Morgunblaðið - 21.06.1981, Page 1
80 SÍÐUR
136. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Frakkland:
Sósíalistar
sigurvissir
París. 20. júní. AP.
í KVÖLD lauk endanlega kosningabaráttunni í Frakklandi,
en á morgun, sunnudag, fer fram síðari umferð þingkosn-
inganna og flestar spá því að úrslitin verði sósíalistum í hag.
Hægri menn hvöttu Frakka óspart til að ganga ekki til fylgis
við vinstriflokkanna og Chirac, borgarstjóri Parísar og
gaullisti, sagði að þrátt fyrir úrslitin í fyrri umferðinni væri
orrustan ekki töpuð. Frambjóðendur sósíalista voru hins
vegar mjög svo sigurvissir.
Sósíalistar eru mjög nærri því
að fá meirihluta í þinginu, en á pví
situr 491 þingmaður. Það myndi
verða í fyrsta skipti síðan gaullist-
ar unnu 1968, að einn flokkur
hefði afgerandi meirihluta á þing-
Bannað er að birta niðurstöður
skoðanakannana um fylgi flokka í
Frakklandi í vikunni fyrir kosn-
ingarnar, en niðurstöðurnar í
fyrri umferðinni gefa vissulega
vísbendingu um hver sé hugur
kjósenda nú, segir í frétt AP.
Leiðtogum sagt að
bæta málfar sitt
Pcking. 20. júni. AP.
DAGBLAÐ alþýðunnar sagði í leiðara á íorsíðu blaðsins í
dag leiðtogum kínversku þjóðarinnar að þeir þyrftu að
vanda málfar sitt betur. Blaðið sagði að ka'ruleysislegt
málfar í rituðu máli og töluðu væri orðið alvarlegt vandamál
í Kína og mikilvægt væri að leiðtogar landsins gengju fyrir
með góðu fordæmi.
Dagblaðið viðurkenndi sjálft
dagleg mistök í orðanotkun og
málfræði og sagðist oft beita
rökvísi sem erfitt væri að henda
reiður á.
Mikil herferð hefur verið farin
undanfarna mánuði gegn klámi
og ruddalegu málfari í Kína.
Eitt blótsyrði er orðið svo al-
gengt að það hefur verið kallað
„bölvun þjóðarinnar". Teikni-
myndir hafa verið birtar í blöð-
um af foreldrum að flengja börn
sín fyrir ljótt orðaval, en um leið
blóta þeir sjálfir hástöfum.
Dagblað alþýðunnar lagði
áherzlu á í leiðaranum að málfar
þyrfti að vera einfalt og skýrt
svo að stjórnmál, efnahagsmál
og hernaðarmál yrðu auðskild-
ari. Atta mállýskur eru talaðar í
Kína en stundum eiga jafnvel
þeir sem tala sömu mállýsku
erfitt með að skilja hvorir aðra.
Pólverjar hætta
hungurverkfalli
Varsjá. 20. júni. AP.
ÞRÍR Pólverjar, sem verið hafa í
hungurverkfalli i 19 daga, féllust
í dag á að hætta föstunni og
leggjast inn á sjúkrahús, að þvi
er talsmaður Samstöðu tilkynnti
í dag. Mennirnir vildu með föst-
unni mótmæla langri fangavist
tveggja bra-ðra en nú heíur
kaþólska kirkjan heitið þvi að
taka mál þeirra upp á sina arma.
Mennirnir þrír hófu föstuna 1.
júní sl. og að sögn talsmanns
Samstöðu var mjög af þeim dreg-
ið. Þeir hafa krafist náðunar
bræðranna Jerzy og Ryszard Kow-
alczyks, sem árið 1972 voru dæmd-
ir í 25 ára fangelsi fyrir að
sprengja upp hús nokkru áður en
lögreglan ætlaði að funda þar.
Talsmaður mótmælendanna sagði
í gær, föstudag, að Varnarnefnd
samviskufanga, sem Samstaða
styddi, hefði á prjónunum að efna
til nýrra mótmæla frammi fyrir
stjórnarráðsbyggingum í Varsjá
og öðrum borgum.
Sovésk dagblöð halda áfram
árásum sínum á „gagnbyltingar-
menn“ í Póllandi og í einu þeirra
sagði í dag, að „mjög alvarlegt
ástand" ríkti innan pólska komm-
únistaflokksins. Sagt var, að í
fjölmiðlum væri sósíalisminn
svertur án nokkurrar blygðunar
OK að „gagnbyltingarmenn"
stefndu að því að rjúfa öll tengsl
Póllands og „samfélags sósíaliskra
ríkja".
