Morgunblaðið - 02.06.1981, Side 32
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981
9-n
„ SETURÐU SEKJT PRÁtTAC VA^N ?
ER UM JOOMETRA IKIWI í LTOKJA"
ÖAR€>IWUM.“
Hjónahand þeirra er nokkurs-
konar hatfsmuna-hjónaband Konan skrapp í hraA-þvottahús-
þannig: Hann á fjallabíl, en hún ió.
rekur sjoppu og bensinsolu!
ást er...
... aö fella niöur
fólskutal.
TM Reg U S P«t Of! — nghts resarved
• 1978 Los Angetes Times Syndicef
HÖGNI HREKKVÍSI
Óskiljanlegt tillitsleysi:
Fóru í æfingaflug þrátt
fyrir 2 V2 tíma seinkun
Ijalldór Sigurðsson skrifar:
„í síðastliðinni viku þurfti ég að
bregða mér í viðskiptaerindum til
Akureyrar, sem eitt út af fyrir sig
er nú ekki í frásögur færandi. A
miðvikudagskvöld var ég bókaður
í flug 05 frá Akureyri til Reykja-
víkur og var brottför ákveðin kl.
19.30. Síðla dags hafði skrifstofa
Flugleiða nyrðra samband við mig
og tjáði mér að seinkun yrði á
fluginu vegna æfingaflugs og
brottför yrði því ekki fyrr en kl.
22.30.
Brottför kl. 23.45
Þegar ég kom út á flugvöll um
kl. 21.30 var þota Flugleiða að
renna sér niður á flugbrautina. Nú
skyldi maður halda, að auðvett
hefði átt að vera að halda síðari
flugáætluninni, um brottför kl.
22.30. eða jafnvel bæta farþegum
seinkunina upp og fara í loftið kl.
22.00. En því var ekki að heilsa.
Þrátt fyrir tveggja og hálfs tíma
seinkun, var nú haldið í æfinga-
flug og lent hvað eftir annað á
flugvellinum. Og ekki fórum við,
48 farþegar, í loftið fyrr en kl.
23.45 eða korter fyrir tólf, segi og
skrifa.
Margir biðu í
u.þ.b. sex tíma
Ekki voru þó allir eins heppnir
og ég, að hafa ekki beðið á
flugvellinum nema í u.þ.b. tvo og
hálfan tíma, því að þeir voru
margir, sem ekki hafði náðst í um
daginn og biðu því á flugvellinum
frá kl. 18.30 eða jafnvel lengur, í
u.þ.b. sex klukkutíma, sumir með
börn á handleggjunum. En auðvit-
að voru það ekki einungis farþeg-
arnir 48 sem fyrir óþægindum
urðu við þetta brambolt allt sam-
an, heldur ættingjar og vinir bæði
fyrir norðan og sunnan, sem ýmist
höfðu fylgt farþegum út á flugvöll
eða ætlað að taka á móti þeim í
Reykjavík. Það eru því nokkuð
margir, þegar allt er talið, sem
þarna hafa mátt taka á þolinmæð-
inni.
Lái mér hver sem vill
Ég vil taka það fram, áður en
lengra er haldið, að fram að þessu
„ævintýri" hafði ég aldrei kynnst
öðru en góðri þjónustu af hálfu
Flugleiða. Þess vegna kom það
mér enn meira á óvart, að svo
óskiljanlegt tillitsleysi skyldi vera
til í dæminu af hálfu félagsins, —
að ekki skyldi t.d. hætt við marg-
nefnt æfingaflug, vegna þess að
þegar var orðin tveggja og hálfs
tíma seinkun á áætlun. Lái mér
hver sem vill.
En ekki var þolraunin á enda
fyrir þessum viðskiptavinum
Flugleiða, sem margir voru orðnir
heldur framlágir og argir. Flogið
var til Keflavíkur og komið þang-
að langt gengin í eitt. Nú beið
okkar rútuferð til Reykjavíkur, og
því verður ekki neitað að þar
fengum við fyrir ferðina. I rútunni
var kófdrukkinn farþegi og lét
hann öllum illum látum, strax við
flugstöðina, hnuðlaðist utan í öðr-
um farþegum, æpti og gólaði
hástöfum innan um sofandi börn-
in og settist meira að segja ofan á
konu eina, sem þarna var með
barn sitt. Og þetta hélst honum
uppi allar götur heim á Loftleiða-
hótel, en þangað komum við um kl.
01.30, hálftvö, um nóttina.
Auðvitað átti bílstjórinn að
skilja mann þennan eftir uppi á
flugvelli, því að þar var þegar séð,
hvert stefndi með hegðan hans —
eða jafnvel losa sig við hann á
miðri léið, þegar hann ætlaði að
ganga af göflunum. En hvorugt
var gert. Það kom í hlut farþeg-
anna að gera hvað þeir gátu til að
lækka í honum rostann vegna
barnanna.
Ég þarf víst ekki að lýsa því með
mörgum orðum, hvernig fólkinu
leið, þegar það loksins losnaði úr
prísundinni eftir flug 05 frá Akur-
eyri.“
Skagfirska söngsveitin:
Ánægjulegir tónleik-
ar f yrir vesturf ör
María Markan skrifar:
„Laugardaginn 30. maí söng
Skagfirska söngsveitin í Austur-
bæjarbíói fyrir fullu húsi, að
venju mér og öllum öðrum við-
stöddum til mikillar ánægju. Það
ríkir afar mikil sönggleði hjá
kórnum, sem er sérlega smitandi,
enda gefur söngstjórinn, Snæ-
björg Snæbjarnardóttir, sig alla
af lífi og sál, hvenær sem hún
stjórnar.
Sérlega fannst mér skemmti-
lega sungið „Litla kvæðið um litlu
hjónin", eftir Pál ísólfsson og
Davíð Stefánsson; sömuleiðis „A
Sprengisandi", gamalt þjóðlag, út-
sett af Sigursveini D. Kristins-
syni, kvæði Gríms Thomsens. Ég
saknaði á þessum tónleikum lags-
ins „Lestin brunar" eftir Maríu
Brynjólfsdóttur.
Ég þakka kór og stjórnanda,
allar ánægjustundirnar og óska
þeim fararheilla í Kanadaferðinni.
Ég veit að þeim verður vel fagnað
af vinum okkar vestanhafs. Gott
er að þau fá að njóta ólafs Vignis
ágætu aðstoðar.
Athugasemd til eig-
enda Austurbæjarbíós
Mig langar, úr því að ég er
komin á blað, að skjóta einni
athugasemd að eigendum Austur-
bæjarbíós. Væri nú ekki hægt, á
ári fatlaðra, að setja handrið á
vegginn við tröppurnar inn í
salinn. Tröppurnar hafa í mörg ár
verið mínum veiku hnjám erfiðar,
og býst ég við, að svo hafi verið um
marga fleiri.
Með vinsemd og virðingu."
Skagfirska söngsveitin syngur undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnar-
dóttur. Við pianóið er óiafur Vignir Albertsson.