Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981 Knattspyrnu- félagið Týr óskar efftir tillögum að þjóðhátíðarlagi og texta ffyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja, sem haldin verður dagana 31. júlí, 1. og 2. ágúst n.k. Tillögum sé skilaö á kassettu og undir dul- nefni, en rétta nafnið skal fylgja í lokuöu umslagi. Tillögurnar skulu sendast til Birgis Guöjónssonar, Heiöarvegi 52, Vestmannaeyj- um. Skilafrestur er til 20. júní n.k. Þjóðhátíðarnefnd Týs LÆRIÐ ENSKU í ENGLANDI Hinn vinsæli málaskóli The Globe Study Centre For English í Exeter, suövestur Englandi, efnir í sumar til tveggja námskeiða í ensku fyrir ungmenni 14—21 árs. Brottfarardagar eru 4. júlí og 1. ágúst. Lágmarksdvöl er 3 vikur en hægt er aö framlengja upp í 8 vikur. Fullt fæði og húsnæði hjá völdum enskum fjölskyldum, aðeins einn íslendingur hjá hverri fjölskyldu. 14 klst. kennsluvika hjá góðum og reyndum kennurum. Dagsferir og margskonar íþróttir á dagskrá 5 daga vikunnar. ísl. fararstjóri fylgir nemendum frá Keflavík til Exeter og dvelur þar til leiöbeiningar. Allar upplýsingar veitir Böövar Friöriksson í síma 78238 á kvöldin og í síma 41630 á skrifstofutíma. COMBI CAMP TJALDVAGN • Mest seldi tjaldvagnínn á íslandi. • Adeíns 15 sek. aö tjalda. • Sterkur og öruggur undirvagn. • Þéttur og hlýr tjaldvagn. • Geymslurými fyrir allan viölegubúnaö 5—8 manna fjölskyldu. • Hagstætt verö og greiösluskilmálar. Benco, Bolholti 4, sími 21945. Um sölu laxaseiða eftir dr. Siguirö Helga- son fisksjúkdóma- fræðing, Keldum Laxeldismál hafa talsvert verið til umræðu að undanförnu. Er það mjög að vonum, þar sem um nýlega búgrein er að ræða, sem mikils má af vænta, ef vel tekst til. Þó þykir mér sem ýmsir hafi rætt þetta í fjölmiðlum af óþarf- lega miklum þjósti, hvað sem veldur. Að slíkum skrifum hefur oft verið staðið af lítilli fyrir- hyggju, og með þeim hefur laxeld- ismálum verið lítill greiði gerður. Æskilegt væri, að menn gættu hófs og sanngirni, ef ekki á að spilla hagsmunum íslenskra lax- eldismanna, torvelda þeim afurða- sölu og rýra lánstraust þeirra á röngum forsendum. Ekki vil ég taka þátt í neinu götuþvargi um þessi mál; mun þó ekki skorast undan að svara spurningum, sem að mér er beint, ef ég tel skaðlegt að láta þeim ósvarað. í Morgunblaðinu 19. þ.m. ræðir Jakob V. Hafstein lögfræðingur um hugsanlegar ástæður fyrir sölutregðu á íslenskum laxaseið- um til Noregs, en beinir siðan til nokkurra manna, þar á meðal mín, eftirfarandi spurningum: 1. Hvar eru sýktu laxaseiðin á íslandi og hvar eru þau boðin til sölu í íslenzkum klak- og eldisstöðvum? 2. Um hvaða sjúkdóma er að ræða, ef einhverjir eru, og hafa Fréttir frá Dalvík verið gerðar lækningaráðstaf- anir? 3. Hvað hafa hin íslenzku veiði- og fiskræktaryfirvöld gert gegn umræddum sjúkdómsáburði Norðmanna og áróðri þeirra í þeim efnum bæði á Norðurlönd- um og Bretlandseyjum? 4. Og svo loks. Er það með samþykki og leyfi íslenzkra veiði ogfiskiræktaryfirvalda.að Norðmenn fá samninga við íslendinga um laxeldi í landi okkar — þar sem úir og grúir af sjúkdómum í laxi að þeirra eigin sögn — Norðmanna? Þó að mér þyki Jakob V. Haf- stein flytja mál sitt af helst tii miklum gusti og þarflausum myndugleik, mun ég svara fyrir mitt leyti: 1.-2. Því er fljótsvarað, að engin íslensk eldisstöð liggur nú und- ir grun öðrum fremur. 3. Mér er ekki kunnugt um neinar ráðstafanir íslenskra yfirvalda til að hefta lausafleipur, sem ekki verður rakið til neins ábyrgs aðila. 