Morgunblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981 Viðræður um sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna: Stefnt að samkomulagi fyrir næstkomandi áramót Jcrúsalcm, 26. «któht*r. Al*. MENACHEM Hegin, forsætisráð- hcrra Israels, sagdi í dag eftir fund sinn með Kamal llassan Aly, utan- ríkisrádherra Egypta, að stefnt væri aA því að ná samkomulagi um sjálfs- ákvördunarrétt Araha á hernumdum sva'Aum Israela fyrir áramót. Af þessum sökum hafa deiluaóilar orcV ió ásáttir um að færa næsta samningafund sinn fram um fjóra daga, en hann hefst í Kairó 4. nóv- ember næstkomandi, og taka þátt í honum ráóherrar og háttsettir emb- ættismenn. ísraelar og Egyptar hafa jafn- framt orðið ásáttir um að leggja allt kapp á að komast að sam- komulagi um sérstök sjálfsstjórn- arráð er færu með stjórn mála á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu, en um 1,3 milljónir Ar- aba búa'á þessum svæðum. Er hér um stefnubreytingu í viðræðum ísraela og Egypta að ræða, og sagði Begin, að ef deilu- aðilar næðu samkomulagi í Kairó í næstu viku, yrði þar um „meiri- háttar árangur" í viðræðunum að ræða, því ágreiningurinn um hin kjörnu ráð er það sem flest hefur strandað á hingað til. Hingað til hafa viðræðurnar einkum verið í þeim dúr, að deilu- aðilar hafa freistað þess að sætta sjónarmið sín og samræma af- stöðu sína varðandi sjálfsákvörð- unarrétt Araba á þessum svæðum. Að sögn áreiðanlegra heimilda, er engin trygging fyrir því að sam- komulag náist með ísraelum og Egyptum varðandi sjalfstjórnar- ráðin, þar sem skoðanir þeirra á þeim málum eru mjög skiptar og ágreiningur djúpstæður. Egyptar vilja að Palestínumenn fái fullt réttar- og löggjafarvald og að sjálfstjórnarráðin verði stór í sniðum og hafi svipuðu hlutverki að gegna og löggjafarsamkunda. Yrði hér aðeins um að ræða skref í áttina að fullu sjálfstæði Palest- ínumanna á þessum svæðum. Israelar vilja hins vegar fámenn ráð og völd þess verði takmörkuð við stjórn mála, svo sem mennta- mála, heilbrigðis- og viðskipta- mála. Af hálfu ísraela kemur ekki til greina að stofnað verði sjálf- stætt ríki á Vesturbakkanum og líta þeir á þetta sváeði sem varan- legan hluta af ísrael. Þá er óljóst hvort Palestínu- menn myndu fallast á sjálfstjórn- arráð af því tagi sem deiluaðilar vilja stofna á Vesturbakkanum og G Aza-svæðinu, og hvort þeir mvndu kjósa fulltrúa í það. Pal- estínumenn hafa ítrekað haldið á lofti kröfunni um sjálfstætt ríki. Begin var að því spurður hvað gerast mundi, ef samkomulag næðist með þeim og Egyptum um sjálfstjórnarráðin, en Palestínu- menn sætu heima er kosið væri til þeirra. Gerði hann þá ummæli Sadats fvrrum forseta að sínum og sagði: „Við höfum gert skyldu okkar“. Bendir þetta til þess að Egyptar og ísraelar vilji útkljá deilu sína um sjálfsforræði Araba á hinum hernumdu svæðum, og þvo hendur sínar af því máli. Begin sagði, að þegar sjálfs- stjórnarráðin hefðu verið stofnuð, myndu Israelar leysa upp her- stjórn sína á þessum svæðum, fl.vtja hluta af hermönnum sínum á brott og koma hinum fyrir á Fleiri deyja úr olíueitrun Madríd. 26. uktober. Al*. ÞRJÁR konur og einn karlmaður létust um helgina úr eitrun af völd- um matarolíunnar mannskæðu. Alls hafa þá 175 manns látist af þessum sökum frá því í maí. Enn eru 752 á sjúkrahúsi með eitrunareinkenni eftir að hafa neytt olíunnar. „sérstökum öryggissvæðum". A fundinum í Kairó í nóvember verða Yitzhak Shamir, innanrík- isráðherra ísraels, og Ariel Shar- on varnarmálaráðherra Egypta og Yosef Burg, innanríkisráðherra Egypta, í forsvari fyrir viðræðu- nefndunum. Bandarísk yfirvöld hafa lagt hart að deiluaðilum að komast að samkomulagi hið fyrsta, svo það megi verða til að styrkja stöðu Mubaraks, forseta Egyptalands, á forsetastóli. Egypskir og