Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 23

Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 23 Thatcher ræðst gegn eyðslusemi og skattagleði sveitarstjórna: Frelsi sveitarstjórna til skattheimtu takmarkað Tókjó, 6. nóvember. AP. STJORN Margrétar Thatcher lagdi í dag fram frumvarp sem kemur til með að skerða frclsi borga- og sveitarstjórna til skattahækkana. Er frumvarpið fram komið vegna lítilla undirtekta sveitarstjórnarmanna við fjármálastefnu brezku stjórnarinnar. Á sama tíma og stjórnin hefur dregið úr opinberum útgjöldum og dregið úr sköttum, hafa bæjar og sveitarstjórnir aukið útgjöld og þá um leið skatta. Ljóst er, að frumvarpið mun mæta mikilli andstöðu hjá bæjar- og sveitarstjórnum Bretlands, sem eru 413 að tölu. „Það á nú að taka af fólkinu þau réttindi að fá Ráðherrann sagði að haldið yrði í gildandi reglur og yrði ekki að vænta breytinga á fiskveiðistefnu stjórnvalda því koma yrði í veg fyrir ofveiði fiskistofna með öllum ráðum. Hins vegar sagði ráðherrann, að það væri stefna stjórnarinnar að láta samtökum sjómanna og út- vegsmanna það eftir að skipta afl- anum. Ráðherrann útskýrði ekki nánar hvað hann ætti við í þessu sambandi. A fundinum gagnrýndi Johan J. Toft formaður Norges Fiskarlag að segja sjálft til um hvernig sveit þeirra skuli stjórnað," sagði talsmaður Lundúnaborgar! Lundúnaborg, sem stjórnað er af vinstrimönnum, hefur hækkað þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka framlag til olíusjóðsins úr 35 milljónum króna í 20 milljónir. Sjóðnum er ætlað að greiða skaða- bætur til sjómanna sem verða af miðum vegna olíuvinnslu Norð- manna við strendur landsins. Toft gagnrýndi einnig áform yf- irvalda um olíuleit við strendur Mið-Noregs. Stjórnin hefur í hyggju að vinna þar olíu árið um kring, en norskir sjómenn halda því fram að olíuvinnsla árið um kring á þessum slóðum sé of áhættusöm vegna illviðra. fasteignaskatta um 25% frá því í sveitarstjórnarkosningunum í maí síðastliðnum. Forstöðumaður vinstrimeiri- hlutans sagðist í dag mundu knýja í gegn aðra 25% fasteigna- skattshækkun eigi síðar en í apríl næstkomandi til að vega upp á móti lækkun fargjalda með neð- anjarðarlestum og strætis- vögnum. Samkvæmt frumvarpi stjórn- arinnar verða sveitarstjórnir að efna til kosninga hver á sínum stað, hyggist þær hækka gjöld umfram leyfilegt hámark sem ríkisstjórnin ákveður. Bæjar- og sveitarstjórnir eru andvígar þessum áformum, hvort sem þær eru skipaðar hægri- eða vinstrimönnum. Búast má við miklum þrýstingi á þingmenn, og næði frumvarpið ekki fram að ganga af þeim sökum, yrði um fyrsta meiriháttar ósigur Thatcher að ræða í þau tvö og hálft ár sem hún hefur stjórnað. Af hálfu stjórnarinnar er von- ast til að frumvarpið verði orðið að lögum fyrir vorið. Andstæð- ingar frumvarpsins halda því fram að það jafngildi stjórn- arskrárbreytingu. ÉRLENT Noregur: Áfram óbreytt fiskveiðistefna Osló, 6. nóvember, frá Jan Erik Laure fréttaritara Mbl. STJÓRN Hægriflokksins hyggst ekki slaka á þeim regluin er gilda um fiskveiðitakmarkanir, að því er Thor Listau sjávarútvegsráðherra sagði á ársfundi Norges Fiskarlag. „Nú get ég keypt nýjan Fiat annan hvern dag“ Erno Kubik ásamt Önnu, þriggja ára gamalli dóttur sinni. Kubik heldur á teningn- um góða, sem nú hefur gert hann að milljónamæringi, einn af fáum austan járntjaldsins. - segir Erno Rubik, höfundur töfrateningsins HVEKNIG fara menn að því að verða milljónamæringar í kommúnistaríki? Ungverski verkfræðingurinn Erno Rubik, höfundur töfrateningsins, sem farið hefur sigurför um heim allan á þessu og síðasta ári, veit svarið við þeirri spurningu. „Nú á ég nóga peninga til að kaupa mér nýjan Fiat annan hvern dag,“ segir Rubik en bætir því við, að það sé að vísu lítill Fiat. Að hans sögn leyfa ungversk stjórnvöld honum að halda eftir 80% af tekj- unum, sem hann hefur af sölu ten- ingsins, en talið er að um 25 millj- ónir teninga hafi selst. Haft er eftir mönnum á Vesturlöndum, sem sjá um sölu teningsins þar, að Rubik sé einn af tíu ríkustu mönnum í Ung- verjalandi og að á síðustu tveimur misserum hafi hann ekki borið minna úr býtum en 14 — 15 milljón- ir ísl. kr. Erno Rubik segir þó, að peningar skipti hann ekki öllu máli. „Ég gæti þess vegna ekið um á Rolls Royce en ég læt mér nægja Volkswagen Golf og í flugvélum geri ég mér að góðu almenn sæti. Ég bý enn í sama húsinu í Budapest og ná- grannarnir, sem þekktu mig ekki áður en ég varð ríkur, þekkja mig ekki enn. Það eina, sem mér finnst nokkru varða, er að búa konu minni og dóttur gott heimili." Rubik fann upp töfrateninginn