Morgunblaðið - 27.10.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
5
Sigurdur A. Magnússon
rithöfundur.
Möskvar
morgundags-
ins - upp-
vaxtarsaga
- Ónnur bókin í
þrflógíu Sigurðar
A. Magnússonar
komin út
Ekkert nýtt land fyrir atvinnu-
rekstur gert byggingarhæft
EKKERT nýtt land fyrir atvinnu-
rekstur hefur komið til úthlutunar
frá því að núverandi meirihluti tók
vió í Reykjavík og allt bendir til að
kjörtímabilinu muni Ijúka án þess
að nokkurt nýtt land verði gert
byggingarhæft og úthlutað fyrir at-
vinnurekstur. Þetta kom m.a. fram
í ræðu Magnúsar L. Sveinssonar í
umræðum í borgarstjórn fyrir
nokkru, í tilefni af fyrirspurn
sjálfstæðismanna um hvað gert
væri ráð fyrir að úthluta mörgum
atvinnulóðum á næsta ári.
Borgarritari svaraði fyrir-
spurninni.
Magnús L. Sveinsson, sagði að
ljóst væri af svari borgarritara,
„að ekki væri gert ráð fyrir
neinu landi til úthlutunar fyrir
atvinnurekstur á næsta ári“.
Magnús minnti á að vinstri
flokkarnir hefðu gagnrýnt
sjálfstæðismenn mjög hart á
síðasta kjörtímabili og í kosn-
ingabaráttunni 1978, fyrir að út-
hluta allt of fáum lóðum til at-
vinnurekstrar. Þrátt fyrir að
1976 hefði verið úthlutað milli
sex og sjö hundruð þúsund fer-
metrum iands fyrir atvinnu-
rekstur.
„Sú staðreynd blasir nú við,"
sagði Magnús, „að á þessu kjör-
tímabili hefur ekkert nýtt svæði
til atvinnurekstrar komið til út-
hlutunar. Og samkvæmt svari
borgarritara lítur út fyrir, að
kjörtímabilinu muni ljúka, án
þess að nokkurt svæði komi til
úthlutunar fyrir atvinnurekstur-
inn.
Það sem hefur gerst á þessu
kjörtímabili," sagði Magnús, „er
það að eitt og eitt fyrirtæki hef-
ur fengið úthíutað lóð, sem tekin
hefur verið af öðrum. í dag er
staðan þannig, og þannig hefur
það verið að undanförnu, að öll-
um sem spurzt hafa fyrir um
lóðir og sótt hafa um lóðir, hefur
verið sagt, að engar lóðir væru
til. Þrátt fyrir að menn hafa
fengið þessi svör, þá liggja nú
fyrir umsóknir frá 40 fyrirtækj-
um, smáum og stórum um lóðir.
Og menn geta rétt ímyndað sér
hvað mikið myndi liggja fyrir af
umsóknum, ef auglýst væri eftir
umsóknum og menn hefðu ein-
hverja von um að fá úthlutað."
Magnús sagði að afrek núver-
andi meirihluta varðandi at-
vinnureksturinn í borginni birt-
ist í því, að ekkert nýtt land
verður gert byggingarhæft á
kjörtímabilinu. „Þetta eru ein
alvarlegustu mistök núverandi
meirihluta og er þó af miklu að
taka,“ sagði Magnús. „Hér er um
stórvítavert sinnuleysi meiri-
hlutans að ræða í atvinnumálum
borgarinnar. Algjört aðgerðar-
leysi meirihlutans í skipulags-
málum á kjörtímabilinu er nú að
birtast borgarbúum í þessum al-
varlegu staðreyndum," sagði
Magnús að lokum.