bandarískir hcrmenn standa vörð við bandaríska AVV'Af’S-þotu á herflugvelli 50 km vcstan við Kairó. Mikill fjöldi öryggisvarða setur svip sinn á Kairó kairó, 26. októher. Al*. VOPNAÐIR öryggisverðir í leit að ofstækisfullum mú- hameðstrúarmönnum setja svip sinn á Kairó þessa dag- ana og bera vitni um spenn- una og óöryggið sem ríkir í Egyptalandi eftir morðið á Anwar Sadat forseta. Fréttin af nýjum handtökum heyrast daglega. Fram til þessa hafa 356 verið handteknir og mörg hundruð teknir til yfir heyrslu um allt land. Á laugardag greindi vikutímarit frá því að þrír hefðu verið hand- teknir og 50 kg af dínamíti og 12 sprengjur fundist í kirkjugarði í suð-austurhluta Kairó. Tímaritið sagði að Nabawi Ismail innanrík- isráðherra hefði fyrirskipað leit í auðum grafhýsum og gröfum í borginni. Ismail er yfirmaður ör- Jarðskjálfti í Mexíkó Mcxíkó, 26. uktóber. Al* RAFMAGN fór af stórum hluta Mexfkóborgar og í Michoacan-hér aði í miklum jarðskjálfta sem varð í Mexíkó á sunnudag. Þrír fórust í jarðskjálftanum og 28 særðust. Skjálftinn stóð í þrjár mínútur og mikil hræðsla greip um sig en furðu litlar skemmdir urðu á mannvirkjum. Skjálftinn mældist 6,5 gráður á Richter-skala. Guernica sýnd á Spáni í fyrsta sinn Madrid, 26. októlH‘r. Al* ÞÚSUNDIR Spánverja biðu í langri biðröð í Madrid til að sjá mynd Pablo Picassos „Guernica" á sunnu- dag þegar myndin var í fyrsta skipti sýnd almenningi á Spáni. öryggis- varsla við myndina var mjög mikill ströng og hún höfð bak við skothelt gler. Myndin var flutt frá Bandaríkj- unum til Spánar í ágústmánuði. Hún er í svörtum og gráum litum og sýnir þjáningar manna og dýra í heims- styrjöldinni síðari þegar sprcngivél- ar Hitlers flugu yfir Guernica í Baskahéraði. Ung kona féll á kné fyrir fram- an myndina og margir signuðu sig þegar þeir sáu listaverkið í fyrsta sinn eftir áratuga bið. yggislögreglunnar en nú ber mun meira á henni en nokkru sinni áð- ur. Á laugardag stóðu nokkur hundruð öryggisverðir vopnaðir AK-47-rifflum við lestarteina í „Borg hinna dauðu" í suð-aust- urhluta borgarinnar. Embættis- menn vildu ekki segja hvers vegna öryggisráðstafanirnar voru gerð- ar. Öryggisverðirnir stóðu með jöfnu millibili meðfram lestar- teinum á um 3ja km löngum kafla með byssurnar mundaðar. Öryggisvarslan virðist vera mun meiri nú en strax eftir morð- ið á Sadat. Átök milli lögreglunn- ar og trúarofstækismanna í borg- inni Assyut og nýjar upplýsingar um að tilræðið við Sadat hafi ver- ið hluti af stærra samsæri sem átti að leiða til byltingar líkt og í íran kunna að vera ástæðurnar fyrir því. Hermenn standa vörð með vél- byssur í varnargryfjum við sjón- varpsstöðina á bökkum Nílar. Ör- yggisverðir og byltingarlögregla fara um hverfi Kairóborgar á herbílum. Fólk sem fer um á nótt- unni er oft stöðvað og beðið um skilríki — og eiturlyfjaneytendur kvarta undan skorti á ólöglegum lyfjum eftir að Mubarak tók við völdum. Öryggisverðir hleypa aðeins skráðum stúdentum inn á há- skólasvæði Ein Shames-háskólans í norð-austurhluta Kairó. Stúd- entar segja að heittrúarmenn hafi sig ekki lengur í frammi í kennslu- stundum og fáir sjást klæddir ein- kennisklæðnaði þeirra. En í.borg- arhverfinu í kringum háskólann hafa myndir af Mubarak víða ver- ið rifnar niður. Það er erfitt að segja til um vinsældir Mubaraks heimafyrir. Flestir virðast vilja gefa honum tækifæri til að sýna hvað í honum býr en margir undrast að hann hafi aðeins ávarpað þjóðina einu sinni síðan hann tók við völdum. „Hann verður að gefa okkur ein- hverja hugmynd um stefnu sína,“ sagði kaupsýslumaður í Kairó. „Sadat ferðaðist um allt landið eftir að Nasser lést 1970. Mubarak hefur enn ekki talað til fólksins." Kairóbúar, sem gagnrýndu fjöldahandtökur á múhameðstrú- armönnum og kristnum mönnum sem