Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981 1 1 spurt og svarad „í gróðrarstöðvum hér á höfuðborgar- svæðinu er víða fá- anlegt talsvert úrval lágvaxinna fjölærra blómjurta, þótt oftast sé bæði tíma- frekt og fyrirhafn- armikið að annast ræktun þeirra og umhirðu, svo að arð- samt sé að rækta þær og selja." sinni og fyllir allt umhverfi sitt með hunangsangan síðsumars og það er lítil hætta á að hún felli fræ sé eftirlit haft með henni. Vakandi auga ber okkur að hafa með öllum gróðri sem í návist okkar vex. Jarðarber þurfa frjósaman jarðveg og vaxtarstað þar sem bæði nýtur vel sólar og skjóls. Bestur árangur næst með ræktun í skjólreit þar sem auðvelt er að verja plönturnar fyrir umhleyp- ingum og þægilegt er að skýla þeim yfir veturinn með hálmi og laufblöðum. Geymsla græðlinga Helgi Einarsson. Hvannalundi 15, Garðabæ, hringdi og spurði hvernig mætti geyma græðlinga þangað til þeir væru settir niður, hvort það væri breytilegt eftir tegundum og hvernig maður geymir þá. Hann sagðist hafa haft gljávíði sem hann klippti og gekk illa að fá til að lifa. SVAR: Best er að geyma það eins lengi og hægt er, að klippa græðiinga, helst það langt fram á vorið að jörð sé orðin þíð og að hægt sé að stinga þeim strax í mold. Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar við geymslu að vetrinum, en gefist misjafnlega. Einna best hefur gefist að stinga þeim í vikursand og þarf sandurinn þá að hylja græðlingana, þannig að þeir nái ekki að innþorna og fyrirbyggja verður of mikinn raka því þá er hætta á rotnun. Gljávíðigræðlinga þarf helst að taka síðla vors og stinga beint í beð. Löng geymsla gefst illa. Gljávíðir laufgast mun síðar, en aðrar víðitegundir og þar af leið- andi mikil hætta á að græðlingar sem lengi eru geymdir, þorni ,um of hversu vel sem um þá er búið í geymslu. Til skjóls við matjurtagarð Björn Jóhannsson. Króka- hrauni 2, Hafnarfirði, hringdi og spurði hvaða trjátegund eða runni hentaði til skjóls við matjurtagarð og þá tegund þar sem rætur leita ekki of mikið inn í garðinn. SVAR: Eðlilegast er að rækta ribsberjaunna til skjóls við matjurtagarða, en einnig kemur Lesendaþjonusta til greina að rækta stikilsberjar- unna, en þeir eru nú víða komnir í ræktun, þar sem hingað hefur borist harðgert afbrigði sem hefur þrifist með ágætum. Bera þau safarík ber en uppskeran er sjaldnast mikil. Frekar auðvelt er að fjölga ribs- og stikilsberjarunnum með græðl- ingum. Ræktun lúpínu Vigdis Sigurðardóttir. Holts- búð 50, Garðabæ, hringdi og sagðist hafa sáð lúpínum í fyrra sem komu ágætlega til, en dóu svo allar sl. vetur. Hver er galdurinn við að halda þeim lifandi yfir veturinn? SVAR: Nauðsynlegt er að setja vetr- arskjól yfir lúpínur, þar sem þær MORGUNBLAÐSINS þola (allar viðkvæmari tegundir t.d. Rössel-lúpínur) illa langvar- andi frost, einkum ef þær standa ekki í upphækkuðum beðum. Vetr- arumhleypingana þola þær afar illa. Þar sem vatn getur safnast fyrir við rætur þeirra að vetrinum eru þær oftast dæmdar úr leik. Þetta eru mikilvægustu atriðin við ræktun á hinum fínni lúpínum þ.e.a.s. þeim sem hafa verið kyn- bættar og ræktaðar í mörgum litbrigðum. Þær tegundir sem blómstra bláu t.d. alaskalúpínur eru miklu harðgerari og bjarga sér í öllum veðrum og hvar sem er jafnvel á berangri. Aftur á móti eru hinar vandræktuðu lúpínur sjaldnast seldar frá gróðrarstöðv- um fyrr en á öðru eða þriðja ári, talið frá sáningu. Helst ættu þær ekki að bera blómstöng fyrr en á þriðja ári og fyrr hafa þær tæpast náð nægilega sterku rótarkerfi til að flytjast út á framtíðarvaxtar- stað. Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri svarar spurningum lesenda um garðyrkjumál Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON og litli Jón, eina lagið sem ekki var smekklega flutt. Lagið er einsöngslag og auk þess sem lagið fær á sig aðra mynd í kórgerð var það ekki vel mótað. Gamla lagið við Sprengi- sand, í skemmtilegri útsetn- ingu eftir Hall, er ranglega talið ísl. þjóðlag. Það er finnskt, en Bjarni Þor- steinsson telur það vera ís- lenskt. Einsöngvarar með kórnum voru Halla Jónas- dóttir, Einar Gunnarsson og Snorri Þórðarson og undir- leikari Ólafur Vignir Al- bertsson. 500 milljón dollara taprekstur FIMM stærstu bandarísku flugfélögin sem fljúga á Norður-Atlantshafinu töp- uðu 152 milljónum dollara á sl. ári á því flugi, segir í fréttabréfi Flugleiða þar sem vitnað er í nýjar skýrslur frá IATA. Alls er talið að tapið á Norður-Atlantshafsfluginu árið 1980 hafi verið 500 milljónir dollara. Þá er bent á að á árunum 1977—1980 hafi taprekstur flugfélag- anna á Atlantshafinu numið 1,5 milljarði dollara. Ástæðurnar sem talið er að vegi þyngst eru ný flug- málastefna Bandaríkjanna sem orsakaði feikilega sam- keppni og rekstur nýrra flug- félaga á þessum leiðum auk mikilla eldsneytishækkana. 31. maí til 5. júní Nú bjóöum við ykkur aö líta við í vesiuninni þessa viku og kynnast nýjustu tækni í sambandi við matreiðslu í örbylgjuofnum. Einnig verð- ur boðið upp á pizzur og Seven-Up, sem ætti að renna Ijúflega niður. VIÐ BJODUM YKKUR AÐ HEIMSÆKJA VERSLUN KALMAR-INNRETTINGA H/F I SKEIFUNNI 8, REYKJAVÍK NÚ UM HELGINA OG NJÓTA ÞESSARA ELDHUSDAGA OKKAR. Einar Farestveit h/f kynnir tfoJuba Örbylgjuofna hjá okkur í versluninnl í dag, þriðjud. kl. 16—18. Dröfn Farest- veit kynnir þá nýja tækni í matreiöslu meö notkun örbylgjuofna frá TOSHIBA Halti haninn gefur okkur aö smakka á pizzum alla vikuna og Seven-Up frá Sanitas hjálpar okkur svo aö renna þessu niöur. c ískalt Seven up. : -Pf hressir betur. KYNNING Á ÖRBYLGJUOFNUM ÞRIÐJUDAG KL. 16—18. H kajmar innréttingar hf. SKglFAW >, æVKJAVIW ■ n EINAR FARESTVEIT «. CO HF • IRGSTADASTRATI I0A SIMI UtfS Halti nin Sanitas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.