Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981
21
Þrjú glæsimörk Lárusar
færðu Víkingum góðan
sigur gegn Val
LÁRUS GuðmundNNon, VíkinKNmiðherjinn ungi. sá um að afjfreiða Val
í 1. deid íslandsmótsins i knattspyrnu á sunnudagskvoldið. en þá
sigraði Víkingur lið Vals 3—2. Lárus skoraði þrennu í leiknum. þrjú
glæsileg mörk og lagði þannig grunninn að góðum sigri Vikings. Hér
var um sanngjörn úrslit að ræða, Víkingar komust í 3—1 og þó að
Valsmenn hafi kannski ekki leikið beinlinis illa. þá voru Vikingarnir
þeim mun framar að þessu sinni.
Óvænt forysta
Víkingarnir voru strax í byrjun
meira með knöttinn, fljótari og
sterkari í návigunum og þar af
leiðandi meira í sókn. Fyrsta
færið kom strax á 5. mínútu, er
Ragnar Gíslason komst i nokkuð
gott skotfæri eftir klóka auka-
spyrnu Helga Helgasonar. En skot
Ragnars fór fram hjá. Tíu mínút-
um síðar átti Helgi Helgason
þrumuskot naumlega yfir markið
og því kom það nokkuð gegn gangi
leiksins er Valsmenn náðu foryst-
unni á 18. mínútu leiksins. Var
það verulega fallegt mark og
Þorsteinn Sigurðsson að verki.
Hann fékk sendingu frá Hilmari
Sighvatssyni rétt utan vítateigs
Víkinga. Síðan gerði Þorsteinn sér
lítið fyrir og lék á hvern Víkinginn
af öðrum, alls fjóra, beinlínis
labbað í gegn og skoraði loks með
þrumuskoti upp undir þaknetið,
1-0.
Víkingar gefa sig ekki
Hafi Víkingur verið sterkari
aðilinn fram að marki Valsmanna,
þá er óhætt að segja að eftir það
hafi liðið ráðið lögum og lofum á
vellinum. Er ekki fráleitt að segja
að Víkingsmark hafi legið í loftinu
og reyndar urðu þau þrjú talsins
áður en að liðið gaf loks eftir og
sætti sig við fenginn hlut. Það
voru einkum Heimir Karlsson og
Lárus Guðmundsson sem gerðu
vörn Vals lífið leitt og samvinna
þeirra var oft. eitruð. Heimir lagði
upp góð færi fyrir Lárus á 28. og
41. mínútu, en í báðum tilvikum
fór knötturinn naumlega fram hjá
marki Vals. En á 42. mínútu kom
loks markið sem hefði átt að vera
löngu komið. Lárus fékk þá knött-
inn í dauðafæri rétt innan víta-
teigs og skaut þrumuskoti að
marki. Olafur Magnússon varði
stórkostlega, en hélt ekki knettin-
um sem hrökk aftur til Lárusar,
sem afgreiddi knöttinn þá um-
svifalaust í netið með föstu skoti í
bláhornið. Á síðustu mínútu hálf-
leiksins þurfti Ólafur aftur að
taka á honum stóra sínum, auka-
spyrna Heimis frá hægri rataði þá
á kollinn á Ómar Torfasyni, en
Ólafur varði mjög vel.
Fleiri mörk
Víkingar hófu siðari hálfleikinn
eins og þeir enduðu þann fyrri eða
með stórsókn og strax á 47.
mínútu renndi Lárus knettinum
inn á Jóhann Þorvarðarson sem
brunaði að markinu. En Ólafur
kom vel út á móti og varði skot
Jóhanns mjög vel. Aðeins mínútu
síðar kom Ólafur hins vegar eng-
um vörnum við, er Lárus skoraði
verulega glæsilegt mark, prjónaði
þá fram hjá varnarmönnum Vals
út undir endalínu vinstra megin
og spyrnti síðan þrumuskoti úr
þröngu færi yfir höfuðið á Ólafi
markverði og efst í hliðarnetið
fjær. Glæsimark, 2—1.
Víkingar gáfu í engu eftir þrátt
fyrir að forystan væri nú gengin í
lið með þeim. Þeir sóttu áfram
látlítið og á 62. minútu skoraði
liðið enn. Ómar sendi knöttinn þá
rúmlega hálfa vallarlengd fram á
Lárus sem hafði betur í kapp-
hlaupi við Sævar Jónsson og
renndi knettinum fram hjá út-
hlaupandi markverðinum.
Valsmenn sækja loks
Nú var að duga eða drepast
fyrir Valsmenn og það vissu þeir
greinilega, sókn liðsins þyngdist.
Hilmar Sighvatsson átti gott skot
rétt yfir á 63. mínútu og tveim
mínútum síðar varði Diðrik mjög
vel fasta aukaspyrnu Hilmars. I
stórsókninni gleymdist vörnin illa
á 70. mínútu og brenndi Heimir
Karlsson þá af eftir að Lárus
hafði sent knöttinn laglega til
hans. En það voru Valsmenn sem
áttu lokasprettinn og Diðrik varði
mjög vel skot frá Njáli Eiðssyni og
Þorvaldi Þorvaldssyni áður en að
Jón Gunnar Bergs skoraði annað
mark liðsins undir lok leiksins.
Markið kom mjög óvænt, Jón fékk
knöttinn við vítateigslínuna og
skot hans hafnaði neðst í bláhorn-
inu án þess að Diðrik kæmi
vörnum við. 3—2 urðu því lokatöl-
ur í þessum fjöruga leik.
Þetta verður að teljast með
betri leikjum vorsins, mikið var
Víkingur —
Valur
um kapp án forsjár og talsvert af
spyrnum mótherja á milli. En inn
á milli, meira að segja oft, brá
fyrir góðum fléttum hjá báðum
liðum, sérstaklega þó Víkingi.
