Morgunblaðið - 27.10.1981, Blaðsíða 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
25
Bergsveinn Þórarinsson brýst
í gegn um vörn Vals og skorar
eitt af mörkum sínum.
Ljósm. Emilía.
dór Guðfinnsson átti ágæta spretti í
leiknum, en var um tíma fremur
óheppinn. Þá ber ad geta, að þau fáu
skipti sem sókn Vals sýndi lit, var
Brynjar Harðarson þar að baki. Eru
Ijósu punktarnir þar með upp taldir.
Lið HK lék ekki ýkja vel sem
heild, leikmenn gerðu sig oft seka
um Ijótar villur. En í liðinu var mik-
Valsmenn lakari en byrjendur
og HK gekk auðvitaó á lagið
ÞAD EK skammt öfganna á milli hjá
Valsmönnum, einn daginn vinnur
liðið Víkinga fyrst allra liða í óra-
tíma. I næsta leik er liðið tekið í
kennslustund af litla HK úr Kópa-
vogi. Jæja, kennslustund er kannski
full mikið sagt, en sannast sagna var
sigur HK aldrei í raunverulegri
hættu, svo afspyrnulélegir voru
Valsmenn að þessu sinni. Þeir hafa
kannski vanmetið andstæðinginn,
hugsað sem svo eftir árangurinn
gegn Víkingi þyrfti ekki annað en að
mæta til leiks og þá væru stigin í
höfn. Hvað um það, Valsmenn verða
vafalítið fyrstir að játa, að verra hef-
ur liðið líklega aldrei leikið. HK-
menn léku ekki glæsilegan hand-
knattleik og þeir voru á köflum ráð-
leysislegir og mistækir, en HK-menn
bæta upp vankanta sína með óvenju-
lega góðri baráttu og leikgleði sem
önnur lið ættu að tileinka sér og
læra af HK. Sigur HK var afar
vcrðskuldaður miðað við gang mála
á vellinum, lokatölur leiksins urðu
20—16, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 9—6 fyrir HK.
Jafnræði var framan af leiknum
og lítið skorað, þannig var staðan
2—2 eftir 13 mínútur. Var mikið um
mistök á báða bóga og HK-menn
sendu knöttinn hvað eftir annað í
lúkurnar á Valsmönnum, sem þökk-
uðu ekki fyrir sig með því að skora
mörk. Valur komst síðan í 4—2, en
HK jafnaði og voru þá 9 mínútur til
leikhlés. En frá því að Valur skoraði
4. mark sitt og þangað til liðið bætti
því fimmta við, liðu eigi færri en 13
mínútur og voru Valsmenn svo slak-
ir um þessar mndir, að menn stóðu
agndofa og horfðu á sjónarspilið.
HK-menn þurftu ekki að sýna stór
leik, það virtist sem liðið gæti vart
annað en sigrað. HK skoraði þarna
5 mörk í röð og náði forystu sem
reyndist nokkuð létt verk að halda
til leiksloka. í síðari hálfleiknum
sáust tölur eins og 11—6 og 17—11
fyrir HK. Þegar skammt var til
leiksloka virtust Valsmenn um hríð
Valur —
HK
16:20
vera eitthvað að rumska, þeir skor
uðu þá þrjú mörk í röð, breyttu stöð-
unni í 14—17, og fengu síðan víta-
kast. Á þessu mikilvæga augnabliki
kom Einar Þorvarðarson markvörð-
ur HK til skjalanna, hann varði
meistaralega vítakast Jóns Péturs
og HK skoraði tvö næstu mörkin.
Þar með var síðasta von Vals rokin.
Ekki er möguleiki á því að eyða
mörgum orðum um ágæti Valsliðsins
að þessu sinni. Er varla mögulegt
hjá 1. deildar liði að leika annan leik
jafn illa. Markvarslan var afleit,
varnarleikurinn gloppóttur og sókn-
arleikurinn hreinasta hörmung.
Verra var kannski, að áhugaleysis
virtist gæta hjá Valsmönnum. Ekki
eru þó allir undir þeim hatti, Theo-
ill kraftur og leikgleði. Varnarleikur
inn var yfirleitt góður og markvarsla
Einars Þorvarðarsonar mjög góð.
