Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981 3 Landlæknir: Varar fólk við Spánarferðum í FRÉTT sem landlæknisembœttið hefur sent frá sér kemur m.a. fram að í síðustu viku hafi 3 af 180 íslenskum Mallorkaforum veikst af siúkdómi. sem nú herjar á Spánverja ok hefur einkum orðið vart í krin^um Madrid. Þá ráðlegRur landlæknir eldra fólki, ungbörnum, fólki með hjarta- og lungnasjúkdóma og fólki með ofnæmi fyrir sýkla- lyfjum að velja ekki Spán sem sumarleyfisland a.m.k. í bili. Fréttatilkynning landlæknis fer hér á eftir. „Nýlega bárust landlæknisemb- ættinu fregnir um öndunar- færasjúkdóm á Spáni. Þessa sjúk- dóms hefur einkum orðið vart í Madrid en í minna mæli í öðrum héruðum landsins. Samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar er hér um óþekktan öndunarfærasjúkdóm að ræða. f flugvél, sem kom frá Mallorca í síðustu viku höfðu 3 af 160 farþegum veikst. Við rannsókn á þeim kom í Ijós að þeir voru með berkjukvef, sem virðist þó ekki Steinn Lárusson: vera bráðsmitandi. Berkjukvef getur orðið nokkuð erfiður sjúk- dómur, einkum getur hann komið illa niður á ungbörnum, eldra fólki og fólki með hjarta- og lungna- sjúkdóma. Þar til nánari fregnir berast ráðleggur landlæknir eldra fólki, ungabörnum, fólki með hjarta- og lungnasjúkdóma og fólki með ofnæmi fyrir sýklalyfjum að velja ekki Spán sem sumarleyfisland a.m.k. í bili. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin telur þó ekki nauð- synlegt að stöðva ferðir til Spánar. Enginn hefur verið lagður inn á sjúkrahús hér á landi, en vakthaf- andi læknum og héraðslæknum hefur verið gert viðvart. Þá hafa sérstakar ráðstafanir verið gerðar á Borgarspítalanum og Vífils- staðaspítala til þess að taka á móti slíkum sjúklingum ef þörf gerist." Engin tilfelli komið upp á helstu stöðunum „ÉG VEIT ekki til þess að nokkur heilbrigðisyfirvöld á þessum ferðamannastöðum. hvort sem það eru Mallorka eða Costa del Sol. hafi orðið vör við eitt einasta tilfelli af þessari sýki sem hefur verið í kringum Madrid.“ sagði Steinn Lárus- son. formaður Félags islenskra ferðaskrifstofa i samtali við Morgunhlaðið i gær. „í Madrid er álitið að um 2000 manns hafi fengið snert af þessum sjúkdómi, en Madrid er milljóna borg, þannig að þetta er ekki faraldur sem tekur að tala um. Þá virðist að þetta sé í rénum nú og spönsk yfirvöld halda því statt og stöðugt fram að um útbreiðslu hafi ekki verið að ræða. Eftir því sem ég fregnaði í dag, hafa ekki nein heilbrigðisyfirvöld í Evrópu gef- ið út yfirlýsingar eins og land- læknisembættið um þetta mál,“ sagði Steinn. Að lokum gat Steinn þess að samkvæmt upp- lýsingum sem aflað hefði verið hefðu engin tilfelli komið upp á helstu ferðamannastöðunum og virtist sjúkdómurinn vera í Madrid og á takmörkuðu svæði þar í kring. Ingólfur Guðbrandsson: Verið að hræða fólk að ástæðulausu „Ferðamannastraumurinn til Spánar er stöðugur og óbreytt- ur. A ferðalagi mínu til Costa del Sol fyrir hálfum mánuði. og til Madrid og Mallorka fyrir viku síðan. heyrði ég ekki minnst á þennan sjúkdóm enda er hann ekki litinn alvarlegum augum þar, samkvæmt upplýs- ingum frá Spáni i dag,“ sagði Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri ferðaskrifstofunnar Út- sýnar, i samtali við Morgun- blaðið i gær. „Landlæknisembættið stað- festir í frétt sinni að Alþjóða- heilbrigðisstofnunin hafi ekki séð ástæðu til að vara fólk við Spánarferðum. Samkvæmt frétt frá ferðamálayfirvöldum á Spáni er veikin bundin við Madr- id og nágrenni, og ekki bráðsmit- andi, enda ekki vitað um nema 2000 manns sem hafa tekið veikina á 5 milljóna íbúa svæði. Veikin líkist helst inflúensu og er talin í rénun. Ekki er kunnugt um nein tilfelli á Costa del Sol. Ég tel að með tilkynningu þess- ari sé verið að hræða fólk að ástæðulausu. Engar breytingar hafa orðið á ferðamanna- straumnum til Spánar af þessum sökum, en gífurleg aukning hef- ur orðið á ný á ferðalögum til vinsælustu baðstranda Spánar í ár, á Costa del Sol og Mallorka, svo að enga gistingu er þar að fá i júlí- og ágústmánuði. Þetta verður eins og með sprengjuher- ferðina sem mest var slegið upp í íslenskum blöðum um árið, en Spánarfarar vissu fyrst um þetta þegar þeir sáu íslensku blöðin, en höfðu ekki heyrt minnst á það meðan á ferðinni stóð,“ sagði Ingólfur Guð- brandsson. Frá setningu myndlistarþings, en meðal gesta voru Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. og Egill Skúli Ingibergsson, borgarstjóri. Ljósm. Mbi. Emilia. Myndlistarþing: Sterkur vilji að mynda heildarsamtök MYNDLISTARÞING stóð um helgina. hófst kl. 10 á laugar- dagsmorgun og lauk kl. 6.30 á sunnudag. Samkvæmt