Morgunblaðið - 27.10.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
11
Frönsk myndlist
Myndlist
Bragi Asgeirsson
Félagið Myndkynning er komið
á kreik aftur eftir tveggja ára sýn-
ingahlé og að þessu sinni öflugra
en nokkru sinni fyrr. Tel ég að
flestir munu því sammála er til
þekkja, að sýningin frönsk mynd-
list, sem nú stendur yfir að Kjar-
valsstöðum sé merkasta framtak
Myndkynningar til þessa. Fer hér
saman fjölbreytt úrval grafík-
mynda og fleiri heimsþekkt nöfn á
myndlistarsviði en nokkru sinni
fyrr. Öll fagvinna er sem áður í
hæsta gæðaflokki og á stundum
jafnvel í lygilega háum gæðaflokki
enda eru hér færustu fagmenn
virkjaðir til samstarfs við lista-
mennina sjálfa.
Þegar litið er á vinnubrögðin,
frægð listamannanna og eintaka-
fjölda mynda er ljóst að margur
gerir hér góð kaup. Gæta skal
þess, að myndirnar tvístrast um
allar jarðir því að svo fullkomið er
dreifikerfið sem hér er að baki.
En það sem máli skiptir er hve
heilleg þessi sýning öll er og í
háum gæðaflokki, sem hlýtur að
orka hvetjandi á iðkendur mynd-
listar hérlendis. Við sjáum hér í
senn sígild vinnubrögð meistara á
borð við Picasso, Miro, Matisse,
Giacometti, Braque, Bazaine, Vas-
arely, Alechinsky, Corneille, Cha-
gall, Hartung, Manessier, Herbin
o.fl. til nútímalegri vinnubragða
listamanna svo sem Ipousteguy,
Monory, Dupre o.fl. — Eru
tæknibrögð hins síðastnefnda með
ólíkindum þar sem hann vinnur á
silfurlitan flöt.
Hvort sem fólk kann að með-
taka það eða ekki þá er listamaðu-
rinn Monory einn þeirra er mestr-
ar hylli njóta í Parísarborg um
þessar mundir og sýnir m.a. reglu-
lega í hinum þekkta sýningarsal;
Galerie Maegh. Á sýningunni eru
sérstaklega eftirtektarverð verk
eftir þá Picasso, Chagall og Miro
og menn taki eftir því hve gjörólí-
kir þessir listamenn eru og sterkir
persónuleikar um leið. — Allir
voru þeir frábærir teiknarar og
meistruðu til hlítar frumgreinar
myndlistarinnar og höfðu gífurleg
áhrif á skreytilist hvers konar og
listiðnað. Með frumgreinum
myndlistar er átt við málun,
höggmyndalist og teikningu.
— Það er mjög fróðlegt að
fylgjast með glimu ýmissa lista-
manna við að virkja upphleypta
áferð í byggingu myndheilda í
þágu þess, sem á fagmáli nefnist
heildarstrúktúr. Hér geta íslenz-
kir margt lært og þá um leið í
útfærslu agaðra en um leið hömlu-
lausra myndheilda, — eins konar
reglu í frjálslegri, umbúðalausri
mótun.
Upphenging myndanna hefur
tekist mjög vel, er skýr, ákveðin og
hnökralaus þannig að fram kemur
sterkur heildarsvipur. Sýningar-
skráin hefur að geyma ýmsar
gagnlegar upplýsingar um stóran
hluta listamannanna en þar koma
fram alltof margar stafsetningar-
villur í lesmálinu.
Um leið og framtakið er þakkað
þykir mér rétt að koma á
framfæri þeirri ósk, að um árvisst
framhald verði að ræða og í
fjölbreytilegri mynd.
Þægileg „Moody
Bluesu-plata
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Long Distance Voyager.
The Moody Blues.
EMI
TMB: Justin Hayward: gítar, söng-
ur.
John Ixrdge: bassi, söngur.
Ray Thomas: flauta, munnharpa
og söngur.
Graeme Edge: trommur.
Patrick Moraz: hljómborð.
Þetta er fyrsta plata TMB eft-
ir þriggja ára hlé. Hljómsveitin
hefur verið nær óbreytt frá
stofnun (1964), nema hvað á
þessari plötu er Patrick Moraz
(áður í Yes) í stað Mike Pinder.
Hljómsveitin var stofnuð í
Birmingham 1964. Önnur litla
plata þeirra „Go On“ hafnaði í 1.
sæti þess ameríska. Þar með
voru þeir komnir af stað.
Það sem hefur einkennt tón-
list TMB í gegnum árin, er notk-
un strengja á plötum þeirra, rétt
eins og ELO, en ekki eins ráð-
andi. Long Distance Voyager er
engin undantekning. Á henni eru
10 lög sem öll eru dæmigerð
fyrir Moody Blues, róleg og
þægileg, full af fallegum melódí-
um. Hljóðfæraleikurinn er góður
og oft gott betri. Söngurinn er
látlaus og fellur vel að fallegum
lögum plötunnar. Tvö lög eru þó
best, „The Voice", sem er hratt
og grípandi, og „22000 Days“,
sem er rólegt lag og magnað upp
með kórsöng, þrumugott.
I heildina er hér þægileg,
melódísk plata sem lítið skilur
eftir. Gallinn er, hvað þeir
sneiða stundum nærri ELO. Það
er ef til vill í lagi en dregur hana
þó niður. Þetta er ekki besta
plata TMB, en ekki sú versta.
FM/AM
SVARIÐvið
arkukreppu
og
MITSUBISHI
MOTORS
COLT er framhjóladrifinn.
COLT er sparneytinn (eydsla 7I./100 km.).
COLT er rúmgóður.
COLT er fáanlegur 3 og 5 dyra.
Komid, skoðið og reynsluakið COLT1982 frá MITSUBISHI.
Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn.