Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 42
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981
Sigurður fór létt með
fimm metra stökkið
SIGURÐUR T. Sijíurðsson KR vann bezta afrekirt í EÖP-mótinu í
frjálsíþróttum á fóstudauskvold. en þá stökk Sijíurður 5.00 metra í
stan>?arstökki. fyrstur íslendinua. Sijfurður hefur varla tckið þátt í
stanj;arst()kkskeppni án þess að bæta tslandsmetið allt frá því 1979,
OK lætur hann eflaust ekki staðar numið hér.
SÍKurður fór yíir 5.ÍHI metra í fyrstu tilraun. og reyndi síðan við
5.10 metra. en tókst ekki. enda spenninKurinn sjálfsaKt úr honum þar
sem honum hafði t. kist að sigrast á hinum mikla múr, fimm
metrunum.
Af öðrum athyglisverðum
árangri á mótinu má nefna kúlu-
varp Hreins Halldórssonar KR,
sem stöðugt nálgast 20 metra
múrinn, langstökk Bryndísar
Hólm ÍR, kúluvarp Guðrúnar Ing-
ólfsdóttur KR, sem bætti ís-
landsmetið sitt um átta senti-
metra, og 800 metra hlaup Hrann-
ar Guðmundsdóttur UBK sem er í
örri framför og getur vafalaust
meira með meiri keppni og við
betri aðstæður, en kalsaveður var
á Laugardalsvellinum á föstu-
dagskvöldið.
Seint ætlar íslenzkum frjáls-
íþróttamönnum og forráða-
mönnum félaga að lærast að bera
meiri virðingu fyrir þátttökutil-
kynningum, en meðan sá hugsun-
arháttur viðgengst sem er við lýði
í þeim efnum, er ekki von á að
mótin verði sérstaklega rishá og
aðlaðandi á að horfa. Átti þetta
við sumar greinar á EÓP-mótinu,
eitt versta dæmið voru þó 100
metrarnir, þar sem aðeins þrír af
13 skráðum mættu til leiks.
En lítum nánar á úrslitin:
Langstökk kvenna:
Bryndís Hólm ÍR 5,72
Svava Grönfeldt UMSB 5,50
Valdís Hallgrímsd. KA 5,33
Jóna B. Grétarsd. Á 5,32
800 m hlaup kvenna:
Hrönn Guðmundsd. UBK 2:17,8
Guðrún Karlsd. UBK 2:22,1
Aðalbjörg Hafsteinsd. HSK 2:25,2
Laufey Kristjánsd. HSÞ 2:26,4
800 m karla:
Gunnar P. Jóakimsson ÍR 1:56,2
Magnús Haraldsson FH 1:59,6
Sigurður Haraldsson FH 2:03,5
Erling Aðalsteinsson KR 2:05,9
Gunnar Birgisson ÍR 2:06,0
100 m hlaup karla:
Guðni Tómasson Á 11,4
Aðalsteinn Bernharðs. UMSE 11,6
Einar Gunnarsson UBK 11,9
Kringlukast karla:
Óskar Jakobsson ÍR 56,34
Vésteinn Hafsteinsson HSK 55,20
Hreinn Halldórsson KR 48,50
Guðni Halldórsson KR 48,18
Kúluvarp kvenna:
Guðrún Ingólfsd. KR. 13,49
Soffía Gestsd. HSK 11,50
Sigurlína Hreiðarsd. UMSE 11,10
Dýrfinna Torfad. ÍR 10,19
íris Grönfeldt UMSB 10,49
200 m kvenna:
Sigríður Kjartansd. KA 25,8
Geirlaug Geirlaugsd. Á 26,1
Oddný Arnadóttir ÍR 26,1
Helga Halldórsd. KR 26,3
Valdís Hallgrímsd. KA 26,5
110 m grindahlaup:
Aðalsteinn Bernharðs. UMSE 15,9
Gísli Sigurðsson UMSS 16,1
Stefán Þ. Stefánss. ÍR 16,4
Spjótkast karla:
Sigurður Einarsson Á 67,04
Guðmundur Karlsson FH 59,60
Óskar Thorarensen KR 58,58
Unnar Garðarsson HSK 55,80
Kúluvarp karla:
Hreinn Halldórsson KR 19,68
Guðni Halldórsson KR 17,60
Helgi Helgason USAH 14,62
Hallgrímur Jónsson Á 12,94
Óskar Thorarensen KR 12,73
100 m grind kvenna:
Helga Halldórsd. KR 15,5
Valdís Hallgrímsd. KA 16,3
Kristín J. Símonard. UMSB 18,5
Langstökk karla:
Kristján Harðarson UBK 7,01
Sigurður Hjörleifsson Á 6,58
Stefán Þ. Stefánsson ÍR 6,41
Stangarstökk:
Sigurður Sigurðsson KR 5,00
Kristján Gissurarson KR 4,20
Gísli Sigurðsson UMSS 3,55
Óskar Thorarensen KR 3,55
• íslandsmethafinn Sigurður T. Sigurðsson KR i metstökkinu. Eins
og sjá má er Sigurður einbeittur á svipinn.
