Morgunblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 „Síðasta blómið“ komið út hjá Helgafelli Gefið út í tilefni 80 ára afmælis Magnúsar heitins Ásgeirssonar í TILEFNI áUræðisafmælis Magn- úsar heitins Asgeirssonar, 9. nóv- emher, hefur Ilelgafell gefið út „Síðasta blómið“, dæmisögu í myndum James Thurbers, sem tengi hefur verið ófáanleg í þýð- ingu Magnúsar. Á bókarkápu segir m.a.: „Ein skemmtilegasta þýðing, sem Magnús Ásgeirsson gerði, er Síð- asta blómið eftir ameríska rit- höfundinn og teiknarann James Thurber. Þýðingin hefur lengi verið ófáanleg með myndum Thurbers, sem standa textanum ekki að baki. Með þessari útgáfu kemur hvorttveggja til skila, einfaldar, makalausar teikn- ingar Thurbers og snilldarþýð- ing Magnúsar. Húmoristinn Thurber var fáum líkur; hann átti þá náðar- gáfu að vera fyndinn án þess að virðast reyna til þess. Yfirleitt verður ekki sagt, að hann líti hátterni mannsins með velþókn- un eða framtíð hans björtum augum. Eitt helzta yrkisefni hans var það, sem hann kallaði „Styrjöld karls og konu“. Hann segir einhvers staðar: „Maðurinn er á hraðri leið til tortímingar, en konan ætlar ekki að fara með honum." I Síðasta blóminu ríkir bjartsýni þrátt fyrir allt. Hér sigrast lífið aftur og aftur á þeim höfuðóvini sínum, sem er stríðsþorsti mannsins." Verslunin Kjötborg hf. á 25 ára afmæli í dag, en hún var stofnuð 6. nóvember 1946. Aðaleigandi og verzl- unarmaður er Jónas Gunn- arsson, og sagði hann í sam- tali við Mbl. í tilefni afmælis- ins, að búðin hefði frá stofn- un og þangað til í júní sl. verið til húsa í Búðargerði 10 en síðan flutt að Ásvallagötu 19 í sumar. Jónas sagði aðspurður, að það hefði verið töluvert átak fyrir sig, að taka allt sitt hafurtask í Búð- argerði í vor og flytja það á Ás- vallagötuna. — „Það var bara ekki um annað að ræða, því hús- næðið var selt ofan af okkur inn- Ljósmynd Mbl. Kristján. Jónas ásamt starfsfólki sínu. Kjötborg hf. 25 ára frá. Reyndar má segja það eftir á, að þessi breyting hafi verið bráð- nauðsynleg. Það er mjög gott að skipta um umhverfi," sagði Jón- as. „Okkur var spáð hálfgerðum hrakförum við þennan flutning. I þessu hverfi væri farið að fækka svo mjög íbúum þannig að það yrði varla mikil verzlun. Þetta reyndist alrangt, því verzlunin hér er nokkru meiri heldur en hún var inni í Búðargerði. Verzl- unarhúsnæði hér er hins vegar nokkru minna." Hvernig er afkomu svona lítill- ar matvöruverzlunar háttað í dag? — „Þetta er stöðugur barn- ingur eins og endranær. Maður verður að vera í búðinni allan daginn, og þegar starfsfólkið fer heim tekur við skrifstofuvinnan og fleira, þannig að vinnudagur- inn getur verið býsna langur. Annars er enginn rekstrar- grundvöllur fyrir 'litlar matvöru- verzlanir nema hafa mjög gott starfsfólk og vinna myrkranna á milli og þannig er það einmitt hjá mér. Eg hef haft mjög gott starfsfólk í gegnum tíðina og það kom allt með mér úr Búðargerð- inu í sumar. Hér starfa auk mín, tveir í fullu starfi og tvær konur í hálfu starfi," sagði Jónas. Hver er þá aðalvandi þessara litlu verzlana? — „Hann er fyrst og fremst sá, að álagningarreglur eru rangar. Það er lítil sem engin álagning á vísitöluvörunum svo- kölluðu, en þær eru uppistaðan í þessum verzlunum, eða um 50—60% hjá mér. Að mínu mati á að jafna álagninguna, þannig að hún hækki á vísitöluvörunum, en lækki á svokölluðum hilluvör- um. Það þarf ekki að hækka heildarálagningu verzlana að mínu mati, heldur aöeins jafna hana til að gera starfsgrundvöll- inn jafnari. I stórmörkuðunum eru vísitöluvörur aðeins hverf- andi hluti í allri verzlun, þannig að þeir standa mun betur að vígi. Nú