Morgunblaðið - 27.10.1981, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
t
Móöir okkar,
ÓLAFÍA G. ÁRNADÓTTIR
andaöist í Landakotsspítala 25. október.
Hebba Herbertsdóttir, Hrefna Herbertsdóttir,
Gerða Herbertsdóttír, Geir Herbertsson.
Eigínmaöur minn, + ENGILBERT JÓNSSON,
byggingarfulltrúi í Grindavík,
er látinn. Jóhanna Emarsdóttir.
t
Faöir okkar, tengdafaöir, bróöir og afi,
GUÐJÓN JÓNSSON,
frá Hvoli, Olfusi,
Skúlaskeiði 36, Hafnarfiröi,
lést í St. Jósefsspitala, Hafnarfiröi, aö morgni hins 26. okt.
Fyrir hönd vandamanna, Salvör Jónsdóttir
og börn hins látna.
t
Konan mín og tengdamóöir,
SIGRÍÐUR BOGADÓTTIR,
Hólavallagötu 9,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 27. október kl.
13.30.
Jón Halldórsson,
Donald F. Ream.
t
Móöir okkar,
ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR,
vistmaður á Grund,
áður Háaleítisbraut 85,
veröur jarðsett frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 27. október kl.
1.30.
Börnin.
t
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
BJÖRNS SNÆBJÖRNSSONAR
stórkaupmanns,
Barmahlíð 31, Reykjavík,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. þ.m. kl. 13.30.
Þórdís Ófeigsdóttir,
Arnljótur Björnsson,
Lovísa Sigurðardóttir og barnabörn.
t
Jarðarför eiginkonu minnar,
JÓNU JÓNSDÓTTUR,
Hringbraut 89,
er andaöist 19. þ.m., veröur gerö frá Frikirkjunni i Reykjavík miö-
vikudaginn 28. okt. kl. 15.00.
Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlega láti líknarfélög njóta
þess.
Eggert G. Þorsteinsson.
t
Eiginmaöur minn,
VALDIMAR ÞÓRHALLUR KARL ÞORSTEINSSON,
Sörlaskjóli 60,
varö bráökvaddur að morgni mánudagsins 26. okt. sl.
Sigrún Guöbjörnsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóöir, amma, langamma og systir,
ANNA LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgarholtsbraut 72, Kópavogi,
veröur jarösungin frá Kópavogskirkju miövikudaginn 28. október
kl. 1 30.
Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Jóhannsson, Gréta Geirsdóttir,
Guðjón Jóhannsson, Guðrún Benediktsdóttir,
Eyvindur Jóhannsson.Ólavía K. Guðmundsdóttir.
Kristjón I. Kristjáns-
son — Minningarorð
Fæddur 25. september 1908
Dáinn 18. október 1981
Kristjón Kristjánsson, fyrrum
bifreiðarstjóri forseta Islands, eða
Kristjón á Bessastöðum eins og
hann var oft kallaður, lést á Sól-
vangi í Hafnarfirði hinn 18. þessa
mánaðar. Fæddur var hann 25.
september 1908 og var því 73 ára
er hann andaðist. í dag fylgjum
við honum til grafar á Bessastöð-
um. Þeim, sem þekktu Kristjón,
mun ekki koma á óvart að þar
hafði hann kosið sér hinsta hvílu-
reit, slíku ástfóstri sem hann
hafði tekið við þann stað.
Kristjón var Snæfellingur, son-
ur hjónanna Kristjáns Pálssonar
og Danfríðar Brynjólfsdóttur í
Traðarbúð í Staðarsveit. Þau hjón
eignuðust sautján börn sem flest
komust á legg. Það lætur að líkum
að í slíkri fjölskyldu hleyptu börn-
in heimdraganum undir eins og
þau gátu farið að vinna fyrir sér
sjálf. Það gerði Kristjón. Innan
við tvítugt fór hann suður, tók bif-
reiðastjórapróf og gerðist leigubíl-
stjóri í Reykjavík um nokkurra
ára skeið. Árið 1941 réðst hann til
Sveins Björnssonar ríkisstjóra og
síðar forseta íslands sem bifreið-
arstjóri hans og fluttist með hon-
um til Bessastaða á Álftanesi þeg-
ar þar að kom. Er ekki ofmælt að
þá hæfist ævistarf hans. Hann
gekk í þjónustu ríkisstjóra og síð-
ar forsetaembættisins í blóma
aldurs síns, og því starfi gegndi
hann sem forsetabílstjóri og
seinna einnig sem ráðsmaður á
staðnum óslitið meðan kraftar
entust. Þrotinn að heilsu varð
hann að láta af þessu starfi sínu
árið 1976 og hafði þá gegnt því í 35
ár samfleytt, stundum einn síns
liðs, stundum við annan mann.
