Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981
13
rekja smitið til síns upphafs. Og
við íslenskar rannsóknir í eldis-
stöðvum þessum varð hvorki vart
sýkingar fyrir né eftir útflutning-
inn, enda þótt beitt væri aðferð-
um, sem sérstaklega miða að því
að koma upp um leynda smitbera.
Hitt er alkunna, að fullkomið
öryggi í þeim efnum er óhugsandi,
og skal því ekkert um það fullyrt,
að uppruni smitsins hljóti að hafa
verið norskur. Islensk og norsk
fisksjúkdómayfirvöld hafa haft
samband sín á milli um þetta mál.
Þess skal getið, að svipað af-
brigði af kýlaveiki fannst í seiðum
einnar íslenskrar eldisstöðvar, en
þeim var öllum lógað, áður en til
dreifingar kæmi. Sömu sýki hafði
einnig orðið vart í norskum eld-
isstöðvum, án þess að rakin yrði
til íslands.
Kollafjarðarstöðina kallar Jak-
ob V. Hafstein „lokaða" og kveður
þar „auðvitað ekkert vitað um
heilsufar". Það segir hann að sé
„ekki fögur lýsing — en sönn“.
Svo fróm sannfæring þyrfti að
vera reist á traustum grunni, en
því fer fjarri. Kollafjarðarstöðin
hefur ætíð verið mér opin og
starfsmenn hennar hafa sýnt full-
an samstarfsvilja. Sama er að
segja um fleiri íslenskar eldis-
stöðvar og starfsmenn þeirra. Að
öðru leyti er einmitt æskilegt, að
eldisstöðvar séu sem allra mest
lokaðar fyrir óviðkomandi um-
gangi, svo brýnt sem það er að
verja þær eftir föngum fyrir smiti.
Fiskrækt er viðkvæm atvinnu-
grein, og ber margt til. Smitsjúk-
dómar eru þar veigamikill þáttur;
en við íslendingar eigum því láni
að fagna, að hér hefur ekki orðið
vart annarra alvarlegra sjúkdóma
í laxi en nýrnaveiki og tiltekins
afbrigðis af kýlaveiki. Það er mjög
mikilvægt, að menn nái samstöðu
um sem öruggastar varnir gegn
smitsjúkdómum, og sem betur fer
virðist mér skilningur fiskeld-
ismanna á því fara vaxandi.
22. maí 1981.
14. júní:
Göngudagur ung-
mennafélaganna
Ungmennaíélag
íslands heíur
ákveðið að efna til
„Göngudags fjöl-
skyldunnar“ öðru
sinni hinn 14. júní
næstkomandi. Til
þessa dags var í
fyrsta skipti efnt
á sl. ári og þótti
takast það vel. að
sögn Sigurðar
Geirdal fram-
kvæmdastjóra
UMFÍ. að ekki
þótti ásta^ða til
annars en að gera
þetta að árlegum
atburði í starfi
ungmennafélag-
anna.
Merki Göngudags UMFÍ.
Sigurður kvað í mörgum tilfell-
um þátttakendur í göngunum hafa
verið fleiri en þá sem skráðir voru
í það félag sem fyrir göngunni
gekkst. Nefndi hann sem dæmi
Umf. Víkverja í Reykjavík. í því
félagi væri skráður félagafjöldi
um 120, en þátttakendur í göngu
félagsins voru um 150, en alls kvað
hann um fjögur þúsund manns á
öllum aldri hafa gengið á göngu-
deginum í fyrra í um 70 ung-
mennafélögum um allt land.
„Göngudagurinn var í fyrra
frumraun, en segja má að frábær
árangur hafi náðst, eins og tölur
um þátttöku bera með sér.
Búast má við að á einhverjum
stöðum verði gengið þann 13. júní
vegna þess að þann 14. ber upp á
sjómannadaginn og hætt er við að
þetta tvennt rækist á, að öðrum
kosti," sagði Sigurður.
Þá sagði hann að á þeim stöðum
sem Ferðafélag íslands væfi með
deildir yrði haft samráð við þær
um göngur t.d. hér í Reykjavík,
enda hefur FÍ gengist fyrir svip-
uðum göngum um nokkurra ára
skeið.
„í mörgum tilfellum voru í fyrra
samdar all skemmtilegar leiðar-
lýsingar þar sem koma fram
lýsing á gönguleið, örnefni, saga,
þjóðsögur, þjóðtrú og ýmislegt
fleira sem tengdist þeirri göngu-
leið sem farin var hverju sinni.
, Þá held ég, að þetta sé upplögð
aðferð til þess að virkja það fólk
sem ekki næst til í gegnum hinar
hefðbundnu íþróttagreinar s.s.
fótbolta og handbolta," sagði Sig-
urður að lokum.
Sigluíjörður:
Tvær verslanir
lagðar niður
'Siidufirði. 2fi. maí.
TVÆR smásöluverslanir hættu
starfsemi sinni ekki alls fyrir
löngu. Er þar um að ræða vefnað-
arvöruverslunina Brá og raftækja-
búðina Rafbæ, en hún hefur einnig
verslað með íþróttavörur. Tvö skip
Þormóðs ramma, Stálvík og Siglu-
vík, komu hér inn í dag eftir stutta
útiveru og var hvort skip með um
160 tonn.
m.j.
Aímællsf lug til
fyrir aðeins1850krónur!
Föstudaginn 26. júní fara Flugleiðir í fyrsta sinn til Amster-
dam frá því Loftleiðir flugu þangað fyrirtæpum 14árum.
Fyrsta ferðin verður því eins konar afmælisferð á sérstöku
afmælisverði -1.850 krónur. Verðið innifelur flugferð þann
26. júní til Amsterdam, en flugferðin til baka frá Amsterdam
eða Luxembourg má vera hvenær sem er.
Betra afmælisboð er varla hægt að hugsa sér.
Afmælisboðið gildir aðeins fyrir fyrsta flugið, en í sumar
verða ferðir á hverjum föstudegi fyrir þá, sem komast ekki
með afmælisferðinni.
Því miður verður ekki hægt að endurtaka afmælisflugið,
þess vegna er ráðlegt að láta skrá sig nú þegar hjá sölu-
skrifstofum okkar, umboðsmönnum eða á næstu ferða-
skrifstofu.
FLUGLEIÐIR