4. Þessi spurning er utan við mitt svið. Raunar veit ég ekki til, að Norðmenn þessir hefðu þurft neitt leyfi til slíkrar samvinnu. Hitt er svo annað mál, að mér persónulega blöskrar, að út- lendingar fái aðstöðu til að nýta íslenskar auðlindir, meðan íslendingar sjálfir fá til þess harla nauma fyrirgreiðslu. Að öðru leyti er rétt að leiðrétta nokkurn misskilning í grein Jak- obs V. Hafsteins. Dr Sigurður Helgason. Hér tekur dr. Sigurður Ilelgason til umfjollunar grein Jakobs V. Hafstein, sem birtist í Morgunblaðinu 18. maí og svarar nokkrum spurningum, sem að honum var beint m.a. um sýkt laxa- seiði, lækningaráðstafanir, samninga Norðmanna um laxeldi hér á iandi, innfiutn- ing laxaseiða til Noregs o.fl. Um seiðainnflutning til Noregs er það að segja, að frjáls innflutn- ingur var takmarkaður með lögum þar í landi árið 1968, til þess að draga úr þeirri áhættu, að smit bærist til landsins með innfluttum laxfiski, svo sem þar hafði raun á orðið. Nýlega var svo seiðainn- flutningur stöðvaður með öllu, ekki aðeins frá íslandi, heldur hvaðanæva. Ástæðan var sú, að norskir seiðaframleiðendur töldu sig geta fullnægt þörfinni. En það brást, þegar til kom, og eru nú horfur á, að losað verði að ein- hverju leyti um þessi höft. Á hinn bóginn er óvíst hvort leyfður verði innflutningur frá tveim íslenskum eldisstöðvum vegna þess að í norskri stöð kom upp sýking (afbrigði af kýlaveiki) í seiðum þaðan. Okleift reyndist að Umsókn um refabú hafnað Dalvík. 22. maí. EINN AF harðari og erfiðari vetrum er nú að baki. Vorið kom seint og var í kaldara lagi. Segja má að sumrið sé nú í augsýn hvað veðráttu sncrtir þó hún sé ekki i takt við tímatalið þar sem enn má sjá snjúskafla milli húsa í bænum og mikil fannalög til fjalla. Þar sem nú er réttur mánuður i sólstöður má vel viðra næstu daga svo gróður nái eðli- iegum vexti. Jörð kemur svo til ókalin undan og má sjálfsagt þakka það hve vetur settist snemma að en i iok sept. sl. má segja að hann hafi gengið i garð með fannfergi. Þrátt fyrir allt hófust gatna- framkvæmdir hér í fyrra lagi en í lok apríl var hifist handa við jarðvegsskipti í götum. í sumar eru fyrirhuguð jarðvegsskipti í Hólavegi, Sognstúni og Goðabraut og áætlað að leggja bundið slitlag á Smáraveg, Goðabraut og Ránar- braut. Um miðjan janúar hófust þorskveiðar í net. 9 bátar stund- uðu veiðar héðan þegar flest var. Afli var misjafn en að landi barst 2141 lest og var aflahæsti bátur- inn M.s. Brimnes EA14 með 458,32 lestir. Dalvíkingar hafa verið heldur óheppnir með togskip Útgerðarfé- lagsins vegna vélarbilana sem svarar því til að einungis annar togaranna hefur verið í gangi frá áramótum. Dalborg, rækjutogari Söltunarfélagsins, hefur einungis stundað þorskveiðar frá áramót- um. Afli togaranna frá áramótum er sem hér segir; Björgúlfur 1471,6 lestir, Björgvin 318,4 lestir og Dalborg 619 lestir. Þrátt fyrir þessa stöðvun togaranna hefur atvinnuástand verið ágætt á Dal- vík. Nú eftir þorskveiðibannið hefur einn bátur byrjað úthafs- rækjuveiðar og er þegar kominn úr sinni fyrstu veiðiför með 3 tonn af rækju sem flutt var til Kr. Jónssonar á Akureyri. Grásleppuveiði hefur verið með eindæmum góð og að sögn grá- sleppukarla er þetta einhver besta vertíð sem komið hefur um ára- raðir. Á síðastliðnu ári hófust byrjun- arframkvæmdir á verulegum endurbótum á Dalvíkurhöfn ásamt því að lokið var við smá- bátabryggju. Nú þegar er hafist handa við framkvæmdir þessa árs við höfnina og er áætlað að reka niður 60 m langt stálbil með kanti, pollum og dekkjum við svo kallað- an Norðurgarð. Með tilkomu þessa kants skapast nú og betri aðstaða til löndunar fyrir togarana. Nú um skeið hefur legið fyrir hjá bæjarstjórn Dalvíkur umsókn um land undir refabú. Það er hlutafélagið Dalalæða hf. sem sótti um að fá að setja upp bú í landi Dalvíkurkaupstaðar en fé- lagið hefur fengið tilskilin leyfi til loðdýraræktar. Á fundi bæjar- stjórnar 21. þ.m. var ummsókn þessi tekin til afgreiðslu og var henni hafnað með 4 atvæðum gegn 3. Á Dalvík er starfrækt eitthvert stærsta minnkabú landsins og hefur það nú fengið leyfi til refaræktar. En þrátt fyrir kalt vor og kuldalega sumarkomu er það von Dalvíkinga að brátt bregði til betri tíðar með blóm í haga. Fréttarltarar. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.