Sóknarleikurinn var hins vegar
oft ósannfærandi og byggðist á ein-
staklingsframtaki. Auk Einars gerðu
bræðurnir Kagnar og Kristinn
Olafssynir, Bergsveinn Þórarinsson
og Þór Ásgeirsson góða hluti.
í stuttu máli:
Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild: Valur — HK 16—20 (6—9).
Mörk Vals: Theodór Guðfinnsson
5, Jón Pétur Jónsson 4 (3v), Þor
björn Guðmundsson 3, Steindór
Gunnarsson 2, Gunnar Lúðvíksson
og Stefán Gunnarsson 1 hvor.
Mörk HK: Kagnar Ólafsson 6
(lv), Bergsveitt Þórarinsson og I>ór
Ásgeirsson 4 hvor, Kristinn Olafs-
son 3, Kristján Guðlaugsson, Hörður
Sigurðsson og Gunnar Eiríksson 1
hvor.
Víti í súginn: Einar hirti eitt hjá
Jóni Pétri.
— ee
HandknattlelKur
Elnkunnagjðfin
Lið Vals:
Jón Gunnarsson
Þorlákur Kjartansson
Theodór Guðfinnsson
Þorbjörn Guðmundsson
Þorbjörn Jensson
Jón Pétur Jónsson
Steindór Gunnarsson
Gunnar Lúðvíksson
Friðrik Jóhannesson
Stefán Gunnarsson
Lið HK:
Einar Þorvarðarson
Kagnar Olafsson
Kristinn Olafsson
Þór Ásgeirsson
Bergsveinn Þórarinsson
Hörður Sigurðsson
llafliði Halldórsson
Kristján Guðlaugsson
Lið FH:
3 Haraldur Ragnarsson 4
3 Gunnlaugur Gunnlaugsson 6
7 Sæmundur Stefánsson 7
5 Hans Guðmundsson 5
4 Guðmundur Magnússon 6
3 Theodór Sigurðsson 4
5 Óttar Mathiesen 7
4 Kristján Arason 8
3 Sveinn Bragason 4
4 Pálmi Jónsson 5
Valgarð Valgarðsson 7
Lið KR:
8 Brynjar Kvaran 8
6 Gísli F. Bjarnason 4
6 Gunnar Gíslason 7
6 Haukur Ottesen 6
6 Haukur Geirmundsson 5
5 Alfreð Gíslason 6
5 Olafur Lárusson 5
5 Friðrik Þorbjörnsson 6
Kagnar Hermannsson 7
Jóhannes Stefánsson 7
Víkingur:
Kristján Sigmundsson 8
Hilmar Sigurgíslason 6
Steinar Birgisson 6
Ólafur Jónsson 6
Guðmundur Guðmundsson 5
Páll Björgvinsson 6
Óskar Þorsteinsson 7
Árni Indriðason 6
Þorbergur Aðalsteinsson 7
Jakob Þórarinsson 5
Heimir Karlsson 6
Fram:
Jón Árni Rúnarsson 5
Hannes Leifsson 7
Egill Jóhannesson 6
Dagur Jónasson 6
Hermann Björnsson 5
Kagnar Sigurðsson 5
Björn Eiríksson 6
Sigurður Þórarinsson 7
l»róttur:
Olafur Benediktsson
Sigurður Kagnarsson
Olafur H. Jónsson
Sigurður Sveinsson
Páll Ólafsson
Gunnar Gunnarsson
Einar Sveinsson
Jón Viðar Sigurðsson
Sveinlaugur Kristjánsson
Lárus Lárusson
Gísli Oskarsson
Magnús Margeirsson
KA:
Magnús Gauti
Þorleifur Ananíasson
Magnús Birgisson
Friðjón Jónsson
Jóhann Einarsson
Guðmundur Guðmundsson
Sigurður Sigurðsson
Jakob Jónsson
Kristinn Sigurðsson
Erlingur Kristjánsson
FH —
KR
ÞAÐ VORU ekki nema 4 sekúndur
til leiksloka, er Kristján Arason
FH-ingur komst að marki KR í
hraðaupphlaupi og skoraði sigur
markið, er liðin mættust í 1. deild-____________________________________________
inni á sunnudagskvöldið.