Ljósm. Emilía.
Öflugt starf hjá FH
Aðalfundur FH var haldinn í
/Eskulýðsheimilinu í Hafnarfirði
þriðjudaginn hinn 5. þ.m. og
hófst kl. 20.30. Fundurinn var
mjög vel sóttur og fjörugar um-
ræður urðu um málefni og starf-
semi félagsins. sem hefur verið
blómleg á liðnu ári. Mörg verk-
efni bíða nú farsællar lausnar,
hæði hvað varðar íþrótta- og
félagsiega starfsemi félagsins og
einnig framkvæmdaverkefni á
íþróttasvæði FII í Kaplakrika.
Skýrsla stjórnar lá fjölrituð
frammi á fundinum og bar vott
um giftudrjúgt starf og reikningar
félagsins sýndu að fjárhagsleg
staða félagsins er mjög góð. For-
maður FH, Bergþór Jónsson, flutti
skýrslu stjórnar og greindi þar frá
helstu þáttum úr starfi félagsins.
Skýrði hann hina miklu breytingu
sem getur orðið á högum félagsins
ef möguleikar þeir sem hinn nýi
samstarfssamningur við Hafnar-
fjarðarbæ býður uppá verða nýttir
og lýsti Bergþór ánægju FH-inga
með ákveðna stefnumótun og góð-
an samstarfsvilja bæjaryfirvalda í
garð íþróttafélaganna sem fram
kemur í áðurnefndum samstarfs-
samningi.
Með samningnum sem félögin
FH og Haukar gerðu við bæjaryf-
irvöld Hafnarfjarðar í vor opnast
næstum ótæmandi verkefni fyrir
aðalstjórn og byggingarnefnd fé-
lagsins. Þegar er byrjað á að ljúka
uppbyggingu áhorfendapalla við
grasvöllinn, grunnur að búnings-
og félagsaðstöðu við grasvöllinn
hefur og verið fylltur og verður
ekki langt að bíða þess að bygging
hússins verði boðin út. Hafnar-
fjarðarbær hefur unnið að bygg-
ingu grasvallar í hrauninu fyrir
ofan malarvöllinn og þegar frost
er sigið úr jarðveginum verður
völlurinn lagður grasþökum og
hafin gerð vallar nr. 2 við hliðina
á þeim nýja. Þessir vellir verða
æfingavellir fyrir FH og Hauka og
mun Hafnarfjarðarbær einnig sjá
félögunum fyrir búnings- og bað-
aðstöðu við þessa velli, sem keppt
er að að verði teknir í notkun
næsta sumar. FH-ingar líta björt-
um augum til þessara fram-
kvæmda og hinnar jákvæðu stefnu
bæjaryfirvalda nú gagnvart
íþróttamannvirkjagerð í Hafnar-
firði.
Bergjiór þakkaði og hina rausn-
arlegu gjöf Gaflara og Kvenna-
deildar FH, er hún færði félaginu
hinn stórglæsilega félagsfána, er
vígður var í íþróttagöngu ÍSÍ í
tilefni 70 ára afmælishátíðar sam-
bandsins.