árið 1974 og fékk þegar í stað einkaleyfi á honum í Ungverja- landi. Hann gerði samning við ungverska leikfangafyrirtækið Polytechnika, sem reyndi að koma teningnum á markað erlendis, en í þeim efnum hvorki gekk né rak fyrstu árin og það var ekki fyrr en á síðasta ári, að æðið greip um sig. í kjölfar þess hafa svo ótal eftirlík- ingar skotið upp kollinum og á Formósu einni hafa t.d. 80 ólögleg- ar eftirlíkingar komið fram í dagsljósið og innflytjendur um all- ar jarðir standa nú í miklu mála- vafstri til að binda enda á þessa iðju. Erno Rubik er höfundur og upp- hafsmaður töfrateningsins en þrátt fyrir það er hann mikill eftirbátur þeirra, sem slyngastir eru í að leysa gátuna. Rubik er nú í París þar sem fram fer alþjóðleg keppni í tenings- þrautinni. Til að taka þátt í henni mega menn ekki vera lengur en 48 sekúndur að raða saman öllum hliðum teningsins og þeir sem eru lengur en 20 sekúndur, eru ekki taldir koma til greina sem verð- launahafar. Rubik sjálfum dugar hins vegar ekki minna en ein mínúta til að greiða úr gátunni, sem hann samdi fyrir sjö árum. Frá kynningu Klúbbs matreiðslumeistara sem stendur um helgina. Ljósm. Rax. Klúbbur matreiðslu- meistara kynnir ís- lenskan og erlendan mat KYNNING á íslenskum og erlendum matvælum stendur nú yfir í Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi. Klúbbur matreiðslumeistara stendur að kynning- unni, sem verður opin í dag og á morgun kl. II—23. Einnig sýna þarna innlendir framleiðendur og innflytjendur matvörur, hráefni til matargerðar og annað í tengslum við matar- gerð. Klúbbur matreiðslumeistara býður sérstakan matseðil úr gam- alkunnum íslenskum mat í nýjum búningi. Meðal rétta eru hvít- vínssoðin bláskel, innbakaðir sæ- sniglar, rækjusúpa, innbakaður lambahryggur, vöðvi og skyrkaka með appelsínum og rjóma. Jón Sigurðsson formaður klúbbsins segir að stefnt sé að aukinni fræðslu í matargerðarlist og að gæðakröfur neytenda á islenskar sjávar- og landbúnaðarafurðir verði að aukast. 14. landsþing FÍB: Vegamál, öryggismál og stofnun ferdaskrif- stofu FÍB efst á baugi LAUGARDAGINN 7. og sunnu- daginn 8. nóvember nk. fer fram á Hótel Borgarnesi 14. landsþing Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Á þingi þessu verða rædd almenn félagsmál FÍB, en stórmál þings- ins eru vegamál, öryggismál og stofnun ferðaskrifstofu FÍB. Vegamálastjóri, Snæbjörn Jónas- son, kemur á þingið og flytur er- indi sem nefnist ný viðhorf í vega- málum. Einnig verða flutt erindi um öryggismál. Til umræðu á þinginu kemur einnig stofnun ferðaskrifstofu FIB, en hlutverk hennar verði aðallega að efla sam- band við systurfélög í nágranna- löndunum, en skandinavisku fé- lögin starfrækja öll ferðaskrif- stofur, og hyggst FÍB með þessu móti skapa sér aðstöðu til þess að veita félagsmönnum greiðari ferðaþjónustu en áður hefur verið. Einkum mun sú þjónusta vera í sambandi við ferðalög í bifreiðum um Evrópu. í sambandi við vega- málin verður ennfremur rætt um skattlagningu á bifreiðir og rekstrarvörur til þeirra. Kristniboðsdagur á morgun ÁRLEGUR kristniboðsdagur er á morgun, en þá er í kirkjum landsins og á samkomum víða minnt á kristniboðsstarf meðal heiðinna þjóða og gjöfum til þess veitt móttaka. Samband ísl. kristniboðsfélaga hefur undanfarin ár starfrækt kristniboð í Konsó í Eþíópíu og ('heparería í Kenýa. Tvenn hjón starfa um ýtessar mundir í Kenýa, en engir Islend- ingar eru við störf í Eþíópíu eins og sakir standa. Þá eru hjón við nám í Osló í vetur til undirbúnings kristniboðsstarfi á vegum SÍK, en sambandið starfar í nánum tengslum við Norska lútherska kristniboðssambandið. I bréfi sem Gísli Arnkelsson formaður SÍK hefur ritað sókn- arprestum til upplýsingar um starfið kemur m.a. fram, að fjöl- margar kirkjur í Eþíópíu eru lok- aðar og kemur fólk saman í heimahúsum „... fólk þráir að hlusta á Guðs orð og æ fleiri taka trú á Krist og láta skírast, þó að það kunni að kosta erfiðleika og ofsóknir, er það játar trú sína opinberlega á þann hátt,“ segir m.a. í bréfinu. Þá segir um starfið í Kenýa, að íslensku kristniboðarnir hafi að- stoðað við að koma á fót barna- skóla, sem á þriðja hundrað börn stundi nám í. Kirkja var vígð í kristniboðsstöðinni fyrir ári og segir að víða um sveitirnar biðji fólk kristniboðana að koma til starfa. Verið er að kanna útvegun fjár til að reisa sjúkraskýli í stöð- inni, en kristniboðsstarfið er borið uppi af frjálsum framlögum vel- unnara þess. SÝHUM1982 ÁRGERÐIRNAR AF TAUNUS OG TRANSIT Sveirrn Egilsson hf., Skeifunni 17. S.: 85100.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.