Vart þarf að taka fram, að Lárus
Guðmundsson bar af öðrum leik-
mönnum á vellinum að þessu
sinni. Oft hefur verið um hann
sagt, að hann geti ekki skorað, sé
fjandanum duglegri að prjóna sig
í gegn og koma sér fyrir á réttum
stað við markið, en geti síðan ekki
nýtt það til fullnustu. Ekki bar á
þeim kvilla hjá honum að þessu
sinni, mörkin þrjú tala þar sínu
máli. Auk þess að skora, gerði
Lárus margháttaðan usla í vörn
Vals og var illviðráðanlegur. Ekki
langt að baki Lárusar kom Heimir
Karlsson, en hann átti einnig
stórleik að þessu sinni, maðurinn
á bak við flestar hættulegustu
sóknarlotur Víkings. Aðrir voru
jafnir og ekki sanngjarnt að taka
einn fram yfir annan.
Valsmenn léku ekki eins vel og
þeir best geta að þessu sinni, þó
verður ekki sagt að þeir hafi verið
slakir. Víkingarnir voru hreinlega
grimmari og það gerði gæfumun-
inn. Einkum skein það í gegn
þegar varnarmenn Víkings hlupu
hvað eftir annað inn í miðvall-
arspil Vals og höfðu knöttinn á
brott með sér. Vörn Valsmanna
var afar völt í sessi að þessu sinni,
þar náðu hinir sterku leikmenn
ekki saman. Ólafur Magnússon
varði oft vel í leiknum og verður
tæpast sakaður um mörkin, hins
vegar voru þeir einna sterkastir
þeir Hilmar Sighvatsson og Njáll
Eiðsson. Hilmar ógnandi mjög í
hvert skipti sem hann var með
knöttinn og Njáll afar duglegur
baráttujaxl.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild:
Víkingur:Valur (3—2 (1—1).
Mörk Víkings: Lárus Guð-
mundsson 42., 48. og 62. mínútu).
Mörk Vals: Þorsteinn Sigurðs-
son (18. mín.) og Jón Gunnar
Bergs (89 mín.).
Áminningar: Þorvaldur Þor-
valdsson Val, Grímur Sæmundsen
Val og Ómar Torfason Víkingi.
Dómari: Sævar Sigurðsson,— gg.
Samræmd þjálfun
yngri flokka Víkings
Knattspyrnudeild Víkings
hefur nú farið inn á þá braut að
samræma þjálfun yngri flokka
félagsins. Er þetta mjög athygl-
isvert.
Aðalþjálfari Víkings, Youri
Sedov, hefur nú lagt fram áætl-
un eða nokkurs konar námskrá
um samræmda þjálfun yngri
flokka félagsins. Hver aldurs-
hópur fær ákveðið prógram til
að vinna eftir. Megináhersla
verður iögð á tæknilega hlið
þjálfunarinnar, en að sjálfsögðu
þannig að verði við hæfi hvers
aldurshóps. Með þessu hafa Vík-
ingar hugsað sér að vinna skipu-
legar að knattspyrnuþjálfun en
áður hefur tíðkast.
Aðalþjálfarar yngri flokkanna
hafa verið ráðnir og munu þeir
starfa eftir námsáætlun Youris,
þannig að í framtíðinni þá vita
þjálfarar hvaða þjálfun dreng-
irnir hafa fengið og því geta þeir
betur gert sér grein fyrir hvar
best verður að hnykkja á.
Auk tæknilegrar þjálfunar
verður að sjálfsögðu lögð áhersla
á leiðsögn í knattspyrnunni sem
hópíþrótt, samvinnu leikmanna.
Það má fullyrða, að sú braut sem
Víkingar eru að fara inná nú,
marki tímamót í þjálfun hér á
landi. Youri Sedov er einn
menntaðasti þjálfari sem hingað
hefur komið. Hann hefur þjálfað
landslið Sovétríkjanna og hann
var, áður en hann kom hingað til
lands, yfirmaður þeirrar stofn-
unar í Sovétríkjunum, sem sam-
ræmir tækniþjálfun í Iandinu.
Einkunnagjöfin
Lið Víkings:
Diðrik ólafsson 6
Þórður Marclsson 6
Magnús Þorvaldsson 6
Ragnar Gíslason 6
Ilelgi Helgason 6
Jóhannes Bárðarson 6
Jóhann Þorvarðarson 6
Ómar Torfason 6
Lárus Guðmundsson 9
Aðalsteinn Aðalsteinsson 5
Heimir Karlsson 8
Lið Vals:
ólafur Magnússon 6
Þorgrimur Þráinsson 5
Grimur Sæmundsson 5
Dýri Guðmundsson 5
Sævar Jónsson 5
Njáll Eiðsson 6
Jón G. Bergs 5
Hilmar Harðarson 4
Þorsteinn Sigurðsson 6
Hilmar Sighvatsson 7
• Lárus Guðmundsson hefur snúið á Sævar Jónsson og skorar annað
mark sitt með þrumuskoti. Ljosm. Kri.stján.
Þriðja mark
Lárusar í
uppsiglingu
• Á meðfylgjandi myndasyrpu skorar Lárus Guðmundsson
þriðja mark sitt. Á efstu myndinni hefur hann rennt knettinum
fram hjá Ólafi Magnússyni markverði og Sævar Jónsson kemur
hlaupandi til. Á miðmyndinni hefur Sævari mistekist að komast
fyrir knöttinn og á neðstu myndinni fylgist Lárus spenntur með
kapphlaupi Sævars og knattarins. Knötturinn hafði betur.
Ljosm. Kristján.