upplýsing- um sem Morgunblaðið fékk hjá Sigrúnu Guðjónsdóttur mynd- listarmanni. formanni Félags myndlistarmanna. var unnið í fimm umræðuhópum á laugardag og hafði hver hópur verkefni til úrvinnslu. Síðan skilaði hver hópur af sér áliti á sunnudag. Þá fóru fram umræður um álit hópanna. Sigrún sagði að á þinginu hefði komið fram mjög sterkur vilji myndlistarmanna til að mynda sterk heildarsamtök. sem síðan myndu vinna að hagsmunamál- um þeirra. Læknaþjónustan sf.: Bíður átekta vegna reikninga La“knaþjónustan sf. hefur sent reikninga fyrir unnin læknisverk til fjármálaráðu- neytisins, en Ragnar Arnalds fjármálaráðherra sagði í sam- tali við Mbl. í gær að þeir hefðu ekki verið greiddir enn þá. Sagði hann lækna vissulega fá endurgjald fyrir störf sín. er þeir inntu af hendi á vegum Læknaþjónustunnar sf. en ósamið væri þó um taxta. „Það er mjög erfitt að segja nokkurn skapaðan hlut meðan málin eru í þessari óvissu,“ sagði Jóhann Heiðar Jóhannsson for- maður stjórnar Læknaþjónust- unnar sf. „Þarna er ráðherrann náttúrulega að gefa vissa vilja- yfirlýsingu um að hann vilji semja við Læknaþjónustuna. Ráðherra hefur lýst því yfir að samninga- fundur muni hefjast í fyrramálið og sjálfsagt að bíða átekta og sjá hvað gerist á þeim fundi. Þá verður félagsfundur hjá okkur annað kvöld og þetta mál verður væntanlega tekið til umræðu þá — en núna sem stendur hef ég heldur lítið um málið að segja." Kjaramálaráðstefna Sjómannasambandsins: Ríkisvald og yfimefnd taki fullt tillit til krafna sjómanna ANDAMAMMA lenti í hinum me.stu vandræðum í umferðinni í miðhorg Reykjavíkur í ga*r. Fjöldi fólks. bilar og aftur bílar rugluðu hana i ríminu og ung- unum hennar 9 leist ekkert á hávaðann í þessum heimi. Það var ekki fyrr en goðhjartaður lögregluþjónn tók við stjórn- inni. að skriður komst á ferða- lagið og öll náðu þau að Tjörn- inni í fylgd fjölmargra áhorf- enda. Er bakkanum var náð stukku ungarnir hver af öðrum út i vatnið og syntu síðan á braut eins og þeir hefðu aldrei gert annað. (Ljósm. Emilia) í lögreglufylgd um miðborgina Viðræður við lækna hef jast í dag SAMKOMULAG hefur orðið milli fulltrúa fjármálaráðuneytisins og Læknafélags íslands um að hefja skuli viðræður um starfskjör sjúkrahúslækna i skjóli þess ástands, sem skapast hefur á sjúkrahúsunum. Þorvaldur Veig- ar Guðmundsson formaður LÍ og Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir m.a.: „Aðilar eru sammála um að þessar viðræður, sem nú eru að hefjast, snúist ekki um grunn- kaupshækkanir til lækna umfram gildandi kjarasamning skv. dómi Kjaradóms. Fram hefur komið, að á nokkrum sviðum félagslegra réttindamála njóta læknar lakari réttar en aðrir ríkisstarfsmenn og munu því viðræðurnar.snúast um lagfæringar á þeim þáttum og öðru er varðar réttindi og skyldur sjúkrahúslækna. í trausti þess að viðræðurnar leiði til viðunandi lausnar fyrir báða aðila munu þeir sameiginlega stuðla að því að starfsemi sjúkrahúsanna gangi snurðulaust fyrir sig og yfirstand- andi deila bitni ekki á sjúkling- um. Ragnar Arnalds og Þorvaldur Veigar Guðmundsson sögðu að þar sem átt væri við lakari kjör lækna á nokkrum sviðum réttindamála mætti nefna ýmislegt, lífeyris- sjóðamál, tryggingamál, veikinda- rétt, kostnað við bílaafnot og fyrirframgreiðslu launa, en lækn- ar hafa ekki fengið laun greidd fyrirfram eins og aðrir ríkisstarfs- menn. Gert er ráð fyrir að fyrsti samningafundurinn fari fram í dag. SJÓMANNASAMBAND íslands hélt síðastliðinn laugardag kjaramálaráðstefnu og urðu þar miklar umræður um kjaramáí sjómanna í sambandi við fiskverðsákvörðun, sem taka átti gildi lögum samkvæmt í gær, en náðist ekki fram, m.a. vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki ákveðið að hve miklu leyti hún ábyrgist greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. Samkvæmt upplýsingum Emils kröfu til yfirnefndar Verðlagsráðs Páls Jónssonar, ritara Sjómanna- sambandsins spunnust umræð- urnar um fiskverðsákvörðun, þar sem ljóst væri, að ríkisvaldið ætlaði að skammta sjómönnum minni hækkun en aðrir landsmenn hafi fengið. í framhaldi af því, var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Kjaramálaráðstefna Sjó- mannasambands íslands, haldin í Reykjavík 30. maí 1981, gerir þá sjávarútvegsins, að við ákvörðun um nýtt fiskverð, sem taka á gildi 1. júní næstkomandi, verði fullt tillit tekið til þeirra skoðana sjómanna, að hækkun fiskverðs verði ekki minni en almennar verðbætur. Þá lýsir kjaramála- ráðstefnan eindregnum stuðningi við fulltrúa sjómanna í yfirnefnd- inni og þá kröfu, sem hann hefur lagt fram.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.