Staðan var 20—20 og Kristján fékk knöttinn í kjölfarið á misheppnaðri skyndisókn KR. Og
ekki nóg með það, heldur kom KK-skyndisóknin í kjölfarið á hraðaupphlaupi FH, þar sem
Pálmi Jónsson komst í dauðafæri, en Brynjar Kvaran markvörður varði snilldarlega. Þess
má geta, að þegar 2 mínútur voru eftir af leiknum, var staðan 20—18 fyrir KR. Lokatölurn-
ar urðu því 21—20 fyrir FH, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11—10 fyrir KR.
Fyrsta sóknarlota þessa leiks sýndi glögglega hvað í vændum var, FH-ingar brun-
uðu upp og Kristján fór eins og loftsteinn gegn um vörn KR og skoraði. Þar með var
tónninn gefinn og undirritaður hefur ekki séð marga leiki betri eða jafn spennandi.
En þrátt fyrir þetta mark, voru það KR-ingar sem byrjuðu betur, þeir léku vörnina
vel og í sókninni gekk línuspil þeirra skemmtilega upp. Þeir komust í 4—2, 5—3 og
7—5. FH-ingarnir sóttu sig þá mikið og jöfnuðu metin í 7—7, þegar 10 mínútur voru
til leikhlés. Síðan var jafnt upp í 9—9, með FH-inga fyrri til að skora. KR náði á
síðustu mínútunum tveggja marka forystu, 11—9, en Ottar Mathiesen átti síðasta
orðið í fyrri hálfleik, því 11—10 í hálfleik.
KR náði síðan þriggja marka forystu í upphafi síðari hálfleiks, 13—10, og hélt liðið
síðan frumkvæðinu, 1—2 marka forystu fram í miðjan hálfleikinn. Þá jafnaði FH í
16—16, eftir að KR-ingar höfðu klúðrað vítakasti. Hófst nú æsispennandi lokakafli.
Kristján Arason kom FH í 17—16 og voru þá 9 mínútur eftir. KR svaraði með tveimur
mörkum, FH jafnaði, en tvö mörk til viðbótar frá KR virtust myndu færa liðinu bæði
stigin, enda staðan 20—18 og tvær mínútur eftir. En FH nældi í tvö víti og darraðar-
dansinum lokasekúndurnar hefur þegar verið lýst. FH-sigur slapp því naumlega í
höfn, en án þess að kasta rýrð á þá Hafnfirðinga, þá hefði ekki verið ósanngjarnt að
liðin deildu stigunum.
Þetta var sannkallaður hörkuleikur og virkilega gaman ef boðið væri upp á fleiri
slíka. Lið FH lék á köflum prýðilegan handknattleik. Kannski heldur mikið á Krist-
ján Arason treyst í sókninni, en hann skoraði 12 af 21 marki liðsins. Eftir gloppóttan
varnarleik framan af, náðu FH-ingar að þétta hlutina og léku oft stórgóðan varnar-
leik, sérstaklega tókst að hafa góðar gætur á hættulegustu skyttu KR-inga, Alfreð
Gíslasyni. Kristján Arason átti sannkallaðan stórleik að þessu sinni, skoraði mörg
mörk og var sem klettur í vörninni. Sæmundur, Valgarð og Óttar áttu einnig góðan
leik og aðrir voru jafnir.
KR-liðið var mjög jafnt. Helst ber þó að geta Jóhannesar Stefánssonar, hann
skoraði falleg mörk af línunni og fiskaði vítaköst. Þá voru Ragnar, Friðrik og Gunnar
Gíslason góðir. Alfreð átti erfitt uppdráttar að þessu sinni, enda í mjög strangri
gæslu. Annars lék KR-liðið oft og tíðum ágætan handknattleik, hvort heldur í vörn
eða sókn. Reyndar fékk liðið tvívegis dæmda á sig leiktöf, en það er skoðun undirrit-
aðs, að liðið hafi ekki átt slíkt skilið í síðara tilvikinu. Þá blésu dómararnir í flautuna
í miðri leikfléttu KR-inga, sem var á góðri leið með að opna vörn FH.
í stuttu máli:
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: FH — KR 21—20 (10—11)
Mörk FH: Kristján Arason 12, 6 víti, Óttar Mathiesen 3, Sæmundur Stefánsson 2,
Guðmundur Magnússon 2 og Valgarð Valgarðsson 2 mörk.