NÝKOMIN er út hjá Máli og menn-
ingu skáldsagan Möskvar morgun-
dagsins eftir Sigurð A. Magnússon.
llndirtitill er Uppvaxtarsaga. f for
málsorðum gerir höfundur grein
fyrir bókinni á eftirfarandi hátt:
„Þessi saga er framhald sögunn-
ar llndir kalstjörnu og rekur einsog
hún atvik sem gerðust í reyndinni,
en getur þó ekki talist sannsögu-
leg vegna þess að hún endurvekur
og umskapar löngu liðna atburði
samkvæmt lögmálum sem eru
ekki alténd virk í daglegu lífi. Þeir
einstaklihgar sem við sögu koma
eiga sér fyrirmyndir í raunveru-
leikanum þó flestum nöfnum sé
breytt, en þær fyrirmyndir verða
með engu móti kallaðar til
ábyrgðar á verkum eða viðhorfum
sögupersónanna sem eru rissaðar
upp að geðþótta höfundar. Hver
lesandi sem þykist þekkja sjálfan
sig eða aðra á blöðum bókarinnar
gerir það á eigin ábyrgð."
Söguhetjan, Jakob Jóhannesson,
er níu ára þegar þessi frásögn
hefst, og þegar henni lýkur er
hann kominn „í fullorðinna
manna tölu“. Við kynnumst um-
komuleysi og þrjóskufullri bar-
áttu drengsins við óbærilegar að-
stæður heima fyrir, og með augum
hans sjáum við þær breytingar
sem ganga yfir í kringum hann,
hernámið (1940) ekki síst, sem
gerbreytir heimilislífinu — og
ekki til hins betra.
Möskvar morgundagsins er ekki
síður en fyrri bókin fallegt og
átakanlegt listaverk og um leið
sérstæð aldarfarslýsing af þeim
sviðum Reykjavíkurlífs þessara
ára sem lítt hefur fyrr verið
hampað í bókum.
Bókin er 359 síður, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda. Kápumynd
gerði Hilmar Þ. Helgason.
(Fréttatilkynning.)
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Staðnir að
verki við
áfengisstuld
FYRIK skömmu komst upp um stuld
á áfengi úr áfengisgeymslu varnar
liðsins á Keflavíkurflugvelli. llngl-
ingar úr Njarðvík stálu í nokkrum
ferðum um 120 flöskum af áfengi,
einkum vodka. Þeir voru gómaðir að
verki þann 17. október í áfengis-
geymslu varnarliðsins, þá með 36
flöskur af áfengi.
Átta unglingar á aldrinum 15 til
19 ára voru að verki. Þeir fóru
tvær ferðir aðfaranótt fimmtu-
dagsins og aðfaranótt föstudags-
ins fóru þeir 1 ferð og höfðu áfengi
á brott með sér. Það var svo að-
faranótt laugardagsins að þeir
voru gómaðir, þá í sinni fjórðu
ferð í áfengisgeymslur varnarliðs-
ins.
Fyrsti viðræðufundur
inn fyrir vestan í gær
FYRSTI viðræðufundur samning-
anefndar Alþýðusambands Vest-
fjarða og Vinnuveitendafélags Vest-
fjarða var haldinn í gær. Kynntu þar
fulltrúar ASV kröfur sínar og Vinnu-
veitendafélagið greindi frá stöðu at-
vinnufyrirtækja, og að þau væru
ekki í stakk búin til að greiða slíkar
kröfur.
Samkvæmt upplýsingum Péturs
Sigurðssonar, forseta ASV, urðu
aðilar sammála um að fara á vit
stjórnvalda með sameiginlegar
kröfur beggja aðila, sem eru m.a.
kröfur um jöfnun hitakostnaðar.
Að sögn Jóns Páls Halldórssonar,
formanns VFV, greindu vinnuveit-
endur frá því á fundinum, að þeir
myndu vísa deildunni til sátta-
semjara.
Jón Páll kvað vinnuveitendur
hafa komist að þeirri niðurstöðu í
útreikningum sínum, að kröfur
ASV þýddu um 40% hækkun
grunnkaups. Um þetta sagði Pétur
Sigurðsson, að vinnuveitendur
hefðu einnig sýnt fram á, með töl-
um frá Þjóðhagsstofnun, að 10 til
15% halli væri á rekstri frysti-
húsa í landinu og kvað Pétur full-
trúa ASV hafa lýst því yfir að þar
sem um landsmeðaltalstölur væri
að ræða, væru fulltrúar ASV þess
fullvissir, að vestfirzkir frysti-
húsaeigendur hefðu þá „borð fyrir
báru“ og hlytu frystihús þeirra að
vera betur rekin en tölur Þjóð-
hagsstofnunar gæfu til kynna.
handa hinum og þessum
Ljóð
ÍJT ER komin ný Ijóðabók eftir
Sveinbjörn I. Baldvinsson, sem hann
nefnir Ljóð handa hinum og þessum.
