Morgunblaðið - 27.10.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
27
r
r
Kjartan Másson hefur rádið sig sem
þjálfara hjá 2. deildarliði Reynis í
Sandgerði. Hann hefur áður þjálfað
liðið og kom því þá uppí 2. deild.
ÍBV er nú að leita eftir þjálfara er
lendis.
Ómar sigraði í
Tropicanakeppninni
í judó um helgina
TROl’ICANA-keppnin í júdó var háð
sunnudaginn 25. október. Þetta er
árieg keppni, og á mótinu keppa í
opnum flokki þeir júdómenn sem
eru 71 kg eða léttari, þ.e. úr þremur
léttustu þyngdarflokkunum í júdó.
Úrslit að þessu sinni urðu sem hér
segir:
1. Omar Sigurðsson UMFK
2. Sigurbjörn Sigurðsson UMFK
3. Karl Erlingsson Árm., Hilmar
Jónsson Árm.
Keppendur voru 10 og meðal
þeirra margir ungir og efnilegir
júdómenn. Ómar sigraði örugg-
lega eins og oft áður og vann alla
keppinauta sína. Þetta er í þriðja
sinn í röð sem hann sigrar, og
hlaut hann til eignar hinn veglega
Tropicana-bikar sem keppt hefur
verið um síðan 1976.
Næsta stórmót í júdó er Haust-
mót JSÍ, en það verður 8. nóv-
ember.
Ársþing FSÍ
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda árs-
þing FSÍ laugardaginn 21. október
1981 kl. 13.00 í Hreyfilshúsinu
v/Grensásveg, Reykjavík.
Fulltrúafjöldi hvers aðila fer
eftir tölu virkra iðkenda fimleika,
þannig að fyrir allt að 25 menri
koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir
hverja 25 eða brot úr 25 upp í allt
að 100 iðkendur og þá 1 fulltrúi að
auki fyrir hverja 50 iðkendur þar
fram yfir.
Málefni, sem sambandsaðilar
óska eftir að tekin verði fyrir á
þinginu, skulu tilkynnt stjórn FSÍ
minnst 15 dögum fyrir þingið.
Eins og kunnugt er leika þeir Sveinsbræður, Ársæll, Sveinn og Karl allir með sænskum knattspyrnuliðum. Ársæll og
Karl með Jönköbing Södra og Sveinn með 3. deildar liði rétt við Jönköbing. Öllum hefur þeim gengið mjög vel í
sumar í knattspyrnunni og verið landi og þjóð til mikils sóma eins og reyndar við var að búast. Ársæll og Sigrún
munu koma alkomin til Eyja aftur í desemberbyrjun, Karl verður áfram í Svíþjóð að minnsta kosti eitt keppnistíma-
bil til viðbótar en Sveinn og Jenný hafa enn ekki gert upp hug sinn.
Góður árangur Víkings í
handknattleik undir stjórn
Pólverjans Bogdans Kowalczyk
Segja má að þáttaskil verði í handknattleiknum hjá Víkingi þegar Pólverj-
inn Bogdan Kowalczyk ræðst til félagsins sem þjálfari haustið 1978. Bogdan
hafði hin bestu meðmæli, m.a. frá Janusi Cerwinski, fyrrum landsliðsþjálfara
íslendinga. Er skemmst frá því að segja að árangur meistaraflokks Víkings
undir stjórn Bogdans hefur farið fram úr björtustu vonum allra Víkinga,
enda er maðurinn frábær þjálfari. Þrisvar hafa Víkingar orðið íslandsmeist-
arar undir hans stjórn, tvisvar Reykjavíkurmeistarar og einu sinni Bikar
meistarar.
Tímabilið 1978- 79: Leikir 26 Unnir 21 Jafntefli 1 Tapaðir 4
Tímabilið 1979-’80: 21 20 0 1
Tímabilið 1980-’81: 25 22 1 2
Samtals: . 72 63 2 7
í þessari töflu eru taldir upp
leikir gegn íslenskum liðum: þ.e.
a.s. í íslandsmóti, Reykjavíkur-
móti og Bikarkeppni.
Víkingar hafa leikið 8 Evrópu-
leiki undir stjórn Bogdans, unnið
sænska liðið Ystad tvívegis, tapað
tvívegis fyrir sænska liðinu Heim,
í leikjunum við Tatabanya tapað-
ist leikurinn í Ungverjalandi með
einu marki en leikurinn hér heima
vannst með einu marki og töpuðu
hér heima fyrir sænska liðinu
Lugi með 1 marki og gerðu jafn-
tefli við þá í Svíþjóð.
