Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981 15 Nýstúdentar frá Fjolbrautaskóla Suðurnesja. 88 luku námi við Fjölbrauta- skólann á Suðurnesjum 23. maí síðastliðinn lauk vorönn 1981 í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Þá braut- skráðust 4fi nemendur: tveir nemar af tveggja ára verslunar- ok skrifstofu- braut. 4 atvinnufluRmenn, 15 iðnnemar og 25 stúdent- ar. Á haustönn brautskráð- ust 42 nemar. Alls luku því 88 námi frá skólanum vet- urinn 1980—1981 — þar af 43 stúdentar og 22 iðnnem- ar. Athöfnin fór fram í íþróttahúsinu í Keflavík. Ávörp fluttu Gunnar Sveinsson, formaður skóla- nefndar, Ingibergur Þór Kristinsson, húsasmíða- nemi, og Elías Georgsson, nýstúdent. Blásarakvartett Tónlistarskóla Njarðvíkur flutti ásamt Atla Ing- ólfssyni, gítarleikara, verkið Divertimento eftir Atla Ing- ólfsson. Halla Haraldsdóttir færði skólanum að gjöf vandaða víðsjá frá Soroptimista- klúbbi Keflavíkur. Jón Böðvarsson, skóla- meistari, flutti yfirlit um starfsemina á síðustu önn og afhenti prófskírteini, en Konráð Ásgrímsson kennari afhenti verðlaun. Voru þau mörg að þessu sinni. Verð- laun fyrir lofsverðan náms- feril og ágætan árangur hlutu Atli Ingólfsson, Elías Georgsson og Elsa Dóra Gísladóttir. Verðlaun frá Iðnaðarmannafélagi Suður- nesja hlaut að þessu sinni Ólafur Sævar Magnússon, húsasmíðanemi. Skólameistari ávarpaði brautskráða nemendur og sagði skóla slitið. Mývatnssveit: Fjárhagsáætlun Skútustaðahrepps 1981 var samþykkt Mývatnssveit. 2f». mai. Fjárhagsáætlun fyrir Skútustaðahrepp fyrir 1981 var samþykkt þann 12. maí sl. Niðurstöðutölur áætlunar- innar eru þær, að tekjur nema 3.960.281,00 krónu, en gjöld 3.915.352,00 krónum. Helztu tekjuliðir eru: Útsvör l, 550.000,00 krónur, aðstöðu- gjöld 200.000,00 krónur, eigna- skattur 215.000,00, jöfnunar- sjóður 603,200,00 og aðrir skattar 566.000,00. Unnið verður að ýmsum framkvæmdum á vegum hreppsins á þessu ári. Má þar m. a. nefna sundlaug við Krossmúla. Á undanförnum árum hefur sundlaugarhús verið í byggingu og er vel á veg komið. Verið er að móta sund- laug á Skagaströnd, en hún verður smíðuð þar. Hún er gerð úr harðplasti og verður 25 metra löng. Vonast er til, að laugin verði tilbúin eigi síðar en um miðjan júlí. Mikil óvissa hefur ríkt með vatnsveitu í Reykjahiíð- arhverfi, svo og með hitaveit- una. Ljóst er þó, að hreyfing er komin á þau mál nú, m.a. hafa farið fram ýmsar mælingar undanfarna daga og sérfræð- ingar eru væntanlegir hingað í júníbyrjun. Því er ekki að - neita, að ýmsir eru orðnir ansi langþreyttir á meðferð mála hitaveitunnar að undanförnu. — Kristján. Námskeið í teikningu Myndlistarskólinn í Reykjavík Kengst fyrir námskeiðum í teikn- in^u ok verða þau haldin i húsakynnum skólans við Lauga- vej? 118 í Reykjavík. Ráð>cerð eru námskeið Iweði fyrir byrjendur OK lensra komna. Á námskeiði fyrir byrjendur verður farið í helstu undirstöðu- atriði í teikningu og litameðferð og hefst námskeiðið 1. júní. Kennt er mánudags- og miðvikudags- kvöld kl. 20 til 22.15. Tekur námskeiðið 2 mánuði og verður endurtekið í ágúst og september ef næg þátttaka fæst. Þá verður námskeið fyrir fram- haldsnemendur í júní til septem- ber og verður þar aðallega farið í teikningar með mismunandi efni, uppstillingu, módel- og hluta- teikningar. Sigurður Þórir Sig- urðsson myndlistarmaður er kennari á námskeiðunum. HVER BYÐUR HAGKVÆMARI VIÐSKIPTI? 1 Verktakar — - Húsaframleiðendur I Timbursalar - — Trésmíðaverkstæði G E R I Ð V E R Ð S A M A N B U R Ð L E I T I Ð T I L B O Ð A Beinn innflutningur á timbri og timburefnisvörumfrá okkar erlendu umboöum hefur sparað kaupendum stórfé á undanförnum árum. Til afgreiöslu meö stuttum fyrirvara. Ýmsar tegundir haröviös — Límtré — Douglas-Fir (Oregon Pine) — Smíöaviöur (fura) — Útiviöur — Sperruefni — Uppistööur — Tilbúnar spónaplötur — Plasthúöaöar spónaplötur — Krossviöur, sléttur/rásaöur o.fl. — Spónn: Original spónn — Lamel spónn. Flestar tegundir og þykktir. LANAKJOR Kaupendur greiöa ca. a - . 10—15% viö pöntun. ýgi\. Srsnta"comPa„y Eftirstöövar 85—90% a&íjía Reykjavíki«i.„d lánaðar til 3ja mánaöa vaxtalaust. Iðnval Byggingaþjónusta Bolholti 4 — Reykjavík Símar 83155 — 83354 — Post Box 5190. KAUPIÐ HAGKVÆMT - SPARIÐ FJARMUNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.