaster Emmy hættir flutning- um fyrir Ríkisskip í mánuðinum, en um miðjan júní fær Ríkisskip nýtt skip í strandferðirnar. Það er norska skipið Vela, sem er mun afkastameira í lestun og losun og hefur meiri flutningsgetu en Coaster Emmy, að sögn Guð- mundar. Ríkisskip hefur gert leigusamning á þessu skipi með * Atta kandi- datar ljúka guðfræðiprófi Úr guðfræðideild Háskóla ís- lands voru sl. föstudag útskrifaðir 8 kandidatar að tölu og þar af þrjár konur. Þeir heita Hreinn Hákonarson, Jón Ragnarsson, Oddur Einarsson, Ólafur Þ. Hall- grímsson, Rúnar Þór Egilsson, Dalla Þórðardóttir, Agnes Sigurð- ardóttir og Hanna María Péturs- dóttir. forkaupsrétti og getur ákveðið að kaupa skipið innan sex mánaða. Þann 24. júní næstkomandi verða tilboð opnuð í smíði nýs strand- ferðaskips, en Ríkisskip hefur hug á að Iáta smíða þrjú ný skip á næstu árum. FISKVERÐ. sem taka átti gildi i gær, 1. júní, hefur enn ekki verið ákveðið. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins sat á fundum siðdegis á sunnudag og i gær- morgun, en ýmislegt mun enn vera óljóst í samhandi við verð- ákvörðun. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður i yfirnefndinni. en búist er við fundi á morgun eða fimmtudag. Sjómenn héldu um helgina fundi þar sem kjaramálin voru rædd og í ályktunum funda þeirra segir m.a., að gripið verði til aðgerða fái sjómenn ekki sam- bærilegar hækkanir á launum sínum og verkafólk í landi, þ.e. 8,1% hækkun fiskverðs. Útgerð- armenn krefjast sömuleiðis 8,1% hækkunar á fiskverði, en fisk- SUMARSTARF Æskulýðsráðs Reykjavíkur hófst um helgina með því að sjósettir voru bátar siglingaklúbbsins i Nauthólsvik. Hafin eru byrjendanámskeið i siglingum fyrir börn á aldrinum 8—12 ára þar sem kennd er meðferð og sigling seglbáta. við- brögð við óhöppum á sjó og einfaldar siglingarcglur. í sumar verða einnig námskeið fyrir börn á aldrinum 11 — 14 ára. Námskeið i báðum aldursflokkum taka 2 vikur og hægt er að fá leigða roðrar- og seglbáta til siglingar um Fossvog. Reiðskóli verður rekinn í Salt- vík á vegum Fáks og Æskulýðs- vinnslan telur sig ekki getað borið þá hækkun. Gögn frá Þjóðhagsstofnun liggja fyrir um afkomu vinnslunn- ar miðað við 1. júní og hafí verðhækkanir á frystum fiski í Bandaríkjunum, 3,85% gengisfell- ing, hækkun á tilkostnaði og almenn launahækkun um mán- aðamótin verið teknar inn í út- reikninginn. Frystingin stendur til muna verr heldur en söltun og herzla samkvæmt þessum gögn- um. Sú verðhækkun, sem varð á ráðs Reykjavíkur. I Bústöðum og Fellahelli og Þróttheimum verða leikja- og starfsnámskeið fyrir börn á aldrinum 6—12 ára. Þátt- tökugjald í námskeiðunum er 120—160 krónur og er kostnaður vegna skoðunar- og kynnisferða innifalinn í þátttökugjaldinu. Á kvöldin verður ýmisskonar starfsemi í félagsmiðstöðvunum fyrir unglinga 13 ára og eldri. Um er að ræða klúbbastarfsemi, diskótek, opið hús, leiktæki og fleira. Farnar verða kynnisferðir í sveitina og dvalið í þrjá daga á sveitaheimilum í Hrunamanna- hreppi. Dvölin er ókeypis en þátt- Bandaríkjamarkaði á dögunum, eykur tekjur frystihúsa aðeins um 1%. Hækkunin þýddi um 5% hækkun á öllum freðfiski, en 4% fara til að jafna greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði. Samkvæmt upplýsingum