Morgunblaðið - 07.11.1981, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
Sýna á
Selfossi
I>ESSIR sex myndlistarmenn
sem standa hér við verkin sín
opna á laugardaginn 7. nóvem-
ber myndlistarsýningu í Safna-
húsinu á Selfossi.
Þau sem þarna sýna eru:
Páll ísaksson, Sigurður Sól-
mundarson, Páll S. Pálsson,
Hreggviður Hermannsson,
Elfar Þórðarson og Svava Sig-
ríður Gestsdóttir.
Söngskólinn f Rvík:
Flóamarkaður
á sunnudaginn
NEMENDPR og kennarar Söngskólans í
Reykjavík halda flóamarkað á sunnudaginn,
hinn 8. nóvember næstkomandi. Markaðurinn
er haldinn til ágóða fyrir húsakaup Söngskól-
ans, og verður haldinn í Iðnskólanum í Reykja-
vík, Vitastígsmegin.
Samkvæmt upplýsingum söngskólafólks,
mun kenna margra grasa á flóamarkaðnum
að þessu sinni, húsgögn, leirtau, raftæki, fatn-
aður, lukkupokar, happdrætti og nýjar heima-
bakaðar kökur munu verða meðal þess sem
fólki stendur til boða. Síðan segir í frétt
Söngskólans: „Hefur flóamarkaður Söngskól-
ans fengið orð á sig fyrir að vera einhver sá
glæsilegasti í borginni og þó víðar væri leitað,
og ekki spillir fyrir að verðið er hreint ótrú-
lega lágt.
Söngvarar annast sjálfir afgreiðslu, svo það
verður eflaust glatt á hjalia á flóamarkaði
Söngskólans á sunnudaginn.“
Þuríður Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson í kostulegum gervum á
einni af fjáröflunarskemmtunum Söngskólans í Reykjavík. A
sunnudaginn ætlar skólinn að afla fjár á flóamarkaði.
Basar Blindra-
félagsins
að Hamrahlíð 17
Unnið að undirbúningi basars Blindrafélagsins.
Prestafélag Suðurlands:
Ræða stöðu synodunnar
innan þjóðkirkjunnar
PRESTAFÉLAG Suðurlands efnir
næstkomandi mánudagskvöld til
fundar og verður hann haldinn í
Hveragerðiskirkju. Verður þar fjallað
um efnið staða synodunnar innan
kirkjunnar. Frummælendur eru sr.
Guðmundur Oskar Olafsson í Skál-
glæða áhuga presta á öllu því er að
prestsþjónustu lýtur. Efnir félagið
árlega til nokkurra funda til að ná
þessum markmiðum sínum. Fund-
urinn n.k. mánudagskvöld hefst kl.
20:30.
HINN árlegi basar Blindra-
félagsins verður haldinn í
dag, laugardag, að Hamra-
hlíð 17 og hefst hann kl. 14.
Fundir hafa verið haldnir
reglulega einu sinni í viku þar
sem fólk hefur komið saman
til vinnu. Bæði blindir og sjá-
andi hafa unnið af kappi við
að prjóna, sauma og föndra
þannig að allt mögulegt verð-
ur á boðstólum.
Eins og venjulega verða
ýmsir munir til sölu, m.a.
prjónles, jóladúkar, föndur,
tilbúinn fatnaðut og margt
fleira. Einnig verður köku- og
jafnvel pottablómasala að
ógleymdu hinu vinsæla happ-
drætti. Hafist hefur verið
handa við byggingarfram-
kvæmdir að Hamrahlíð 17 og
því mikil þörf fyrir fjárhags-
lega aðstoð.
holti o(> sr. Gunnar Krisljáns.son á
Rcynivöllum. Að loknum erindum
þeirra verða síðan umræður.
Fyrir nokkru var haldinn aðal-
fundur félagsins og fór hann fram í
Skálholti. Flutti þar sr. Kristján
Búason dósent fyrirlestur um nauð-
syn ritskýrinf;ar hins gríska texta
til undirhúnings við prédikun.
Stjórnaði hann einnig hópvinnu þar
sem skoðaðir voru prédikunartextar
með þeirri aðferð sem hann hafði
kennt í fyrirlestrum sínum. Segir í
frétt frá Prestafélaginu að fund-
armenn hafi vepið á einu máli um
ágæti þessa efnis. í lok aðalfundar-
ins var kjörin stjórn ok skipa hana
sr. Frank M. Halldórsson formaður,
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson gjald-
keri og sr. Kjartan Orn Sif?ur-
björnsson gjaldkeri.
Nú eru liðin 44 ár frá stofnun
Prestafélans Suðurlands, en til-
t;anfíur félaf>sins er að auka og
Höfðingleg gjöf
til Víkverja
ÓSKAR Kristinsson, skipstjóri á Sig
urbárunni, sem strandaði við ósa
Jökulsár á Sólheimasandi í marz-
mánuði sl. afhenti fyrir skömmu
Birni Friðrikssyni, formanni björg-
unarsveitarinnar Víkverja í Vík í
Mýrdal 10.000 krónur, sem þakklæt-
isvott fyrir björgunarstörf á sínum
tíma.