Mörk KR: Alfreð Gíslason 5, 3 víti, Ragnar Hermannsson 3, Jóhannes Stefánsson 2,
Ólafur Lárusson 2, Haukur Ottesen 2, Gunnar Gíslason 2, Haukur Geirmundsson 2
víti og Friðrik Þorbjörnsson 1 mark.
Brottrekstrar: Sæmundur Stefánsson var tvírekinn út af og Kristján Arason einu
sinni í 2 mínútur.
Víti í súginn: Haraldur Ragnarsson varði vítakast frá Alfreð Gíslasyni og Haukur
Geirmundsson skaut í stöng.
Dómarar voru Óli ólsen og Gunnlaugur Hjálmarsson. —gg.
Skammarræóuna hefðu Þrótt-
arar þurft fyrir leikinn
ÞROTTARAR sluppu með skrekkinn og tvö sig frá leiknum við KA í 1.
deildinni á iaugardag. Þróttur vann leikinn með aðeins einu rnarki, 23—22,
og liðið var í órafjarlægð frá því, sem það bezt getur í íþróttinni. Olafur H.
Jónsson söng hressilega yfir mönnum sínum að leiknum loknum, en slíka
skammaræðu hefðu Þróttararnir þurft fyrir ieikinn, þá hefði kæruleysið
kannski ekki verið eins algjört og raunin varð.
Lið KA barðist vel í þessum Þrótt, Erlingur svaraði fyrir KA
Þróttur
- KA
23:22
leik, en getumunurinn var augljós
á liðunum þá kafla, sem Þróttarar
léku á fullu. Akureyringarnir eiga
mikið hrós skilið fyrir þennan
leik. Þeir náðu að minka muninn
úr sex mörkum, 17:11, í þrjú mörk,
19:16, og áfram héldu KA-menn-
irnir. Þeir börðust af miklu kappi
og er tvær mínútur voru eftir var
aðeins eins marks munur á liðun-
um 22:21 og allt virtist geta gerzt.
Sigurður Sveinsson skoraði fyrir
og Síðan misstu Þróttarar boltann
þegar 7—8 sekúndur voru eftir.
KA-menn brunuðu upp og auka-
kast vár dæmt á Þrótt. Leiktíminn
var liðinn og KA tókst ekki að
skora úr aukakastinu enda hefði
verið ósanngjarnt að liðið hlyti
annað stigið, þó svo að Þróttur
hafi e.t.v. ekki átt þau bæði skilin
miðað við kæruleysið í leik liðsins.
Framan af þessum leik var jafn-
ræði með liðunum og jafnt upp í
1. deild kvenna
ÍR vann Þrótt án
teljandi erfiðleika
Ragnar Hermannsson skoraði nokkur falleg mörk gegn FH. Hér er eitt peirra i uppaigr
ingu. Ljósm. Emilía.
Sigurmark FH kom
4 sek. fyrir leikslok
21:20
ÍR VANN öruggan sigur á Þrótti í 1.
deild kvenna í handknattleik á laug-
ardag. Úrslitin urðu 17:14 eftir að
jafnt hafði verið, 9:9, í leikhléi. Þrátt
fyrir að jafnt hafi verið um miðbik
leiksins þá fór það vart á milli mála,
að ÍR-stúlkurnar höfðu allan tímann
sterkara liði á að skipa, en áhuga-
leysi þeirra á tímabili jafnaði leikinn
og Þróttararnir gengu á lagið. Er
leið á síðari hálfleikinn varð þó Ijóst
að sigur ÍR yrði ekki í hættu.
Erla Rafnsdóttir er með
skemmtilegri leikmönnum í
kvennahandknattleiknum um
þessar mundir, ekki mikil skytta,
en útsjónarsöm og lagin með
knöttinn svo af ber. Hún beitti sér
þó ekki eins og best getur að þessu
sinni. Auk hennar átti Ásta
Sveinsdóttir góðan leik fyrir ÍR að
þessu sinni.
I liði Þróttar stóð markvörður-
inn, Nína Rafnsdóttir, sig best, en
varnarleikurinn fyrir framan
hana var ekkert til að hrópa húrra
fyrir.
Mörk ÍR: Erla 5, Ásta S. 4,
Svanlaug 3 (2v), Katrín 3, Ásta Ó.
1, Guðný 1.
Mörk Þróttar: Unnur 5 (4v),
Kristín 3, Ágústa 3, Ásta 2, Guð-
rún 1.
