Morgunblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981 Tekið undir með Ólafi R. Grímssyni: „Efnahagssteftia ríkisstjórnarinnar ber svipmót afstöðu Alþýðubandalags- ins. Arangurinn er aðkoma í ljós“ eftir Lárus Jónsson alþingismann Í þann niund som Alþingi lauk slörfum sl. vor sagði Olafur R. Grímsson form. þingflokks Alþýdubandalagsins í vdtali við Þjódviljann: „Kfnahags- slefna ríkisstjornarinnar ber mjög svipmót þeirrar afstöðu, sem Alpvóuhandalagió hefur haft síóan 1978. Sú afstaða varó undir í ríkisstjórn- inni 1978—79 (innsk. hér: vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar). Nú hefur hins vegar verió tekió tillit til sjónarmióa Alþýóuhandalagsins og árangurinn er aó koma í Ijós," sagói form. þingflokks Alþýðubandalagsins í nefndu viótali. Aó þessu sinni er ástæóa til aó taka undir meó Olafi Ragnari. Kfnahags- stefna núverandi ríkisstjórnar ber snöggtum meira svipmót af afstöðu Al- þýóubandalagsins en stefna þeirrar ríkisstjórnar, sem sjálf nefndi sig vinstri stjórn. Því má með sanni segja, aó efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar sé „til vinstri" vió vinstri stjórn Olafs Jóhannessonar. Þá má einnig til sanns vegar fa'ra hjá Olafi Ragnari, að árangurinn er aó koma í Ijós. Ríkisstjórnin hefur steypt íslenzkum atvinnuvegum í meiri taprekstur og dýpra skuldafen en da>mi eru um síóustu áratugi á jafnskömmum tíma, þrátt fyrir góð aflabrögó, batnandi vióskiptakjör og hagstæð ytri skilyrði þjóóarbúsins. Þjóóartekjur hafa staónað, kaupmáttur heimilanna hefur „sigið" eins og Guóm. J. Guó- mundsson kýs aó nefna þaó og erlendar lántökur margfaldast. Þótt samning- ar hafi verió ógiltir með lögum (framið „kauprán"?) er veróbólgan í raun í sama gamla farinu, 9—10% á ársfjóróungi á pappírnum eins og þegar ríkis- stjórnin tók vió, en miklum mun meiri ef raunsæis er gætt. Þetta er hinn glæsilegi árangur vinstri afturhaldsstefnu Alþýóubandalagsins, þ.e.a.s. ríkis- stjórnarinnar í hnotskurn. Til vinstri við v i nst r ist jór narstefnu Það er hárrétt hjá Ólafi marg- nefndum Ragnari, að stefna ríkis- stjórnarinnar ber ekki einvörð- ungu eyrnamark Alþýðubanda- lagsins vegna neitunarvalds þess í örytígis- og varnarmálum, vinstri kúvendingu í húsnæðismálum og svartast afturhaldi í stóriðjumál- um, heldur er það hverju orði sannara, að almenn efnahags- stefna ríkisstjórnarinnar „ber mjög svipmót þeirrar afstöðu sem Alþýðubandalagið hefur haft síð- an 1978“ og að nú hefur verið tekið meira tillit til þeirra sjónarmiða en í vinstri stjórninni sálugu. Þegar ríkisstjórnin tók við völd- um í febrúar í fyrra var strax ljóst hvert stefndi, enda öll ráóuneyti at- vinnuveganna í höndum höfuðand- stæóinga Sjálbítæðisriokksins, Framsóknar og Alþýóubandalagsins nema landbúnaóarmálin. Þá var ennfremur Ijóst hvert stefndi, ef svonefnd málefnayfir- lýsing ríkisstjórnarinnar var lesin ofan í kjölinn. Tólfunum kastaði þó þegar svonefnd efnahagsáætl- un ríkisstjórnarinnar leit dagsins ljós um sl. ármót. Þá var tekin upp aukin hávaxtastefna, sem jók fjár- magnskostnað atvinnuveganna og jafnframt gert ráð fyrir sjálf- virkri hækkun aðfanga og launa, sem hlutu að stórhækka allan inn- lendan framleiðslukostnað á ár- inu. A sama tíma voru lögfest harðari verðlagshöft en þekkst höfðu frá stríðslokum og að geng- isskráning skyldi ekki fylgja kostnaðarhækkunum m.