Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981
25
Bayern skoraði
sjö mörk
gegn Frankfurt!
- og náði 3 stiga forystu í deildinni
EKKERT virðist geta komið i
veg fyrir að vestur-þýska meist-
araliðið Bayern Miinchen verði
þýskur meistari annað keppnis-
tímahilið i röð, en liðið náði um
helgina 3 stiga forystu i deildinni
þegar aðeins tvær umferðir eru
eftir. Sijfur liðsins um helffina
var en>;in smásmiði, 7—2 gejfn
Eintrakt Frankfurt. Bayern var
ekki eina liðið sem skoraði 7
mörk í þýsku deildarkeppninni,
Borussia Mönchengladbach gerði
slíkt hið sama gegn botnliðinu
Bayer Uerdingen. En úrslit leikja
urðu sem hér segir:
Stuttgart — 1860 Miinchen 2—1
Karlsruhe — Hamburger SV 1—1
Bayern Milnchen — Frankfurt 7—2
B. Dortmund — FC Köln 2—2
Schalke 04 — Niirnberg 1—1
Bielefeldt — Duisburg 2—1
Mönch.gladbach — Uerdingen 7—0
B. Leverkusen — Bochum 2—0
Diisseidorf — Kaiserslautern 0—2
Paul Breitner skoraði þrennu
fyrir Bayern, sem lék stórkostlega
sóknarknattspyrnu. Karl Heinz
Rummenigge skoraði tvívegis og
þeir Bernd Krause og Dieter
Ilér að neðan má sjá hvað tölurn-
ar merkja í einkunnagjöf Mbl.
10. Heimsmælikvarði
9. Framúrskarandi
8. Mjög góður
7. Góður
6. Frambærilegur
5, Þokkalegur
4. Lítt áberandi
3. Slakur
2. Mjög slakur
1. Fyrir neðan allar
hellur.
Höness hvor sitt markið. Borchers
og Cha Bum skoruðu mörk Frank-
furt eftir að staðan var orðin 5—0,
en það merkilegasta við úrslit
þessi er sú staðreynd, að í hálfleik
var staðan 0—0!
Borussia Mönchengladbach var
einnig í miklum ham á laugardag-
inn og botnliðið Bayer Uerdingen
átti ekkert svar við stórkostlegri
sóknarknattspyrnu gamla stór-
veldisins. Bruns, Matthaus, Nickel
(2), Hannes (2) og Lienen skoruðu
mörk BMG.
En Hamburger SV gaf enn eftir,
mistök hjá Franz Beckenbauer
kostuðu HSV annað stigið gegn
Karlsruhe, hann missti knöttinn
klaufalega frá sér rétt utan víta-
teigs og Uwe Dittus refsaði með
góðu marki. Thomas Von Heesen
jafnaði seint í leiknum, en mögu-
leikar HSV verða nú að teljast
hverfandi.
Atli, Magnús og félagar hjá
Borussia Dortmund máttu sjá af
öðru stiginu til Kölnar. Geyer og
Votava skoruðu mörk heimaliðs-
ins, en Knöppfel og Willmer svör-
uðu fyrir Köln.
Sem fyrr er fjör í botnslagnum,
en þar virðist óumflýjanlegt, að
Schalke 04 falli í 2. deild í fyrsta
skiptið í 77 ár.
Staðan er nú þannig, að Bayern
hefur forystu í deildinni, 49 stig og
markatöluna 81—40. HSV er í
öðru sæti með 46 stig og markatöl-
una 71—42. Stuttgart er í þriðja
sæti með 43 stig. Neðst er Bayer
Uerdingen með 22 stig, Schalke 04
hefur 23 stig og 1860 Munchen 24
stig. Síðan koma Niirnberg og
Fortuna Dusseldorf með 25 stig
hvort félag og Armenia Bielefeldt,
sem var lang neðst lengi framan
af móti, með 26 stig.
• Paul Breitner skoraði þrjú
mörk gegn Frankfurt.
AZ’67 hefur
nú skorað
100 mörk
AZ ’67 Alkmaar skoraði 100.
mark sitt í hollensku deildar-
keppninni i knattspyrnu um
helgina. er jafntefli varð gegn
Roda JC Kerkrade. Kurt Welzl
skoraði 100. markið. en ef hol-
lenska bikarkeppnin og UEFA-
keppnin eru taldar með. eru
mörkin langt yfir 100. Úrslit
leikja urðu sem hér segir:
PSV — Excelsior 4—1
Nac Breda — Groningen 4—2
Wageningen — Den Haag 1—2
Roda JC — Alkmaar 2—2
GAE Deventer — Pec Zwolle 3—3
FC Utrecht — Nec Nijmegen 0—1
Willem 2. — Ajax 1 — 3
Feyenoord — Maastricht 4—2
Tvente — Sparta 0—3
AZ ’67 Alkmaar hefur leikið 33
leiki, unnið 26 stykki, gert 6
jafntefli og tapað aðeins einum
leik. Markatalan: 100—30!