7:7, en þá kom góður sprettur
Þróttara og munurinn var fimm
mörk í leikhléi, 15:10. Síðari hálf-
leikinn byrjuðu KA-menn einum
færri fyrstu fjórar mínúturnar,
þar sem Guðmundi Guðmundssyni
var tvívegis vikið af leikvelli.
Þróttur komst í 17:11, en þar með
hófst þáttur KA-manna og er hon-
um áður lýst í stórum dráttum.
Lið KA er baráttulið, sem getur
velgt flestum liðum 1. deildar und-
ir uggum. I liðinu eru engar stórar
stjörnur, en leikmenn liðsins hafa
gaman af því, sem þeir eru að gera
og með aðeins meira sjálfstrausti
og yfirvegun á leikur liðsins eftir
að batna mikið.
Beztu menn liðsins voru Þorleif-
ur og Sigurður Sigurðsson, Frið-
jón skoraði nokkur falleg mörk og
Magnús Birgisson átti góðan leik í
vörninni.
Um leik Þróttar að þessu sinni
er óþarfi að hafa mörg orð, liðið
lék langt undir getu. Eins og
venjulega skoruðu Sigurður og
Páll falleg mörk og þrumuskot
þeirra voru nánast það eina, sem
yljaði stuðningsmönnum Þróttar
að þessu sinni. Þar með er ekki
sagt, að þeir félagar hafi átt góðan
leik.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 9, Páll Ólafsson 6 (2v), Ólafur
H. Jónsson 2, Jón Viðar 1, Magnús
Margeirsson 1, Gísli Óskarsson 1,
Sveinlaugur Kristjánsson 1, Lárus
Lárusson 1.
Mörk KA: Sigurður Sigurðsson
5, Þorleifur Ananíasson 5, Friðjón
Jónsson 5, Guðmundur Guð-
mundsson 3, Erlingur Kristjáns-
son 2, Jóhann Einarsson 2.
Misnotuð vítaköst: Sigurður
Sveinsson átti vítakast í þverslá
og yfir, Gunnar Gunnarsson skaut
í stöng úr vítakasti, Gauti varði
vítakast Gísla. KA fékk ekki víta-
kast í leiknum.
Brottvísanir: Guðmundur Guð-
mundsson í 2x2 mínútur, Magnús
Birgisson í 2 mínútur, Erlingur
Kristjánsson í 2 mínútur. Allir eru
þeir í KA.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson
og Árni Tómasson dæmdu leikinn
rétt sæmilega, en mikið Var um
hnoð og pústra er leið á leikinn.
— áij.
Haukar misstu nióur
fimm marka forskot
Kristján jafnaði
þegar aðeins 30
sek voru eftir
HÖRKULEIK Fylkis og UBK í 2.
deild í fslandsmótinu í handknatt-
leik síðastliðinn laugardag að Varmá
í Mosfellssveit lauk með jafntefli
24-24. Það var lið IJBK sem jafnaði
metin þegar aðeins 30 sek. voru til
leiksloka. Fylkir hafði náð 4 marka
forystu í leiknum en með baráttu og
dugnaði tókst UBK að minnka met-
in og jafna. UBK náði sér þar í
dýrmætt stig því að Ijóst er að bar
áttan í 2. deild verður hörð í ár eins
og svo oft áður.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik. Léku liðin allvel.
Sér í lagi var varnarleikur liðanna
góður. Staðan í hálfleik var 11-10
fyrir Fylki.
I síðari hálfleik voru Fylkis-
menn öllu ákveðnari í leik sínum
og höfðu frumkvæðið. En leik-
menn UBK börðust mjög vel og
gáfust ekki upp. Þvert á móti
sóttu þeir í sig veðrið og náðu að
jafna leikinn alveg í lokin eins og
áður sagði.
Bestu menn UBK voru þeir
Kristján Þór og Brynjar Björns-
son. Lið Fylkis var mjög jafnt að
getu í þessum leik.
Mörk UBK: Kristján Þór 8, Stef-
án Magnússon 4, Brynjar Björns-
son 5, Ólafur Björnsson 2, Krist-
ján Halldórsson 4, Björn Jónsson
1.