Eftir þessa löngu vist hjá forseta-
embættinu var Kristjón orðinn
þjóðþekktur maður, flestir lands-
menn könnuðust við Kristjón á
Bessastöðum, og ófáar eru mynd-
irnar þar sem hann sést standa
einkennisklæddur við forsetabíl-
inn, þolinmóður og reiðubúinn
bíðandi eftir húsbónda sínum. Ef
slíkt er til einhvers ávinnings
metið er því engin hætta á að
mynd Kristjóns hverfi af
oftnefndum spjöldum sögunnar í
bókstaflegum skilningi þeirra
orða.
Og mynd Kristjóns mun ekki
heldur hverfa úr huga þeirra sem
honum kynntust. Persónulegir
eiginleikar hans munu sjá til þess.
Vil ég þá öðru fremur nefna
hversu einlæglega hann gekk upp í
starfi sínu og hvé mjög hann fann
til þeirrar ábyrgðar sem hann bar
á lífi og limum forsetahjóna og
fjölskyldu þeirra og lét sér vakinn
og sofinn umhugað um velferð alls
þess fólks. Þá bar hann og virð-
ingu staðarins á Bessastöðum
mjög fyrir brjósti. Allt þetta tók
hann mjög alvarlega, svo að mér
er ekki grunlaust um að það hafi
átt sinn þátt í að á honum sáust
slitmerki nokkuð svo fyrir aldur
fram. Ást hans á starfi sínu og
forsetasetrinu var mikil og einlæg.
Stundum heyrðist sagt að hann
ætti jafnframt til að vera nokkuð
heimaríkur þar á staðnum. En
trúmennska hans og háttvísi sem
forsetabílstjóra var óbrigðul og
hjálpsemi hans við forsetafjöl-
skylduna á hverjum tíma var
óþrjótandi.
Húsbóndahollusta var aðals-
merki Kristjóns Kristjánssonar.
Þess er mér ljúft að minnast nú
þegar ég hugsa til langra samvista
okkar á Bessastöðum. Ég og fjöl-
skylda mín kveðjum dyggan þjón-
ustumann með þakklæti og vin-
arhug. Konu hans og heilladís,
Guðbjörgu Þorsteinsdóttur, og
allri fjölskyldu þeirra sendum við
samúðark veðj u r.
Kristján Eldjárn
Kristjón Kristjánsson fyrrum
forsetabílstjóri andaðist á Sól-
vangi í Hafnarfirði 18. þ.m. 73 ára
að aldri.
Kristjón var fæddur 25. sept-
ember 1908 að Traðarbúð í Stað-
arsveit. Foreldrar hans voru hjón-
in Danfríður Brynjólfsdóttir og
Kristján Pálsson. Þau eignuðust
17 börn og var Kristjón fimmti i
röðinni.
Ungur að árum fluttist Kristjón
til Reykjavíkur og gerðist at-
vinnubílstjóri á Bifreiðastöð
-Steindórs og síðar á BSÍ. Síðan
fluttist hann að Bessastöðum og
gerðist bifreiðastjóri þar
1941-1976.
Kristjóni varð 5 barna auðið,
elsta dóttirin Kristín er búsett í
Ameríku. Hann var tvíkvæntur.
Með fyrri konu sinni átti hann
einn son Pál Braga, hann er
kvæntur Stefaníu Pétursdóttur og
eiga þau fjögur börn. Seinni kona
hans er Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Greinargerð Útvarpsráðs
vegna sænsku myndanna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning frá ÍJtvarps-
ráði:
Vegna síendurtekinnar rangtúlk-
unar á kaupum sjónvarpsins á rétti
til sýningar sænskra kvikmynda,
þykir rétt að taka eftirfarandi fram:
Sjónvarpið hefur gert samning
um að greiða um kr. 120.000,- á ári í
5 ár fyrir eftirfarandi réttindi:
Sjónvarpið getur á næstu 20 árum
valið til sýningar úr 362 sænskum
kvikmyndum frá tímabilinu 1907—
1970, og má endursýna einstakar
myndir eins oft og óskað er eftir.
Ljóst er að meðal myndanna má
finna jafnt viðurkennd listaverk
frægustu kvikmyndaleikstjóra Svía
sem og skemmtimyndir af ýmsu
tagi og fræðslumyndir.
Fyrir samtals kr. 600.000.- fæst
þessi réttur í 20 ár, sem er 5 árum
lengri tími en sjónvarpið hefur
starfað. Það er svipuð upphæð og
kostað getur að framleiða eitt með-
aldýrt sjónvarpsleikrit.
Sagt er, að verið sé að demba tug-
um ef ekki hundruðum sænskra
mynda yfir landsmenn, væntanlega
á næstu vikum eða mánuðum!
Staðreynd er hiiis vegar að samn-
ingur þessi verður jafnhagstæður
innkaupum á hagkvæmustu bíó-
myndum, þótt ekki verði valdar til
sýninga meira en 4 eða 5 af mynd-
unum á ári hverju.
