Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981 5 A forö kl. 17.10 Góðlátlegar ábend- ingar til vegfarenda Á danskrá hljóðvarps kl. 17.40 hefst nýr þáttur, Á ferð. Umsjón- armaðurinn, óli H. bórðarson, spjallar við vetffarendur. — Þetta verða örstuttir sumar- þættir, sagði Óli, — þar sem ég mun hverju sinni koma einhverju því á framfæri, sem mér er hugstætt í það og það skiptið og á erindi til allra í umferðinni. Þetta verða góðlátlegar ábendingar en ekki fræðsluþættir. Því er ekki að leyna, að það er æðimargt sem mér liggur á hjarta í umferðar- málefnum, t.d. afgreiðsla bílbelta- frumvarpsins á Alþingi, sem ég er nú ekkert hress yfir, hjólreiðafólk, sem nú fjölgar ört, o.fl. o.fl. „Áður fyrr á árunum'* kl. 11.00 „Þjórsárdalur, ríki hinna dauðu“ - eftir Jóhann Briem Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00 er þátturinn „Áður fyrr á árun- um“ í umsjón Ágústu Björnsdótt- ur og ber hann að þessu sinni yfirskriftina „Þjórsárdajur, riki hinna dauðu“. Guðrún Ámunda- dóttir les ritgerð eftir Jóhann Briem. — Ritgerð þá sem Guðrún Ámundadóttir les í þættinum samdi Jóhann Briem listmálari fyrir nær fjórum áratugum, sagði Ágústa, — löngu áður en fram- kvæmdir við Búrfellsvirkjun hóf- ust og Þjórsárdalur byggðist að nýju. Höfundur rekur nokkur at- riði úr sögu hins forna Þjórsár- dals, en þar hafa fundist leifar um tuttugu býla, sem talið er að farið hafi í eyði í Heklugosi árið 1341, þ.á m. kirkjustaðurinn Skeljastað- ir. I þættinum les Guðrún einnig kvæðið „Hauskúpan", eftir systur Jóhanns, Ólöfu Ólafsdóttur Briem, sem var skáldmælt vel og gáfuð, en lést langt um aldur fram. Guðrún Ámundadóttir Félag íslenzkra tónlistarmanna: Mótmælir ráðningu erlendra einleikara í utanferð SÍ MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá Félagi íslenzkra tónlistarmanna: „Aðalfundur FÍT (Félag ís- lenskra tónlistarmanna) sem haldinn var 6. maí 1981 samþykkti eftirfarandi með öllum greiddum atkvæðum: „Fundurinn mótmælir harðlega þeirri ákvörðun fram- kvæmdastjóra Sinfóníuhljóm- sveitar Islands að ráða erlendan einleikara í stað íslensks í fyrstu tónleikaferð hljómsveitarinar til meginlands Evrópu. Slík ráðstöf- un hlýtur að kalla á það mat útlendinga að hæfir íslenskir ein- leikarar fyrirfinnist ekki. FÍT lítur á þetta sem móðgun við íslenska tónlistarmenn. Sinfóníu- hljómsveit íslands var stofnuð til þess að lyfta íslenskri tónlistar- menningu á hærra stig og þá ekki síst til að gefa íslenskum einleik- urum og söngvurum tækifæri til þess að koma fram með hljóm- sveitinni. Það sýnir ekki mikið stolt fyrir íslands hönd að ráða erlendan pianóleikara sem ein- leikara með hljómsveitinni í nefnda tónleikaferð, þegar nóg er til af íslenskum einleikurum sem með sóma hefðu getað farið þessa ferð. Þessari samþykkt er ekki beint gegn hinum erienda píanó- leikara, sem vafalaust er ágætur listamaður. En furðulegt verður að telja að framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar skuli ekki fyrst og fremst hafa leitað til íslenskra einleikara þegar tónleikaferð þessi var undirbúin. Óþarfi er að taka fram að fundurinn gleðst yfir persónulegu boði til Manuelu Wiesler og Páls P. Pálssonar að vera leiðtogi og einleikari hljóm- sveitarinnar á ferð hennar um Austurríki." Þurfa tveggja ára siglingatíma ÞAÐ SKAL tekið fram vegna fréttar i Mbl. sl. sunnudag, að ekki er nægilegt að taka hóklega hlutann af stýrimannaprófi til þess að fá réttindi. Áður en menn fá réttindi til að stjórna 120 tonna báti, sbr. fréttina, þurfa þeir að skila tveggja ára siglingatíma. Leiðrétting SÍÐASTLIÐINN laugardag féll niður lína í frétt Mbl. um skólaslit M.R. og brenglaði þar af leiðandi fréttina. Skal hluti hennar því endurtekinn hér: „Að þessu sinni útskrifuðust 148 stúdentar. Best- um árangri náði Haraldur Sig- þórsson úr eðlisfræðideild, með 1. ágætiseinkunn, 9,32, og næsthæst- ur varð Anton Pjetur Þorsteins- son úr náttúrufræðideild með 1. ágætiseinkunn, 9,15." Morgun- blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Kennarafélag Reykjaness: Kennarar telja að ekki sé staðið við samninga f auglýsingu frá stjórn Kenn- arafélags Reykjaness sem birtist hér í blaðinu í síðustu viku. segir að Fjármálaráðuneytið og Fræðsluskrifstofa Reykjaness hafi ítrekað reynt að skerða áunnin kjararéttindi kennara i fra'ðsluumdæminu. Mbl. hafði samband við Ernu Guðmunds- dóttur formann Kennarafélags Reykjaness og sagði hún að ágreiningurinn á milli Kennara- félagsins og Fræðsluskrifstof- unnar snérist einkum um þrjú atriði. „I fyrsta lagi hefur komið upp að kennarar, er hafa fengið kennsluafslátt vegna aldurs, hafa verið látnir vinna önnur störf sem nemur kennsluafslættinum — en það eru gömul ákvæði til þess efnis að þegar kennari hefur náð 55 ára aldri minnki kennsluskyld- an um einn sjötta og aftur um einn sjötta við 60 ára aldur," sagði Erna. „í samningnum stendur einnig að vinnutilhögun skuli haldast óbreytt að öðru leyti. Við vitum hins vegar til þess að kennarar hafa þurft að annast stjórnunarstörf sem styttingu kennsluskyldunnar nemur og telj- um það augljóst brot á samningn- um. „í öðru lagi teljum við vinnu- skýrslu sem kennarar gera á haustin í samráði við skólastjóra vera samning fyrir skólaárið og þurfi þriggja mánaða uppsagnar- frest, ef henni á að breyta. Á síðasta ári var vinnutilhögun breytt og einnig stundaskrám hjá kennurum án þess að þriggja mánaða uppsagnarfrestur kæmi til. Þetta teljum við einnig brot á samningi. í þriðja lagi hefur ekki verið staðið við 20 prósent afslátt á kennsluskyldu við sérdeild í skóla hér í fræðsluumdæminu. Við vit- um um að minnsta kosti eitt Tungulax og Mowi: í FRÉTT Mbl. sl. sunnudag um nýtt fyrirtæki Tungulax hf. og norska fyrirtækisins Mowi gætti misskilnings. sem gerði fréttina villandi. og fer hér á eftir leiðrétting: Eins og kunn- ugt er hafa staðið yfir í á annað ár tilraunir fyrirtækjanna A/S Mowi í Bergen og Tungulax hf. um fiskirækt. sérstaklega sjó- eldi. Voru í fyrrasumar gerðar tilraunir með að setja laxaseiði i sjó í Lónum i Kelduhverfi. Nú eru 8.000 laxar í flotkví í Lónum og eru þeir orðnir um 1 kg að meðalþyngd og þeir stærstu allt að 5 pund. Þessar tilraunir hafa tekist það vel, að nú verða settir að minnsta kosti 50 þúsund sjógöngulaxar í 6 stórar kvíar í Lónum. 30 þúsund fiskar verða aldir upp í sláturstærð á 1 Vi til 2 árum, en 20 þúsund verður sleppt tilfelli og þau gætu vel verið fleiri. Á fundi sem stjórnin hélt á mánudag voru þessi mál rædd ásamt nokkrum fleirum. Við höf- um ekki ákveðið neinar aðgerðir ennþá og vonumst til þess að þe'ssi mál leysist án þess að til þeirra þurfi að koma,“ sagði Erna að lokum. um miðjan júlí og er þar um að ræðar- hafbeitartilraun. Vonast er til endurheimtu á 1 til 2 árum. Fyrirtækin hafa nú stofnað nýtt hlutafélag um þennan rekstur og fiskeldisstöð Tungulax hf. að Öxnalæk í Ölfusi. Heitir fyrirtæk- ið ISNO hf. og var gengið frá samningunum nýlega. Tungulax hf. á 55% og Mowi 45%. Drengur lærbrotnar Um hálftvöleytið varð fimm ára drengur á reiðhjóli fyrir bifreið í Engjaseli í Reykjavik. Drengurinn var fluttur á slysa- deild Borgarspitalans og kom i ljós að hann var lærbrotinn. Samstarf um sjóeldi en ekki útf lutning Hringdu strax í dag og fáðu nánari upplýs- ingar um heimsþekktu lyftingatækin frá Póstverzlunin Heimaval. Box 39, 202 Kópavogi, sími 44440 Vinylvarin lyftingasett til heimanota Hávaða- laus í notkun, ryðga ekki, skemma ekki gólf. 6 veggspjöld og æfingakerfi fylgir hverju setti. Pressu og æfinga- bekkir ný komnir. Einnig úrval af handlóöum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.