Mörk Fylkis: Haukur Magnús-
son 6, Einar Ágústsson 4 (3v.),
Andrés Magnússon 3, Gunnar
UBK —
Fylkir
24-24
Baldursson 6 (2v.), Magnús Sig-
urðsson 2, Jón Leví 2, Jóhann
Ásmundsson 1.
— ÞR.
HAUKAR fóru illa að ráði sínu gegn
Þór frá Vestmannacyjum, er liðin
mættust í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik á laugardaginn.
Haukarnir léku á heimavelli sínum
og höfðu töglin og hagldirnar fram-
an af leiknum, en á dularfullan hátt
tókst liðinu að leika lokakaflann
jafn illa og liðið lék vel framan af.
Lokatölurnar urðu 20—18 fyrir Þór,
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
12—7 fyrir Hauka.
Hálfleikstalan gefur til kynna
talsverða yfirburði Hauka í fyrri
hálfleik og var það sannarlega
uppi á teningnum. En í síðari hálf-
leik mættu allir leikmenn Hauka
til leiks með tíu þumalfingur og
tókst fæst af því sem reynt var.
Þórarar skynjuðu tækifæri sitt og
dæmið snérist gersamlega við,
þeir skoruðu hvert markið af öðru
og tryggðu sér góðan sigur.
Haukar -
Þór V
18:20
Staðan í
2. deild
STADAN í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik er nú þessi:
ÍR
Stjarnan
Þór Ve.
Haukar
Fylkir
Afturelding
Breiðablik
Týr
2 0 0 41-28
200 57-45
202 78-79
1 1 1 69-64
1 1 0 44-40
2011 36-42 1
2011 36-43 1
3 0 0 3 58-78 0
islandsmótlð 2. dellú
Gunnar þjálfari Stjörnunnar
skoraði 11 mörk gegn liði Týs
STJARNAN átti ekki í neinum erfiðleikum með að hala inn tvö stig í 2.
deildinni um helgina, þegar liðið mætti slöku liði Týs í Eyjum. Stórsigur
Stjörnunnar, 30 21. Um þennan leik þarf svo sem ekki að hafa mörg orð,
Stjarnan tók strax í upphafi öll völd á vellinum og komst fljótlega í 5—1 og
Ijóst var, að hverju stefndi. Á meðan allt gekk upp hjá Stjörnunni, klúðruðu
Týrarar hverri sókninni á fætur annarri og misnotuðu meira að segja tvö víti.
Staðan í hálfleik var 15—8 fyrir stjörnuna.
Síðari hálfleikurinn rann í sama ir góðan leik í liði Stjörnunnar og
farveg og sá fyrri, Stjarnan skor-
aði jafnt og þétt, en vörn Týs og
markvarsla var mjög slök. Skot-
menn Týs læddu inn marki og
marki, en Týsliðið var aldrei einu
sinni líklegt til þess að ógna for-
ustu Stjörnunnar. Öruggur og
auðveldur stórsigur Stjörnunnar.
Gunnar Einarsson, Eggert ísdal
og Guðmundur Óskarsson áttu all-
markvörður Iiðsins, Höskuldur
Ragnarsson varði mjög vel, m.a.
tvö víti. Stjörnuliðið er líklegt til
þess að blanda sér í toppbaráttuna
í 2. deildinni í vetur, leikur ágætis
handknattleik. Enginn var öðrum
betri í liði Týs, sem horfir nú fram
á harðan og erfiðan vetur. Liðið
verður að gera gott betur en þetta
ef það ætlar sér að hanga í deild-
inni. Hitt er svo annað mál, að
liðið hefur oftast áður byrjað illa í
mótinu, en spjarað sig þegar fram
í sækir, tapaði t.d. þremur fyrstu
leikjum sínum í fyrra.
MÖRK Týs: Stefán Halldórsson 10
(2v), Sigurlás Þorleifsson 6 (lv),
Benedikt Guðbjartsson 2, Þor-
steinn Viktorsson 1, Egill Stein-
þórsson 1, Gylfi Birgisson 1.
MÖRK Stjörnunnar: Gunnar Ein-
arsson 11 (4v), Eggert ísdal 9,
Guðmundur Óskarsson 4, Magnús
Andrésson 2, Björgvin Elíasson 1,
Gunnlaugur Jónsson 1, Eyjólfur
Bragason 1, Viðar Símonarson 1.
— hkj.