Morgunblaðið - 21.06.1981, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981
íslenzki veitíngastaðurinn Cockpit-Inn í Luxemborg:
Valgeir Sigurösson, veitingamaður, meö bryggjuköttinn Trýnu frá Siglufirði.
Séö yfir hluta af The Cockpit-lnn veitingastaðnum í Luxemburg, spaðar af
hreyflum íslenskra millilandavéla skreyta húsakynnin, flugvélamyndir á
veggjum og höfuðföt fjölmargra íslenskra flugmanna.
- segir Valgeir
Sigurðsson
veitingamaður
bjarjfveiðimanna í Vestmanna-
eyjum.
„Það er svolítið skemmtilegt
hvernig gellurnar lentu á matseðl-
inum. Ég fékk senda að heiman
frá íslandi tunnu með söltuðum
gellum og kinnum og þetta átti að
vera sérstaklega fyrir mig, en í
gæftaleysinu fyrr í vetur þegar
okkur gekk ekki of vel að fá fisk að
heiman, fórum við að athuga með
þetta saltaða hráefni, og það
seldist í hvelli. Við tókum aðeins
kinnfiskinn úr kinnunum, útvötn-
uðum hann og gellurnar og mat-
reiddum hann eins og sniglar og
froskafætur eru matreiddir. Ég vil
eindregið benda fólki sem hefur
ánægju af sniglum að troða einum
kinnfiskvöða í skelina og hvít-
laukssmjöri og þetta er 100%
íslenskur réttur.
Einn af mínum föstu viðskipta-
vinum er breski sendiherrann í
Luxemborg. Hann kemur oft með
fólk að borða og yfirleitt verða
sjávarréttirnir fyrir valinu.
Fiskinn fæ ég flugleiðis til
Luxemborgar, lúðuna frá Ólafsvík
og Reykjanesi, en ég versla einnig
mikið við fiskbúðina Hafrúnu í
Skipholti. Hann er seigur að
bjarga hlutunum í hvelli þar og
einnig skipti ég við Islensk mat-
væli í Hafnarfirði sem bjóða mjög
góða síld. Sérstaka reykta síld fæ
ég frá Siglufirði og hún er vinsæll
forréttur. Lax borgar sig ekki að
kaupa að heiman, við fáum hins
vegar sjólax frá Noregi, ferskan
og ódýran.
Matseðillinn hjá okkur er stutt-
ur, en ég álít að slíkt sé öllum
veitingahúsum til góðs, rekstrar-
lega séð, en við skiptum um
matseðil mánaðarlega."
Matreiðslumeistari í Cockpit-
Inn er Sigurvin Gunnarsson sem
áður var matreiðslumeistari á
Hótel Sögu, en til marks um
hæfileika þessa íslenska kokks má
geta þess að eftir nokkurra mán-
aða starf var Cockpit-Inn kominn
í hóp bestu matsölustaða Luxem-
borgar og meðal 50 staða sem
taldir voru bestir í virtum blöðum
og var þó valið úr liðlega 2000
matsölustöðum og eru lærðir og
þjálfaðir brytar frá Mið-Evrópu
og sérstaklega Frakklandi, við þá
flesta."
Ég spurði Valgeir um hugmynd-
ina á bak við skreytingu staðarins.
„Ég fékk hugmyndina einu sinni
þegar ég var á leiðinni með
Iscargo frá Rotterdam. Ég stóð í
cockpitinu og glápti á stjórntækin
í daufum ljósunum. Þetta reyndi
ég síðan að útfæra í Cockpit-Inn.“
„Það er alltaf eitthvað á prjón-
unurn," svaraði Valgeir, þegar ég
spurði hann hvað væri næst á
dagskrá. Nú er ég að vinna að
opnun nýs staðar í sýningahöll-
inni í Luxemborg. Þetta er stór
veitingastaður og ráðstefnusalur
og honum ætla ég að breyta fyrir
tískusýningar og ferðakynningar.
Ég er búinn að hafa samband við
Ferðamálaráð og Flugleiðir upp á
mögulegt samstarf, en ferðakynn-
ingar eru óþekkt fyrirbæri í Lux-
emborg. Ég ætla að opna þennan
stað í ágúst með mat og öllu, en nú
eru íslenskir trésmiðir að innrétta
staðinn. Ég er spenntur að fá svör
Ferðamálaráðs og Flugleiða um
þeirra vilja, en þetta eru húsa-
kynni á stærð við Súlnasal Hótel
Sögu og feikna stórt eldhús sem á
að geta matreitt fyrir 6000 manns
á dag. Þetta er þannig allt i gangi
og gengur ágætlega, en núna er ég
með 6 fasta starfsmenn og tvær
aukastúlkur um helgar."
„Reksturinn hefur gengið
ævintýralcga vel og staðurinn
hefur náð upp miklum vinsæld-
um, m.a. vegna mjög jákvæðra
umsagna i blöðum og tímaritum i
Luxemborg og þar hefur verið
fjallað bæði um innréttingu stað-
arins og þá rétti sem eru á
hoðstólum sem þykja bæði ný-
stárlegir og eftirsóknarverðir
eins og t.d. fiskréttirnir sem við
höfum lagt áherslu á. Grillsteikta
stórlúðan, Ilalibut-Stcak, hefur
slegið í gegn, en vinsælasti fisk-
rétturinn er gellur,“ sagði Val-
geir Sigurðsson, veitingamaður, í
samtali við Morgunblaðið, en
hann opnaði í október sl. sérstæð-
an veitingastað i Luxemborg,
sem ber nafnið Cockpit-Inn eða
stjórnklefinn og þar prýðir húsa-
kynnin stærsta safn mynda sem
... til er úr flugsögu íslands og i
Sigurvin Gunnarsson, matreiðslumeistari, sem á nokkrum annarri álmu veitingahússins eru
vikum kom Cockpit-lnn í hóp viðurkenndra veitingastaða hundruð mynda af islenskum
Luxemborgar. skipum og svipmyndir úr lífi
Ýmis félagasamtök halda fundi í Cockpit-lnn og þarna eru íslensku konurnar í Luxemborg
mættar á staðinn en félagsstarf þeirra er mjög öflugt.
„Kinnfiskur, lúða og
gellur slógu í gegn“