Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 36
Síminn á afgreiöslunni er
83033
Sími á ritstjóm og skrifstofu:
10100
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981
Rúmur helmingur launa-
hækkunar er þegar f arinn
b/ER VERÐHÆKKANIR, sem komið hafa til framkvæmda nú um
mánaðamótin vigta í framfærsluvisitölu 4,6% og er það 56% af þeirri
hækkun framfærsluvísitölunnar, sem veitti launahækkun nú 1. júní í
mynd verðbóta. Verðbætur undir 7.681 krónu hækkuðu um 8,1%, en sá
hluti launa, sem er yfir þeirri tölu, hækkaði um 7,4%. bannig
hækkuðu 10.000 króna mánaðarlaun um 7,94%.
Verðhækkanirnar vigta í vísi-
tölunni þannig, að búvöruhækkun-
in hækkar F-vísitöluna um 2,7%,
gengisbreytingin hækkar F-vísi-
töluna á næstu vikum um 0,8%,
bensínhækkunin, sem kemur til
framkvæmda í dag, hækkar vísi-
töluna um 0,6% og hækkun áfeng-
is og tóbaks, sem einnig hækkar í
dag, myndi hækka vísitöluna um
0,5%, ef hún mældist í F-vísitöl-
unni.
Áðurnefndar hækkanir, sem eru
ekki inni í útreikningi verðbóta nú
eru:
• Búvöruhækkunin, var á bilinu
15 til 30%.
• Gengislækkunin, sem hafði í
för með sér hækkun erlends
gjaldeyris um 4%. Bensínhækk-
unin, sem er 15,13%.
• Hækkun á verði áfengis og
tóbaks, sem er 10%.
• Póstburðargjöld, sem hækka nú
um 8%.
Sígarettupakki
kostar nú 15,60 og
brennivín 152 kr.
ÁFENGI og tóbak var hækk-
að nú um helgina um 10
prósent. Algengustu tegundir
af sígarettum sem áður kost-
uðu 14 krónur og 20 aura
kosta nú 15 krónur og 60
aura. Sem dæmi um hækkanir
á vindium kostuðu Fauna
vindlar áður 19 krónur og 50
aura en kosta nú 21 krónu og
50 aura.
íslenskt brennivín sem áður
kostaði 138 krónur kostar nú 152
krónur. Algengustu tegundir af
whiskey kostuðu áður að meðaltali
um 192 krónur en kosta núna 211
krónur. Algengustu tegundir af
Póstburðar-
gjöld hækk-
uðu um 8%
vodka kostuðu 197 krónur en kosta
nú 217 krónur.
Síðasta áfengis- og tóbakshækk-
un var 1. apríl og nam hún þá sex
prósentum.
Póstburðargjöld hækkuðu i
gær um 8% að meðaltali, en
stjórnvöld gáfu leyfi fyrir þessari
hækkun í hyrjun maí. Hækkunin
er á hilinu frá 5% upp í tæplega
13%. Pósthurðargjöid á almenn
bréf hækka um 5,5%, úr krónum
1,80 i 1,90. Mest er hækkunin á
bögglum og þungum hréfum.
22 laxar
komnir úr
Norðurá
„ÞETTA er með því bezta
svona fyrsta daginn. I>að
komu 11 laxar á land fyrir
hádegi og ég veit um aðra
11 eftir hádegið.“ sagði
Karl Ómar Jónsson, er
Mbl. ræddi við hann í
veiðihúsinu við Norðurá í
Borgarfirði í gærkvöldi.
Karl ómar sagði laxana
vera 8—10 punda.
„Það hefur verið mjög
gott veður þennan fyrsta
veiðidag í Norðurá," sagði
Karl Ómar. „Svalt, en bjart
oggott.
Fiskurinn virðist vera að
ganga. Aðalveiðistaðirnir í
dag voru Stokkhylsbrotið,
þar sem fengust 6 laxar og
13 fengust upp undir Lax-
fossi.“
Göngufæri leitar-
manna hefur verið
mjög erfitt, snjór eða
leðja í miðja leggi til
skiptis.
(Ljósm. Brynjar örn).