í tilefni afmælis verzlunar- innar verðum við svo með góðan afslátt á mörgum nýlenduvörum næstu 10 dagana," sagði Jónas Gunnarsson kaupmaður í Kjöt- borg hf. að síðustu. UNGIR SJALFSTÆÐISMENN SKRIFA Hvað er stjórnmálastefna? Hver er munurinn á því að vera kommúnisti eða kapítalisti eða eitthvað þar á milli, eða yfir- leitt ekki neitt? Skiptir þetta allt saman kannski engu máli, er ekki best að vera bara hlutlaus? Er það hlutleysi ef háseti á skipi sér að skipið stefnir á ís- jaka en gerir samt ekkert til að afstýra árekstri, þó hann hefði getað. Ekki er ég viss um, að þeir, sem voru á Titanic, hefðu kallað það hlutleysi. Hlutleysi má því skoða sem afstöðu, er miðar að því að við- halda ríkjandi ástandi eða stefnu með aðgerðaleysi. Hlutleysi í stjórnmálum er stefnuleysi og því engin lausn. Ef menn treysta ekki sjálfum sér til að ákveða hvers konar stjórnarfar þeir búa við, hverj- um treysta þeir þá? Það skiptir vitanlega miklu máli hvers konar stjórnarfar við búum við sjálfra okkar vegna, þjóðfélagsins vegna og síðast en ekki síst afkomenda okkar vegna. Hvert er þá takmark stjórn- málastefna? Að slepptum öllum smáatriðum og málfræðigrúski keppa allar stjórnmálastefnur að sama marki — bættum lífsskilyrðum allra stétta, til lengri tíma litið. Hins vegar er munurinn á hinum ýmsu stjórnmálastefn- um sá, að þær velja mismun- andi hagfræðilegar leiðir að þessu sama takmarki. Stjórn- málastefnur mótast því af þeim hagfræðilegu leiðum sem stjórnmálaflokkar kjósa að fara til að ná bættum lífskjörum ailra stétta til lengri tíma litið. Þá er spurningin hvaða stjórnmálastefnum hafi tekist þetta best. Reynslan er best til frásagnar af því hvar best hefur tekist til og þá um leið besta aðferðin til að segja til um hvað sé æskilegast í framtíðinni. Augljós munur Það liggur nokkuð ljóst fyrir, hvar illa hefur tekist til og hvar vel, það vita þeir best, sem ferð- ast hafa um lönd með ólíku skipulagi. Sumar þjóðir hafa gripið til örþrifaráða til að vernda og viðhalda sinni stjórnarstefnu s.s. Sovétríkin og reyndar flest öll austantjaldsríkin. Dælt er í þjóðina einstefnuáróðri í öllum fjölmiðlum þannig að þegnarnir fá ekki tækifæri til samanburð- ar, hvernig til hefur tekist ann- ars staðar á jörðinni eða gripið er til beinna aðgerða, s.s. mönnum er meinað að fara úr landi með einum eða öðrum hætti. Berlínarmúrinn er skýr- asta dæmið um viðurkenningu austantjaldsþjóða á að þær hagfræðilegu leiðir, sem þessar þjóðir hafa kosið að fara að bættum lífskjörum allra stétta til lengri tíma litið, hafa gjör- samlega brugðist. Fólkið, sem var í Austur- Berlín vissi þetta best og kaus því að flytja þaðan — og því var gripið til þessara aðgerða — að múra fólkið einfaldlega inni fyrir austan til að koma í veg fyrir algjört hrun þar. Sovétríkin og Japan stóðu í svipuðum sporum í upphafi þessarar aldar. Japanir kusu markaðskerfið og hafa ekki einungis öðlast bestu lífskjör í Asíu heldur lagt undir sig hina ýmsu markaði víða um lönd, skýrasta dæmið er bílamarkaðurinn nú. Þetta er einungis afleiðing af þeirra markaðskerfi, sem gerir þeim þetta kleift. Sovétmenn völdu hins vegar ríkisforsjána og hafa aldrei get- að framleitt vörur, sem stand- ast sambærilegar vörur vestan- tjalds eða í Japan og standa mörgum árum á eftir Vestur- löndum og Japönum á öllum sviðum. Þau þjóðfélög þar sem ríkis- forsjánni hefur verið þröngvað á hafa verið langt að baki þeim þjóðum, sem kosið hafa mark- aðskerfi, þar sem einstaklings- framtakið og atvinnufrelsið fær notið sín, hvað varðar bætt lífskjör allra stétta til lengri tíma litið. Áhrif vinstrisinna Þá er spurningin hvers vegna