ö.o. tekju- möguleikar atvinnuveganna voru stórlega skertir með valdboði, þrátt fyrir lögþvingaðar og fyrir- sjáanlegar kostnaðarhækkanir. rppskrift fyrir atvinnuleysi Afleiðingarnar hlutu að verða á einn veg. Þessar aðgerðir séðar í samhengi Hktust uppskrift fyrir skuldasöfnun og stöðvun atvinnu- veganna og atvinnuleysi, eins og ég leyfði mér að benda á strax í janúar sl. á Alþingi. Þótt til stöðv- unar margra fyrirtækja hafi ekki komið enn, m.a. vegna hækkunar dollarans, er deginum ljósara hvert stefnir. Útflutningsiðnaður- inn er á vonarvöl svo sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Þar nægir að minna á tap og skulda- söfnun Iðnaðardeildar SIS, Ala- foss hf., Kísiliðjunnar við Mývatn sem dæmi um stöðu þessarar atvinnugreinar í heild. Islenzkur iðnaður, sem selur afurðir sínar á Lárus Jónsson „Athyglisvert er að á yf- irstandandi ári hafa laun- þegar fórnad í kaupmætti kauptaxta á sama tíma, sem orðið hefur bati í viðskiptakjörum um tæp 2% og að nú tala forráða- menn Alþýðubandalagsins í hópi foringja launþega um að ná þeim kaupmætti í komandi samningum, sem þeir heimtuðu af rík- isstjórn Geirs Hall- grímssonar árið 1978. Er þetta árangurinn af stefnu Alþýðubandalagsins eftir þriggja ára stjórnarsetu, sem „nú er að koma í ljós“, að sögn Olafs Ragn- ars.“ innlendum markaði býr við þær aðstæður, að erlend samkeppnis- vara hefur lítt.eða ekkert hækkað í verði síðan um áramót, en framleiðslukostnaður sömu vöru á íslandi hækkað a.m.k. um 30—40%. Botnlaust tap fiskiskipa og fyrirtækja í fiskvinnslu hefur verið fréttaefni bæði stjórnar- og stjórnarandstöðublaða nærri daglega undanfarið, svo óþarfi er um að fjölyrða. Staða íslenzkra at- vinnuvega — undirstaða verð- mætasköpunar í landinu — hefur því snarast á nokkrum mánuðum svo mjög, að segja má, eins og Hermann Jónasson forðum, að hengiflug sé framundan. Hækkun f-vísitölu 19801981 % % Ríkisstj. tekur viö 1. febr. 9,1 14,3 eftir kjarasamn. 1980 1. maí 13,2 8,0 eftir „kaupskerðingu“ 7-8% 1. ágúst 10,1 9,0 „veröbólgan“ nú 1. nóv. 10,9 (9,0) spá 12 mánaöa hækkun 1. nóv. — 1. nóv. 50,8 (46,7) Stóraukinn sjávarafli — stödnun þjóðarframleiðslu Undanfarið hefur afli aukist ár frá ári, einkum botnfiskafli, og þar er þorskur í sérflokki. Árið 1978 bárust 318 þúsund tonn af þorski á land og í ár má búast við hvorki meira né minna en 150 þús- und tonna aukningu frá þeirri tölu. Það er athyglisvert, að þrátt fyrir þessa gífurlegu og vaxandi úttekt þjóðarbúsins úr „Selvogs- bönkunum" umhverfis landið, hef- ur þjóðarframleiðslan staðnað, einkum síðustu þrjú árin, þ.e.a.s. þau ár, sem vinstri stefna og „lengra til vinstri stefna" hefur ríkt á Islandi. Þjóðarframleiðslan hefur einungis aukist að meðaltali um 1 til l'/4% á ári síðan 1979, á sama tíma sem þorskaflinn hefur orðið sem hér segir: 1978 318 þús. tonn 1979 360 þús. tonn 1980 420 þús. tonn um hvort ekki sé meira en lítið að. Ilvað hefdi gerst, ef aflahrestur hefði orðið? Sú spurning, hverig má þetta verða, hvernig getur svo mikil aflaaukning orðið að jafn litlum búbótum, hlýtur að verða þem mun áleitnari síðustu tvö árin vegna þess að ævintýraleg hækk- un dollarans á gjaldeyrismörkuð- um er eins og hvalreki fyrir þjóð- arbúið og verð á ýmsum sjávaraf- urðum hefur verið mjög gott í er- lendri mynt. M.