Og gæti það ekki talist hagkvæmt
eftir svo sem 10 ár að gera gengið að
frægri sænskri kvikmynd til sýn-
ingar án þess að þurfa á þeim tíma
svo mikið sem hugsa um greiðslu
fyrir?
ættuð frá Vestmannaeyjum og
áttu þau þrjú börn: Steinu Krist-
ínu gift Lárusi Jóhannssyni, eiga
þau tvær dætur, Danfríði, heit-
bundna Sverri Jónssyni, eiga þau
einn son og Kristján Brynjólf, sem
lést 14. janúar sl., aðeins 18 ára að
aldri. Við hugsum til Guðbjargar
og barnanna og þökkum þeim
hvað þau hafa reynst honum vel í
hans veikindum.
Margs er að minnast og margt
að þakka þegar við kveðjum
Kristjón, svo vel reyndist hann
okkur alltaf.
Ástvinum öllum færum við á
þessari stundu samúðarkveðjur og
biðjum þeim allrar blessunar.
Við minnumst Kristjóns með
hlýhug og virðingu. Blessuð sé
minning hans.
Fjölskyldan Sólheimum 32,
Reykjavík.
Kristjón I. Kristjánsson var for-
setabílstjóri þau 16 ár sem við
þekktum til á Bessastöðum. Raun-
ar var hann miklu meira en bíl-
stjóri, því að með réttu má segja
að hann hafi borið velferð staðar-
ins svo fyrir brjósti, að hann vann
það sem gera þurfti, eins og góður
bóndi búi sínu. Hami unni staðn-
um og forsetaembættinu og gaf
þeim af heilum hug alla sína
starfsorku um meir en þriggja
áratuga skeið. Kristjón réðst sem
bílstjóri til Sveins Björnssonar
ríkisstjóra árið 1941. Starfaði
hann síðan óslitið á Bessastöðum í
tíð þriggja forseta, þeirra Sveins
Björnssonar frá 1944 til 1952, Ás-
geirs Ásgeirssonar frá 1952 til
1968 og Kristjáns Eldjárns frá
1968 til 1976, en þá lét Kristjón af
störfum.
Við vorum enn á bernskuskeiði,
er við kynntumst Kristjóni, þegar
afi og amma fluttust til Bessa-
staða. Kristjón tók okkur þá strax
eins og hann ætti í okkur hvert
bein og spjallaði við okkur eins og
gamla félaga. Hann var glettinn
og talaði tæpitungulaust. Hann
sýndi okkur slíkt traust, að við
kepptumst við að fá að ganga í
verk með honum. Þessi vinátta
treystist enn, þegar sonur Krist-
jóns bættist í hópinn. Þá eltu fjór-
ir strákhvolpar Kristjón hvert
sem hann fór, og hafa eflaust
þvælst fyrir og truflað verkmann-
inn að störfum. En aldrei brást
þolinmæði Kristjóns og alltaf
hafði hann lag á að láta okkur
heldur verða að liði. Það var okkur
holl lífsreynsla að kynnast því,
hvernig þessi maður vann, natni
hans og hugulsemi við hvert verk.
Hann var sívinnandi allt það sem
honum þótti stuðla að sóma og
reisn staðarins. Greiðvikni og
hjálpsemi Kristjóns var viðbrugð-
ið.
Kristjón var mikill bóndi í sér.
Hann hafði yndi af skepnum og
sérstakt lag á að umgangast þær.
Nokkrar kindur átti hann, sem
hann hirti ásamt kindum afa.
Þeim, sem komu í fjárhúsið bar
saman um að vart sæju þeir ann-
ars staðar vænna fé eða betur
hirt. Margar voru ánægjustund-
irnar sem við áttum með Kristjóni
í kindastússi og í fjárhúsinu, þeg-
ar hann dittaði að jötum og grind-
um. Allt varð snyrtilegt og hag-
anlegt, sem hann fór höndum um.
Við vorum tíðir gestir á heimili
Kristjóns, þar sem hans ágæta
kona, Guðbjörg, reiddi fram góð-
gerðir í sísvanga strákana. Þau
bjuggu fyrst í lítilli risíbúð á „Bú-
inu“ sem svo var kallað, en flutt-
ust síðan í nýtt hús, er reist var
þar í grennd. Heimili þeirra Guð-
bjargar var smekklegt og hlýlegt,
og virtust þau hjónin bæði hafa
sama metnað fyrir hönd forseta-
embættisins og reisn Bessastaða.
Oft heyrðum við afa og ömmu
tala um að Kristjón væri ómetan-
legur fyrir Bessastaði. Traustari
og samviskusamari ráðsmann var
ekki hægt að fá.
Ásgeir, Sigurður og Sverrir.