vinstrimönnum og sósialistum hafi tekist að ná þeim völdum sem raun ber vitni hér á landi og sumstaðar annarstaðar, þar sem miðstýring og ríkisforsjá er þeirra leiðarljós. Orsakir þess eru sjálfsagt margar en helstar eru þó þær, að þeir beita snilldarlegum áróðursaðferðum, þrælskipu- lögðum langt fram í tímann, sem lýðræðissinnað, frjálslynt fólk virðist ekki hafa áttað sig á. Hinsvegar virðist sem sjálf- stæðismenn hafi alls ekki túlk- að stefnu sína, sem byggir á frelsi og framtakssemi einstakl- ingsins og. atvinnufrelsi, sem skyldi, þó að sagan hafi marg- sannað gildi hennar. Helstu baráttumál friðarsósíalista nú, eru friður á jörð, allir eiga að vera góðir við alla. Þetta er vissulega göfug hugsjón, en það Gúmmí- tékki á fram- tíðina dugar ekki að beita þeim að- ferðum í þeirri baráttu, sem leiða af sér hið gagnstæða, „ófrið", eins og einhliða afvopn- un hlýtur að gera. Halda menn, að það sé tilvilj- un hvernig farið var með Flug- leiðir? Halda menn, að það sé tilviljun, að hugsunarháttur al- mennings er orðinn þannig, að ef einstaklingum eða fyrirtækj- um gengur vel er það talið af hinu illa? Þeir aðilar hljóti að stela og svíkja undan skatti og svindla á allan hátt, séu sem sagt óþokkar. Það getur ekki verið af því að þeir séu svona atorkusamir og duglegir og beiti hagkvæmum og arðsömum aðferðum í stað óhagkvæmni — nei, nei, það kemur ekki til mála. Afleiðingar alls þessa eru þær, að það eru sífellt færri og færri, sem vilja skara fram úr með eljusemi, dugnaði, hag- kvæmni og keppa að arðsemi, menn vilja ekki lenda á milli tannanna á fólki fyrir dugnað sinn. Það er svo komið að arðsemi- sjónarmið skipta orðið litlu máli hér á landi. Hver kannast ekki við setningar eins og — það skiptir engu máli hvort þetta ber sig eða ekki, við fáum bara ríkisaðstoð. Það er líka takmark ákveðins hóps vinstri- manna, sem felur sig á bak við orð eins og sósíalismi eða fé- lagshyggja að kreppa svo að öllu atvinnulífi, að það þurfi ríkisaðstoð, og yfirtaka síðan allt „draslið" seinna meir, þegar vanskilin eru orðin nógu mikil. Þá verður nú gaman að lifa! Að standast samkeppni Ekki bætir núverandi vísitölu- rugl ástandið. Þessi þróun er ekkert annað en gúmmítékki sem komandi kynslóðir verða að borga á einn eða annan hátt fyrr en seinna. Núverandi kynslóðir í Pól- landi bera slíkan gúmmítékka á herðum sér, sem var skrifaður um leið og það efnahagskerfi var sett á sem þar ríkir nú. Það er til lítils að gera sér grein fyrir staðreyndum, ef menn framkvæma síðan ekki eftir því. Menn ættu að átta sig á því fyrr en seinna, að íslendingar sem og allar aðrar þjóðir jarð- arinnar eiga í gífurlegri og vax- andi samkeppni á hinum ýmsu mörkuðum. Það eru fyrirtæki þessara þjóða sem framleiða vörurnar, sem samkeppnin lendir á, sem þau verða að standast, ef þau eiga ekki að missa markaðshiut- deild, sem myndi þýða minni sölu — minni tekjur þessara fyrirtækja — minni tekjur alls launafólks hjá þessum fyrirtækj- um cða jafnvel atvinnuleysi. Fyrirtæki hér á landi sem annars staðar verða því að hafa fjármagn afgangs til að stunda hinar ýmsu rannsóknir t.d. á aukinni nýtingu og bættum af- urðum til að tæknivæðast og sinna hagkvæmni og arðsemi í hvívetna. Þar með geta þau boðið sam- keppnishæft verð á afurðum sínum og haldið þannig mark- aðshlutdeild, best væri að þau geti aukið söiuna, arðsemina og þar með tekjur sínar og gert það þannig mögulegt að hækka kaup launafólks í landinu. Menn verða að stefna að því að stækka þjóð- arkökuna, því meira er til skipt- anna, en hætta að rífast um það sem ekki er til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.