1 Knaltspyrna 1
Wales er enn í
forystu í riðlinum
- gerðu jafntefli við Rússland
WALES og Sovétríkin skildu
jöfn i markalausum leik, er
þjóðirnar mættust í undankeppni
HM í Wrexham um helgina. Liðin
leika i 4. riðli, þeim sama og
íslendingar. Þetta var hörkuviðs
ureign og jafntefli sanngjörn-
ustu úrslitin. Wales er enn tap-
laust eftir fimm leiki og hefur
enn ekki fengið á sig mark.
Þjóðin á eftir heimaleik gegn
íslandi og útileiki i Tékkó-
slóvakíu og Sovétrikjunum.
Sovétmenn áttu fyrsta tækifær-
ið í leiknum, strax á 8. mínútu, en
þá átti David Kipiani fallegan
skalla naumlega fram hjá. Hins
vegar voru það heimamenn sem
höfðu lengst af frumkvæðið í fyrri
hálfleik og voru um 30.000
áhorfendur ánægðir með það. Sov-
éski markvörðurinn Dasaev varði
glæsilega þrumuskot Carls Harris
á 11. mínútu og þó að Wáles hafi
ekki skapað sér verulega hættuleg
tækifæri eftir það, sótti liðið mjög
stíft. Voru einkum þeir Mick
Thomas og Terry Yorath í fylk-
ingarbrjósti og sýndu snjallan
leik.
En í síðari hálfleik snerist
dæmið við, a.m.k. framan af hálf-
leiknum. Þá voru það Rússarnir
sem sóttu og fjórum sinnum á
fyrstu mínútunum var liðið ná-
lægt því að skora, Oganesyan,
Blochin og Andreyev voru þar á
ferðinni. Kipiani var síðan aftur á
ferðinni með skalla naumlega
fram hjá, en smám saman jafnað-
ist leikurinn að nýju og þar sem
velska vörnin var sterk fyrir
virtist markalaust jafntefli óum-
flýjanlegt. Liðin:
Wales: Davies, Ratcliff, Price,
Phillips, Jones, Nicholas, Flynn,
Thomas, Yorath, Walsh, Harris.
Charles og Giles komu inn á.
Rússland: Dasayev, Sulakvel-
idse, Chivadse, Burovski, Bal-
atcha, Buryak, Andreyev, Bess-
onov, Kipiani, Oganesyan og
Blochin.
Og staðan í riðlinum er nú sem
hér segir:
Wales 5 4 10 10- 0 9
Tékkóslóv. 4301 11— 2 6
Sovétríkin 3 2 1 0 7— 1 5
ísland 5 1 0 4 5—18 2
Tyrkland 5 0 0 5 1—13 0
Enska landsliðið í
knattspyrnu er að
missa af
- óvænt tap gegn
ENSKA knattspyrnulandsliðið
fékk sannarlega á baukinn í
Sviss um helgina. en þá mættust
þjóðirnar í undankeppni HM og
fór heimaliðið með sigur af
hólmi. 2—1 urðu lokatölur leiks-
ins og skoruðu Svisslendingar
bæði mörk sín í fyrri hálfleik.
Fjöidi enskra áhorfenda á leik-
vellinum í Basel gekk berserks-
gang í tilefni dagsins og margir
voru handteknir. Ölvun þeirra
Englendinga var nokkuð almenn.
Svisslendingar gátu vart stært
sig af stórkostlegri velgengni fram
að leiknum, í 17 síðustu leikjum
sínum hafði lið þeirra unnið tvo
leiki, gert þrjú jafntefli og tapað
12 leikjum. En það kom ekki að
sök, liðið lék mjög skynsamlega og
agað gegn Englendingum, sem
sóttu allan tímann eins og þeir
ættu lífið að leysa. Bæði mörk
Svisslendinga komu á tveggja
mínútna leikkafla, nánar tiltekið á
28. og 29. mínútunúm. Fyrst skor-
lestinm
Sviss um helgina
aði Scheiwiler með skoti af 7
metra færi eftir slæm mistök í
vörn Englendinga. Og á 29. mín-
útu bætti Claude Sulser öðru
marki við, lék á fjóra varnarmeijn
Englands áður en hann skoraði
með þrumuskoti. Mark Englands
skoraði Terry McDermott á 9.
mínútu síðari hálfleiks, en hann
kom inn á í hálfleik fyrir Trevor
Francis.
Mögpaleikar Englendinga á því
að hreppa annað af tveimur sæt-
um riðilsins sem gefa sæti á
lokakeppni HM fara minnkandi.
Liðið er reyndar enn í öðru
sætinu, með fimm stig eftir fimm
leiki. Forystu hafa hins vegar
Ung\erjar með 5 stig að þremur
leikjum loknum. Rúmenía hefur 4
stig áð fjórum leikjum loknum og
Norðntenn og Svisslendingar hafa
3 stig hvor þjóð að fjórurn leikjum
loknum. Næsti leikur í riðlinum er
viðureign Ung\-erja og Englend-
inga í Búdapest um næstu helgi.
fótboltaskór
meö föstum tökkum
Puma
„World Cup“
Puma
„Allround"
Stæröir: 5—9
Verö 448 kr.
Stæröir
31/2-10
Verö: 340 kr.
Puma
„Rainer“
Stæröir:
41/2—9
Verö: 180 kr.
Póstsendum
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44, sími 11783.