Sadat fyrirskipaði í síðasta mánuði, og voru andsnúnir harð- orðum árásum Sadat á hinar ar- abaþjóðirnar eftir friðarsamn- ingana við Israel, viðurkenna að þeir eru fegnir að hann er farinn frá völdum. Ferðamenn og aðrir gera sér ferð þangað sem Sadat var myrtur og virða fyrir sér götin eftir byssukúlurnar á áhorfenda- pallinum þar sem Sadat stóð. Mikill áhugi er á banatilræðinu og nýjar upplýsingar um það birt- ast daglega. Þau eru rædd á kaffi- húsum í borginni. Og þrátt fyrir skýringar full- trúa stjórnarinnar velta Egyptar því enn fyrir sér hvernig tilræðis- mennirnir komust inn í hersýn- inguna í herbúningum 6. október sl. 7ÁVE ASSOCIATED PRESS Mótmæli friðarhreyfinga ekki rétta leiðin til friðar - segir Caspar Weinberger l/ondon. HrusM-l. I'aris, Osló, Kóm, Ixis Angeles, 26. oklólM'r. Al* CASPAR W'einlærger varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna sagði að taka þyrfti sívaxandi hreyfingu gegn kjarnorkuvopnum í Evrópu alvarlega en hún myndi hvorki koma í veg fyrir styrjöld né hafa áhrif á stefnu stjórnarinnar í varn- armálum, áður. en hann flaug frá London til Washington um helgina eftir ferð um Vestur Evrópu og fund með varnarmálaráðherrum NATÓ-landanna. Nicolae Ceausescu, forseti Rúmeníu, sagði í viðtali við þýska blaðið Frankfurter Rudschau í dag að hann vildi að Sovétmenn fjarlægðu kjarnorkueldflaugar sínar frá Austur-Evrópu til að koma í veg fyrir að bandarískum eldflaugum verði komið fyrir í Vestur-Evrópu. Ceausescu er fyrsti leiðtoginn í A-Evrópu til að gagnrýna sovésku eldflaugarnar fyrir austan tjald. Hundruð þúsundir manna tóku þátt í mótmælagöngum gegn kjarorkuvopnum í fimm höfuð- borgum V-Evrópu um helgina. Um 100.000 manns söfnuðust saman í Hyde Park í London. Mótmælin fóru friðsamlega fram og Michael Foot, formaður breska Verkamannaflokksins, kallaði fundinn einn merkilegasta mót- mælafundinn i sögu landsins. Peter Blaker, varavarnarmála- ráðherra Breta, sagði í dag að mótmælin í Evrópu gætu spillt fyrir afvopnunarviðræðum aust- urs og vesturs, sem hefjast í næsta mánuði, með því að styrkja stöðu Sovétmanna við samninga- borðið. Milli 100.000 og 200.000 Belgar tóku þátt í mótmælaaðgerðum gegn kjarnorkuvopnum í Brussel. Flestir stjórnmálaflokkarnir í landinu stuttu aðgerðirnar en þeim var beint gegn staðsetningu bandarískra kjarnorkueldflauga í V-Evrópu og sovéskum eldflaug- um sem þegar hefur verið komið fyrir fyrir austan tjald. Mótmæl- in fóru friðsamlega fram. Franskir friðarsinnar og eig- inkona Kurt Waldheims, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, ávörpuðu mótmælafund sem haldinn var í París og um 50.000 sóttu. Pierre Mauroy for- sætisráðherra, varaði við hætt- unni af „hlutleysi" á landsfundi franska Jafnaðarmannaflokksins um helgina og Charles Hernu, varnarmálaráðherra, sagði í sjónvarpsræðu að „friðarstefna gæti ekki verið einhliða". Þrátt fyrir rótgróna friðarstefnu Jafn- aðarmannaflokksins hefur ríkis- stjórn hans verið einna harðorð- ust vestrænna ríkisstjórna í garð vígbúnaðar Sovétmanna. Um 7000 manns tóku þátt í mótmælagöngu í Osló á sunnu- dagskvöld. Kjarnorkuvígbúnaður bæði í austri og vestri var gagn- rýndur. íslenskir stúdentar dreifðu dreifimiðum sem á stóð að ísland, Færeyjar og Grænland ættu að vera hluti af kjarnorku- lausu svæði á Norðurlöndum. Yfir 200.000 tóku þátt í mót- mælagöngu í Róm um helgina. Mótmælendurnir báru spjöld sem gagnrýndu vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna en meira bar á söngvum gegn Bandaríkjunum en Sovétríkjunum. Um 200 manns tóku þátt í mótmælaglöngu gegn kjarnorkuvígbúnaði í Los Angel- es í Kaliforníu á laugardag til að halda upp á upphaf „afvopnun- arviku" Sameinuðu þjóðanna sem hófst sama dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.