Mbl. munu stjórn- völd nú ræða um svipað fyrir- komulag á greiðslum úr Verðjöfn- unarsjóði og ákveðið var síðastlið- inn vetur er viðmiðunarverð voru ákveðin 5% hærri en markaðs- verð. Staða útgerðar er sömuleiðis misjöfn eftir því hvort um báta eða togara er að ræða og er rekstur togaranna mun erfiðari samkvæmt fyrrnefndum gögnum. takendur skuldbinda sig til að veita jafnöldrum úrsveitinni sam- skonar fyrirgreiðslu í Reykjavík. íþrótta- og leiknámskeið verða í sumar á vegum Iþróttaráðs, Æskulýðsráðs, Leikvallanefndar og Íþróttabandalags Reykjavíkur fyrir börn á aldrinum 6—12 ára. Námskeiðunum lýkur með íþróttamóti í Laugardal. Bæklingi um sumarstarf á vegum Æsku- lýðsráðs var dreift til allra nem- enda á grunnskólaaldri í borginni í vor. Ómar Valdi- marsson kjör- inn form. BI Á AÐALFUNDI Blaðamannafé- lags íslands, sem haldinn var sl. laugardag, var Ómar Valdi- marsson fréttastjóri Dagblaðsins kosinn formaður félagsins með 29 atkvæðum, en einnig voru í framboði Jóhanna Kristjónsdótt- ir blaðamaður á Morgunblaðinu sem hlaut 23 atkvæði og Elias Snæland Jónsson ritstjóri Tím- ans, en hann hlaut 22 atkvæði. Kári Jónasson fréttamaður, sem verið hefur formaður sl. 3 ár, gaf ekki kost á sér, en hann hefur setið í stjórn B.í. í yfir 10 ár samanlagt. Þá voru kjörin í stjórn félagsins þau Fríða Björnsdóttir Tímanum, Sæmundur Guðvinsson Vísi, Gunnar Elísson Þjóðviljan- um, Jón Ásgeir Sigurðsson Vik- unni og Jóhannes Tómasson Morg- unblaðinu. Fyrir í stjórn voru Helgi Már Arthúrsson Alþýðu- blaðinu og Einar Örn Stefánsson útvarpinu. í varastjórn voru kjörnir Þorgrímur Gestsson Helgarpóstinum og Róbert Ág- ústsson Tímanum, og fyrir í vara- stjórn var Jónas Haraldsson Dagblaðinu. Auk venjulegra aðalfundar- starfa var rætt nokkuð um orlofs- heimilamál og samþykkt tillaga um að félagið hæfist handa um ieigu lands fyrir orlofshús, sem komið væri í gagnið á næsta sumri, en þessi mál hafa verið til athugunar hjá félaginu að undan- förnu. spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hafliði Jónsson garöyrkjustjóri svarar spurningum lesenda um garðyrkjumál GARDYRKJA hefur longum verið stunduð hérlendis, en margs er að gæta við ræktun matjurta. trjáa, runna og blóma og ýmsar spurningar skjóta eflaust upp kollinum. Morgunblaðið mun því næstu vikurnar leitast við að veita lesendum sínum þá þjón- ustu að koma spurningum þeirra um garðyrkju á framfæri við Hafliða Jónsson garðyrkjustjóra sem mun svara þeim. Lesendur geta hringt til rit- stjórnar Morgunblaðsins milli klukkan 11 og 12 árdegis í síma 10100 mánudaga til föstudaga og verða svörin við spurningum þeirra þá birt fljótlega. Samstarfsráðherrar funda Samstarfsráðherrar Norðurlanda halda fund í Reykjavík í gær og í dag og er meðfylgjandi mynd tekin við upphaf fundarins í gær. Á myndinni eru frá vinstri: Rolf Hansen, umhverfisráðherra Noregs, Lise Östergaard, menntamálaráð- herra Danmerkur, Orkko Työláárvi, f jármálaráðherra Finnl- ands, Karin Söder, félagsmálaráðherra Svíþjóðar, og Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra. Fiskverö hefur enn ekki verið ákveðið: Staða frystingar verri en söltunar og herzlu Rekstur togara erfiðari en báta sam- kvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.