Þegar Bogdan tók við þjálfun
meistaraflokks var Víkingsliðið
annálað sóknarlið, en varnarleik-
urinn hafði lengi verið höfuðverk-
ur liðsins. Bogdan hefur aukið
fjölbreytni sóknarleiksins og gjör-
breytt vörninni til hins betra, svo
að í dag er Víkingsvörnin stundum
kölluð Járntjaldið" hans Bogdans.
Þá er aðeins ógetið starfs Bog-
dans fyrir aðra handknattleiks-
flokka en meistaraflokks. Hann
hefur frá upphafi haft yfirumsjón
með þjálfun allra flokka félagsins
og unnið þar frábært starf.
4. flokkur Þórs Akureyrarmeistarar í knattspyrnu Ljósm. Reynir.
• Eiríkur Eiríksson, Þór, knatt-
spyrnumaður Akureyrar árið 1981.
• Markakóngur Akureyrar árið
1981, Baldvin Þór Heiðarsson.
Ljósm. Reynir.
5. flokkur KA Akureyrarmeistarar í knattspyrnu.
Eiríkur Eiríksson
knattspyrnumaöur
Akureyrar
EIRÍKUR Eiríksson, markvörður
Þórs á Akureyri, var kjörinn
knattspyrnumaður Akureyrar 1981.
Kjöri hans var lýst í lokahófi sem
KRA gekkst fyrir um helgina. Alls
hlutu 10 leikmenn atkvæði, en þrír
þeirra voru nokkuð í sérflokki. Ei-
ríkur hlaut 21 atkvæði af 25 mögu-
legum, Jóhann Jakobsson KA hlaut
19 og Aðalsteinn Jóhannsson, mark-
vörður KA, fékk 15 atkvæði. Eins og
á þessu sést, var keppnin um titilinn
mjög hörð en Eiríkur er vel að
nafnbótinni kominn, þar sem hann
stóð sig mjög vel í marki Þórs á
síðasta keppnistímabili. Það kemur
því í hans hlut að varðvcita hina
glæsilegu farandstyttu, sem nafnbót-
inni fylgir, næsta árið. í hófinu var
einnig veitt stytta markakóngs.
Markakóngur Akureyrar 1981 varð
Baldvin Þór Heiðarsson, leikmaður í
þriðja flokki Þórs. Hann skoraði 5
mörk í tveim leikjum á vegum KRA.
Á árinu voru leiknir 47 leikir á
vegum Knattspyrnuráðs Akureyr-
ar. KA sigraði í 17 leikjum og
skoraði 59 mörk, en Þór fór með
sigur af hólmi í 13 leikjum og
skoraði 57 mörk. Alls lyktaði 17
viðureignum Akureyrarfélaganna
með jafntefli. Þór varð Akureyr-
armeistari sjötta, fjórða og þriðja
flokki, en KA í fimmta, öðrum og
kvennaflokki. Ekki fengust úrslit í
meistaraflokki, þar sem aðeins
var leikinn einn leikur, en í honum
sigraði Þór. I sumar var komið á
laggirnar sérstakri bikarkeppni
fyrir lið sjötta flokks. Lyktaði
leiknum með jafntefli, en Þór náði
síðan að sigra í aukaleik með einu
marki gegn engu.
Það setti leiðinlegan svip á
þetta lokahóf, hve fáir leikmenn
voru mættir. Af þeim sex flokkum,
sem veitt voru verðlaun fyrir Ak-
ureyrarmót, voru aðeins mætt
fullskipuð lið í þremur, og í tveim-
ur flokkanna mátti m.a.s. telja
iiðsmenn á fingrum annarrar
handar. Það sama má segja um
leikmenn meistaraflokkanna.
Hófið var því mjög litlaust og
verður íð telja aðalorsök fyrir
þessari mannfæð í Borgarbíói á
laugardaginn þá, hversu hræði-
lega illa umrædd samkoma var
auglýst. Þessu verður að breyta.
Lokahóf Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar ár hvert þarf að laða að
bæði leikmenn og knattspyrnu-
unnendur í bænum, en ekki að
vera einhver leynisamkunda. Það
er staðreynd, að t.d. margir leik-
menn yngri flokkanna hreinlega
vissu ekki um hófið.
— sh.