Morgunblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 21 Basar Kvenna- deildar Styrkt- arfélags lam- aðra og fatlaðra I'KSSl mynd er tekin þegar konur í Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatladra, voru ad leggja síðustu hönd á undirbúning að sínum árlega basar, er haldinn verður á sunnu- daginn kemur, 8. nóv. Basar kvenna- deildarinnar hefur jafnan þótt hinn glæsilegasti og margur dottið í lukkupottinn sem þangað hefur komið. Á myndinni er aðeins lítið sýnishorn af því sem þar verður á boðstólum. Að þessu sinni verður basarinn haldinn í nýbyggingu styrktarfé- lagsins að Háaleitisbraut 11—13, sem nú er á lokastigi. Með tilkomu hinnar nýju byggingar stækkar endurhæfingastöð félgsins veru- lega og aukast því möguleikar fyrir margskonar endurhæfingu og aðstoð við þá sem eru fatlaðir eða lasburða. Kvennadeild styrktarfélagsins hefur ávallt unnið ötullega að framfaramálum félagsins og lagt fram drjúgan skerf til uppbygg- ingar þess. Mörgum er í fersku minni kvikmyndin „Dagur í Reykjadal", sem sýnd var í Sjón- varpinu nýlega og lýsti degi í lífi fatlaðra barna á sumardvalar- heimili félagsins. Ágóða af basar kvennadeildar- innar er m.a. varið til stuðnings við sumardvöl fatlaðra barna og einnig til stækkunar endurhæf- ingarstöðvarinnar að Háaleitis- braut. Auk þess að geta gert góð kaup á basarnum sér diskótekið „Dollý" um músík við allra hæfi og verk- smiðjan Vífilfell hf. mun bjóða öllum basargestum upp á coca- cola og fleiri svaladrykki. (Króltalilkynnin^) Mezzoforte á ísafirði Hljómsveitin Mezzoforte mun leika á tvennum tónleikum að Uppsölum á ísafirði sunnudaginn 8. nóvember. Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 4 á sunnudagseft- irmiðdaginn og þeir síðari kl. 9 um kvöldið. Það er tónlistarklúbbur Menntaskólans á Isafirði sem gengst fyrir komu Mezzoforte til Isafjarðar, og reynt verður að stilla aðgöngumiðaverði í hóf. Myndlista- sýning í Gallerí 32 Einar Þór Lárusson er með myndlistasýningu í Galleríi 32 og er hún opin daglega frail4.00 til 20.00 fram til 12. nóv. Laugardaginn 7. nóv. mun hljómsveitin Ilrím flytja frumsamið efni á sýningunni. herman miller skrifstofuinnréttingar V SKRIFSTOFUTÆKNI HF ARMULA 38.105 REYKJAVIK. SÍMI85455. RO. BOX 272. / « Viö sýnum Ford Mustang og Ford Granada á bílasýningu okkar í dag — opið frá kl. 10—17. Glæsilegir bflar á góðum kjörum A Sveinn Egi/sson hf. SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.