Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981 23 aeðum með Fram! Fram 4 -Þór 0:1 aftur fyrir markið, Framarar heimtuðu vítaspyrnu, en fengu horn. Slæm skipti það, en erfitt var að sjá nákvæmlega hvar knötturinn hæfði Þórsarann. En Þór var sterkari aðilinn í síðari hálfleik eins og þeim fyrri og tvívegis var liðið nærri því að bæta marki við, Jón Lárusson í báðum tilvikum. Sem fyrr segir var leikurinn afar slakur. Jaðrar við að hann hafi verið hræðilegur. Sérstaklega var það lið Fram sem stóð ekki fyrir sínu. Miklar sveiflur í vali liðsins hafa örugglega haft sitt að segja, en Framarar hafa notað 18 leikmenn í leikjum sínum fjórum. Gegn Þór vantaði Martein og Pétur Ormslev og munar um minna. Það afsakar þó á engan hátt afleita frammistöðu liðsins. Skyldi þó aldrei vera að Fram hafi unnið leikinn fyrir fram? Lið Þórs var fekar jafnt að þessu sinni, allir lögðust á eitt. Fyrirliðinn Árni Stefánsson var afar hvetjandi fyrir leikmenn sína og gaf ekki sinn hlut eftir. Var mjög sterkur ásamt „gamla" Framaranum Þórarni Jóhannes- syni. Guðjón Guðmundsson, Guð- mundur Skarphéðinsson og Jón Lárusson voru ógnandi í skyndi- sóknum Þórs og Eiríkur Eiríksson í markinu stóð sig vel þegar á reyndi. Hjá Fram bar Trausti Har- aldsson höfuð og herðar yfir aðra leikmenn, barðist eins og ljón og lék vel. En hann fékk ekki félaga sína með sér, var einn. Ársæll átti sprett og sprett, en hinir sterku varnarmenn liðsins náðu alls ekki saman að þessu sinni. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild: Fram ÞórO-1 (0-1) Mark Þórs: Guðmundur Skarp- héðinsson (40. mín.) Áminningar: Engar. Dómari: Vilhjálmur Þór. — tfff. ' i frá. Varnarmenn ÍA eru við Staðaní 1. deild Staðan i 1. deildinni eftir leiki helgarinnar er þessi: Breiðablik — Akranes 0—0 Fram — bór 1 — 1 KA - FII 5-1 Víkingur — Valur 3—2 Akranes 3 2 1 0 4—0 5 Víkingur 3 2 1 0 5—3 5 KA 3 2 0 1 6-2 4 Valur 3 2 0 1 8-5 4 Vestm.eyjar 4 12 16—6 4 Breiðablik 30302—2 3 Fram 4 0 3 1 2-3 3 Þór 3 111 3-5 3 KR 4 112 3-5 3 FIl 4 0 0 4 4-12 0 Markhæstu menn: Mörk: Kári Þorleifsson, ÍBV 3 Lárus Guðmundsson. Víkingi 3 Guðbjörn Tryggvason, ÍA 3 Næstu leikir í 1. deild fara fram á morgun 3. júní. Þá leika IA og Fram. FII og ÍBV og loks Valur og KA. Eyjamenn gáfu KR annað stigið ÍBV og KR gerðu jafntefli í 1. deiidinni i Eyjum á laugardaginn. 1 — 1 og verður það að segjast að Eyjamenn hreinlega gáfu KR þetta stig. Aðeins 5 mín. voru til leiksloka og staðan 1—0 fyrir ÍBV. Valþór Sigþórsson braut niður sókn KR-inga á miðjunni og gat gert hvað sem honum sýndist með boltann en honum urðu á þau hroðalegu mistök að gefa holtann á Vilhelm Fredriksen sem lónaði fyrir innan vörn ÍBV. Vilhelm lék óáreittur að marki ÍBV en Páll Pálmason sá við skoti hans. Boltinn hrökk út fyrir teiginn og þar var annað KR-ingur. Sigurður Björnsson, óvaldaður með öllu og sendi boltann vandalaust í tómt markið. Sigurður hafði komið inn sem varamaður fimm mínútum áður. Skuggalegasta gjafamark sem undirritaður hefur augum borið í mörg ár. IBV—KR 1:1 Og Eyjamenn höfðu ærna ástæðu til þess að vera niðurlútir er þeir gengu af leikvelli í lokin. Þeir höfðu verið ráðandi í öllum gangi leiksins frá upphafi. Það var aðeins fyrstu 10. mín. sem KR-ingar voru ógnandi við mark IBV. Annars var þessi leikur tíðindalítill þangað til í lokin sem urðu heldur betur