Leitin að TF-ROM:
Einkaaðílar afla f jár
fyrir benzínkostnaði
Um 30 flugvélar til leitar í dag
GERT ER ráð fyrir víðtækri stórleit áfram í dag að TF-ROM og
hafa nær 30 flugvélar tilkynnt þátttöku í dag, en vilyrði hafa
verið gefin yfir því af einkaaðilum að kosta bensín við a.m.k. þann
hluta leitar úr lofti sem eftir er og einnig standa vonir til að ýmsir
aðrir aðilar taki þátt í þessum beina kostnaði, en mikill fjöldi
aðila í einkaflugi hefur tekið á sig mikinn kostnað vegna þessarar
umfangsmiklu leitar og var svo komið að menn áttu hreinlcga
ekki fyrir bensíni á flugvélarnar. Verður því allt gert sem unnt er
áfram til þess að finna skýringu á hvarfi vélarinnar.
Þrettán vélar tóku þátt í leitinni
í gær án árangurs, en þrátt fyrir
bjartviðri norðanlands eru leitar-
skilyrði mjög erfið vegna leysinga,
Bensínið hækkar
um 90 aura í dag
—- þar af rennur sextíu og einn eyrir til rikisins
snjóskafla á hálendinu og ísingar í
björgum og giljum. Að sögn leitar-
stjórnar tilkynna allflestar flug-
vélar um allt að 15—20 staði sem
þeir telja nauðsynlegt að kanna
betur og sama er að segja um fólk
sem kannar á jörðu niðri. Til
dæmis tilkynnti kona ein í Húna-
vatnssýslu að hún sæi væng vélar
í gili nokkru og flugvél sem var
fengin til að fljúga yfir taldi
einnig að þar væri um flugvél að
ræða en við nánari skoðun kom í
ljós að þarna var snjóskafl í
fjarska að ræða sem leit nákv-
æmlega út eins og flugvél.
Tröllaskaga, skaganum milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar og
allt suður undir Hofsjökul, en þær
myndir fóru i framköllun í nótt og
verða skoðaðar í dag. Skyggni til
leitar var mjög gott á svæðinu.
Sjá frásögn, viðtöl og myndir i
miðopnu.
Lézt af slys-
förum á Spáni
TÆPLEGA sextugur ís-
lendingur lézt aí slysför-
um á Spáni síðastliðinn
föstudag. Hann hét Ingi-
mundur Vigfús Sigurjóns-
son og var til heimilis að
Suðurgötu 77 í Hafnar-
firði. Ingimundur var
fæddur 28. júní 1922.
VERÐ á bensíni hækkar í dag um 90 aura, þar af rennur 61 eyrir til
ríkissjóðs eða tæplega 68% hækkunarinnar. Bensin kostar nú 6,85
krónur hver litri, en kostaði 5,95 krónur. Hækkunin er 15,13%.
Verðlagsráð hefur tvisvar sinn-
um samþykkt hækkun á bensín-
verði, í marz um 5%, en ríkis-
stjórnin hafnaði þeirri samþykkt.
Hinn 4. maí samþykkti Verðlags-
ráð síðan 15,1% hækkun, sem nú
kemur til framkvæmda. Var þetta
eina verðhækkunin, sem ráðið
hafði samþykkt, sem hafði ekki
komið til framkvæmda.
Bensín er eina fullunna afurðin,
sem innflutt er, ekki framleidd í
iandinu og er undir verðlags-
ákvæðum. Gengisbreyting hefur
því veruleg áhrif á bensínverð, en
inni í þessari hækkun, sem verður
í dag, er ekki gengisfellingin, sem
gerð var gagnvart dollar fyrir
helgina. Hún hækkar verð dollars
um 4%. Það má því búast við, að
olíufélögin muni áður en langt um
líður óska eftir frekari hækkun-
um, auk þess sem dráttur á
framkvæmd samþykktra hækkana
hefur aukið á hækkunarþörf fé-
laganna.
Ein af þyrlum Varnarliðsins
leitaði í gær í Húnavatnssýslu og í
Skagafjarðardölum og fór m.a. í
mörg þröng gljúfur sem flugvélar
komast ekki í, en leiðsögumaður
varnarliðsmanna var Ómar Ragn-
arsson fréttamaður og flugmaður,
en hann gjörþekkir landið. Þá
flaug Elíeser Jónsson á flugvél
sinni og tók loftmyndir af öllum
Ingimundur fannst á botni hót-
elsundlaugar á Costa del Sol á
föstudag og var þá meðvitundar-
laus. Lífgunartilraunir voru þegar
hafnar á laugarbakkanum og
komst Ingimundur til meðvitund-
ar. Hann var fluttur á sjúkrahús,
> en lézt þar um tveimur stundum
eftir að hann fannst á botni
laugarinnar. Nánar er ekki vitað
um tildrög slyssins.