Óskar sagði við það tækifæri, að
Víkverjar hefðu brugðið mjög vel
og skjótt við og ættu mikið þakk-
læti skilið. Björn, formaður Vík-
verja, sagði, að þetta væri mjög
höfðingleg gjöf, sem myndi án efa
hvetja þá Víkverja til dáða í fram-
tíðinni. — „Við höfum hins vegar
tekið þá ákvörðun, að verja þessum
peningum til talstöðvakaupa, en
eins og mörgum er kunnugt um, þá
skal allsherjarbreytingu á tal-
stöðvum hér á landi vera lokið
fyrir næstu áramót, svo þetta er
óneitanlega kærkomin aðstoð frá
Óskari," sagði Björn Friðriksson,
formaður björgunarsveitarinnar
Víkverja, sem er sveit í Slysa-
varnafélagi íslands.
Ljósm. Kristján
Ljósprentun í fullri stærð af „Guernnica" Picassos — fyrir framan það
situr danski listfræðingurinn Gertrud Kobke Sutton og heldur á mynd
af Picasso.
Listasafn alþýðu:
Heimildasýning um
„Guernica“ Picassos
IIEILDARSÝNING um hið heimsþekkta listaverk „Guernica" eftir
Pablo Picasso verður í Listasafni alþýðu dagana 7. til 29. nóvember en
sýningin kemur hingað fyrir milligöngu danska listfræðingsins Gertrud
Kubke Sutton. Fyrirhugað er að sýningin fari til Akureyrar í desember.
„Guernica", hið umfangsmikla
listaverk eftir Picasso, hefur að
undanförnu verið til umfjöllunar
í heimspressunni. Bæði er að
verkið, sem hefur varðveitt í
Museum of Modern Art í New
York, var afhent til Spánar ný-
verið og svo að hinn 25. okt. sl.
var 100 ára fæðingarafmæli Pic-
assos, en hann lést árið 1973, 92
ára að aldri.
Sýningin um „Guernica" bygg-
ist á ljósprentun af málverkinu í
fullri stærð ásamt ljósmyndum
af skissum af verkinu, ljósmynd-
un af framvindu við gerð mál-
verksins og ýmsu öðru myndefni
sem tengist „Guernica“. Itarlegt
textaefni fylgir sýningunni og
fjallar einkum um vandamál sem
Picasso glímdi við til þess að
koma boðskap sínum og tilfinn-
ingum sem bezt á framfæri.
Sköpunarferill verksins er rak-
inn í réttri tímaröð bæði í mynd-
um og texta. Eftirfarandi er haft
eftir Picasso: „Málaralist er ekk-
ert annað en rannsóknir og til-
raunir. Eg mála aldrei mynd með
það fyrir augum að hún sé lista-
verk. Myndir mínar eru allar til-
raunir. Ég rannsaka og það ligg-
ur rökréttur þráður í gegn um
allar mínar myndir. Ef til vill
verður einhver þakklátur fyrir
það einhvern tíma.“
Á sýningartímanum mun Ger-
trud Kobke Sutton flytja fyrir-
lestra um „Guernica" og Picasso
og auk þess um málarann Zoran
Music. Fyrirlestrarnir verða
auglýstir síðar.
I tilefni af sýningunni gefur
Listasafn alþýðu út rit um
„Guernica" eftir Jens Eris
Sorensen sem inniheldur þrjár
ritgerðir. Þá hefur verið unnið ít-
arlegt kennsluefni fyrir skóla-
kerfið til að auðvelda nemendum
að skoða og skilja efni sýningar-
innar. Höfð verður samvinna við
skólakerfið um skipulag
skólaheimsókna.
Aðalfundur SSVK
Borgarnesi, 4. nóvember.
AÐALFIINDUR Samtaka sveitarfé-
laga í Vesturlandskjördæmi verður
haldinn í Munaðarnesi 6. til 7. nóv-
ember nk. Von er á 60 fulltrúum frá
þeim 39 sveitarfélögum, sem standa
að samtökunum.
Aðalmál aðalfundarins verða að
þessu sinni vegamál á Vesturlandi
og iðnþróunarmál. Pallborðsum-
ræður verða um vegamálin, með
þátttöku alþingismanna Vestur-
landskjördæmis og fulltrúum frá
Vegagerð ríkisins og SSVK. Ólaf-
ur Sveinsson hagverkfræðingur,
sem ráðinn hefur verið iðnaðar-
ráðunautur samtakanna, mun
gera grein fyrir störfum sínum til
þessa að iðnþróunarmálum kjör-
dæmisins. Sigurður Þórólfsson úr
Saurbæjarhreppi er formaður
SSVK og Guðjón Ingvi Stefánsson
er framkvæmdastjóri. Skrifstofa
samtakanna er í Borgarnesi.
Helgi.