Á fundinum var aðalstjórn fé-
lagsins endurkosin, en hana skipa
Bergþór Jónsson formaður, Guð-
laugur Magnússon varaformaður,
Þórður Sverrisson ritari, örn Sig-
urðsson gjaldkeri, Jón Gestur
Viggósson meðstjórnandi og í
varastjórn Helgi Gunnarsson,
Ólafur Harðarson og Rósa Héð-
insdóttir.
Sigurmarkiö Evrópumótið í körfuknattleik:
• Á myndinni hér að ofan má sjá
sigurmarkið i leik I.iverpool og
Real Madrid í úrslitaleik Evrópu-
keppni meistaraliða. Það var
Alan Kennedy sem skoraði mark-
ið aðeins átta minútum fyrir
leikslok. Liverpool varð því Evr-
ópumeistari i þriðja sinn.
Rússar sterkir
vV'
• *
UM ÞESSAR mundir stendur
yfir Evrópumeistaramótið í
körfuknattleik i Tékkóslóvakíu.
Sex þjóðir hafa tryggt sér sæti í
lokakcppninni um titilinn. Þær
eru. Spánn. ísrael. Rússland,
Tékkóslóvakia, Júgóslavía og ít-
alía. Þær þjóðir sem leika um 7.
til 12. sæti eru Vestur-Þýskaland,
íþrótta- og leikjanámskeið
fyrir börn að hefjast
Nú eru að hefjast íþrótta- og leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6
til 12 ára. og verða haldin dagana 1. júní til 15. júni. Kennsla fyrir 6
til 9 ára börn er á morgnana á eftirtóldum stöðum:
Melavelli kl. 9.00—10.15
Laugardalsvejli kl. 9.00—10.15
Leikvelli við Árbæjarskóla kl. 9.00—10.15
íþróttavelli við Fellaskóla kl. 9.00—10.15
Leikvelli við Álftamýrarskóla kl. 10.30—11.45
Lcikvelli við Grímsbæ kl. 10.30—11.45
íþróttavelli Þróttar v/Sæviðarsund kl. 10.30—11.45
Leikvelli við Breiðholtsskóla kl. 10.30—11.45
Kennsla 10 til 12 ára barna fer fram eftir hádegi á eftirtöldum
stöðum:
Laugardalsvelli kl. 13.30—15.00
Melavelli kl. 13.30—15.00
íþróttavelli við Fellaskóla kl. 13.30—15.00
Kenndar verða frjálsar íþróttir. knattspyrna og ýmsir aðrir leikir.
Innritun fer Iram á kennslustödunum.
Þátttökugjald er kr. 20.-. Námskeiðinu lýkur með iþróttamóti á
nýja frjálsíþróttavellinum i Laugardal þann 16. júní kl. 13.00.
Pólland. Frakkland. Grikkland.
England og Tyrkland.
Rússar hafa komið mjög á
óvart í keppni þessari. Þeir hafa
mjög sterku liði á að skipa og eru
sigurstranglegastir. Þeir sigruðu
lið Júgóslavíu óvænt með 108
stigum gegn 88, er þjóðirnar
mættust. Frakkar sigruðu Eng-
lendinga 78—66. Tékkar sigruðu
lið ísrael með einu stigi, 86—85.
Spánverjar sigruðu Grikki
111—72. Keppninni lýkur í vik-
unni.
Þing HSÍ
ÞING Handknattleikssambands
íslands. hið 25. í röðinni verður
haldið dagana 5. og 6. júni 1981,1
húsi Slysavarnarfélags íslands,
Grandagarði 14, Reykjavík.
Fyrri daginn hefjast þingfundir
kl. 20.00, en siðari daginn kl.
13.00.
Stjórn Handknattleikssam-
bands íslands væntir þess að þér
sjáið yður fært að heiðra þingið
með nærveru yðar.
I þinghléi, síðari dag þingsins
um kl. 15.30 verður Landsliðs-
mönnum svo og nokkrum vinum
og velunnurum veitt viðurkenn-
ing sambandsins fyrir vel unnin
störf í þágu iþróttarinnar.
’Ml