Það er Lúðrasveit Reykjavikur sem leikur þarna í stafni Herjólfs á hringferð um Vestmannaeyjar um
hvítasunnuna, en myndina tók Sigurgeir í Eyjum þegar Herjólfur sigldi inn í Klettshellinn i
Yztakletti. Um tima króaðist snekkjan Bravó inni i hellinum vegna heimsóknar Herjólfs, en Hjálmar
Guðnason kapteinn á Bravó lék listilega fyrir gesti einleik á trompett inni í hellinum og síðan svaraði
Lúðrasveit Reykjavíkur undir stjórn Odds Björnssonar úr stafni Herjólfs. Varð hljómur blásaranna
stórkostlegur í hvelfingu Klettshellis, en um borð i Herjólfi voru hundruð manna. Stórt skip hafði
aldrei fyrr siglt svo langt inn i hellinn.
Iranska þingið f jallar
um örlög Bani-Sadrs
llrirút. 20. júni. AP.
ÍRANSKA þingið hóf í dag umra-ður
um hæfni Bani-Sadrs forseta til að
gegna embætti og voru þar með
síðustu tilraunir hófsamra manna á
þinginu til að koma i veg fyrir þær
að engu orðnar. Niðurstöður
umræðnanna eru aðeins taldar geta
orðið á eina lund. mcð þeim verða
skráð pólitisk eftirmæli fyrsta lýð-
ræðislega kjörins forseta þjóðarinn-
ar. Bani-Sadrs, sem nú fer huldu
höfði.
Nokkur mannfjöldi safnaðist sam-
an fyrir utan þinghúsið meðan á
umræðunni stóð og hrópaði „dauði
yfir Bani-Sadr“, en að sögn tals-
manns þingsins höfðu sex þingmenn
tekið til máls áður en umræðunni var
frestað til morguns, þrír höfðu mælt
gegn forsetanum en aðrir þrír gagn-
Embættismaður Nicaragua flýr
Miami. TcKUciaKalpa.
20. júní. AP.
FULLTRÚI Nicaragua á
skrifstofu Sameinuðu þjóðanna i
Genf hefur beðist pólitísks hælis i
Bandaríkjunum. Lögfræðingur
hans sagði i dag að hann myndi
reyna að flýta afgreiðslu málsins
af þvi að lif Jaime Pasquiers
kynni að vera í hættu.
Pasquier kom óvænt til Miami
fyrr í vikunni. „Ég get ekki lengur
talað máli Nicaragua," sagði hann
fréttamönnum. „Það er ekki vegna
þess að kommúnistar hafi tekið
yfir — enn sem komið er. En ef
engin breyting verður á, verður
þess ekki langt að bíða."
Sjö hermenn frá Nicaragua, sem
hafa beðist hælis í Honduras, segja
að Kúbumenn stjórni Nicaragua og
þar séu hundruð rússneskra
ráðgjafa.
Sovétríkin hafa sendiráð í Nicar-
agua en fréttir af sovézkum her-
afla og ráðgjöfum í landinu hafa
ekki verið staðfestar. 1200 kúb-
anskir kennarar fóru til Nicaragua
skömmu eftir að stjórn Somoza var
bylt 1979 en utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna sagði í vikunni að
flestir þeirra væru á heimleið.
rýnt málsmeðferðina. Enginn yfir-
lýstra stuðningsmanna forsetans tók
þátt í umræðunni en haft er eftir
heimildum, að fyrrv. olíumálaráð-
herra landsins, Ali Akbar Moinfar, og
Mohammed Mehdi Jaafari, fulltrúi
borgarinnar Bushehr .við Persaflóa.
hafi verið meðal þeirra, sem and-
mæltu aðförinni að Bani-Sadr.
Haft er eftir ónafngreindum heim-
ildarmanni í Teheran, að Bani-Sadr
sé enn í borginni og leiti úr einu
skjólinu í annað af ótta við handtöku.
Ströng gæsla er við allar landamæra-
stöðvar og á flugvöllum til að hindra
flótta hans úr landi.
Bani-Sadr var kjörinn forseti með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í
kosningum í janúar á sl. ári og er
hann sá fyrsti, sem gegnir því emb-
ætti eftir 2500 ára einveldisstjórn í
íran.