Morgunblaðið - 02.06.1981, Síða 19

Morgunblaðið - 02.06.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI1981 27 Leitarmenn röðuðu sér í f jallshlíðarnar. Björgunarsveitabílarnir þurftu oft að fara yfir hinar óliklegustu hindranir. bessar myndir voru teknar frammi í Skagafirði. LjÓKmyndir Mbl. Arnþór. Eftir mikið erfiði tvo fyrstu daga leitarinnar var ákveðið að senda óþreyttan mannskap á staðinn með Fokkervélum frá Flugleiðum. Tvær vélar flugu til Sauðárkróks með mannskapinn og tóku aðra til baka. Ljósmynd Mbl. Arnþór. Ein af þremur umfangs- mestu leitum á Islandi „Leitin af TF-ROM flokkast að mínu mati meðal þriggja mestu leita sem verið hafa á íslandi vegna véla sem hefur verið saknað," sagði Valdimar Ólafsson yfirflugumferð- arstjóri í samtali við Mbl. í gær, „hinar leitirnar voru vegna Flug- sýnarvélarinnar sem var á leið til Norðfjarðar í sjúkraflugi og hefur aldrei fundist, en hin var Geysis- leitin sem var árið 1950, feikilega viðamikil leit. Að sögn Arnórs Hjálmarssonar fyrrverandi yfir- flugumferðarstjóra var Geysisleitin umfangsmesta leit sem hefur verið á norðurhveli jarðar, því auk þess að leitað hafi verið á öllu landinu var leitað á hafsvæði sem er fjórum sinnum stærra en ísland og þátt í leitinni tóku margar þjóðir, skip og flugvélar. Valdimar sagði að í leitinni að Flugsýnarvélinni þar sem Sverrir Jónsson flugmaður og Höskuldur Þorsteinsson flugkennari voru um borð, hafi tilkynningar borist um ferðir flugvélar af nánast öllu landinu, en allt án árangurs. Þá tók leitin að Geysi marga daga því þoka lá svo lengi yfir bungunni á jöklin- um, en Valdimar kvaðst muna vel þann fögnuð sem varð hjá alþjóð þegar tilkynnt var að varðskip hefði heyrt morssendingar frá Geysi. Valdimar kvað leitina nú geysilega umfangsmikla, bæði hefði mikill mannfjöidi tekið þátt í leit á landi og tugir flugvéla í lofti. Valdimar sagði það hafa verið mikil vonbrigði að heyra ekki í neyðarsendi flugvélarinnar, en í slíkum tilfellum hefði það flýtt leit mjög og nefndi hann dæmi um fjögurra sæta vélina sem hrapaði við Þingvallavatn í fyrra þar sem sá einstæði atburður skeði skömmu seinna, að björgunarþyrla Varnar- liðsins hrapaði skammt frá eftir flugtak með fjórmenningana. Annasamt var hjá leitarstjórninni ailan tímann meðan leitin stóð yfir á landi. Mestum hluta leitarinnar var stjórnað frá Húnaveri, en þar var þessi mynd tekin. Ljósmynd Mbl. Brynj.r Örn. Piltur í Blönduhlíð sá TF-ROM: Flaug inn yíir Tröllaskaga í heiðskíru veðri FEIKNAMIKILL fjöldi manna hefur tlkynnt leitar- stjórn um ferðir flugvéla á miðvikudagskvöld og hafa þessar upplýsingar reynzt mishaldgóðar eins og við er að búast samkvæmt upplýsingum leitarstjórnar. Marga misminnir og vilja heldur gefa upp það sem þeir halda þótt vissa sé ekki fyrir hendi. Hinn mikli fjöldi atriða sem hefur borizt leitarstjórn þannig hefur hins vegar gert kleift að rekja slóð vélarinnar að Tröllaskaga á miðvikudagskvöld þar sem eitt vitnið sá vélina á austurleið. Fjölmargir hafa einnig tilkynnt um hljóð i flugvél og m.a. einn starfsmaður við Þórisvatn sem taldi sig hafa heyrt í flugvél seint á miðvikudagskvöld. eða um það bil sem TF-ROM var á lokatíma hvað snertir eldsneyti. Flugvélar hafa þríleitað allt svæðið í þeim hluta landsins án árangurs og þannig er víða. Það var þrettán ára gamall piltur, Hlynur Hjaltason, á bænum Hjalla í Blönduhlíð, sem telur sig hafa séð TF-ROM á austurleið á miðvikudagskvöld, en þegar Mbl. ræddi við hann í gær sagðist honum svo frá: „Klukkan var um það bil fimmtán mínútur yfir átta þegar ég sá flugvél koma lágt úr vestri. Eg var úti, sunnan við bæinn, og fylgdist með vélinni fljúga beint í austur, hún var hvít með dökkum röndum, en þegar hún nálgaðist fjallgarðinn hækkaði hún flugið. Hún hafði hækkað sig talsvert þegar hún var á móts við dalinn milli Glóðafeykis og Hjaltastaðafjalls og ég sá ekki betur en að vélin flygi inn í Flugumýrardalinn í alveg heiðskíru veðri." Að sögn leitarstjórnar í gær er búið að gjörkanna allan Flugumýrardalinn. Marsibil Agnarsdóttir, húsfreyja á Reykjum í Hjaltadal, sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi að heimafólk á Reykjum hefði heyrt greinilega í flugvél laust fyrir kl. 9 á miðvikudagskvöld, en Reykir eru innsti bær í Hjaltadal. Sagði Marsibil að mistur hafi verið í lofti, en þó ekki þoka. Hjörleifur Kristinsson á Gilsbakka sagðist hafa verið staddur í Flatatungu þegar verið var að lesa sjónvarps- fréttirnar á miðvikudagskvöld og um það bil hálfri klukkustund síðar hafi hann verið kominn heim til sín. „Þá eða nokkru síðar," sagði hann „heyrði ég greinilega mikinn hávaða frá flugvél nálægt mér eins og frá hlíðinni handan í dalnum, en vél sá ég ekki þótt mjög gott skyggni væri yfir Hlíðafjalli og Nýjabæjarfjalli. Þetta hljóð var á engan hátt óeðlilegt, nema hvað það var nálægt og þess vegna mundi ég eftir þessu, því maður á vont með að muna nákvæmlega hversdagslega hluti þegar sauðburðarvinnan gengur fyrir öllu og maður er stanzlaust á ferð út og inn. Ég heyrði ekki betur en að hljóðið kæmi í átt frá Merkigili, en það er torleitað svæði. Mér fannst óeðlilegt að sjá ekki vélina, en það er oft erfitt að greina vélar ef þær ber í fjalllendi og eins getur hljóðið hafa heyrzt svo greinilega vegna þess að vélin hafi verið á flugi lágt yfir fjöllunum þarna."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.