dramatísk. Eyjamenn sköpuðu sér þrjú mjög góð marktækifæri í fyrri hálfleik en þau ónýttust öll. KR fékk opið tækifæri á fyrstu mín, en ÍBV bjargaði í horn. Að öðru leyti var fyrri hálfleikurinn ströggl á miðj- unni, ÍBV mun meira með boltann en flestar sóknir þeirra byggðust upp á kýlingum fram miðjuna. Seinni hálfleikurinn var heldur líflegri og Eyjamenn nær allsráð- andi hvað sóknarleikinn varðaði. KR-ingar gerðu sér góðar vonir um að ná jafntefli og spiluðu ófeimnir upp á það. Liðið fékk ekki eitt einasta marktækifæri sem því nafni getur kallast þar til í lokin að Eyjamaður lagði það upp fyrir þá. Eyjamenn voru mun drýgri við að koma sér í færi við mark KR. Valþór átti þrumuskot Fétt framhjá stöng, Jóhann Georgsson annað álíka sem lenti á varnarmanni og í horn. Og svo kom markið. 76. mín. voru komnar upp á klukkunni þegar Sigurlás Þor- leifsson tók góða rispu framhjá nokkrum varnarmönum KR, gaf síðan góðan bolta út á Jóhann Georgsson sem hafði fylgt honum vel eftir. Jói sendi síðan vel fyrir markið þar sem Kári Þorleifsson stökk upp og skallaði stórglæsi- lega í, netið. 1—0 fyrir ÍBV og varla nokkur sála á vellinum sem ekki taldi það verðskuldaða for- ystu. Eyjamenn voru grimmir næstu min. Sigurlás lagði nær alla vörn KR að fótum sér er hann sólaði upp allan völl en Stefán í marki KR varði gott skot Lása alveg niðri í bláhorninu. Og síðan skall reiðarslagið á Eyjamenn eins og áður er lýst. Á síðustu sekúndunum fékk Sigurlás óáreittur að skaila bolt- ann í markteig eftir hornspyrnu en boltinn sleikti stön.úna utan- verða. Flauta Arnþórs Óskai ,-sonar dómara gall, Eyjamenn yfiigáfu völlinn sársvekktir en KK ingar voru léttstígir og ánægðir meé að hafa náð öðru stiginu. KR-liðið olli miklum vonbrigð- um í þessum leik. Hingað höfðu borist fréttir af því að liðið léki skemmtilega knattspyrnu en ekk- ert í þá áttina sást til liðsins í þessum leik. Sóknarleikur liðsins var algjörlega bitlaus og leikmenn eins og Atli, Óskar og Vilhelm sáust varla í leiknum. Aðeins Sæbjörn Guðmundsson sýndi til- burði en mátti sín lítils einn á báti. Stefán Jóhannsson stóð sig vel í markinu og Börkur Ingvars- son var traustur í vörn KR enda mæddi mikið á honum. KR-ingar verða heldur betur að taka sig á, með svona leikjum lendir liðið í hringiðu fallbaráttunnar. Eyjamenn geta engum um kennt hvernig fór nema sjálfum sér. Liðið hafði þennan leik allan tímann á' sínu valdi en skorti kraftinn til þess að gera út um hlutina. Alltof lengi léku þeir sóknarleikinn beint í hendur and- stæðingsins, háir kýluboltar inn miðjuna. Þegar skipt var yfir á kantinn skapaðist hættan mest við mark KR. Lið ÍBV var mjög jafnt í þessum leik nema hvað Sigurlás Þorleifsson var áberandi besti maður vallarins. I stuttu máli. Hásteinsvöllur 1. deild 30/5. ÍBV — KR, 1-1 (0-0), Mark ÍBV: Kári Þorleifsson 76. mín. Mark KR: Sigurður Björnsson 85. mín. Áminningar: Jónsteinn Einars- son KR og Ómar Jóhannsson ÍBV fengu að skoða gula spjaldið. Dómari: Arnþór Óskarsson. — hkj. _____________ .v Kári Þorleiísson ÍBV hefur skorað fyrsta mark « Guðjón og Stefán verða að sætta sig við boltann leiksins. í netinu. I.josm. SÍKuritPÍr. * -■■*' ''S' »,S>: • Sigurði Indriðasyni. KR, voru afhent blóm í upphafi ieiks. Hann var að leika sinn 200 meistaraflokksleik fyrir KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.