Áður hefur Sveinbjörn sent frá sér
Ijóðabókina / skugga mannsins og
Ijóðverkið Stjörnur í skónum, þar
sem hann samdi bæði textana og
lögin.
Um þessa nýju ljóðabók segir
svo í bókarkynningu:
„Sveinbjörn er sérstætt skáld,
yrkisefni þess fjölbreytt, ljóðin
hnitmiðuð og allt tekið föstum
Ný ljóðabók
eftir Sveinbjöm
I. Baldvinsson
tökum. Þessi ljóð eru ort bæði
hérlendis og erlendis, fjalla um
það sem fyrir augun ber, en eru
síður en svo nein naflaskoðun. Yf-
irbragð þeirra er fjörlegt og um
þau hríslast glitrandi kímni."
LJóðin í bókinni eru alls 36 og
skiptast í 5 kafla sem heita Ljóð
handa lífinu, Ljóð handa skamm-
deginu, Ljóð handa ferðamönnum,
Ljóð handa konum og Ljóð handa
öðrum.
Bókin er pappírskilja, 64 bls. að
stærð og unnin í Prentsmiðjunni
Odda. Utgefandi er Almenna
bókafélagið.
V
Snúanlegt
handfang
Sládu botn í góðu áformin ^
Byrjaðu með Bullworker
Notkun Bullworker-tækisins hefur heillavænleg áhrif
langt út fyrir þaö sem sjá má og mæla vegna
vöövaaukningar eöa megrunaráhrifa. Bullworker
hefur einnig óbein áhrif á vöðva. sem ekki eru
viljabundnir og eykur þannig almenna vellíðan
manna meö þvi t.d. aö auka möguleikana á bættri
öndun, blóörás og meltingu. I þeim 90 löndum
heims, þar sem tækíö er notað, mæjir fjöldi
íþróttakennara, sjúkraþjáltara og lækna ötullega
með Bullworker-tækínu.
Bullworker æfingarnar hafa hvarvetna valdið gjör-
byltingu i líkamsrækt, og engum er ofraun að stunda
þær.
Bullworker X5 er ný og verulega endurbætt út-
tærsla á hinu gamalkunna líkamsræktartæki, sem
átt hefur fádæma vinsældum aó fagna hér á landi á
undanförnum árum.
Tækinu fylgja nú: 1. Veggspjald með 42 æfingum
ásamt þýðingu á íslensku. 2 97 siðna litmyndabók
á ensku meö 68 æfingum og ýmsum upplýsingum
um líkamsrækt.
6)
Myndir af
æfingum - -
Fingurgropir
á bakhlið
14 daga skilatrygging
Viö skorum á t>ig að reyna Bullworker i tvær vikur, hatda pvi, af pu
sannfærist um kosti t>ess innan 14 daga, an skila Þvi ella með
æfingaspialdinu og krefjast andurgraiöslu. Viljiröu amgöngu fá
upplýsingar um tækið til !>••• aö gata áttaö pig batur áöur an pú
akveöur pig, munum viö senda pér bæklingmn Garöu okkur grein
fyrir hvaö pu vilt á afklippingunum hér fyrir neöan, — og *var okkar
barst pér fljótlaga.
SENDU AFKLIPPINGINN SEM BEIÐNI UM NÁNARI UPP-
LÝSINGAR ÁN SKULDBINDINGAR EOA SEM PÖNTUN GEGN
PÓSTKRÖFU MED 14 DAGA SKILARÉTTI FRÁ MÓTTÖKU
TÆKISINS
SENDID MER
| □ UPPLÝSINGAR
. NAFN
STK BULLWORKER
HEIMILISFANG
| Póstverzl. Heimaval - Box 39 - Kóp.
Pöntunarsími 44440.
I---------------------------------