ö.o. sérstakt góð- æri hefur ríkt í sjávarútvegi, auk aflans. Engum blöðum er um það að fietta, að hér hefur stefna stjórn- valda grundvallarþýðingu. At- vinnuvegunum er haldið í úlfa- kreppu, og aldrei meiri en nú síð- ustu misserin. Við slíkar aðstæður verður ekki til eigið fé til vélvæð- ingar, hagræðingar eða bættra vinnuskilyrða né heldur hærri fletta, að þessi stöðnun þjóðar- framleiðslunnar kemur niður á lífskjörunum. Allar opinberar töl- ur benda til þess, að kaupmáttur hafi minnkað síðustu misseri. Þetta viðurkenna forystumenn launþega þótt með mismunandi orðalagi sé. Guðmundur J. Guð- mundsson, sem nú berst hæli og hnakka fyrir hóflegum launakröf- um sem betur fer, sagði í viðtali við Þjóðviljann 18. ágúst sl.: „Þá er það óþolandi að kaupmáttur umsaminna fastalauna sigi (let- urbr. hér) á samningstímabilinu, eins og raunin hefur orðið á.“ — Orðhagur maður Guðmundur. Fyrir nokkru fann vinstri stjórn upp orðið gengissig í stað gengis- felling. Nú gæti orðið til orðið lífskjarasig í stað lífskjaraskerð- ing. Athyglisvert er, að á yfir- standandi ári hafa launþegar fórnað í kaupmætti kauptaxta á ~7j-. V,ð Ö,af Ragi im dre@st attmw ** í'^?.0nJ.°rS4»ÍT» AIÞýðuba"di,|agsin ----—_ T'kia lillil III •jánariniða Al- ÞJðubandalagsinr All.ir ima!'" '' é •—3?i£rn’; " Þ.O -1 «.;• %,Hl| " , J...L • u... .a, ■ krter :' *’«•* hefur „ ii. .» "m drxmoi ,»i’iHL•"“,. “••' ffuC Kjrrxr -»í*.'~.. aiiL.- f íxWmrrar ..kka. , T ■« - í . .i^irn.i,érumrorp V„u Iwkj |U >"• I sim., Auk kiþittutrltum j.' LiA SSaaKrsS*?. ' lill<.„ur t"“-" "" i |""I" - lyM ld"-r k. szss&r i:on«u •iarw,2|lí*ÍA '-fx Iprkia ‘ '»>•.*. rl,l4, . P I '»*ir .ifcV’' ■"“,J «•«*..( 5g..3£í'T'v gíSÍj* ....x i. I«*|.:». ,l.i A , 1981 470 þús. tonn (?) Auðvitað má segja sem svo, að fleiri atriði þurfi að taka með í reikninginn, sem komi ef til vill upp á móti þorskaflaaukningunni, þegar leitað er skýringa á stöðnun þjóðarframleiðslunnar á þessu tímabili, t.d. oliuverðshækkunum og sveiflum í öðrum þáttum. Því verður þó ekki í móti mælt, að þorskaflinn er slíkur burðarás í okkar efnahagslífi, að sáralítil aukning þjóðarframleiðslunnar á sama tíma sem ausið er úr hafinu 150 þúsundum tonna af þorski fram yfir aflann 1978 — eða 50% aukning, hvorki meira né minna — hlýtur að vekja til umhugsunar raunverulegra launagreiðslna. Lántökur í þessu skyni eru einnig útilokaðar vegna gífurlegs fjár- magnskostnaðar. I stað fram- leiðniaukningar ríkir stöðnun og í mörgum tilvikum er gengið á höf- uðstól fyrirtækjanna. Sú vinstri afturhaldsstefna gagnvart at- vinnuvegunum, sem ríkt hefur hér á landi síðustu árin er frumorsök þess að þjóðartekjurnar vaxa ekki þrátt fyrir aflaausturinn og góð- æri í undirstöðuatvinnuvegi okkar. Kaupmátturinn hefur „sigið“ segir Guðmundur J. Engum blöðum er um það að sama tíma sem orðið hefur bati á viðskiptakjörum um tæp 2% og að nú tala forráðamenn Alþýðu- bandalagsins í hópi foringja laun- þega um að ná þeim kaupmætti í komandi samningum, sem þeir heimtuðu af ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar árið 1978! Er þetta árangurinn af stefnu Alþýðubandalagsins eftir þriggja ára stjórnarsetu, sem „nú er að koma í ljós“ að sögn Ólafs Ragn- ars. Verðbólgan á pappír eða í veruleikanum En verðbólgan, hún verður 40% á þessu ári í stað 60 undanfarin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.